Dagur - 15.11.2000, Side 1
1
Fjárskortur til lög-
reglu hamlar raim
sóknum og ýtir undir
vanheilsu hjá afbrota-
mönnum. Kurr meðal
lögreglumanna vegna
ástandsins.
Sveinn Andri Sveinsson lögmað-
ur og fyrrum borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks veltir upp spurning-
um um forgangsröðun verkefna
hjá lögreglunni í ljósi yfirvinnu-
banns sem staðfest er að bafi
harnlað rannsóknum og haft
áhrif á réttarfarsleg úrræði í
sakamálum. „Manni hefur ekki
fundist vandamál að fá lögreglu-
menn í yfirvinnu þegar kemur að
því að passa tóm hílastæði á
Þingvöllum eða halda hlífiskildi
yfir stríðsglæpamönnum frá
Kína. Þá virðist nóg fé vera til,“
segir Sveinn Andri.
Lögmaðurinn falaðist nýverið
eftir upþlýsingum frá lögreglunni
vegna tafa sem urðu á afgreiðslu
máls hjá skjólstæðingi hans í
meintum 10 kg innflutningi á
hassi. I opinberri fyrirspurn var
lögreglan m.a. innt eftir því hvort
fjárskortur hefði
hægt á rannsókn-
inni og einnig
spurði Sveinn
Andri hvaða skýr-
ingar væru á því
að aðeins ein
skýrsla hefði ver-
ið tekin af skjól-
stæðingi hans á
þremur vikum í
gæsluvarðhaldi.
Benda má á að
áhrif einangrunar
hafa mjög verið
til umræðu und-
anfarið. Fasta-
nefnd á vegum
Evrópuráðsins
hefur gagnrýnt ís-
lenskt réttarkerfi
vegna ofnotkunar á gæsluvarð-
haldi og fyrrverandi landlæknir,
Olafur Ólafsson, lýsti því áliti ný-
verið að hætta væri á verulegu
heilsutjóni ef fangar væru lengur
en 3 vikur í einangrun.
Óviðimandi
Sveinn Andri segir að svör lögregl-
unnar hafi á köfl-
um verið „út í
hött“ og þá sér-
staklega þau at-
riði, þar sem fram
kom að ekki væri
hægt að svara
hinu og þessu
vegna leyndar um
starfsaðferðir lög-
reglunnar. „Það er
algjörlega óviðun-
íslensku
réttarfari að
kærði, þolandi þá
andlegu þrekraun
sem langvarandi
einangrunarvist
er, þurfi að sæta
því að einangrun-
arvistin dragist á
langinn vegna þess að embætti
Lögreglustjórans í Reykjavík þarf
að halda sér innan Ijárlaga-
ramma."
Sýndarmarkmið ?
Ahrif fjársveltis hjá framkvæmda-
valdinu eru ekki síður áhyggjuefni
fyrir þjóðfélagið allt og Sveinn
Andri segir að hann hafi orðið var
við mikinn kurr meðal lögreglu-
mannanna sjálfra vegna þess að
rannsóknum þeirra sé stefnt í
voða vegna peningaleysis. „Yfir-
vinnukvótinn í fíkniefnadeildinni
kláraðist í september og það var
staðfest af fulltrúa lögreglustjór-
ans við fyrirtöku rnáls skjólstæð-
ings míns í héraðsdómi, að rann-
sóknir mála hjá fíkniefnadeildinni
núna, hefðu tafist vegna þesa yfir-
vinnubanns. Þetta gerist á sama
tíma og ég efast um að nokkur op-
inber gjaldaliður njóti meiri skiln-
ings út í þjóðfélaginu en aðgerðir
gegn glæpamönnum í fíkniefna-
geiranum. Stjórnmálamenn verða
að vera samkvæmir sjálfum sér.
Markmiðið um fíkniefnalaust ís-
land hljómar sem hjóm eitt þegar
lögréglumenn geta ekki unnið yf-
ininnu."
Dagur náði ekki tali af Sólveigu
Pétursdóttur vegna þessa máls í
gær. — BÞ
Sveinn Andri: Næg yfirvinna hjá
löggunni þegar vernda á stríðs-
glæpamenn.
Leitað Suð-
ur með sjó
Síðdegis í gær og í
gærkvöldi stóð yfir
víðtæk Ieit Suður
með sjó, m.a. á
Vatnsleysuströnd að
Einari Erni Birgis-
syni sem saknað hef-
ur verið frá því á
miðvikudag í síðustu
viku. Þessi aukni kraftur í leitinni
kom í kjölfar nýrra upplýsinga og
vísbendinga sem lögreglu bárust.
Um tuttugu lögreglumenn vinna
að rannsókn málsins og samkvæml
upplýsingum lögreglu var ekkert
útilokað varðandi hugsanleg afdrif
Einars, þar á meðal að honum hafi
verið ráðinn bani. Lögreglan vildi í
gærkvöld engar upplýsingar gefa
um hinar nýju vísbendingar en að
sögn Friðriks Björgvinssonar yfir-
Iögregluþjóns í Kópavogi, sem
stjórnar rannsókninni eru vísbend-
ingarnar sem fram komu í gær þó
ekki þess eðlis að hægt sé að tala
um straumhvörf í málinu.
Einar Örn
Birgisson.
í gær hóf Röskva, samtök félagshyggjufólks við HÍ, próflestur haustannar á þingpöllum Alþingis. Tilgangurinn var
að benda á það aðstöðuleysi sem Háskóli íslands býr við og ítreka kröfur stúdenta um að ríkið veiti aukafjárveit-
ingu til byggingaframkvæmda við skólann. - mynd: pjetur
Kári Stefánsson forstjóri.
Meiri tekjur
deCODÉ
deCODE aflaði 198,7 milljóna
Bandaríkjadala í fyrsta almenna
hlutafjárútboði fyrirtækisins í júlí
sl. í septemberlok hafði fyrirtækið
210,4 milljónir Bandaríkjadala til
ráðstöfunar í handbæru fé.
Tekjur þriðja ársljórðungs voru
5,6 milljónir dala og hafa aukist
rúmlega 57% frá sama tímabili í
fyrra, að mestu vegna hækkunar
álangatengdra tekna frá samstarfs-
aðila fyrirtækisins. Útgjöld til
rannsókna- og þróunarstarfsemi
námu 11,7 milljónum dala og til
stjórnunar- og almenns rekstrar-
kostnaðar 4,4 milljónum, eða 16,1
milljón samtals. Tap fjórðungsins
samkvæmt rekstrarreikningi nem-
ur 7,6 milljónum og 24,9 milljón-
um frá áramótum (2,2 milljörðum
kr.).
Uppgötvanir
Islensk erfðagreining og F. Hoff-
mann-La Roche tilkynntu í gær að
vísindamönnum IE hefði tekist að
staðsetja erfðavísi á litningi sem
tengist útæðasjúkdómi, sem lýsir
sér í minnkuðu blóðflæði til útlima
og getur í verstu tilfellum leitt til
útlimamissis. Þykir líklegt að
ákveðinn breytileiki í þessum
erfðavísi eigi þátt í myndun sjúk-
dómsins. Niðurstöður eru sagðar
sterkustu vísbendingar sem fund-
ist hafa fyrir því að erfðir séu mik-
ilvægur sjúkdómsþáttur. En lengi
hefur verið vitað að reykingar,
hreyfingarleysi, kólesterríkt fæði
og hár blóðþrýstingu auka líkurnar
á útæðasjúkdómi.
ÍE og Roche tilkynntu einnig að
vísindamenn IE hafi staðsett
erfðavísi á litningi sem tengist
beinþynningu og talinn er eiga
stóran þátt í m^Tidun sjúkdómsins
í einstaklingum sem bera ákveðinn
hreytileika í honum. Samkvæmt
samstarfssamningi fyrirtækjanna
mun Holfmann-La Roche inna af
hendi áfangagreiðslur vegna þess-
ara kortlagninga og nýta þekking-
una til að þróa ný meðferðar- og
greiningarúrræði, segir í frétt frá
IE. - HEI
vinnur verk sín í hljóði
PdOOffséé&iS? i
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
BRÆÐURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Bless bursti
Nú á ég skilið að fá uppþvottavél