Dagur - 10.10.2000, Side 20

Dagur - 10.10.2000, Side 20
20- ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 Bygging memiingar húss gæti hafist 2002 Rætt hefur verið að menningarhús myndi rísa á uppfyllingunni við Strand- götu á Akureyri. Engar framkvæmdir verða á árinu 2001 en vonir standa til að hægt verði að komast inn í hönnunarferilinn áþví ári. Fulltrúar frá Akureyrarbæ og menntamálaráðuneyti hafa und- anfarnir vikur rætt um það hvern- ig mcnningarhús ætti að rísa á Ak- ureyri samkvæmt yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar frá því 7. janúar 1999, en helst er talið að það rísi á uppfyllingunni austan Glerár- götu og sunnan Strandgötu. Gert er ráð fyrir að Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ogTónlistarskóIinn áAkureyri hafi fasta aðstöðu í húsinu. Samkvæmt áætlun Arkitekta- og verkfræði- stofu Hauks getur stofnkostnaður numið um 1,6 milljarði króna. Enginn salur er á Akureyri sérstak- lega hannaður fyrir tónlistarflutn- ing. Björn Bjarnason, mennta- málaráðherra, segir að aðilar séu búnir að gera sér glögga grein fyr- ir því hvað eigi að vera í húsinu og allri undirbúningsvinnu milli ráðuneytis og Akureyrarbæjar hafi miðað vel og því sé ekkert að van- búnaði að kynna ákveðnar hug- myndir í því efni innan tíðar. - Er hygging menningarhúss ó Akureyri afmarkoð mál, eða tengist það byggingu annarra menningar- húsa á landinu, s.s. á Sauðárkróki, ísafirði, Vestmannaeyjum og Aust- urlandi? „Það tengist alls ekki. Það eru mismundandi viðhorf á stöðunum varðandi þessi menningarhús og ef menn vilja eiga við okkur sam- starf á öðrum forsendum í menn- ingarlegum efnum þá erum við til- búnir til að skoða það. Auðvitað eru hugmyndir manna um svona hús mismunandi, við erum ekki að útiloka neitt en heldur ekki að krefjast af neinum að fara eftir einhverri forskrift frá okkur,“ segir menntamálaráðherra. Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar og for- maður starfshóps bæjarstjórnar um byggingu menningarhúss, seg- ir að engar framkvæmdir verði á árinu 2001 en vonir standi til að hægt verði að komast inn í hönn- unarferilinn á árinu. „Ef samkomulag næst er spurn- ing hvernig að hönnuninni verður staðið en ég hallast helst að því að um það verði hugmyndasam- keppni og sá undirbúningur gæti þá hafist á næsta ári. Það væri æskilegt að hægt væri að heíjast handa með framkvæmdir á árinu 2002. Eg þori hins vegar ekki að spá neinu um verklok, það snýst m.a. um það hvernig staðið verði að rekstri þess en um það er ein- nig ósamið og einnig um staðsetn- ingu, en við höfum talið uppfyll- inguna heppilegustu lóðina fyrir menningarhús. Flugleiðir hafa sótt um að fá að byggja hótel á uppfyllingunni við hlið menning- arhúss, en formleg umsókn hefur ekki borist frá þeim. En það væri heppilegt að við hlið hússins risi hótel,“ segir Sigurður J. Sigurðs- son. GG Tekjuaukn- inghjá hitaveitu Við endurskoðun Ijárhagsáætlun- ar Hita- og vatnsveitu Akureyrar fyrir árið 2000 eru tekjur áætlað- ar 658.750.000 krónur sem er 4% hækkun milli ára en rekstrargjöld verða sem næst áætlun. Vaxta- greiðslur hældva um 16 milljónir króna vegna vaxtahækkana og gengisþróunar. Gert er ráð fyrir hækkun afskrifta um 6 milljónir króna en fjárfestingaliðurinn vatnsöflun og rannsóknir hækkar um 36 milljónir króna vegna meiri borana en gert var ráð fyrir. Gert er ráð fyrir virkjun borholu fyrir 10 milljónir króna að Lauga- landi á Þelamörk og bygging dælustöðvar við Glerártorg kostar 21 milljón króna en hvorugur þessara liða var inni í fjárhagsá- ætlun en á móti voru felldir niður þrír framkvæmdaliðir að upphæð 10 milljónir króna. Heildarfjár- festing verður 173,7 milljónir króna í stað 116,5 milljóna króna. Veitustjóm hefur gert samning við Svanbjörn Sigurðsson, fyrrver- andi rafveitustjóra, sem nú við sameiningu veitnanna tekur við nýju starfi ráðgjafa í ýmsum orku- málum framtíðarinnar hjá Akur- eyrarbæ og hefur hann aðsetur á bæjarskrifstofunum f Geislagötu. GG Það var margt fróðlegt sem skátarnir iærðu á mótinu á Þeiamörk og því full ástæða til að brosa í góða veðrínu. MYNDIR BRINK Um 150 skátar af Norðurlandi voru samankomnir á fræðslumóti f Þelamörk í Hörgárdal um helgina. Að sögn Helga Grímssonar sem sá um námskeiðið fyrir hönd Bandalags íslenskra skáta er hér um ár- vissan viðburð að ræða þegar skátar úr skátafélög- unum á Akureyri, Dalvík, Sauðárkróki og Húsavík koma saman og læra eitt og annað um skátastarfið og það sem því fylgir. „Þetta er svona fræðsluhelgi fyrir skátana þar sem menn fá tækifæri til að upp- lifa náttúruna og eldri og reyndari skátaforingjar kenna þeim yngri hin ýmsu skátatrix og miðla af reynslu sinni,“ sagði Helgi í samtali við Dag. Mik- ið var um útivist og kennslu í ýmsu sem henni fylg- ir, einnig í leikjum og skyndihjálp og á Iaugardags- kvöld var að sjálfsögðu haldin gríðarmikil kvöld- vaka að skátasið. Krakkarnir sem tóku þátt í þess- ari fræðsluhelgi voru á aldrinum 12 ára til tvítugs, en leiðbeinendur og foringjar voru vitaskuld marg- ir mun eldri. Hvora le/ðina eigum við nú að fara? Ungir skátar leysa verkefni við þjóðveginn við Þelamörk. Norðlenskir skátar á fræðslmnót Söfnuðu 600 |nis. upp í dóphundiun Daníel Guðjónsson, yfirlögreglu- þjónn á Akureyri, lýsir afar mik- illi ánægju og þakklæti með það framtak sem unnið hefur verið undanfarið til að kosta þjálfun fíkniefnahunds á Akureyri. SI. föstudagskvöld héldu Lions- menn hagyrðingakvöld í Eyja- firði og rann allur ágóði sam- kundunnar til þjálfunar hunds- ins. Einn lögreglumanna á Akur- eyri hefur boðist til að þjálfa hundinn upp endurgjaldslaust en upphæð Lionshreyfingarinn- ar sem nemur 600.000 kr. mun fara í útlagðan kostnað vegna þjálfunarinnar. Hvolpurinn er þegar kominn til Akureyrar og er hann af Iabradorkyni. Upp úr áramótum hefst þjálfun hans og er talið að hún taki 4-5 mánuði. Hundur- inn ætti því að vera tilbúinn í slaginn næsta sumar ef vel tekst til með þjálfun hans. „Þetta er mjög gleðilegt," segir Daníel. Lionsmenn eiga miklar og góðar þakkir skilið fyrir þetta framtak sem og lögreglumaðurinn sem hefur tekið þetta að sér endur- gjaldslaust." Lögreglan kýs að halda nafn- leynd yfir lögreglumanninum til að honum gangi betur að vinna starf sitt og að sama skapi telur lögreglan ekki heppilegt að heimila myndatökur af hvolpin- um. Hann mun verða notaður til leitar fíkniefna á ýmsum al- menniim vettvangi s.s. í vöruaf- greiðslum í bílum og á heimil- um. Engin fjárveiting hefur fengist til þjálfunar fíkniefna- hunds frá ríkinu en embætti lög- reglunnar á Akureyri hefur gefist kostur á afnotum af dópdýrum höfuðborgarsvæðisins. „Hins vegar sjáum við ótalmarga kosti við að hafa hund hér á staðn- um,“ segir Daníel. BÞ SKOÐANIR BRYNJÓLFS „Torg hins Iiiniiieskíi friðar Glerártorg virðist hafa fengið viðurnefnið sem er yfirskriftin yfir þessum pistli. Þarna hefir ýmislegt skarast í framkvæmdum og við það hefir reynt á þolin- mæði framkvæmdaaðila og þeir orðið að sýna biðlund með ýmsa verkþætti. Ekki er gott að komast hjá þessu við svona fram- kvæmdir og ekki neinn sérstakur sökudólgur. En menn eru hug- kvæmir þegar kemur að þvf að skýra eitthvað auknefnum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.