Dagur - 15.11.2000, Síða 9

Dagur - 15.11.2000, Síða 9
MIDVIKUDAGVK 1S. NÓVEMBER 2 000 - 9 ÍÞRÓTTIR Þriðji leikiiriim gegn Pólverjuin Mun Atli Edvaldsson, landslidþjálfari fá tækifæri til að fagna gegn Pólverj- um í kvöld? íslendingax og Pólverj- ar leika sinn þriðja knattspymulandsleik þegar landslið þjóð- anna mætast í Varsjá í kvöld. Þá eru liðin 21 ár milli leikja, en síð- ast mættust liðin í Krakow árið 1979, þar sem Pólverjar unnu 20. í kvöld klukkan 17:00 að íslensk- um tíma mætir íslenska karla- landsliðið í knattsp>Tnu því pólska í vináttulandsleik, sent fram fer á Legia-leikvanginum í Varsjá. Þetta er þriðji landsleikur þjóðanna í knattspyrnu, en sá síðasti var leik- inn í október árið 1979, eða fyrir rúmu 21 ári sfðan og því löngu kominn tími til að þjóðirnar reyni með sér aftur. í síðasta leik sem frarn fór Krakow, unnu Pólverjar 2-0 sigur og var hann seinni leikur þjóðanna í undanriðli Evrópumóts landsliða. Fyrri leikurinn fór fram á Laugardalsvelli árið áður og þar unnu Pólverjar einnig 0-2 sigur. Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, var í bvrjunarliðinu í báðum leikj- ununt, en í seinni leiknum var byrjunarliðið skipað eftirtöldum Ieikmönnum: Markvörður: Þor- steinn Bjarnason. Aðrir leikmenn: Orn Oskarsson, Dýri Guðmunds- son, Marteinn Geirsson, Jóhannes Eðvaldsson (fyrirliði), Trausti Har- aldsson, Alli Eðvaldsson, Ásgeir Sigurvinsson, Arni Sveinsson, Teitur Þórðarson, Pétur Péturs- son. Varamenn: Arsæll Sveinsson, Sigurður Halldórsson og Sigurlás Þorleifsson. Þjálfari liðsins svar Rússinn Jurí Ilitchev. Annax leikur í ágúst Það mun hafa verið að tilstuðlan formanrta knattspyrnusambanda þjóðanna, þeirra Eggerts Magnús- sonar og Michal Listkiewicz, sem er góðir kunningjár eftir að hafa starfað saman í nefnd á vegum UEFA, að leiknum var komið á og mun hugmyndinni lýrst hafa skot- ið upp í vor. Eggert sagði á blaða- mánnafundi í Varsjá í fyrradag að þeim félögum hefði lundist tími til kominn að þjóðirnar mættust altur á knattspyrnuvellinum eftir 21 árs hlé og að þegar sé ákveðið að þjóð- irnar munu mætast aftur á ágúst á næsta ári. íslenska liðið hélt til Póllands á mánudagsmorguninn og eftir millilendingu í Kaupmannahöfn var lent í Varsjá um kl. 16:30. Leikmönnum var eldti til setunnar boðið, því strax um kvöldið var tek- in létt æfinga á Legia-leikvangin- urn þar sem landsieikurinn fer fram. Völlurinn er í ágætu ásig- komulagi, en hann er í eigu pólska hersins og öll aðstaða nokkuð komin til ára sinna. Að sögn Atla Eðvaldssonar eru allir Idárir í slaginn, en ein breyt- ing hefur verið gerð á hópnum sem valinn var í upphafi, þar sem Arnar Gunnlaugsson Ieikmaður Leicester gefur ekki kost á sér vegna meiðsla. Hefur Atli valið Ivar Ingimarsson, leikmann Brent- ford í staðinn, en ívar á einn A- landsleik að baki, gegn Suður- Afr- íku árið 1998, en sá leikur fór frarn í Þýskalandi. Endanlegur 16 vianna hópnr gegn Pólverjuni: Marktnenn: Birkir Kristinsson (Stoke) og Árni Gautur Arason (Rosenhorg). Aðrir Ieiknienn: Rúnar Krist- insson (Lokeren), Eyjólfur Sverris- son (Hertha Bcrlin), Arnar Grét- arsson (Lokeren), Ríkharður Daðason (Stoke), Hermann Hreiðarsson (Ipswich), Ivar Ingi- marsson (Brentford), Helgi Kol- viðsson (Ulm), Brynjar Björn Gunnarsson (Stoke), Auðun Helgason (Lokeren), Iiygg\'i Guð- mundsson (Trornsö), Heiðar Helguson (Watford), Arnar Þór Viðarsson (Lokeren), Eiður Smári Guðjohnsen (Chelsea) og Bjarni Guðjónsson (Stoke). Tíu leíknienu erlendis frá Lið Pólverja er geysisterkt og hefur Jerzy Engel, landsliðsþjálfari, valið tíu leikmenn í hópinn, sem Ieika með liðurn utan Póllands. Flestir leika með liðum í Þýskalandi, eða fimm þeirra og einnig eru í hópn- um leikmenn sem leika í Hollandi og á Italíu. Einnig er í hópnum Ní- geríumaðurinn Emmanuel Olisa- debe, sem nýverið fékk pólskan ríkisborgararétt, en hann hefur staðið sig mjög vel með pólska landsliðinu í sínum fyrstu leikjum og hreinlega slegið í gegn. Annars hefur Engel verið að þreifa sig áfram með landsliðið, þar sem mikil uppbygging stendur nú yfir og hefur hann notað um þrjátíu leikmenn í síðustu þremur leikjum liðsins. Pólshi landsliðshópurinn: Markverðir: Adam Matysek (B. Leverkusen) og Jakub Wi- erzchowski (Ruch Chorzów). Aðrir leikmenn: Jacek Zielinski (Legia Daewoo), Tomasz KIos (Kaiserslautern), Tomasz Hajto (Schalke), Tomasz Waldoch (Schalke), Tomasz Kos (N/nberg), Michal Zewlakow (Excelsior Mouscronj, Marek Kozminski (Brescia), Radoslaw Kaluzny (Wisla), Olgierd Moskalewicz (Wisla), Tomasz Rz.asa (Feyen- oord), Piotr Swierczewski (Bastia), Tomasz Zdebel (Genclerbiligi), Tomasz Frankowsld (Wisla), Pawel Kn'szalowicz (Amica), Emmanuel Olisadebe (Hoop Polonia), Bartosz Karwan (Legia Daewoo). Hagkvæmt að sameina Vinnuhópur sem framkvæmda- stjórn ISI skipaði sl. vor lil að gera úttekt á hagkvæmni þcss að sam- eina ISÍ og UMFÍ, í kjölfar sam- þykktar þar að lútandi á síðasta þingi ISÍ, skilaði skýrslu um ntálið til framkvæmdastjórnar ÍSI sl. fimmtudag. Vinnuhópurinn, sem skipaður er þeim Snorra Olsen, Hafsteini Pálssyni og Engilbert Ol- geirssyni, fékk ráðgjafarfyrirtækið Deloitte og Touche til að gera hlutlausa úttekt á málinu og er niðurstaða hópsins og ráðgjafalyr- irtækisins sú, að fjárhagslega, skipulagslega og félagslega sé hag- kvæmt að sameina ÍSÍ og UMFÍ. Leggur vinnuhópurinn eindregið til að UMFÍ verði boðið til við- ræðna um hugsanlega sameiningu saintakanna. A vefsíðu ISI segir að fram- kvæmdastjórn ISI hafi samþykkt einróma á fundi sínum sl. fimmtu- dag að senda forystu UMFÍ bréf og óska eftir viðræðum um efni skýrslunnar og framhald málsins. Samkvæmt ummælum Þóris Jónsson, formanns UMFÍ, á síð- asta íþróttaþingi, gæti sameining- arróðurinn reynst erfiður, þar sem formaðurinn sagði að sameining væri ekki á dagskrá ungmenna- hreyfingarinnar. Sveiim Áki endurkjöriim formaður ÍF Sveinn Áki Jörundsson var um helgina endurkjörinn formaður íþróttasambands fatlaðra til næstu tveggja ára á þingi sambandsins sem haldið var á l lótel Sögu. Reyndar var öll stjórn sambandsins endurkjörin, en í henni sitja auk Sveins Aka, þau Camilla Th. Hall- grímsson, varaformaður og Þórður Árni Hjaltested, Kristján Svan- bergsson og Olafur Þ. Jónsson, meðstjórnendur. I varastjórn sitja þau Svava Árnadóttir, Margrét Hallgrímsdóttir og Erlingur Þ. Jóhannes- son. Störf þingsins voru með hefðbundnum hætti og var þar kynnt ný stefnumótun, auk þess sem samþykkt var tillaga að lagabreytingum til samræmingar við Iög ÍSÍ. Einnig var samþykkt tillaga urn að þing 1F verði framvegis haldið f\'rir lok aprílmánaðar annað hvert ár. 18-ára landslið kvenna til Spánar Olafur Þór Guðbjörnsson, Iandsliðsþjálfari 18 ára Iandsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið 16 manna hópinn sem leikur í milliriði Evr- ópumóts 18 ára landsliða, sem leikinn verður á Spáni um næstu mánaðamót. Islenska liðið er í riðli með Hollandi, Spáni og Póllandi og því ljóst að keppnin verður erfið hjá stelpunum. Hópnrinn er skipaðtir eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: María B Agústsdóttir (Stjörnunni) og Þóra R Rögn- valdsdóttir (Val). Aðrir leikmenn: Björg Þórðardóttir (Breiðablik), Helga M Vigfús- dóttir (Breiðablik), Silja Þórðardóttir (FH), Lind Hrafnsdóttir (ÍBV), Embla S. Grétarsdóttir (KR), Elfa B Erlingsdóttir, fyrirliði (Stjörn- unni), Lilja Kjalarsdóttir (Stjörnunni), Ásta Árnadótlir (Þór), Guð- rún S. Viðarsdóttir (Þór), Elín Anna Steinarsdóttir (Val), Guðný Þórðardóttir (Val), Laufey Jóhannsdóttir (Val), Málfríður Sigurðar- dóttir (Val) og Margrét L. Hrafnkelsdóttir (Val). Liðið heldur utan laugardaginn 25. nóvember og verður fyrst flog- ið til London þar sem dvalið verður frarn á sunnudag og tekin létt æf- ing. Á sunnudag heldur liðið síðan til SeviIIa á Spáni þar sem það dvelur við æfingar og leiki í sex daga. Fyrsti leikur liðsins er gegn Hollendingum, mánudaginn 27. nóv., sá næsti gegn Spánverjum miðvikudaginn 29. nóv. og sá síðasti gegn Pólverjum, föstudaginn 1. des. 50 leikmenn tilnefndir Franska knattspvrnutímaritð, France Football, sem stendur að vali „Knattspyrnumanns Evrópu" birti í gær nöfn þeirra fimmtíu knatt- spyrnumanna sem tilnefndir eru til kjörsins fyrir árið 2000. Flestir leikmannanna eru franskir, eða alls ellefu, en næstir konia Argent- ínumenn og ltalir sem eiga sex leikmenn á listanum og í fjórða sæti Hollendingar sem eiga fimm leikmenn á listanum. Þar á eftir koma Brasilíumenn með fjóra menn og síðan Portúgalir sem eiga þrjá og þar á meðal þann sem þykir líklegastur til að hreppa hnossið, en það er Luis Figo, leikmaður Real Madrid, sem flestir virðast tippa á sem „Leikmann Evrópu" árið 2000. Það verður hlutverk íþróttafrétta- manna víðs vegar að í Evrópu að greiða atkvæði í valinu og ntunu úr- slit atkvæðagreiðslunnar verð tilkynnt kringum áramótin. Flestir leikmannanna á listanum Ieika með félögum á Italíu, eða alls 22, en þar á eftir koma ensk og spænsk lið sem hvor um sig eiga 11 menn á listanum. Af einstökum félögum, þá hefur Manchester United vinninginn, á sex menn á listanum. Tilnefndir leikmenn: Anderson (Lyon), Anelka (PSG), Angloma (Valencia), Barthez (Man. Utd), Batistuta (Roma), Beckham (Man. Utd), Bergkamp (Arsenal), Blanc (Intcr Milan), Crespo (Lazio), Davids (Juventus), Desailly (Chelsea), Deschamps (Valencia), Figo (Real Madrid), Gall- ardo (Monaco), Geremi (Real Madrid), Giggs (Man. Utd), Sukur (lnter Milan), Henry (Arsenal), Inzaghi (Juventus), Jardel (Galatasaray), Kahn (B. Munchen), R. Keane (Man. Utd), Kluivert (Barcelona), Lopez (Lazio), Maldini (AC Milan), Mboma (Parma), Mendieta (Valencia), Milosevic (Parma), Nedved (Laz.io), Nesta (Lazio), Gomes (Fiorentina), Raul (Real Madrid), Recoha (Inter Mil- an), Fernando Redondo (AC' Milan), Rivaldo (Barcélona), Carlos (Real Madrid), Costa (Fiorentina), Scholes (Man Utd), Shevchenko (AC Milan), Simone (Monaco), Stam (Man. Utd), Toldo (Fiorent- ina), Totli (Roma), Trezeguet (Juventus), Veron (Lazio), Vieira (Arsenal), Wiltord (Arsenal), Zahovic (Valencia), Zenden (Barcelona) og Zidane (Juventus). Byrjunarlið Islands gegn Póllandi Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf- ari í knattspyrnu, tilkynnti í gærkvöld byrjunarlið Islands í vináttu- landsleiknum gegn Pólverjum í kvöld og er það skipað eftirtöldum leikmön num: Markvörður: Arni Gáutur Arason. Aðrir leikmenn: Auðun Helgason, Eyjólfur Sverrisson, Hermann Hreiðarsson, Arnar Þór Viðarsson, Heiðar Helgu- son, Brynjar Björn Gunnars- son, Rúnar Kristinsson, Try'ggvi Guðmundsson, Eiður Sntári Guðjohnsen og Ríkharður Daðason. Varamenn: Birkir Kristins- son, Arnar Grétarsson, Helgi Kolviðsson, Bjarni Guðjónsson og ívar Ingimarsson. Arni Gautur aftur í landslidsmarkid.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.