Dagur - 15.11.2000, Page 8

Dagur - 15.11.2000, Page 8
8- MIÐVIKUDAGUR 1S. KÓVEMBER 2000 ■ SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: Jóhannes Sigurjónsson johannes@simnet.is „Og úr því að ég er hættur að vera fréttastjóri get ég leyft mér að vera afspymu jákvæður og staðhæfa að nánast allir flokk- arnir hafa núna óvenju hæfa leið- toga, þótt ólíkir séu.“ - Páll Magnússon í viðtali í Degi - Völsimgar á toppiim á ný! Gengi Völsunga í knattspyrnu og öðrum íþróttum hcfur verið heldur svona rýrt á undanförnum árum og af þeim sökum ekki verið mikið Ijallað um þetta ágæta og fornfræga íþróttafélag á Húsavík í fjölmiðlum. En nú hef- ur orðið heldur betur breyting á og heilmikil umfjöllun hefur verið um Völsunga f ræðu og riti að undanförnu. Þetta tengist ekki síst þeirri stað- reynd að nú er hún loksins komin út, bókin um Völsunga, mikið verk og fagurlega myndskreytt og verður örugglega jólagjöfin á Húsavík í ár. Það ætti ekki að draga verulega úr vinsældum bókarinnar meðal íþróttaáhuga- manna þó ekki sé eingöngu fjallað um Völsunga í þessu riti, því þar mun lítillega vera vikið að þýska tónskáldinu Wagner í framhjáhlaupi. Bókin heitir reyndar „Wagner og Völsungar" og er eftir þann víðfræga sportista og glúntasöngvara, Arna Björnsson. Arni hefur hingað til ekki þótt vera verulega áhugasamur um fótboltafélög og hefur lítt um þau fjall- að sem fræðimaður, en lengi er von á einum og batnandi manni er best að lifa. Áróöursgildi Lífsleiöa Út er komin nú bók í ritröðinni „Lífsgleði" þar sem rætt er við valinkunn og glaðleg gamalmenni sem jafnan horfa á björtu hliðarnar. Eldri borgari var að fletta þessari bók í búð á dögunum og var satt að segja ekki kátur þegar hann tautaði: „Þetta er nú ögn gáfulegt. A sama tíma og við gamla fólkið eru í harðvítugri kjarabaráttu og erum að halda því fram að við lepj- um dauðann úr skel, þá er dælt á markaðinn bjartsýnisbókum um gamla fólkið þar sem allt er í lukkunnar velstandi undir heitinu „Lífsgleði". Þetta er ekki gott innlegg í kjarabaráttuna og væri nær að gefa út, a.m.k. tíma- bundið, ritröðina „Lífsleiði", þar sem eingöngu yrði rætt við gamalt fólk sem hefur það verulcga skítt og lifir nálægt hungurmörkum. Menn verða stöðugt að hafa í huga áróðursgildið þegar þeir eru í kjarabaráttu“. Sagði gamli maðurinn og keypti ekki bókina „Lífsgleði", af hags- munapólitískum ástæðum. Pamela Anderson giftist Tommy Lee tvisvar. Nú ætlar hún að giftast í þriðja sinn Marcus Schenkenberg en hann er fyrirsæta og nokkru yngri en hún. Marcus hefur verið ötull við að lýsa yfir ást sinni á Pamelu í fjölmiðlum. „Hún er fallegasta, frægasta og kynþokkafyllsta kona í heimi,“ sagði hann á dögun- um. Einhver hafði orð á því að það væri miður að hann hefði ekki haft orð á gáfum hennar eða persónuleika, en kannski er ekki af miklu að taka á því sviði. Marcus segist ekkert vilja fremur en eiga börn með Pamelu. Einn slúð- urdálkahöfundur sagði að víst væri að börnin yrðu falleg en sennilega ekki sérlega greind. Pamela Anderson og Marcus Schenkenberg stefna á hjóna- band og eru óþreytandi við að lýsa yfir ást sinni í fjölmiðlum. FINA OG FRÆGA FOLKIÐ Pamela og Marcus fDwmr Úr leik SA og SR á Akureyri fyrr í vetur. Jafutefli hjá erkifjeiiduin Eftir fínim leiM í 1. deild karla í íshokkí, eru Bimimir með fullt hús stiga í toppsæti deildariimar eftir þrjá leiki. SA er í öðm sæt- inu með þrjú stig eftir þrjá leiM, en íslands- meistarar SR em á botninum með eitt stig eftir íjóra leiM, en lið- ið fékk sitt íyrsta stig um helgina, eftir 6-6 jaínteíli gegn SA á sunnudaginn. Gömlu stórveldin í íshokkíinu, SR og SA, gerðu 6-6 jafntefli þegar liðin mættust á sunnudaginn í Skautahöllinni í Laugardal og var þar hart barist að venju. Svo hart að sumir lágu óvígir eftir og aðrir með brotin nef eða aðrar smá- skeinur sem vel eru þekktar í þess- ari hörðu íþrótt. Heimamenn sem áttu harma að hefna frá því í fyrstu umferðinni fyrir norðan, þar sem þeir töpuðu 10-6, byrjuðu með miklum látum á sunnudag- inn og höfðu skorað þrjú mörk þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum, án þess að norðanmönn- um tækist að svara lyrir sig. Þá loksins vöknuðu norðanmenn til lífsins svo um munaði og skoruðu þeir þijú mörk á móti einu marki sunnanmanna það sem eftir lifði lotunnar og staðan því orðin 4-3 SR í vil. SA-liðið hélt sama dampi í annarri lotunni, vann hana 0-2 og þar með var staðan orðin 4-5 fyrir SA. Í þriðju lotu fór að bera til tíðinda, en þá skoruðu norðan- menn strax á fyrstu mínútu og staðan þá orðin 4-6 fyrir SA. Þá fór heldur betur að hitna í kolun- um og þegar lotan var rétt hálínuð var Sigurður Sigurðsson rekinn nefbrotinn í sturtu fyrir gróft brot gegn bcsta leikmanni SR, Svían- um Hendrich Sverremo, sem í kjölfarið var borinn af velli og spil- aði ekki meira með. Þessi síðasta Iota einkcnndist af útafrekstrum og reyndist það norðanmönnum ofviða að spila ýmist einum eða tvcimur Ieikmönnum færri það sem eftir lifði leiks. SR-ingar létu það hins vegar ekki á sig fá að hafa misst útaf sinn besta mann og sýndu sínar bestu hliðar á síðustu mínútunum og hinn eldfljóti Rússi, Vladimir Baranov, skoraði tvö síðustu mörk leiksins og jafn- aði í 6-6, sem urðu lokatölurnar. Mörk/stoðscndingar: SA: Rún- ar Rúnarsson 2/1, Stefán Hrafns- son 2/1, Haraldur Vilhjálmsson 1/1, Sigurður Sigurðsson 1/0, Sveinn Björnsson 0/1, Björn Jak- obsson 0/1. SR: Vladimir Bara- nov 2/2, Hendrich Sverremo 2/0, Helgi Páll Þórisson 1/0, Davíð Kristinsson 1/0, Elvar Jónsteins- son 0/1, Snorri Rafnsson 0/1, Sig- urbjörn Þorgeirsson 0/1. Brottrekstrar: SA 33 mínútur + 1 útilokun. SR 18 mfnútur. Staðan: Björninn 3 3 0 0 40:1 2 6 SA 3 1 1 1 24:25 3 SR 4 0 1 3 16:43 1 Íshokkí enginn hamaleikur Það er greinilegt að íshokkí er enginn barnaleikur, alla vega ekki þegar í alvöruna í meistarafloldd er komið. Mikill hraði og harka einkenna oft Ieikina og er þá öll- um hugsanlegum brögðum beitt. Skemmtileg lýsing er á leik SR og SA á vefsíðu Bjarnarins, þriðja Iiðsins í deildinni og segir þar eft- irfarandi: „Leikur SR og SA í gær- kvöldi var ágætlega spilaður af báðum liðum, en það einkenndi þó Akureyringa hversu grófir spil- arar þeir eru, og virðast þeir ekki ætla að læra það að kylfuna sem þeir eru með í hendinni eigi að nota á pukkinn, en ekki á bakið á andstæðingnum. Dómarinn í Ieik- unum náði þó að halda Ieiknum mjög vel gangandi og spilaðist leikurinn ágætlega mest allan tím- ann. Leikurinn fór þannig í lot- um, 1 lota 4 -3, 2. lota 4-5 og 3. lota 6-6.“ Akureyringar fá þama svellkald- ar kveðjur frá Björnunum og má því búast við að norðanmenn hugsi sér „kátt til kulsins", þegar liðin mætast á svellinu á Akureyri á laugardaginn. Síðast þegar liðin mættust, í fyrstu umferðinni í Laugardal, unnu Birnirnir stóran sigur, 13-8. Alþjóðlegt ískokkiniot í næstu vihu I næstu viku fer fram alþjóðlegt ís- hokkímót hér á landi sem ber nafnið „Fire on lce“. Fjögur er- lend lið munu rnæta til keppni, þar af þijú bandarísk háskólalið frá Oakland, Arizona og Kaliforn- íu, auk Ice Pirates Hockey Club frá NcwYork. Tvö íslensk úrvalslið taka einnig þátt í mótinu, annars vegar landslið skipað þeim leik- mönnum sem eru að spila hér heima og hins vegar 18 ára lands- liðið styrkt erlendum leikmönnum sem eru að spila hér á landi um þessar mundir. Leildð verður bæði norðan og sunnan heiða og fer keppnin fram dagana 21. - 26. nóvember.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.