Dagur - 15.11.2000, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 1S. NÓVEMBER 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Teldst á lun dauða-
refsmgu í Haag
RafmagnsstóHinn er algengasta tól bandarískra böðla.
Þjóðverjar mótmæla
aftöku þýskra ríkis-
borgara í Arizona
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur
fengið mál til meðferðar sem
varðar bandarískt réttarkerfi og
rétt dómstóla til að kveða upp
dauðadóma. Málsatvik eru þau
að tveir þýskir ríksiborgarar voru
dæmdir til dauða fj'rir morð og
teknir af lífi. Þýsk yfirvöld kærðu
málið og krafist er bóta en um-
fram allt er dauðarefsingu mót-
mælt. En það sem lögfræðingar
setja helst fyrir sig er, að þýsku
mönnunum var ekki sagt að j>eir
ættu rétt á að tala við þýska kon-
súlinn í Arisóna, þar sem glæp-
urinn var framinn og dómur upp
kveðinn og honum fullnægt.
Þannig nutu þeir ekki réttar-
verndar sem þeir áttu skilvrðis-
laust rétt á.
Bandarísku lögfræðingarnir í
Haag telja að mál þetta heyri
ekki undir Alþjóðadómstólinn,
þar sem hans hlutverk sé að
kveða upp úr um hvort alþjóða-
samningar eru brotnir eða ekki.
Um dauðarefsingu eru engir
slíkir samningar til.
Mál þetta hófst 1982 þegar
bræðurnir Walter og Karl
LaGrand stungu bankastjóra til
bana með bréfahníf í Marana
skammt frá Tuscon. Þegar þeir
voru dæmdir til dauða á sínum
tíma kom í ljós djúpstæður
ágreiningur milli ríkja Vestur-
Evrópu og Bandaríkjanna vegna
dauðarefsingar. I engu Evrópu-
sambandsríki eru dauðarefsingar
löglegar og eru Bandaríkjamenn
leynt og ljóst ásakaðir um refsi-
gleði og sérstaklega fyrir fjölda
dauðadóma og fullnustu þeirra.
En Bandaríkjamenn telja að
það séu frekleg afskipti af innan-
ríkismálum þeirra þegar aðrar
jrjóðir gagnrýna opinberar aftök-
ur. Ekki virðist almenningur ves-
tra vera fráhverfur slíku réttar-
fari, ef miðað er við það mikla
traust sem þeir hafa á ríkisstjór-
anum í Texas George W. Bush,
en í ríki hans eru kveðnir upp
fleiri dauðadómar en í öllum
öðrum fylkjum Bandaríkjanna
samanlagt.
Bandaríksu lögfræðingarnir
viðurkenna að dómstóli í Arisóna
hafi orðið á í messunni að segja
sakborningunum ckki frá þeim
rétti sín um, að hafa samt við
konsúl þess lands sem þeir voru
ríkisborgarar í. A því hefur þeg-
ar verið beðist afsökunar.
Lögfræðingur Arizonafylkis
heldur því fram, að sakborning-
arnir hafi átt erfiða ævi í Þýska-
landi áður en þeir fluttu til
Bandaríkjanna. Móðir þeirra er
þýsk en faðirinn bandarískur
hermaður, sem gegndi herþjón-
ustu í Þýskalandi. Bræðurnir
voru fæddir utan hjónabands og
áttu misjafna ævi, foreldrarnir
sinntu þcim lítið og þeir voru á
fósturheimilum. Faðirinn er
blökkumaður og vegna þess upp-
runa nutu þeir ekki jafnréttis.
Þannig er óhamingja Karls og
Walters rakin til Þýskalands.
En málið snýst ekki um þá tvo,
enda hefur böðulllinn í Arizona
lokið verki sínu hvað þá varðar.
En margir útlendingar bíða af-
töku í bandarískum fangelsum
og snúast réttarhöldin í Haag
um rétt ríkja til að dæma saka-
menn til dauða og taka þá af lífi.
I sfðustu viku var mexíkanskur
maður tekinn af lífi í Texas fyrir
að myrða unga stúlku. Honum
var beðið griða af andstæðingum
dauðarefsingar heima og erlend-
is en allt kom fyrir ekki. Bush
ríkisstjóri neitaði bæði náðun og
frestun.
Það hefur margoft komið fram
að meirihluti Bandaríkjamanna
er hlynntur dauðrefsingum fvrir
alvarlega glœpi og á meðan svo
er þýðir lítið fyrir andstæðinga
svo róttækra dóma að mótmæla
eða reyna að breyta réttarfarinu.
Þrír skotnirígær
JERUSALEM - ísraelskirher-
menn skutu til bana þrjá
palestínska táninga sem voru
að mótmæla í gær. Israelski
herinn er að herða allt umsát-
ur sitt um Vesturbakkann,
svæði sem lýtur stjórn Palest-
ínumanna, og kemur þessi
aukna harka í kjölfar dráps á
fjórum Israelsmönnum í fyrra-
dag.Israelski forsætisráðherr-
ann, Ehud Barak hætti á síð-
ustu stundu í gær við fund sem ísraelskur hermadur beinir bíl í burtu
hann hugðist eiga með Tony wð vegartálma inn á Vesturbakkann.
Blair forsætisráðherra Breta,
en flýtti sér þess í stað heim til
Israel til að takast á við það hættuástand sem vaxandi spenna og stig-
mögnun átaka hefur skapað. Eins og venjulega ber Israelsmönnum
og Palestínumönnum ekki saman um hver voru nákvæmlega tildrög
þess að unglingarnir sem drepnir voru í gær voru skotnir.
Fresturiim útmuiiiiiii
WASHINGTON - Fylkisdómari í
Flórida úrskurðaði í gærkvöldi að
tímamörk til að ákvarða niðurstöðu
um úrslit kosninganna skyldu vera kl
10:00 í gærkvöldi. Þar með verður
ekld endurtalið eins og demókratar
og A1 Gore höfðu gert sér vonir um.
Þá er einungis eftir að teija utankjör-
staðaatkvæðin en almennt er talið að
þessi ákvörðun dómarans auki veru-
Iega líkurnar á því að Bush verði for-
seti. Hins vegar var í gærkvöldi fast-
lega búist við að Gore og fylgismenn
hans myndu áfrýja málinu til Hæsta-
réttar Flórída og var hugsanlegt að
þar yrði málinu snúið við. Enn eru
jafnframt í gangi fjöldi einkamála vegna hinna svokölluðu „butterfly
ballots" eða fiðrildakjörseðla þar sem fólk greiddi atkvæði röngum
manni vegna villandi uppsetningar seðlanna.
Verður Bush næsti forseti?
Bítlamir á toppinn
LONDON - Bítlarnir eru enn á ný
að ryðjast inn á vinsældalista
heimsins með Iögum sem eru sum
hver 30 ára gömul. Plötubúðir vítt
og breitt um Bretland hafa til-
kynnt um líflega sölu á nýrri safn-
plötu fjórmenningana frá Liver-
pool sem heitir einfaldlega „1“ og
er því nú spáð að platan verði
komin í 1. sæti um helgina. Tals-
maður HMV plötukeðjunnar sem
gefur út safnplötuna segir að við-
brögðin séu hreint ótrúleg og þrátt
fyrir að bítlaaðdáendur eigi flestir
allar bftlaplöturnar þá seljist þessi
plata eins og heitar lummur. A
þessari plötu eru 27 lög sem
komust á sínum tíma í fyrsta sæti
á vinsældalista.
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER
320. dagur ársins, 46 dagar eftir.
Sólris kl. 9.57, sólarlag kl. 16.27.
Þau fæddust 1S. nóv-
ember
• 1892 Finnur Jónsson listmálari.
• 1907 Claus von Stauffenberg, þýskur
herforingi sem lagði á ráðin um að ráða
Hitler af dögum.
• 1892 Erwin Rommel, þýskur hershöfð-
ingi.
• 1930 J. G. Ballard, breskur spennu-
sagnahöfundur.
• 1942 Daniel Barenboim, ísraelskur pí-
anóleikari og hljómsveitarstjóri.
• 1943 Kristján Tómas Ragnarsson yfir-
læknir.
• 1954 Alexander Kwasniewski, forseti
Póllands.
Þetta gerðist 15. nóv-
ember
• 1889
að og Pedro II. keisari neyddur til að
fara frá völdum.
• 1956 lauk ungversku byltingunni með
því að Sovétmenn settu stjórn til valda í
landinu, sem var hliðholl þeim. Fjöldi
manns hafði þá látið lífið frá því þús-
undir sovéskra skriðdreka réðust inn í
landið þann 4. nóvember til að bæla
niður uppreisnina.
• 1969 voru Samtök frjálslyndra og vin-
stri manna stofnuð.
• 1978 fórust 197 manns, þar af átta ís-
lenskir flugliðar, þegar þota í eigu Flug-
Ieiða hrapaði í lendingu á Sri Lanka.
Þetta er mesta slys íslenskrar flugsögu.
• 1990 samþykkti borgarstjórn Reykjavík-
ur að gefa afgreiðslutíma verslana
frjálsan.
Vísa dagins
Ó, þii tímil Ó, þúflug!
Ormagleðin búna,
mínumfyrri hraðla hug
horfin varstu núna.
Ifig'j’/
i'ftírl 19 ö
Bólu-Hjáljn;
gáöVJöm itt m\\j
Afmælisbam dagsins
Bandaríski leikarinn Sam Waterston er
sextugur í dag. Hann hefur leikið í fjöl-
mörgum bíómyndum og sjónvarpsþátt-
um, m.a. í Serial Mom frá John Watcrs,
Crimes and Misdeameanors frá Woody
Allen, og f Killing Fields. Hann lærði
frönsku og bókmenntir í háskóla, en
sneri sér sfðan að leiklistinni. Hann var
tuttugu og fimm ára þegar hann lék í
fyrstu bíómvndinni sinni, en hún hét
Plasthvelfing Normu Jean og var gerð af
Juleen Compton.
f'blj) lj ÓIIU/I I =p!/I(|í|Ú go IIf Á
Vandamálin og leyndardómarnir gefa
lífinu gildi.
Guðbergur Bergsson
Heilabrot
Það sem greinir líf\'erur frá dauðum hlut-
um er lífið sjálft. I sumum dauðum hlutum
er þó alltaf hægt að finna líf. Og meira að
segja hjarta, lifur og lungu að auki. Við
hvaða dauðu hluti er hér átt?
Lausn á síðustu gátu: Ur upphafsstöl-
um orðanna í setningunni má lesa HAUST.
Vefiix dagsfns
Vísindavefurinn íslenski hefur vakið athygli
fyrir skýr og greinargóð svör við ólíklegustu
spurningum. Þeir sem vilja fá svolítið öðru
vísi svör og stundum dálítið furðulegri
spurningar gætu hins vegar kíkt á vef dags-
ins, þar sem dr. Jekyll og herra Hyde eru
fyrir svörum: http://drjek2mrhy.tripod.com/
ojfcúij llltj PfJjintúly»nú 'Ujiil'tA r'ii'ij i