Dagur - 10.10.2000, Page 5

Dagur - 10.10.2000, Page 5
ÞRIDJUDAGU R 10. OKTÓRER 2000 - S FRÉTTIR Þrengt að lög- legri misnotlmii Breytingar á kvótalög- iiin og nmgengTii uni nytjastofna. Gegn um- framveiði og brott- kasti. Tilfærsla á teg- undum úr 5 í 2% Sjávarútvegsráðherra ætlar á næstu dögum að leggja fram frumvörp til Iaga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og á lögum um umgengni um nytja- stofna sjávar. Frumvörpin stuðla að því að síður sé veitt umfram leyfilegar aflaheimildir og styrkja jafnframt stöðu Fiskistofu til eft- irlits með brottkasti. Athygli vek- ur að sjávarútvegsráðherra hafði ekki samráð við hagsmunaðila í þessu máli né kynnti það form- lega fyrir þeim áður en það var gert opinbert eins og tíðkaðist áður. Grétar Mar Jónsson forseti FFSI segist vera mjög óhress með það. Ráðherra segist ekki hafa gengið undir neitt jarðar- men til að viðhalda einhverjum vinnubrögðum í þessum efnum. Á blaðamannafundi í gær var deilt um vinnubrögð ráðherra. Ur 5 í 2% I frumvarpi til laga um breyting- ar á um lögum um stjórn fisk- veiða er lagt til að ákvæði Iaga um tilfærslu tegunda verði þrengt, eða úr 5% í 2% af heild- arverðmæti botnfiskaflamarks. Ráðherra segist persónulega vera þeirrar skoðunar að útvegsmenn hafi misnotað sér þessa reglu, þótt það hafi verið löglegt. Hann bendir á að þessi heimild hefur fyrst og fremst verið nýtt til þess að auka afla í eftirsóknarverðari tegundum á kostnað annarra. I upphafi hefði tilgangurinn með þessari heimild hins vegar verið sá að skapa sveigjanleika í kerf- inu þannig að síður kæmi til brottkasts þegar fisktegund feng- ist sem viðkomandi bátur hefði ekki aflamark í. Með þessum áformuðu breytingum á að vera hægt að koma í veg fyrir teg- undabreytingar í þeim mæli sem verið hafa án þess að horfið sé frá upprunalegu tilgangi ákvæð- isins. Ráðherra telur að þessi breyting geti þrengt stöðuna hjá útgerðum. Þarna sé hins vegar verið að fórna skammtímahags- munum fyrir langtímahagsmuni. Sem dæmi nefnir hann 5% teg- undafærslan hefur aukið karfa- veiðina um tæplega 50 þúsund tonn sé Iitið til sex síðustu fisk- veiðiára, eða sem nemur nær öll- um karfakvótanum á yfirstand- andi fiskveiðiári. Eftirlit vegna gruns í breytingum á lögum um um- gengni um nytjastofna er lagt til að Fiskistofa nýti upplýsingar um landaðan afla til að beina eftirliti að ákveðnum fiskiskip- um. Það þýðir að Fiskistofa get- ur sett veiðieftirlitsmann um borð í skip til að fylgjast með veiðum þess Ieiki grunur á að stærðarsamsetning, aflasamsetn- ing eða gæði séu frábrugðin afla annarra skipa sem stunda sam- bærilegar veiðar. Þá er kveðið á um það að Fiskistofa greiðir kostnað vegna eftirlitsmanns sé hann um borð í viðkomandi skipi sjö daga eða skemur. Ef ástæða þykir að hafa hann Iengur um borð leggst allur kostnaðurinn á útgerðina frá og með áttunda degi. -GRH Bifhjóiaeigendur og tryggingaféiög eida grátt silfur. Bifhjólaiðgjöld lægri en tfonið Samband íslenskra tryggingafé- laga (SIT) hrekur staðhæfingar bifhjólaeigenda um að iðgjöld séu óeðiilega há. „Alkunna er, að það er fyrst og fremst tjóna- kostnaður vátryggingafélaga í hlutaðeigandi vátryggingum sem ræður iðgjöldum. Iðgjöld í lögboðnum tryggingum vegna bifhjóla (ábyrgðartrygging ásamt slysatryggingu ökumanns og eig- anda) á árunum 1995 til 1999 námu alls 143.8 milljónum króna. Tjón þessara sömu ára námu á hinn bóginn 316 millj- ónum,'1 segir í tilkynningu frá SÍT. Ennfremur segja tryggingafé- lögin: „Erfitt er að átta sig á mál- flutningi bifhjólamanna. Ljóst er að iðgjöld þeirra lækka vart nema dragi úr tjónum þeirra nema þá að bifhjólamenn séu að biðja um að aðrir landsmenn, þ.e.a.s. bifreiðaeigendur al- mennt, taki á sig hækkun ið- gjalda í ökutækjatryggingum og niðurgreiði þannig iðgjöld vegna vélhjólanna.“ -BÞ Tók lærtn með eftír ákeyrslu Jafnvel limlest vegalömb virðast geta endað á sunnudagsborði landsmanna. Ekið var á lamb við bæinn Leir- höfn á Melrakkasléttu um helg- ina. Sá sem fyrir því varð virðist hafa verið svangur í meira lagi því hann skyldi aðeins hluta lambs- ins eftir því hann skar lærin frá og hafði þau með sér. Eigendur lambsins eru þau Þóra Jósefs- dóttir og Kristinn Steinarsson í Reistarnesi á Melrakkasléttu sem eru með um 320 fjár á vetrar- fóðrum. Þóra segir að þegar Kristinn hafi ætlað að fara með lambið í grylju hafi honum fund- ist það óvenju létt og séð að á það vantaði nánast afturhlutann. „Eg hef aldrei vitað til þess að svona hafi verið gert áður, hvorki hér né annars staðar. Það eru all- ir hér mjög gáttaðir yfir þessu og finnst þetta mjög ómannúðlegt. Sá sem þetta gerði hefur haft með sér góðan hníf, svona gerir enginn með vasahníf, enda skar hann þvert yfir hrygginn. Kjötið er aðeins ætt að þetta sé gert strax eftir ákeyrslu. Við verðum alltaf fyrir einhverjum áföllum vegna þess að ekið er á lömb frá okkur, og svo finnast ekki önnur á haustin svo kannski hafa ein- hver þeirra verið hirt f heilu lagi eða hent einhvers staðar þar sem þau finnast ekki,“ segir Þóra Jós- efsdóttir. Grandvar bílstjóri hefur sið- ferðislega skyldu til að tilkynna atburðinn til bóndans ef hann ekur á lamb. Ef aðstæður eru ökumanni óhagstæðar þarf að greiða 7.600 krónur ef um einlembing er að ræða en 6.200 krónur fyrir tvílembing. Hann getur gert það upp við bóndann og þá er málinu lokið, eða gert lögregluskýrslu. Þegar skýrslan kemur til tryggingafélagsins get- ur hann greitt því bótaupphæð- ina til þess t.d. að missa ekki tryggingabónusinn. -GG Sjómaður talinn af Sjómaðurinn sem saknað hefur verið var talinn af í gærkvöld. Ekki gaf á sjó í gær til leitar að skipstjóra rækjubátsins Ingimundar gamla HU frá Hvammstanga sem fórst rctt upp úr hádegi á sunnudag. Leki kom að bátnum, lestin fylltist af sjó og bátnum hvolfdi á innan við 5 mínútum eftir að beðið var um aðstoð. Erfiðlega gekk að skjó- ta út gúmmíbát og er það talin ástæða þess að skipstjórinn gaf sér ekki tíma til að fara í flotgalla eins og hinir tveir skipverjarnir. Fokker Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæöið í gær en þar var norðaustan stinningskaldi, um 30 hnútar, og fannst ekkert utan þess að eitthvað sást af braki. I dag verða gengnar Ijörur norðan Hólmavíkur allt til Gjögurs, og munu hjálparsveitir af svæðinu annast það en fá aðstoð sveita við Húnaflóa verði eftir því leitað. -GG Bullandi tap á kolmuima Nokkur íslensk nótaskip eru enn á veiðum til þess að aífa sér veiðiréttinda áður en til kvótasetningar kemur á kolmunnanum. Veiði íslenskra skipa á árinu nemur um 220 þúsund tonnum. Bullandi tap er á veiðunum vegna Iágs af- urðaverðs og stöðugt hækkandi olíuverðs. Norður-Atlantshafs- fiskveiðinefndin hefur verið að reyna að komast að samkomu- lagi um nýtingu á kolmunna- stofninum og ákveða kvótaskiptinu milli landa. En eins og stundum áður er ekkert samkomulag í augsýn um það hvað hver þjóð á að fá í sinn hlut, og á því hefur strandað. Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins, segir að veiðin sé langt umfram það sem fiskifræðingar telja að veiða megi og ljóst að sú veiðisókn geti ekki gengið til langframa. -GG Eftirlitsmyndavélar að góðum notum í tvígang um helgina komu eftirlitsmyndavélar á höfuðborgarsvæð- inu lögreglu að notum. Hægt var að senda lögreglulið strax á vett- vang með hjálp myndavélanna þegar átök voru að byrja. 1 öðru tilvik- inu hafði maður tryllst á veitingastað og bárust átökin út á götu. Maðurinn var handtekinn skjótt og vistaður í fangageymslu. Hj álpart ækj astuldur Sérkennilegt mál kom upp á laugardag í Reykjavík þegar lögreglu var tilkynnt um þjófnað í verslun sem sérhæfir sig í hjálpartækjum ástar- lífsins. Tveir karlmenn sem þar k'omu stálu „gervisköpum" og „raf- knúnum gervilim" og hlupu svo á brott. „Ekki er vitað hvort viðkom- andi karlmenn hafi verið svo dreymnir með feng sinn að þcir misstu einbeitningu sína en þeir skyldu eftir persónuskilríki sín á staðnum," segir í dagbók lögreglunnar. Tveir fengu reykeitrun Skömmu eftir nnOnætti á mánudag var tilkynnt um svartan reyk á stigagangi í fjölbýlishúsi við Krummahóla. Þar hafði komið upp eld- ur í kjallaraíbúð og voru miklar skemmdir í þeirri íbúð og reykur og sót um allan stigagang og í nokkrum íbúðum.Tvennt var llutt á slysa- deild vegna gruns um reykeitrun. -BÞ Veiði á kolmunna er umfram blessun fisifræðinga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.