Dagur - 10.10.2000, Síða 11
ÞRIDJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 - 11
Xk^HT-
ERLENDAR FRÉTTIR
Friðarviljinn er af
skomuni skammti
ísraelskir hermenn skjóta yfir iandmærin ad Gaza í skotbardaga við
Palestínumenn. Myndin var tekin í gær, mánudag.
Ástandið fyrir botni
Miðjarðarhafs er
flóknara en svo, að
einfaldar samninga-
viðræður leysi það til
frambúðar
Mikið liggur við að varðveita
friðinn fyrir botni Miðjarðar-
hafs, en þar hafa 90 manns fall-
ið síðustu tólf daga í átökum
milli Israela, Palestínumanna og
Araba sem búsettir eru í ísrael.
Hundruð eða þúsundir manna
hafa særst. Langflestir hinna
föllnu og særðu eru Palestínu-
menn, sem átt hafa í útistöðum
við Israelsher og lögreglu. Þá
hafa vopnaðir landnemar á vest-
urbakkanum fellt nokkra Palest-
ínumenn.
Mikil ferðalög eru á forystuliði
heimsins til að reyna að koma í
veg fyrir áframhaldandi átök, en
í gærkvöldi rann út frestur sem
Barak forsætisráðherra Israels
gaf Palestinumönnum til að láta
af óeirðum og hótaði ella að
senda herafla inn á Gazasvæðið
og önnur svæði sem á að heita
að séu undir stjórn Palestínu-
manna. Væri þá hætta á að styrj-
öld brytist út með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum.
Kofi Annan framkvæmdastjóri
SÞ fór til ófriðarsvæðisins til að
freista þess að samningaviðræð-
ur tækjust milli Baraks og
Arafats Palestínuleiðtoga. Þeir
kenna hvor öðrum um upptök
átakanna og þykjast hvorugur
bera á þeim neina ábyrgð. Arafat
fór til Egyptalands til að ráðfæra
sig við Mubarak forseta og rúss-
neski utanríkisráðherrann er
kominn til Mið-Austurlanda til
að reyna að bera klæði á vopnin.
I Washington var sagt að
Clinton forseti væri reiðubúinn
til að fara til Israel og til að tala
á milli deiluaðila. Þó var ekkert
ákveðið um það, en það er tölu-
verð áhætta fyrir forsetann að
fara í slíka för ef árangurinn
verður lítill eða enginn. Hann
mun þá auglýsa áhrifaleysi sitt
og Bandaríkjanna og gæti það
haft mikil áhrif á forsetakosning-
arnar þar vestra, en samkvæmt
síðustu könnunum eru forseta-
frambjóðendur þeir Bush og
Gore hnífjafnir þegar stutt er til
kosninga og gæti víxlspor Clint-
ons auðveldlega fellt Gore vara-
forseta.
En átökin eru flóknari en svo
að þau séu aðeins á milli vel
vopnaðara ísraelskra hermanna
og kornungra grjótkastara
Palestínumanna. Hizbollah
skæruleiðar í Líbanon Iáta eld-
flaugum rigna yfir Iandamærin,
þar sem þau gera að vísu lítinn
skaða, en eru eigi að síður árás á
Israel. Þeir hafa nú þrjá ísraelska
hermenn í haldi og vilja skipta á
þeim og palestínskum og lí-
bönskum föngum í ísrael. Barak
segist ekki semja um það.
Israelskar herþotur fljúga yfir
Líbanon og skotið var á þær úr
Ioftvarnakerfum við höfuðborg-
ina Beirut. Er talin hætta á að
Israelar sendi her inn f Líbanon,
en þeir hersátu suðurhluta
landsins í 22 ár, og hurfu þaðan
í marsmánuði s.I. Þar með verða
Sýrlendingar beinir eða óbeinir
aðilar að átökunum og stríðs-
hættan magnast að mun.
Hcr er því mikið í húfi að frið-
arferlið svokallaða hefjist á ný
áður en allt fer í bál og brand á
þessu viðkvæma svæði, sem stór-
veldin hafa með einum eða öðr-
um hætti tekið ábyrgð á hvort
þar ríkir friður eða ófriður.
Sem fyrr segir kenna leiðtogar
Israels og Palestfnumanna hvor
öðrum um ástandið og segir
Barak að Arafat geti sem best
skipað sínu fólki að fara með
friði, en Arafat segir að Barak
sendi herlið á Palestínumenn og
sé honum í lófa lagið að halda
átökunum í skefjum.
En þetta er ekki svona einfalt
því atburðir síðust sólarhringa
benda til að hvorugur leiðtog-
anna hafi stjórn á sínu fólki.
Barak er gamall hershöfðingi og
getur stjórnað her og lögreglu,
en landnemar á herteknu svæð-
unum og ofsatrúarhópar hlýða
ekki lögum né fyrirskipunum og
eru til í tuskið hvað sem vopna-
hléssamningum líður. Arafat á
við svipaða erfiðleika að stríða.
Það eru óskipulagðir hópar, að-
allega ungra manna, sem efna til
óspekta gegn ísraelskum her-
mönnum og lögreglu og þegar í
harðbakkann slær verður mann-
fall á báða bóga og heiftin brýst
út í enn meiri átökum.
Ef friðarviðleitnin á að takast
verður Arafat að skipa vopnuð-
um örvggissveitum sínum að
snúast gegn óeirðaseggjunum og
berja allt andóf niður með hörku
og Barak að senda herlið á ís-
relska landnema og ofstækisfulla
hreintrúarmenn, sem virðast
kæra sig lítið um friðsamlega
sambúð við nágranna sína. OÓ
Refsiaðgerðum aflétt að hluta
LUXEMBOURG - Evrópusam-
bandið ákvað í gær að aflétta banni
við sölu á olíu til Júgóslavíu en
bannið hefur verið í gildi síðan
Milocevic fyrrum forseti lét til
skarar skríða gegn Albönum í Kos-
óvo. Utanríkisráðherrar ES voru
sammmála um að hinda endi á
bannið á olíusölu og einnig á bann
við flugi til Júgóslavíu. Hins vegar
töldu þeir ekki tímabært að nema
úr gildi bann við vegabréfsáritun-
um til landsins eða hömlum á fjármagnsflæði þangað. Rökin fyrir því
að aflétta ekki öllum viðskiptahömlum eru þau að slíkum bönnum
verði létt smá saman og þess gætt að afnám þeirra muni ekki gagnast
stuðningsmönnum Mifocevic. „Það voru allir ráðherrarnir sammála
um þessa niðurstöðu," sagði Joschka Fischer við blaðamenn eftir
fundinn. Bann við vopnasölu til Júgóslavíu stendur enn óhaggað enda
var það bann sett á af Sameinuðu þjóðunum. Þá vakti það heimsat-
hygli í gær að svo virðist sem Kínverjar hyggist ekki styðja við bakið á
Milocevic fyrrum forseta, því syni Milocevics, Marko Milocevic var
snúið frá Kína á flugvellinum í Beijing í gær. Marko, sem er afar illa
þokkaður, mun hafa komið með Aeroflotvél frá Moskvu til Bejing og
veifað diplómatapassa. Hann varð hins vegar að snúa við aftur þar
sem hann fékk ekki að fara inn í landið vegna vandkvæða „vegna vega-
bréfsáritunar."
Marko Miiocevic.
Tyrkir fljúga til írak
BAGDAD, Irak - Tyrknesk flugvél sem var með mikið af lyfjum, við-
skiptamönnum og tyrkneskum stuðningsmönnum Iraks innanborðs
lenti í Bagdad í gær. Að sögn Lutfu Akdogan, fyrrum þingmanns á
tyrkneska þinginu og þess manns sem skipulagði þetta flug og leigði
flugvélina frá flugfélagi í Tyrldandi, hafa bæði tyrkneska ríkisstjórnin
og Sameinuðu þjóðirnar gefið heimild fyrir þessu framtaki. „Heim-
sókn okkar hefur ekkert með stjórnmál að gera,“ sagði hann við blaða-
menn skömmu eftir komuna til Iraks. „Viðskiptabannið á Iraker bæði
grimmilegt og ómanneskjulegt," sagði hann ennfremur.Samkvæmt
diplómatískum heimildum munu Tyrkir nú vera að skipuieggja enn
umfangsmeiri hjálparstarfsemi fyrir írakskt alþýðufólk.
Pínupils og flegnir kjólar
PARIS - Pínupils, gegnsæjar blússur og flegnir
kjólar virðast áberandi í vor- og sumartfskunni
sem nú er verið að kynna í París. Sérfræðingar
segja að enn á ný sé hugtakið kynæsandi komið á
blað hjá helstu tískuhönnuðum heimsins.
I þessum efnum fór Paco Rabanne fremstur
hönnuða í gær þegar hann sýndi fatnað sem faldi
heldur lítið af glæsilegum sI<rokkum fyrirsætanna.
Þá þótti táknrænt fyrir hann að hafa lítinn foss við
endann á rampnum þar sem fyrirsæturnar gengu
um - flæði vatnsins endurspeglaði ákveðið flæði í
fatnaðinum sem sveiflaðist lauslega um fyrirsæt-
urnar. Þarna voru kynntar til sögunnar afar lítil
pínupils og bikinisundföt sem gerð voru úr glitr-
andi silfurhringjum. Mikið bar á því vörumerki
Rabanne að hafa málma og plast í fötunum, en
menn virðast sammála um að í ár væri stíllinn samt mun nútímalegri
og klæðilegri eða efnismeiri en oft áður. Þarna voru þó m.a. málm-
skildir fyrir brjóstum sem komu yfir svartar peysur og krómuð bclti úr
málmplötum scm fóru með röndóttum siffonbúningi.
Pínupiis úr málm-
plötum frá Paco
Rabanne.
■ FRÁ DEGI
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER
284. dagur ársins, 82 dagar eftir.
Sólris kl. 8.03, sólarlag kl. 18.24.
Þau fæddust 10. októ-
ber
• 1813 Guiseppe Verdi, ítalskt tónskáld.
• 1898 Guðmundur Gíslason Hagalín rit-
höfundur.
• 1908 Johnny Green, bandarískur dægur-
lagahöfundur.
•1917 Thelonius Monk, bandarískur djass-
tónlistarmaður.
• 1930 Harold Pinter, breskt leikskáld.
• 1939 Ellert B. Schram forseti ÍSÍ.
• 1956 Martina Navratilova, tennisleikari.
• 1958 Tanya Tucker, söngkona.
Þetta gerðist 10. októ-
ber
• 1913 lauk smíði Panamaskurðsins.
• 1970 rændu aðskilnaðarsinnar í Quebec
verkalýðsráðherra fylkisins, Pierre Lapor-
te, og fannst hann myrtur átta dögum síð-
TIL DAGS
ar eftir að Kanadastjórn hafði neitað að
greiða lausnargjald.
• 1970 tók Auður Auðuns við ráðherracmb-
ætti, fyrst kvenna á Islandi.
• 1972 sletti Helgi Hóseason skyri á þing-
menn og fleiri sem voru á leið til þingsetn-
ingar í Alþingishúsinu í Reykjavík.
• 1973 sagði Spiro Agnew, varaforseti
Bandaríkjanna, af sér, tæpu ári áður en
Nixon forseti gerði slíkt hið sama.
• 1985 létu palestínskir hryðujuverkamenn
farþegaskipið Achille Lauro aftur af hendi,
en þeir höfðu rænt sldpinu þann 7. októ-
ber.
Vísa dagsins
Þegcir loksins líkaminn
leggst að föllnum baðmi,
kýs ég að verða, kisi minn,
kötiur í meyjarfaðmi!
Guðmundur Guðmundsson
Afmælisbam dagsins
David Lee Roth er frá bæ sem heitir
Bloomington og er í Indiana í Banda-
rfkjunum. Hann var einu sinni frægur
þungarokkari með hljómsveitinni Van
Halen og var þá þekktur sem „vondi
strákurinn" í rokkinu, en tók síðan upp
á því að fara eigin leiðir og náði mikl-
um vinsældum með gömlum dægur-
Iögum um miðjan níunda áratuginn.
Síðan hefur leiðin legið hægt niður á
við, en hann er enn að syngja sitt rol<k
af jafnmiklum krafti sem fyrr.
En betra væri að deyja en lifa vélrænu
lífi sem er endurtekning á endurtekn-
ingum.
D. H. Lawrence
Heilabrot
Hún Anna gekk suður Laufásveginn
ásamt móður sinni og ömmu. Anna og
móðir hennar voru samtals 54 ára, móð-
ir hennar og amma voru samtals 109, en
Anna og amma hennar samtals 85 ára.
Hve gamlar voru þær hver um sig?
Lausn á síðustu gátu: 120 sinnum.
Veffang dagsins
Um Mesópótamíu má fræðast mikið á
veffangi dagsins:
saturn.sron.ruu.nl/~jheise/akkadi-
an/mesopotamia.html