Dagur - 15.11.2000, Síða 19

Dagur - 15.11.2000, Síða 19
(iU'i wa^ VÍKUR m BLAÐID Reinhard Reynisson, bæjarstjóri. Sameigin- legt tilDoð Húsavíkurkaupstaður bauð út lánsfjármögnun á lokahluta hinna miklu orkuframkvæmda sem bærinn hefur staðið í undan- farin misseri og óskaði eftir til- boðum í jafnvirði 641 milljónar íslenskra króna í erlendum mynt- um, þ.e. Ijölmyntaláni. Utboðið var sent átta aðilum, þ.e. Lands- banka, Islandsbanka FBA, Bún- aðarbanka, Kaupþingi, Islenskum verðbréfum, MP verðbréfum, Verðbréfastofunni og Ráðgjöf og efnahagsmál. Aðeins eitt tilboð barst í láns- fjármögnun orkuframkvæmd- anna og var það sameiginlegt til- boð Islandsbanka FBA og Lands- banka Islands. „Næsta skref í málinu er að setjast niður með þessum eina tilboðsgjafa og fara yfir málið,“ sagði Reinhard Reyn- isson, en tilboð voru opnuð í gær. Hann sagði að það hefði í sjál- fu sér ekki komið á óvart að ekki hefðu borist fleiri tilboð frá ís- lenskum aðilum og þegar fór að líða á tilboðstímann þá fengu bæjatyfirvöld meldingar um að íslandsbanki FBA og Landsbanki væru að skoða það að senda inn sameiginlegt tilboð. „Við böfðum bins vegar ákwðnar vonir um að erlendir aðilar sem hölðu sýnt málinu áhuga myndu hugsanlega bjóða í þetta í gegnum verðbréfa- fýrirtækin, en það kom því miður ekkert út úr því,“ sagði Reinhard. JS Veitmgahús- iö Salka Unnið er af krafti við breytingar á gömlu verslunarhúsum KÞ, Jaðri og Söludeild, en þar verður opnaður veitingastaðurinn Salka þann 7. desember n.k. Búið er að gera búsin upp að utan og var mikið verk og Spari- sjóður Þingeyinga flytst úr Sölku n.k. föstudag og þá verður hafist handa \áð lokafrágang á veitingastaðnum að innan, en hann verður á tveimur hæðum í Söludeild en eldhúsið verður í Jaðri. Að sögn Barka Emilssonar, eins af eigendum, er töluvert eftir að gera, en hann er bjart- sýnn á að verkinu verði lokið í tíma. „Það verður eins og venju- lega í svona framkvæmdum, far- in hin íslenska leið með ógurleg- um afköstum síðustu dagana," sagði Börkur. Þegar Salka opnar verða þrír góðir matsölustaðir starfræktir á Húsavík, en fyrir eru Gamli Baukur og Hótel Húsavík. JS Ráöimevtiö mim styrkja flugmtuna Samgönguráðimeytið og BSH ehf. á Ilúsavík hafa gert með sér samning uin stuðning ráðuneytisins við rútuferðir milii Húsa- víkur og Akureyrar í tengslum við flugferð- ir þangað og í sam- starfi við Flugfélag ís- lands. Um er að ræða tvær ferðir á dag, sex daga vikimnar. Bæjar- yfirvöld á Húsavík hafa ekki komið að þessu máli. Samgönguráðherra hafði lýst því yfir í fjölmiðlum að ráðuneytið myndi ekki veita fé til að koma aftur á flugsamgöngum við Húsavík, en hins vegar teldi bann möguleika á að styrkja áætlunarferðir frá Húsavík til Ak- ureyrar landleiðina í tengslum við flugið og það hefur nú gengið eftir og að sögn Björns Sigurðs- son, framkvæmdastjóra BSH ehf. verður farið að aka eftir nvrri áætlun n.k. föstudag. Björn gerði sjálfur tilraun til að fjölga ferðum og stilla þær inn á flug til Akureyrar, þegar flugsamgöngur lögðust af við Húsavík, en að sögn hans voru undirtektir bæjarbúa ekki eins góðar og efni stóðu til á þeim tíma. „Menn notuðu þessa þjónustu nær eingöngu sem síðasta kost, þ.e. þegar ekki var hægt af einhverjum ástæðum að komast með einkabíl," sagði Björn. En hann vonast til að nýting verði betri nú þegar meira hefur verið Iagt í undir- búning og kynningu þessarar þjónustu. Bagalegt Rútuferðirnar verða á sama tíma alla virka daga frá Húsa- vík, kl. 8 og kl. 18 í tengslum við flugferðir frá Akureyri kl. 9.40 og 19.40. Ráðuneytið styrkir tvær ferðir á dag alla daga vikunnar nema á laugar- dögum, en Björn er einnig með ferðir á laugardögum og sunnu- dögum kl. 10.45 þannig að hægt er að ná 12.10 vélinni frá Akur- eyri. Fyrir utan þessar ferðir eru miðdegisferðir á virkum dögum frá Húsavík til Akureyrar kl. 13.30 og 17. „Það er spurning bvort við fellum íýrri ferðina nið- Björn Sigurðsson. ur sem reyndar yrði nokkuð bagalegt fyrir heimafólk sem hef- ur notað þessa ferð í nokkrum mæli, sérstaklega frá Akureyri, en reynslan mun leiða það í ljós. Maður er hins vegar að velta því fyrir sér, á meðan flugsamgöngur liggja niðri, hvort heimaaðilar sæju sér fært að koma að þessu máli, t.d. til að halda þessari miðdegisferð úti. Það eru for- dæmi fyrir þessu og t.d. er eitt bæjarfélag sem gerir þetta og selur þá ákveðnum fýrirtækjum í bænum tiltekinn sætafjölda á mánuði. Ef áhugi er fyrir hendi hér gæti bæjarfélagið hugsan- lega gert eitthvað svipað og komið á samstarfi við stærri fyrirtæki sem þurfa að senda fólk í töluverðum mæli suður, og þau gætu þannig sparað sér kostnað við akstur á einkabíl- Neyðanírræði Að sögn Björns er gert ráð fýrir að þetta samstarf gildi til vors, a.m.k. til að byrja með og svo verði reynslan að skera úr um framhaldið, sem auðvitað ráðist af því hvort flugsamgöngur befj- ist til Húsavíkur á ný og þá hvenær. „En því miður sýnist mér fátt benda til þess að við fáum Húsavíkurflug á næstunni sem að mér eins og öllum öðr- um Húsvíkingum þykir auðvitað óásættanlegt og er rosalegt bak- slag fýrir okkur öll hér, ekki síst þá sem starfa í ferðaþjónustunni," segir Björn Sigurðsson. En á með- an þetta ástand ríki þá verði að bregðast við því með einhverjum bætti og þar á mcðal þessu von- andi tímabundna neyðarrúrræði, sem Björn segir að flugrúta til Ak- urevrar sé í raun og veru. JS Leikfélag Húsavíkur frumsýnir leikritið Nitouche n.k. laugardag k. 17.00. Myndin er tekin á æfingu nú i vikunni. Nánar á baksíðu Víkurblaðsins.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.