Dagur - 15.11.2000, Page 5
M IDVIKUDAGU R 1S. N Ó V E M B E H 2000 - S
FRÉTTIR
Skattt ekj ur borgar
aukast um 13,7%
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri telur að ekkert sveitarfélag hafi
náð eins mikillli skuldalækkun og borgin.
Útsvarið hækkar.
Rekstur 76,5% af
skatttekjum. Mest til
fræðslumála. Fjár-
málaleg óstjóm.
I frumvarpi að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar 2001 er gert
ráð fyrir því að skatttekjur borg-
arsjóðs muni aukast um 13,7%.
Þar munar mest um hækkun út-
svars í 12,7%. Aformað er að
greiða niður skuldir borgarsjóðs
um 2,8 milljarða króna á næsta
ári og þar af um hálfan milljarð
með auknum skatttekjum. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri telur að ekkert sveitarfélag
hafi náð eins mikillli skulda-
lækkun og borgin, enda lækka
heildarskuldir á hvern íbúa um
ríflega 21 þúsund krónur. Inga
Jóna Þórðardóttir oddviti minni-
hlutans í borgarstjórn telur
hinsvegar að fjárhagsáætlunin
sýni enn og aftur fjármálalega
óstjórn R-listans þar sem heild-
arskuldir hækka um 3,5 millj-
arða á milli ára.
Mest til fræðslumála
A blaðamannafundi í gær kom
fram að meðal stærstu verkefna
borgarinnar á næsta ári er skóla-
byggingar og knattspyrnuhús í
Grafarvogi ásamt mikilli upp-
byggingu í umhverfis- og orku-
málum. A næsta ári sér einnig
fyrir endann á tveimur stórum
átaksverkefnum, þ.e. einsetn-
ingu grunnskólans og hreinsun
strandlengjunnar. Af einstökum
málaflokkum fer mest af hvcrri
skattkrónu til fræðslumála, eða
29%, 11% til leikskóla og annað
eins í félagsþjónustu og 10% í
götur og holræsi. Hækkun
rekstrargjalda er mest til
fræðslumála, eða 41% og munar
þar að mestu um tölvumál og
aukin stjórnendakvóta. Áætlað
er að til reksturs fari um 76,5%
af skatttekjum næsta árs á móti
96,4% árið 1994.Gert er ráð fyr-
ir að Orkuveitan fjárfesti á næsta
ári fyrir 5,4 milljarða króna á
sama tfma og áformað er að lán-
tökur fyrirtækisins nemi um 4,5
milljörðum. Reiknað er með að
hagnaður af fyrirtækinu aukist
um 8,6% og verði rúmur 1,1
milljarður króna.
Óstjóm
Inga Jóna Þórðardóttir oddviti
minnihlutans í borgarstjórn seg-
ir að afleiðingin af óstjórn R-list-
ans í fjármálum borgarinnar á
undanförnum árum birtist m.a. í
því að R-listinn telur óhjákvæmi-
legt að nýta útsvarsheimildir til
fullnustu. Það þýðir að útsvars-
tekjur næsta árs munu gefa 2,2
milljarða til viðbótar við það sem
áætlað er að innheimtist á þessu
ári. Hún bendir einnig á að til
viðbótar við auknar álögur og
meiri skatttekjur vegna góðæris
hefur borgin á undanförnum
árum sett gríðarlega fjármuni í
reksturinn í formi holræsagjalds,
stórhækkaðra arðgreiðslna,
millifærslu vegna leiguíbúða
borgarinnar auk þess sem Orku-
veitunni hefur verið gert að
greiða marga milljarða til borgar-
sjóðs. - GRH
Jón skoðar
tilboðið í
Valhöll
„Eg er að skoða þetta tilboð,"
sagði Jón Ragnarsson eigandi
Hótels Valhallar í samtali við
Dag í gær. Sem kunnugt er hef-
ur breski athafnamaðurinn
Howard Kruger, gert Jóni nýtt
tilboð í hótelið og er það uppá
470 millj. og er um margt svipað
hinu fyrra - að því er Jón segir.
Aðspurður kvaðst Jón ekkert
hafa heyrt frá Þingvallanefnd
vegna þessa tilboðsins, en í sín-
um huga breytti það engu til eða
frá enda hefði nefndin enga lög-
sögu yfir hótelinu. Hins vegar
kvaðst Jón að sjálfsögðu kynna
málið fyrir hreppsnefnd Þing-
vallasveitar, en sveitarsjóður
hefði lögum samkvæmt for-
kaupsrétt að eigninni ef til þess
kærni. - PÞG. / SBS.
VerkfaH boðað
á kaupskipum
Brytar og matsveinar á kaupskip-
um hafa boðað verkfall eftir
fimm daga, eða frá og með 20.
nóvember n.k. hafi samningar
ekki tekist fyrir þann tíma. Þeir
krefjast hliðstæðra launahækk-
ana og aðrir yfirmenn á kaup-
skipum, eða sem nemur hátt í
60% hækkun grunnlauna. Brytar
og matsveinar á kaupskipum eru
tæplega tveir tugir manna þar
sem þeir fyrrnefndu eru í meiri-
hluta. Komi til verkfalls mun það
að öllum líkindum stöðva sigling-
ar kaupskipa til og frá landinu og
hafa áhrif á starfsemi Vest-
mannaeyjaferjunnar Herjólfs.
Kjarasamningar bryta og mat-
sveina á kaupskipum voru lausir
um síðustu mánaðamót.
Ari Edwald framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnuh'fsins segir það
skjóta skökku við að fámennasti
hópurinn af þeim sem enn sé
ósamið við á kaupskipum séu að
boða til verkfalls á sama tíma og
viðræður standa yfir við þá og
aðra yfirmenn á skipunum. Af
hálfu atvinnurekenda var í gær
verið að fara yfir málið og m.a.
hvort ekki hafi verið löglega stað-
ið að atkvæðagreiðslu um verk-
fallsboðunina. Hjá brytum voru
t.d. 12 á kjörskrá og þar af greid-
du 5 atkvæði, eða tæplega helm-
ingur. - GRH
Félag um hótel á
Seyðisfirði
Hlutafélag hefur verið stofnað
um 36 herbergja hótelbyggingu á
Öldunni á Seyðisfirði. Sigurjón
Sighvatsson, sem fyrir skömmu
keypti gamla bankann til að inn-
rétta þar hótel, er sagður tilbú-
inn að leggja fram fé í hótclfélag-
ið á Seyðisfirði. Tilgangur félags-
ins er að efla menningartengda
ferðaþjónustu á Seyðisfirði og
standa vörð um aldamótabæinn
Seyðisfjörð, þ.e. endurskapa þá
ímynd.
Til stendur að gera gamla hót-
elið á Seyðisfirði upp og laga fé-
lagsheimilið Herðubreið að ráð-
stefnuhaldi og veitingarekstri. Til
stendur að leigja gömul hús, m.a.
Norðurgötu 2, sem hefur staðið
autt um tíma en hýsti áður versl-
un og jafnvel nýta fleiri gömul
hús við þá götu þar sem bankinn
stæði við endann og mynda þan-
nig heildarmynd. IVlörg hinna
gömlu og glæsilegu húsa á Seyð-
isfirði fengju þannig nýtt og
glæsilegt hlutverk.
Á stofnfund hótelfélagsins
mætti Magnús Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Húsfriðunarnefnd-
ar ríkisins. Hann var fylgjandi
þeim áformum sem fram komu á
fundinum um nýtingu þeirra
gömlu húsa sem heyra undir
nefndina. Á Seyðisfirði er mikill
áhugi á því að gera upp hús
ÁTVR og gamla sjúkrahúsið. Það
yrði vegleg viðbót við áðurnefnd-
ar nýtingarhugmyndir gamalla
húsa á Seyðisfirði, sem óvíða á
landinu er meira af. - GG
60.000 fyrir akstur án réttinda
23 ára Þingeyingur var í gær dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra til greiðslu 60.000 króna sektar til ríkissjóðs. Maðurinn er fund-
ur sekur um umferðarlagabrot aðfaranótt sunnudagsins 2. júlí 2000.
Þá ók hann, sviptur ökurétti, bifreið eftir þjóðvegi 1 á Svalbarðsströnd
og áleiðis yfir Víkurskarð þar til lögreglan stöðvaði akstur hans upp á
skarðinu. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu strax.
Ákærði viðurkenndi brot sín en hann hefur áður komið við sögu lög-
reglu. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákvörðun um refsingu
ákærða frestað skilorðsbundið til tveggja ára með dómi Héraðsdóms
Norðurlands eystra þann 22. október 1999 vegna fjársvika. Þá var
hann þann 1 5. febrúar sl. dæmdur til sektargreiðslu og sviptingar öku-
réttar vegna ölvunaraksturs.
„Með heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga þykir rétt að áður-
nefndur skilorðsdómur haldi sér og refsing hans verði ákveðin sérstak-
lega fyrir brot ákærða í þessu máli,“ segir í dómi héraðsdóms. - RÞ
Morðmálið fyrir luktum dyrum
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Ólafar Pétursdóttur dómstjóra Hér-
aðsdóms Reykjaness um að þinghald í morðmálinu f Keflavík skuli fara
fram fvrir luktum dyrum, en Þór Jónsson fréttamaður hafði kært þann
úrskurð Olafar.
Hæstiréttur taldi að með því að ákveðið hefði verið að reka sem eitt
mál morðmálið sjáll't og nauðgunarmál því óbeint tengdu séu „í ýms-
um atriðum slík tengsl milli sakarefna samkvæmt ákærunum að örðug-
leikum væri háð að greina að meðfcrð þeirra fyrir dómi. Þegar af þeir-
ri ástæðu verður ekki komist hjá því að ákvörðun um að dómþing verði
háð fyrir luktum dyrum taki til málsins í heild. Verður hinn kærði úr-
skurður því staðfestur." - FÞG
Framhald á loðnuveiðum
Víkingur AK, nótaskip í eigu Haraldar Böðvarssonar á Akranesi, land-
aði á Akranesi í gær um 1.200 tonnum af loðnu sem veiddist út af Vest-
fjörðum. Víkingur landaði fullfermi af loðnu sl. fimmtudag en hélt þó
ekki strax á miðin aftur vegna brælu.
Veiðin fékkst á þremur nóttum. Loðnan syndir nú á undan sterkum
straumi og stefnir hraðbyri austur á bóginn norður fý'rír Horn, senni-
lega að Kolbeinseyjarsvæðinu norður af landinu, líkt og hún hefur oft
gert í gegnum árin á þessum árstíma. - GG