Dagur - 10.10.2000, Síða 9
T^o'
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Risinn ógurlegi
Eftir tvær umferðir í
ímdaukeppni HM-
2002 er íslenska
karlalandsliðið nú
stigalaust í botnsæti
3. riðils eftir stórt tap
gegn Tékkum á laug-
ardaginn. Strákamir
réðu engan veginn við
nýja liðsuppstillingu
og heldur ekki við ris-
aim ógurlega, Jan
Koller, sem skoraði
tvennu eins og Pavel
Nedved gerði einnig.
Tékkar höfðu mikla yfirburði á
öllum sviðum knattspyrnunnar
þegar þeir unnu 4-0 sigur á illa
upplögðu liði Islendinga í Tékk-
landi á laugardaginn. Islenska
Iiðið sem leikið hefur með góð-
um árangri gegn sér sterkari lið-
um að undanförnu, mætti nú til
leiks þar sem verulega hafði ver-
ið hrært í liðsuppstillingunni og
virtist hún henta andstæðingun-
um hið besta. Vörninni var ekki
bara stillt upp í öftustu víglínu
heldur Iíka upp kantana og var
það er virtist gert til að koma í
veg fyrir að risinn Jan Koller
(2,02 m) fengi úr einhverju að
inoða fyrir framan íslenska mark-
ið, eftir fýrirgjafir. Sérstök áher-
sla var lögð á að passa hinn eld-
snögga Karel Poborsky og var
þeim Sigurði Erni Jónssyni og
Hermanni Hreiðarsyni ætlað það
hlutverk. Herbragðið heppnaðist
þó ekki betur en svo að tvö fyrstu
mörkin, sem Koller skoraði,
komu eftir fyrirgjafir. Það fyrra á
18. mínútu eftir fyrirgjöf Pavels
Horvath og það seinna á 41.
mínútu eftir hornspyrnu. Fyrra
markið var mjög glæsilegt, en
Koller fékk þá háa fyrirgjöf inn í
teiginn og tókst að skalla knött-
inn úr þvögu niður í blautan
grassvörðinn og þaðan sem hann
skaust í stöngina og inn, óverj-
andi fyrir Birki í markinu. Það
seinna var hálf klaufalegt, en þá
tókst Koller að skalla boltann að
stönginni nær og þaðan barst
hann af Rúnari Kristinssyni í
netið. Þar með hafði risinn ógur-
legi gert það sem hann átti ekki
að fá að gera og lagt grunninn að
tékkneskum heimasigri.
Tékkar gefa tnninn
Eftir tvö góð færi á upphafsmín-
útunum höfðu Tékkar gefið tón-
inn í leiknum og um leið var sem
íslenska liðið missti allan mátt og
var leikur þess upp frá því eins og
hálfgert knattaklór. Þeim gekk
illa að halda knettinum innan
liðsins og flestar sendingar lentu
fyrir fótum Tékkanna, sem voru
strax mættir þegar íslenska liðið
reyndi að byggja upp sóknir.
Menn lifðu þó í voninni og
minntust leiksins gegn Frökkum
í París, þar sem íslenska liðið
náði að jafna eftir að heims-
meistararnir höfðu náð tveggja
marka forystu. En á 44. mínútu
gerði Pavel Nedved, leikmaður
Laz.io á Ítalíu, þá drauma að
engu, þegar hann skoraði þriðja
mark Tékka með þrumuskoti í
hornið fjær úr galopnu færi eftir
sendingu inn fyrir íslensku vörn-
ina.
Netved átti eftir að koma mik-
ið við sögu í seinni hálfleiknum,
en þá var hann íslensku vörninni
oft erfiður með yfirferð sinni og
Ieikni. Þá höfðu tvær breytingar
verið gerðar á íslenska liðinu og
liðuppstillingin orðin líkari því
sem hefur reynst því best til
þessa. Hermann Hreiðarsonn var
nú aftur kominn í öftustu víglínu
f staðinn fyrir Pétur Marteinsson
sem fór meiddur af leikvelli og
þeir Tryggvi Guðmundsson og
Þórður Guðjónsson á kantana.
Heiðar Helguson var í staðinn
færður af kantinum í fremstu
víglínu fyrir Ríkharð Daðason,
sem einnig hvarf af velli vegna
meiðsla.
Birkir ver vitaspymu
Breytingarnar virtust ekki koma
Tékkum í opna skjöldu og þó ís-
lenska liðið væru nú öllu
sprækara átti það aldrei svar við
öflugum leik Tékkanna, enda
tóku þeir lífinu með mikiili ró í
upphafi seinni hálfleiks. Eftir um
það bil fimmtán mínútna leik
skiptu þeir síðan um gír og upp-
skáru fljótlega vítaspyrnu eftir að
Nedved hafði verið togaður niður
innan vítateigs. En Birkir Krist-
insson gerði sér Iítið fyrir og varði
spyrnuna frá Koller og kórónaði
þar með góðan leik sinn í leikn-
um, þrátt fyrir mörkin fjögur.
Þegar hér var komið sögu færð-
ist heldur meira Iíf í íslenka liðið
og voru strákarnir nú mun
ákveðnari í sóknaraðgerðum sín-
um. A 80. mínútu var dæmd
aukaspyrna á Tékkana rétt utan
vítateigs og munaði minnstu að
Eyjólfi tækist að stýra knettinum
í netið eftir aukaspyrnu Tryggva
Guðmundssonar. Fimm mínút-
um síðar átti Heiðar Helguson
svo þrumuskot að markinu en því
miður rétt yfir slánna.
Á 90. mínútu fengu Tékkar svo
dæmda aukaspyrnu rétt utan
vítateigs og þá urðu Nedved ekki
á nein mistök þegar hann dún-
draði knettinum í vinstra hornið,
að því er virtist beint framhjá ís-
Ienska varnarveggnum. Skotið
var firnafast og small neðst í
stöngina og inn.
Fálmkenndur varnarleikur
íslenska liðið fær ekki háa ein-
kunn fyrir leik sinn að þessu
sinni og má segja að Tékkarnir
hafi ekki þurft að hafa mikið fyr-
ir sigrinum. Þeir Iéku yfirvegaðan
leik og biðu eftir færunum, sem
þeir fengu nóg af eftir ótrúlega
fálmkenndan varnarleik íslenska
liðsins og mörg mistök, sem m.a.
kostuðu mörkin fjögur. En ís-
Ienska liðið hefur sannað oftar
en einu sinni að það getur betur
og því skal ekki örvænta. Tap
gegn fjórða sterkasta liði heims-
ins, er svo sem engin skömm, en
Tékkarnir eru nú í fjórða sætinu
á styrkleikalista FIFA, á eftir
Argentínumönnum, Frökkum og
Brasilíumönnum og því ekki um
neina aukvisa að ræða.
Af leikmönnum íslenska liðs-
ins átti Birkir markvörður einna
bestan leik og verður hann ekki
sakaður um mörkin, en segja má
að hann hafi öðrum fremur kom-
ið í veg fyrir að þau yrðu fleiri.
Frekar er liðsheildinni um að
kenna og breyttri uppstillingu,
sem liðið réði engan veginn við
og því fór sem fór.
Vonandi hefur þetta bakslag
ekki áhrif á baráttuandann í lið-
inu fyrir leikinn gegn Norður-
írum í Laugardalnum á morgun,
en þar mæta strákarnir írunum
eftir 1-1 jafntefli gegn Dönum í
Belfast um helgina. Þeir unnu
Möltubúa 1-0 heima í fyrsta Ieik
og eru því án taps í þriðja sæti
riðilsins, með jafnmörg stig og
Danir sem eru með betra marka-
hlutfall í öðru sætinu. Strákun-
um okkar veitir því ekki af stuðn-
ingnum og vonandi að miðahafar
mæti á leikinn, sem er liðinu
mjög mikilvægur, þar sem það
hvílir nú stigalaust í botnsæti rið-
ilsins eftir tvö töp.
Þjóðarsorg hjá Englendingum
Kevin Keegan, lands-
liðsþjálfari Englend-
inga, sagði upp starfi
sínu eftir 0-1 tap gegn
Þjóðverjum í und-
ankeppni HM-2002 á
Wembley-leikvangin-
um í London á laugar-
daginn.
Segja má að þjóðarsorg ríki í
Englandi eftir 0-1 tap Englend-
inga gegn Þjóðverjum á
Wembley-leikvangnum í London
á laugardaginn í undankeppni
HM-2002. Sorgin er ekki síður
mikil þar sem enska landsliðið
var að leika síðasta kappleik sem
fram fer á hinum ástsæla leik-
vangi Wemhley, en eftir um það
Kevin Keagan hættur með
Englendinga eftir 18 leiki.
bil 77 ára sögu verður hann nú
rifinn til að rýma til fyrir nýju
skipulagi og nýr þjóðarleikvangur
byggður í staðinn. I kjölfar taps-
ins sagði Kevin Keegan upp
störfum sem landsliðsþjálfari og
hefur Howard Wilkinsson,
tæknistjóra hjá enska knatt-
spyrnusambandinu, verið falið að
stýra liðinu gegn Finnum í
Helsinki á miðvikudaginn. Skipt-
ar skoðanir eru vegna afsagnar
Keegans og hafa fjölmiðlar í
Englandi farið hörðum orðum
um þessa ákvörðun hans og jafn-
vel kallað hann svikara og rag-
geit.
Keegan var að vonum óhress
með tapið gegn Þjóðverjum og
mjög ósáttur við frammistöði
sinna manna. Hann sagði á
blaðamannafundi eftir leikinn,
þar sem hann tilkynnti afsögn
sína, að hann hefði tekið þessa
ákvörðum að vel hugsuðu máli.
„Mér finnst ég engan veginn hafa
staðið undir kröfum og árangur-
inn hefur alls ekki verið viðun-
andi. Eg vil að ég verði dæmdur
af verkum mínum og það er alveg
ljóst að ég uppfyllti ekki þær
kröfur sem gerðar eru til starfs-
ins,“ sagði Keegan sem stjórnaði
enska landsliðinu í 18 Ieikjum,
þar sem sigur vannst í sjö þeirra,
jafnmörgum lyktaði með jafntefli
og íjórir töpuðust.
Það má segja að það hafi verið
Dietmar Hamann, leikmaður
Liverpool, sem rak síðasta
naglann í líkldstu Keegans, en
Hamann skoraði eina mark Ieiks-
ins á 14. mínútu beinl úr auka-
spyrnu, þar sem hvorki Devid
Seamann né varnarmenn liðsins
voru tilbúnir skotinu.
Um 76 þúsund áhorfendur
voru mættir á völlinn til að hvet-
ja sína menn og um leið kveðja
Wembley og máttu þeir horfa
upp á Þjóðverja leika mun betur
allan fyrri hálfleikinn. Aðeins
góður skalli fyrirliðans Tony Ad-
ams að þýska markinu gladdi
augað, en því miður fyrir Eng-
lendinga varði Oliver Kahn, frá-
bær markvörður Þjóðveija, með
miklum tilburðum.
Keegan hafði látið sína menn
leika 4-4-2 í fyrri hálfleik, en
breytti í 3-5-2 í þeim seinni og til
að lífga upp á sóknarleikinn skip-
ti hann Kieron Dyer inná fyrir
Gary NeviIIe. Breytingin varð
strax til hins betra, en mörkin
létu á sér standa og Þjóðverjum
tókst með mikilli baráttu að
halda fengnum hlut og tryggja
sér annan sigur sinn í riðlinum
og þar með efsta sætið.