Dagur - 10.10.2000, Page 6
6 - VRlttJUl) AGU R 10. OKTÓBER 2000
Dugur
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: DAGSPRENT
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELÍAS SNÆLANO JÓNSSON
Aðstoöarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: MARTEINN JÓNASSON
Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Simar: 460 6ioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: i.ooo KR. Á mánuði
Lausasöluverð: iso KR. OG 200 kr. helgarblað
Grænt númer: boo 7080
Netföng auglýsingadeildar: augl@dagur.is-gestur@ff.is-karen@dagur.is
Simar auglýsingadeildar: CREYKJAV(K)563-i615 Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Framseljið hann
í fyrsta lagi
Það var beinlínis ömurlegt að horfa á Slobodan Milocevic lýsa
því í sjónvarpsstöðvum um helgina, að nú þegar hann hefði
frétt um úrskurð stjórnlagadómstóls um að hann hefði tapað
forsetakosningunum, myndi hann að sjálfsögðu víkja og óskaði
sigurvegaranum til hamingju! Sjálfur myndi hann nota tækifær-
ið og nota þær frístundir sem sköpuðust við það að hann hafi
nú verið leystur undan erilsamri ábyrgð sem forseti, til að sinna
íjölskyldunni! Svona klisjur hefðu gengið hjá sveitarstjórnar-
manni austur á fjörðum eða þingmanni sem tapar prófkjöri í
Reykjavík, en af vörum Slóbódans Milocevic, eftirlýstum stríðs-
glæpamanni og kúgara, minnir þetta á absúrdleikhús!
í öðru lagi
Það sem þó er jafnvel enn fáránlegra en klisjuræða Milocevic,
er að steypan sem vellur upp úr honum virðist tekin góð og gild.
Sjálfur hefur Milocevic sagst ætla að endurbyggja innviði flokks
síns í stjórnarandstöðu og hinn nýi forseti lýsti því yfir að
Milocevic yrði ekki framseldur til stríðsglæpadómsstólsins í
Haag. Greinilega telur Kostunica að með þessu verði auðveld-
ara að lægja öldur í viðkvæmu pólitísku ástandi. En í Ijósi blóði
drifinnar sögu Milocevics og stuðningsmanna hans, hljóta
menn að spyija hvort hér hafi Kostunica forseti ekki gert sín
fýrstu pólitísku mistök.
1 þriðja lagi
Alvarlegast er þó ef Vesturlönd ætla að Iáta sem ekkert sé. Það
væri út í hött að gera ekki kröfu um að höfuðpaurinn og ýmsir
af hans herforingum í mesta stríðsglæpamáli síðari tíma verði
framseldir til stríðsglæpadómsstólsins í Haag. Þar hafa undir-
sátar Milocevics þegar verið dæmdir fyrir glæpi gegn mannkyn-
inu. Það er sjálfsagt aflétta refsiaðgerðum, en frekari aðstoð
hlýtur að taka mið af framsalsmálum. Annað er óásættanlegt og
vanvirðing við fórnarlömb stríðsglæpanna. Halldór Asgrímsson
hefur þegar sent nýjum ráðamönnum hamingjuóskir Islend-
inga, hann verður einnig að flytja þeim þau grundvallarskila-
boð, að stríðsglæpamenn beri að draga til ábyrgðar.
Birgir Guðmundsson
Samsærið miMa
Um hclgina brá svo við að
hvorki á laugardagskvöld né
sunnudagskvöld var dagskrá
riðlað vegna íþrótta! Kannski
var þctta vegna þess að á þess-
um dögum er svo mikið af
íþróttum á sjálfri dagskránni.
Hvcr veit? En það sem meira
var, ýmislegt virtist bitastætt á
dagskrá Jjannig að Garri ákvað
að setjast niður og horfa á nýj-
an skemmtiþátt annars vegar
og svo sunnudagsleikhúsið
hins vegar. Það var enda ekki
Iaust við að Garri hugsaði hlýtt
til Markúsar Arnar á laugar-
dagsmorguninn, jiví augljóst
var að hann hafði gripið í
taumana og sagt hingað
og ekki lengra við þess-
um endalausu íþróttalýs-
ingum. í viðtali við Dag
kom nefnilega fram að
hann er mjög efins um Markús
að réttlætanlegt sé að
hafa allt þetta sport í sjónvarp-
inu og telur af og frá að Ríkis-
útvarpið fari út í að reka sér-
staka sportrás. „Markús er
minn maður,“ hugsaði Garri
og hlakkaði til sjónvarpsgláps
kvöldsins.
Vonbrigöi
En Jjví miður urðu vonbrigðin
talsverð þegar í ljós kom að
innlenda dagskrárgerðin var
lítið annað en léleg eftirlíking
af ótalmörgum amrískum
skemmtiþáttum og enn var
verið að tala við gamla kunn-
ingja glanstímaritanna á sömu
gömlu tvíræðu nótunum og
áður. (Er það tilviljun að þú átt
SEEEX líkamsræktarstöðvar
Jónína?!!! Ha, ha,ha.) Helsta
huggunin harmi gegn var að
þarna var þrátt fyrir allt töluð
ágætis íslenska og vissulega
var eitt og eitt atriði í góðu
lagi, eins og t.d. hljómsveitin
og kvótaprinsessan Bára Sól.
En auðvitað getur einn og
einn svona þáttur höfðað með
mismunandi hætti til manna,
og Garri frétti meira að segja
af konu í Húnavatnssýslu sem
hafði bara gaman af þessu. En
Jjetta var Jjó bara byrjun sjón-
varpsglápsins og vísbending
um það sem koma skyldi, því
áður en helgin var liðin
uppgötvaði Garri eitt mesta
samsæri íþróttaáhugamanna
fyrr og síðar.
Frekar íþróttir!
Á sunnudagskvöldið var nefni-
lega sett á dagskrá leikrit eftir
Guðberg Bergsson sem alla
jafna er einhver
skemmtilegasti höfund-
ur landsins. En til að
gera langa sögu stutta þá
var leikritið svo leiðin-
legt og svo mikið stagl að
Qrn Garra var farið að dauð-
langa til að horfa t.d. á
200 km hjólreiðakeppni kven-
na í beini útsendingu. Og það
var þá sem hugljómunin varð
og Garri áttaði sig á Jjví hvað
var að gerast. Iþróttadeildin
hlaut að hafa komist með fing-
urnar í það efni sem innlenda
dagskrárdeildin hafði verið að
vinna. og snúið |>ví upp í meiri
leiðindi en áður hafa þekkst.
Og er þá langt til jafnað. Til-
gangurinn er augljós, það á að
snúa Markúsi frá villu síns
vegar þannig að hann hætti við
að hafa dagskrá í sjónvarpinu -
sérstaklega leiðinlega innlenda
dagskrá - en beini kröftum og
fjármunum stofnunarinnar al-
farið aftur að íþróttunum og
endurvarpi sem allra mest frá
íþróttaleikjum. Þetta er bráð-
snjallt samsæri, sem hugsan-
lega hefði getað gengið upp, ef
ekki hefði komið til snilligáfa
Garra og kunnátta í samsær-
um og samsæriskenningum.
Markús, það er ekkert að
þakka! GARRi
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Islenskir íþróttaáhugamenn eiga
ekki skilið að eiga afreksfólk.
Kröfur sem til þess eru gerðar
eru yfirleitt með öllu óraunhæfar
og viðbrögð við sigrum eða tapi
oftar en ekki út úr kortinu og
sveillast á milli taumlausrar sig-
urvímu og yfirgripsmikillar fýlu.
Handboltalandsliðið helur oft
fengið að kenna á hverflyndi
landa sinna. Einar Vilhjálmsson
var í fremstu röð í heiminum í
áratug og honum jafnan hampað
mjög fyrir stórmót, en síðan tck-
ið með ólund og þegjandi þögn-
inni |)egar útkastsgeirinn passaði
ekki alveg á olypmpíuleikunum,
eins og reyndar hendir oft fleiri
keppendur en Islendinga.
Og Jjegar Vala sló fyrst gegn,
varð Evrópumeistari og setti
heimsmet, þá var hún borin á
gullstói landa sinna. En svo fór
Vaia að dala, eða öllu heldur óx
keppinautum hcnnar fiskur um
hrygg og Vala var við það að
gleymast. Allt þar til bronsið kom
Oraimhæfar krofur
og Jjjóðin missti enn einu sinni
taumhald á tilfinningum sinum.
Eins og hún auðvitað gerir aftur,
með neikvæðum formerkjum, ef
Vala fellir byrjunar-
hæð á næsta stór-
móti.
Vélarbilim?
Islenska Iandsliðið í
knattspyrnu hefur
náð ótrúlegum ár-
angri á síðustu
árum og staðið sig
vonum betur. Það
hefur staðið uppi í
hárinu á |jjóðum
sem eru einfaldlega
miklu betri í fót-
bolta en við. Það
hefur, ef eitthvað er, leikið ofar
getu. Og Guðjón og strákarnir
„okkar“ gerðir að dýrlingum. Og
svo tók Atli við og byrjaði með
stæl og liðið vann marga glæsta
sigra.
Tapleikur gegn Dönum, Jjjóð
sem er mun sterkari en við og
hefur alltaf verið, dró ögn úr sig-
urvímunni en var bara litið á það
sem smávægilega vélarbilun,
sem yrði lagfærð í
næsta leik gegn
Tékkum, fjórða
besta landsliði ver-
aldar og Jjað á úti-
velli!
Betur næst
Óháðir luiattspyrnu-
sérfræðingar um all-
an heim hefðu fyrir-
fram talið að eðlileg
úrslit, miðað við
styrkleikamun þjóð-
anna, væri Jjrjú til
fimm mörk gegn
engu. Og niðurstaðan varð ein-
mitt 4-0, eins og við mátti búast.
En íslendingar reiknuðu í röðum
mcð því að þeirra lið myndi
vinna, eða í þaö minnsta ná jafn-
tefli!
Vissulega lék liðið undir getu í
þessurn leik, eins og reyndar
alltaf má búast við að geti hent.
En sem sagt, gegn Tékkum gekk
dæmið ekki upp, en úrslitin voru
eðlileg og hafa örugglega ekki
komið neinum á óvart sem vit
hafa á heimsfótboltanum.
En viðbrögðin heimafyrir eru
jafn öfgafull og venjulega. I stað
þess að segja: Það gengur hara
betur næst, Jjú er slrax farið að
tala um að rétt sé að reka Atla og
sleppa Jjví að mæta á Ieikinn
gegn Norður-Irum á morgun til
að sína vanþóknun sína í verki.
Islenska Iandsliði hefur staðið
sig frábærlega á undanförnum
árum og strákarnir eiga allir
heiður skilinn. En um leið og
eitthvað bjátar á, þá hengja
áhangendur haus og snúa haki
við Iandsliðinu.
Islenskir íþróttaáhugamenn
eru góðir í meðbyr en vonlausir í
mótbyr. Þess vegna eigum við
ekki skilið að eiga afreksfólk Í
íþróttum.
SPUÉSI
svaurad
Ertu sammáhi því að
ríkiðhomi að fjár-mögn-
un sérstahs „Hrað-
menntashóla“ sem út-
shrifi válda námsmenn
á tveimur árum, eins og
gert er ráðfyrir á fjár-
lögum?
Svanfríður Jónasdóttir
þingmaðitrSamJylkingar
„Skattpening-
um á að verja í
almannajjágu,
ekki sérhags-
muna. Við í
Samfylking-
unni höfum
viljað stytta
Jjann tíma sem
það tekur ungmenni að Ijúka
framhaldsnámi. Við leggjum
hins vegar áherslu á jafnrétti til
náms og að það gerist með nauð-
synlegum breytingum bæði í
grunnskóla og framhaldsskólan-
um sjálfum og gagnist öllurn."
Hjálmar Ámason
þingmaðnrFramsóknarflokks
„Af hverju er
verið að veita
sérstökum fjár-
mununt í þetta
þegar núver-
andi áfanga-
kerfi felur
þessa hraðleið
í sér. Nú þegar
höfum við skóla sem eru að
brautskrá nemendur eftir tvö og
hálft til þrjú ár til stúdentsprófs.
Af hverju þarf þá að setja upp
sérstakan skóla til að ná þessu
markmiði? Ég er fullur efa-
semda.“
Þuríður Backman
þ ingmaðnr Vinstri gramna
„Eg er hrifin af
valmöguleik-
anum, en að
svara já eða nei
á ekki við
þarna. Eg er
mótfallin því
að einkaskól-
arnir fái jafnvel
hærri styrki til þessa hraðnáms
ef svo skólinn getur svo enn-
fremur Iagt á Jjau gjölcl sem hon-
um hentar. Það þurfa Jjví að vera
til aðrar forsendur en að þeir fái
sömu greiðslur og hinir opinberu
skólar.“
Sverrir Hermannsson
þingmaðttrFrfálslyndra
„Þegar ég var
menntamála-
ráðherra braut
ég upp á því að
reynt yrði að
fækka árunum
fram að stúd-
entsprófi um
eitt ár og gera
það að stefnumiði. Eg er ekki
fjöðrum fenginn við þessa tillögu
því mér stendur stuggur af öllum
sérréttindum sem færð eru
mönnum upp í hendurnar.
Hvernig á að velja þessa nem-
endur og þá kemur upp klíku-
skapurinn. Mér stendur því
stuggur af þessu."