Dagur - 15.11.2000, Blaðsíða 2

Dagur - 15.11.2000, Blaðsíða 2
2- MIDVIKVDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 Dagur FRÉTTIR Skelfilegt öryggis- levsi fyrir austan Brýnt að koma sjúkra- fhigsmáliun Austfirð- iuga í lag sem fyrst. Engir samningar um sjúkraflug á landinu öllu. Einar Rafn Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Heilsugæslustofn- unar Austurlands, segir Austfirð- inga mjög uggandi vegna þess að sjúkraflugsmál eru í ólestri í fjórðungnum. Ofremdarsástand hefur verið í þessum málum síð- an í maí og ekki liggur fyrir hvenær úr rætist. „Þetta er óþol- andi. Vitund Austfirðinga um að þessi þáttur öryggisþjónustu sé ekki til staðar, gerir fólk óöruggt og óhamingusamt," segir Einar Rafn. Heilbrigðisráðuneytiö er í við- ræðum við bjóðendur eftir að sjúkraflug á landinu öllu var boðið út en á meðan ríkir „kaos“ fyrir austan, að sögn Einars Rafns. Flugfélag Austurlands var til langs tíma mikilvæg ör- yggistaug en það hefur nú hætt starfsemi. Síðan í vor er engin flugvél á svæð- inu sem hægt er er að nota til sjúkraflugs og á sama tíma eru engir samningar í gildi í landinu um sjúkraflug. „Þegar við höf- um hringt í neyðartilfellum undanfarið hef- ur það verið al- gjörlega undir hælinn lagt að nokkur sé viðlát- inn til að sinna okkur og það er skelfileg upplifun," segir Einar Rafn. Þyrla Landhelgisgæslunnar er eitt öflugasta öryggistækið þegar slys eða bráð veikindi eru annars vegar en við- bragð hennar veltur algjörlega á veðurskilyrð- um. Vont veður getur þannig orðið til þess að þyrlan þarf að fljúga með ströndinni og þegar þannig háttar til tekur það hana 3-4 klukkutíma að komast austur. ítrekuð vandamál Slys tveggja sjó- manna sem urðu að bíða klukku- stundum saman eftir sjúkraflugi er langt í frá eina tilfellið sem upp hefur komið, að sögn framkvæmdastjóra Heil- brigðisstofnunar Austurlands. Nokkrum sinnum hefur undan- farið verið leitað eftir sjúkraflugi og staðfesting fengist á að von væri á vél innan skamms en ekk- ert orðið úr. Skýringarnar hafi verið skortur á tiltækum flug- mönnum hjá viðkomandi félagi enda hefur enginn skipulagða bakvaktarneyðarskyldu sem stendur. „Þetta getur valdið mannskaða hvenær sem er og ég vona að ráðuneytið flýti aðgerð- um sínum eins og kostur er.“ Miðstöð á Akureyri Þess má geta að Heilbrigðis- stofnun Austurlands hefur sam- þykkt þá tillögu að miðstöð sjúkraflugs verði á Akureyri. Sú samþykkt er hyggð á þeirri for- sendu að gerð verði út öflug flug- vél með mannskap sem myndi ekki aðeins nýtast til að sækja sjúka og slasaða heldur einnig til að flytja læknishjálp og hjúkrun á staðinn. Tiltölulega skamman tíma tekur einnig að komast frá Akureyri til allra staða landsins enda er kaupstaðurinn miðsvæð- is á landsvísu. Ovíst er enn hvort Austfirðingum verður að þessari ósk. - BÞ Einar Rafn Haraldsson: Ástandið getur valdið mannskaða hvenær sem er. Nýr tölvuvírus er kominn. Jólaormux í tölvuimm í gær smituðust tölvur fjöl- margra Islendinga af nýjum ormi sem gengur undir nafninu Navidad. Veiru- og ormafræð- ingurinn Friðrik Skúlason sendi í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem hann varar fólk við orm- inum. Ormurinn dreifir sér með töivupósti og sendir sjálfan sig áfram sem viðhengi. Skráin heitir NAVIDAD.EXE, og það er gríðarlega mikilvægt að fólk opni alls ekki þessa skrá. Orm- urinn getur að sögn Friðriks Skúlasonar haft alvarleg áhrif á starfshæfni tölva og getur komið í veg fyrir að hægt sé að keyra forrit í þeim. Eins og nafn ormsins bendir til rekur hann uppruna sinn til Spánar. „Navidad" þýðir einmitt jól á spænsku, en víst er að tölvunotendur geta vel hugsað sér skemmtilegri glaðning en þennan ófögnuð. Kirkjan í keng Með Sigurbirni Einarssyni efldist vegur hinnar íhaldssömu guðfræði að nýju og um leið varð kirkjan nánast ríki I ríkinu. Áherslan varð á kirkjuna sjálfa sem stofnun með langa sögu og merkar hefðir, að sögn sr. Gunn- ars Kristjánssonar á Reynivöllum. íslenska þjóðkirkjan er ekki bara í kreppu, heldur kengbogin. Hún er íhaldssöm, einangruð og lúin, segir séra Guunar Kristjánsson. I nýjasta hefti Andvara er að finna hressilegar hugleiðingar séra Gunnars Kristjánssonar, prófasts og sóknarprests á Reyni- völlum í Kjós, um þróun íslensku þjóðkirkjunnar á tuttugustu öld. Gunnar er þar ómyrkur í máli og segir þjóðkirkjunni óspart til syndanna. Gunnar segir að kirkjan sé „fjarri því að vera eins keik og ætla mætti og vera ætti.“ „Lúther sagði að maðurinn væri ‘kengboginn inn í sjálfan sig’,“ segir Gunnar. Hlutverk kirkjunnar sé að „leysa manninn, rétta úr honum, gefa honum nýja von og nýjan kraft til að lifa.“ Hins vegar sé vandséð hvort hún sé fær um að sinna þessu hlutverki eins og komið er fyrir henni, enda sé hún sjálf komin í keng. Gunnar segir að kirkjan hafi „einangrast frá þjóðinni með því að vera fjarri vettvangi þegar um málefni samfélagsins er að ræða.“ Ennfremur segir: „Hún hefur þróast í þá áttina að helga sig helgiathöfnum og skapa sér með þeim hætti ímynd sem hæfir þeirri guðfræði sem hún hefur helst iðkað á síðari hluta aldar- innar, þ.e.a.s. íhaldssamri guð- fræði.“ Hins vegar hafi kirkjan „haklið velli með því að standa vörð um helgiathafnir á tímamótum í ævi einstaklinga, fjölskyldna og sam- félags," segir Gunnar. Hann segir raunar að framan af öldinni hafi frjálslynd guð- fræði smám saman verið að ryðja sér til rúms innan þjóðkirkjunn- ar. Akveðin umskipti hafi hins vegar orðið þegar Sigurbjörn Einarsson tók við biskupsemb- ætti árið 1959. IVIeð Sigurbirni hafi vegur hinnar fhaldssömu guðfræði eflst að nýju og um leið hafi kirkjan orðið nánast ríki í rfkinu. Aherslan verður á kirkjuna sjálfa sem stofnun með langa sögu og merkar hefðir, en „áður höfðu kirkjunnar menn fremur talað um trúna, kristnina eða kristin- dóminn." Eftir að Sigurbjörn lét af emb- ætti áttu frjálslyndari viðhorf þó greiðari aðgang að yfirstjórn kirkjunnar, samkvæmt frásögn séra Gunnars. Hins vegar sé „hinum langa og íhaldssama kafla í sögu kirkjunnar1' langt í frá Iokið. „Hann hefur að margra mati haft í för með sér atgervis- flótta frá kirkjunni og gert hana að áhrifalítilli stofnun með tak- markað aðdráttarafl fyrir ungt fólk skapandi í hugsun, þar sem fátækleg umræða um trú og lífs- gildi hefur farið fram og skilað litlum sýnilegum árangri í al- mennri þjóðfélagsumræðu," seg- ir í grein Gunnars. „Kirkjan heldur á ný út í óvis- su nýrrar aldar, lúin eftir mikil afmælishátíðahöld," segir Gunn- ar í lok greinar sinnar. Tíminn muni hins vegar leiða í Ijós „hvort henni tekst að rífa sig úl úr gamla tímanum og rétta úr hognu baki og brjótast út úr eig- in heimi.“ — GB Cleo Lane á Broadway Jasssöngkonan Cleo Laine er væntanleg til Islands, f þriðja sinn, ásamt eiginmanni sínum John Dankworth og hljómsveit og ætla að halda tvenna tónleika 28. og 29. nóvember. - iiei HlutafjárauJoimg í Samherja Útgerðarfyrirtækið Samherji hélt hluthafafund í gær þar sem sam- þykkt var hlutafjáraukning að upphæð 285 milljónir króna, eða 20%, sem er um 2,5 milljarðar króna að raunvirði miðað við gengi hluta- bréfa í Samherja. Eftir það er hlutafé í Samherja 1.660 milljónir króna að nafnvirði. Þessi hlutafjáraukning er vegna fyrirhugaðrar sameiningar útgerð- ar- og fiskverkunarfyrirtækisins BGB-Snæfells í Dalvíkurbyggð við Samherja um næstu áramót. KEA selur sinn hlut í fyrirtækinu gegn hlutabréfum í Samherja. Núverandi hluthalar BGB-Snæfells eignast 26% í Samherja en núverandi eigcndur Samherja um 74%. KEA verð- ur stærsti einstaki hluthafinn með 17% hlut. Kosinn var ný stjórn Samherja á fundinum. 1 henni eiga sæti 5 menn og tilnefndi KEA einn aðalmann og annan í varastjórn. — gg Verdhækkanir hjá horginni Á fundi borgar- ráðs í gær voru afgreiddar ýmsar gjaldskrárhækk- anir sem eiga að koma til fram- kvæmda í byrjun næsta árs, eða eftir einn og hálf- an manuð. Þess- ar hækkanir eru í tengslum við fjárhagsáætlun borgarinnar 2001 og bitna mest á öldruðum og barnafjöl- skyldum. Sem dæmi þá hækkar verð fvrir heimaþjónustu aldraðra úr 200 í 230 krónur, eða 15%. Innritunargjatd í opið félagsstarf hækkar úr 400 í 500 krónur, eða um 25%. Þá hækkar kaffibollinn í þjónustumiðstöðvum aldraðra úr 75 krónum í 80 krónur. Ennfremur hækkar gjaldskrá Ieikskóla um 3,5% og gjaldskrá gæsluvalla hækkar úr 100 krónum í 150 krónur, eða um 50%. —GRii Gjaldskrá leikskóla hækkar um 3,5% og gjaldskrá gæsluvalla hækkar úr 100 krónum 1150 krónur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.