Dagur - 10.10.2000, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2 00 0 - 7
ÞJÓÐMÁL
Úr einu í araiaó
JÓN
KKISTJANS-
'v iH' 2 ffp SON
alþingismaður
SKR/FAfí
Síðustu fimm ár hafa verið eitt
mesta framfaraskeið í þjóðarsög-
unni. Islenska þjóðin getur
horft til nýrrar aldar með bjart-
sýni. Grunnur hefur verið lagð-
ur að traustum efnahag. Hér er
full atvinna, hér er gnótt tæki-
færa fyrir unga og framsækna
kynslóð. Við göngum til fram-
tfðar staðráðin í að bæta enn um
betur, bæta okkar hag, jafnframt
því sem við ætlum okkur að jafna
aðstöðu fólksins í landinu og
mynda áfram öryggisnet um þá
sem höllum fæti standa í samfé-
laginu. Batnandi hagur, öflug at-
vinnustarfsemi og framleiðsla í
landinu eru grundvöllurinn að
slíku. Full atvinna, góð afkoma
atvinnufyrirtækjanna í landinu
og velferð fólksins verða ekki
sundur skilin. Það er löng leið
frá þeim sporum sem núverandi
stjórnarflokkar stóðu í árið 1995
þegar rætt var um hvort hætta
væri á því að missa fjárhagslegt
sjálfstæði vegna viðvarandi
hallareksturs og skuldasöfnunar
ríkissjóðs, til þess nú að greiða
niður skuldir í svo miklum mæli
að mögulegt er að peningalegar
eignir nemi hærri fjárhæð en
skuldir að Ijórum árum liðnum.
Hverjir borga?
Það er staðhæft að þessi þróun
hafi verið á kostnað þeirra sem
minna mega sín í samfélaginu,
og flestar ræður stjórnarand-
stöðunnar um ríkisfjármál hafa
gengið út á þetta síðasta hálfa
áratuginn.
Þetta er alrangt. Allt þetta
tímabil hefur verið varið meiri
fjármunum til menntamála, heil-
brigðismála og félagsmála með
„/ fjárlagafrumvarpinu sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir auknum framlögum tilýmissa þátta menntamála og til
velferðarkerfisins. Má þar nefna háskólastigið, aukin framlög til framhaldsskóla og Lánasjóðs íslensskra náms-
manna, “ segir Jón m.a. í grein sinni.
ári hverju.
I fjárlagafrumvarpinu sem nú
liggur fyrir er gert ráð fyrir aukn-
um framlögum til ýmissa þátta
menntamála og til velferðarkerf-
isins. Má þar nefna háskólastig-
ið, aukin framlög til framhalds-
skóla og Lánasjóðs Islensskra
námsmanna. I heilbrigðiskerf-
inu er aukning til hjúkrunar-
heimila. I tryggingakerfinu er
aukning til barnabóta, og trygg-
ingabætur hækka fram yfir verð-
lagsforsendur frumvarpsins.
Framlög til málefna fatlaðra
hækka og tekið er upp fæðingar-
orlof samkvæmt nýrri Iöggjöf
sem samþykkt var á síðasta þingi
Staðreyndin er að sótt er í
rétta átt á öllum sviðum þó jafn-
framt sé verið að greiða niður
skuldir. Þetta tekst vegna þess að
það er kraftur f efnahagslífinu
sem hefur skilað sér í auknum
kaupmætti og tekjum. Það er
blekking að ríkissjóður nærist
eingöngu á viðskiptahalla.
Byggðamálin
Þessi efnahagslegi grunnur skap-
ar allt aðra stöðu til þess að fást
við þau úrlausnarefni sem við
blasa. Það er nauðsynlegt að
taka á byggðamálum áfram og
skapa sátt um að byggja landið
allt. Það er farsælast í lengd
og bráð fyrir alla landsmenn.
Tilflutningur fólks til höfuð-
borgarsvæðisins umfram eðli-
lega fólksfjölgun velur beinum
kostnaði og sóun í samfélaginu
og skapar félagsleg vandamál.
Hins vegar verður fólk ekki
bundið í átthagafjötra og hin
unga kynslóð hvar sem hún býr
þarfnast þess að víkka sjón-
deildarhringinn hér heima og
erlendis og vera ekki bundin á
klafa sama starfs eða sama
byggðarlags alla ævina.
Hins vegar er fjölbreytni at-
vinnulífs og þjónusta á Iands-
byggðinni grundvöllur þess að
halda sfnu í samkeppni um
fólk sem er í nútíma samfélagi.
Nokkur atriði eru afar þýðing-
armikil varðandi byggðamálin.
Það ber nauðsyn til þess að
skapa skylyrði fyrir atvinnu-
starfsemi tengdri gagnaflutn-
ingum og upplýsingahraðbraut-
inni, með sama verði fyrir þjón-
ustuna um land allt. Nýting
orku og stóriðja tengd henni
þarf að verða að veruleika. Fjöl-
breytni menntunar um lands-
byggðina þarf að auka með
auknu samstarfi við háskólana
og með fjarkennslu. Það þarf að
styðja nýjar greinar í tengslum
við landbúnað svo sem skóg-
rækt og hestamennsku. Lands-
byggðin þarf að fá aukna hlut-
deild í opinberum störfum. Þar
að auki þarf að nýta sóknarfæri
í sjókvíaeldi að hætti Færeyinga ,
og Norðtnanna. \
Ennfremur er nauðsyn að i
sveitarfélögin hafi stöðu til þess
að veita sínu fólki þjónustu á
þeim mikilvægu sviðum sem
þau hafa með höndum. Af- ,
koma þeirra hefur versnað. i
Það sýna tölur sem hafa komið '
inn á borð tekjustofnanefndar.
Skýrsla auðlmdanefndar '
Skýrsla auðlindanefndar sem ,
úbýtt var fyrir helgi er góður
grunnur til að byggja á frekari '
umræðu og tillögur til sátta varð-
andi auðlindanýtingu. Við fram-
sóknarmenn göngum með opn-
um huga til þessarar umræðu.
Gjaldtaka fyrir nýtingu auðlinda
má hins vegar ekki undir neinum
kringumstæðum rýra samkeppn-
ishæfni þeirra atvinnuvega sem
byggjast á nýtingu þeirra.
ísland og umlieinmrÍHU
Okkur íslendingum hcfur ávallt
vegna best með greiðum sam-
skiptum við erlendar þjóðir.
Okkur er þörf á því á nýrri öld
að hafa samskipti við þjóðir um
vfða veröld, vegna viðskipta og
menningarlegra samskipta. Ný
tækni í fjarskiptum hafa sett
okkur inn í hringiðu alþjóðlegra
samskipta og möguleikarir eru
allt aðrir en áður. Okkur ber
skylda til að halda stöðugt uppi
vel upplýstri umræðu um utan-
ríkismál. Samskiptin við Evr-
ópuríki eru einn þátturinn, og
Framsóknarflokkurinn hefur
tekið á þeirri umræðu í sínu
flokksstarfi á nýjan hátt sem
vakið hefur mikla athygli. Mál-
ið er mikið að vöxtum og þróun-
in í samstarfi Evrópuríkja er á
fleygiferð. Mörgum hættir til
þess að gera það að miðdeplin-
um í þessari umræðu hvort
sækja eigi um aðild að Evrópu-
sambandinu eða ekki. Slíkar
ákvarðanir eru ekki á dagskrá
nú.
Afiiemuiii skattleysi söluliagiiaöar
Síðastliðið vor lagði þingflokkur
Samfylkingarinnar frani frum-
varp til laga um breytingar á lög-
unum um stjórn fiskveiða. Þá var
jafnframt tilkynnt að á haust-
þingi yrði lögð fram tillaga til
breytinga á 17. grein laga um
tekju- og eignaskatt til að afnema
ákvæði um frestun á tekjufærslu
söluhagnaðar af sölu hlutabréfa.
Einnig að koma í veg fyrir að að-
ilar geti komist hjá skattgreiðslu
af slíkum söluhagnaði með því að
kaupa ný hlutabréf. Þegar fjár-
magnstekjuskattur var settur á
árið 1996 varð jafnframt sú
breyting á lögunum um tekju-og
eignaskatt að lögaðilar geta farið
fram á að fresta tekjufærslu sölu-
hagnaðar af sölu hlutabréfa um
tvcnn áramót frá söludegi. Sama
gildir um einstaklinga í atvinnu-
rekstri enda séu hlutabréfin
eignfærð í atvinnurekstrinum.
Kaupi slíkur aðili önnur hluta-
bréf í stað hinna seldu innan
þess tíma færist söluhagnaður-
inn til lækkunar kaupverði þeirra
bréfa. Nemi kaupverð hinna
keyptu hlutabréfa lægri fjárhæð
en söluhagnaðurinn telst mis-
munurinn til skattskyldra tekna.
Ef hlutabréf eru ekki keypt innan
tilskilins tíma telst söluhagnað-
urinn til tekna á öðru ári frá því
hann myndaðist.
Alvarlegt fyrir efnahagslífið
Afleiðingar þessara breytinga
hafa e.t.v. orðið aðrar og víðtæk-
ari en reiknað var með. Alvarleg-
ast fyrir íslenskt efnahags- og at-
vinnulíf er að mikið fjármagn
hefur verið losað úr íslenskum
atvinnulífi með sölu hlutabréfa
og verið flutt úr landi. Ef marka
má þá litlu umræðu sem fram fór
um breytinguna þegar hún var
gerð á Alþingi vorið 1996 var til-
gangurinn sá að stuðla að sparn-
aði og því að íjármagnið héldist
áfram í íslenskum atvinnufyrir-
tækjurn. Þó upplýsingar um
hlutabréfaeign Islendinga er-
lendis séu ónákvæmar sýna tölur
Seðlabankans að gríðarlega mik-
ið fjármagn hefur verið að flytjast
frá landinu á allra síðustu árum.
Frá árslokum 1996 hefur hluta-
bréfaeign Islendinga erlendis
vaxið úr rúmum 12 milljörðum í
160 milljarða. Umræddar skatta-
breytingar og sá möguleiki að
fresta skattgreiðslum með því að
ljárfesta áfram í hlutafélögum,
ásamt hagstæðu skattaumhverfi
erlends, hefur haft það í för með
sér að margir fara þá leið að stof-
na eigin eignarhaldsfélag erlend-
is og fjárfesta síðan í þeim.
Uppbygging íslenskra fjármála-
fyrirtækja erlendis hefur auð-
veldað mönnum að nýta sér
þessa möguleika og e.t.v. hefur
þessi breyting einnig hraðað
stofnun og vexti dótturfyritækj-
anna. Þótt flcira en þessi eina
skattabreyting hafi áhrif á það að
íslenskar fjármálastofnanir séu
með starfstöðvar erlendis er al-
mennt talið að breytingin hafi
haft veruleg áhrif á þessa þróun.
Menn geta lfka velt fyrir sér
áhrifum þessa á vaxandi við-
skiptahalla á þessum sömu árum.
Skuldir sjávarútvegsins
Á undanförnum árum hefur það
sætl sérstakri gagnrýni hve mik-
inn söluhagnað einstaklingar
hafa verið að fá vegna sölu hluta-
bréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum.
Markaðsverð aflahlutdeilda hef-
ur farið hækkandi allt frá því nú-
gildandi lög um stjórn liskveiða
tóku gildi. Einstaklingar sem
hafa selt aflahlutdeildir en hafa
ekld keypt aðrar í staðinn hafa
því oft hagnast verulega, jafnvel
þó þeir hafi greitt fullan tekju-
skatt af ágóðanum. Þeir sem eru
óbeint handhafar aflahlutdeilda
með því að eiga hlutabréf í út-
gerðarfyrirtækjum hafa hins veg-
ar getað komist hjá þessari skatt-
lagningu vegna þessarar laga-
breytingar. Þegar þeir selja hluta-
bréf með hagnaði, sem að ein-
hverju leyti er til kominn vegna
hækkaðs verðs á aflahlutdeildum
félagsins, geta þeir frestað og þar
með komist hjá skattlagningu
með því að kaupa hlutabréf í öðr-
um hlutafélögum sem ekki þurfa
að vera tengd útgerð eða skrásett
hér á landi. Noti þeir sér ekki
þann kost greiða þeir fjár-
magnstekjuskatt af hagnaðnum
nema hann fari fram úr rúmum
3 milljónum króna á ári hjá ein-
staklingi. Þetta hefur eðlilega
sætt margvíslegri gagnrýni.
Skuldir sjávarútvegsins eru nú í
kringum 175 milljarðar og hafa
aukist um 70 milljarða á síðustu
fjórum árum. Nýfjárfestingar í
sjávarútvegi á sama tíma eru
ekki miklar og afkoma í grein-
inni hefur verið viðunandi.
Astæður hinnar miklu skulda-
aukingar eru því að stórum
hluta taldar stafa af því að kvóti
og fyrirtæki hafa verið seld fyrir
fé sem ekki hefur verið varið til
endurfjárfestingar í greininni.
Etnstök ívilnun
Reglan um frestun skattlagn-
ingar nær auðvitað til hluta-
bréfaeigenda í öllum atvinnu-
greinum en hagnaður af við-
skiptum með hluti í sjávarút-
vegsfyrirtækjum hafa stungið
almenning mest í augu, e.t.v.
vegna þess að margir þeirra sem
hafa farið með mikla peninga út
úr greininni og komist hjá skatt-
lagninu vegna framangreindra
ákvæða hafa heldur ekki greitt
fyrir þau afnot sem þeir fengu
af sameiginlegri auðlind þjóðar-
innar. Þingmenn Samfylking-
ar hafa nú flutt frumvarp um að
afnema þau ákvæði laganna
sem gera það kleift að fresta
greiðslu skatta af söluhagnaði
og komast hjá skatti með áfram-
haldandi fjárfestingum í öðrum
félögum. Ekkert það land sem
við berum okkur saman við er
með viðlíka ívilnanir til handa
hlutabréfaeigendum. Þessi
ákvæði hljóta að verða numin
brott úr lögum nú þegar nötur-
leg reynslan al framkvæmd
þeirra liggur fyrir.
I