Dagur - 15.11.2000, Page 20

Dagur - 15.11.2000, Page 20
20- MIÐVIKUDAGU R 1S. NÓVEMBER 2000 • Ða^ur Vakiiing í frj ál sum Barna- og unglingamót í frjáls- um íþróttum var haldið á Húsa- vík á vegum HSÞ um síðustu helgi og var þátttaka gríðarleg og keppendur flestir kornungir. Og að venju fjölmenntu foreldrar og voru starfsmenn mótsins, enda þörf fyrir marga slíka þar sem keppt var í fjölmörgum greinum í cinu út um allan íþróttasal og hlaupið, stokkið og kastað í senn. Töluverð vakning virðist vera í frjálsum íþróttum á svæðinu, kannski í kjölfar olympíuleik- anna í Sydney og mikill áhugi var greinilegur hjá krökkunum. Sér- staklega var greinilegt að fleiri ungmenni voru mætt frá Húsa- vík en oft áður, enda hafa for- eldrar í bænum tekið höndum saman um að efla þátttöku barna á Húsavík í frjálsum íþróttum, líkt og foreldrar í nærsveitum hafa gert ineð glæsibrag á und- anförnum árum. JS Kastað mæðinni milli keppnisgreina. Fyrst í mark. Fullkomin einbeiting i langstökk/nu. Leiðrétting I stuttfrétt um mannabreytingar í bæjarstjórn Húsavíkur í fyrri viku kom fram að Grfmur Kárason, bæjarfulltrúi Húsavíkurlistans hefði ekki setið síðasta bæjarstjórnarfund. Þetta er alrangt, því Grímur mætti og sat sem fastast. Það var hins vegar félagi hans Gunnar Bóasson sem ekki gat setið þennan fund. Þeir félagar eru beðnir velvirðingar á þessari handvömm blaðmanns sem’sat fund- inn en virðist hafa skilið athyglisgáfuna eftir heima. JS Aðalsteinn Árni Baldursson í hópi systkina sinna. F.v. Björn Gunnar, Úlafur, Linda, Aðalsteinn og Leifur Vilhelm. Bauð upp á rúss- neska kjötsúpu Aðalsteinn Árni Baldursson, sá harðskarpi verkalýðsleiðtogi og for- maður Verkalýðsfélags Húsavíkur og Alþýðusambands Norðurlands með meiru, varð fertugur 11. nóv- ember s.l. og bauð að sjálfsögðu til veislu, sem var í raun sameiginlegt fertugsafmæli þeirra hjóna Aðal- steins og Elfu Oskar Jónsdóttur sem varð fertug 10. október s.l. Um 100 manns komu til að samfagna þeim hjónum enda vina og frændgarðurinn stór og Aðal- steinn hefur einnig með störfum sínum áunnið sér vinsældir í heimahéraði og raunar víðar. Af- mælisveislan var haldin í sal verka- lýðsfélaganna þar sem uppi hanga myndir af formönnum verkalýðsfé- lagsins og öðrum baráttumönnum, flestum af vinstri vængnum. Og það þótti því vel við hæfi að leið- toginn Aðalsteinn skyldi bjóða upp á gríðarlega næringarríka rúss- neska kjötsúpu í afmælinu og töl- uðu sumir um að pólitískur rétt- trúnaður hafi ráðið ríkjum á mat- seðlinum. Margir urðu til að mæra afmæl- isbarnið með ræðum, m.a. flutti Linda systir Aðalsteins honum drápu sem og Kristbjörg Sigurðar- dóttir félagi hans í verkalýðsmál- um. Þá var að sjálfsögðu mættur á staðinn góðvinur Aðalsteins, Stein- grímur J. Sigfússon alþingismaður sem talaði fallega um félaga sinn og ekki síst um búfræðinginn Aðal- stein sem notaði sínar fáu frístund- ir til að sýsla með sauðfé, sem Steingrímur taldi harla heppilega og holla afslöppunaraðferð. Daginn eftir afmælið var Aðal- steinn Árni svo rokinn á þing ASI þar sem átök munu harðari þessa dagana en alla jafnan í fjárhúsinu hans norður á Húsavík. JS TUíbúa Hvanuns byggðar Enn er hlýtt og vurlegt veður, vermir hugann sólin hlíð. Aldna, heiður himinn gleður, Hvamms-tbua, fjalls við hlið. Valdr ætíð von í harmi. Vinir styrkja rofin hönd. Þá mun létta heimsins harmi, og hlýjir straumar ylja lönd. Á haustmorgni 2000, Sigurður Sigurjónsson. www.visir.is FYiSTUR MEO fRÉHIRNAR Sjónarsviptir að Búrfelli eins og um leið séð eftir að hafa gert innkaup sín annars staðar en hjá Jóhönnu og Frímanni. Eins og ég sagði áðan þá var alltaf jafnnotalegt að koma í' Búrfell. Eg hafði stundum látið þau orð falla að Búrfell væri ágætis viðbót við félagsþjónust- una á staðnum. Frímann og Jó- hanna voru „félagsráðgjafar" af guðs náð og komu öllum í gott skap sem litu við hjá þeim. Ég vil þakka Jóhönnu og Frí- manni sem og fyrri eigendum Búrfells fyrir frábæra þjónustu í gegnum árin. Vonandi ber fram- tíðin það í skauti sér að tími kaupmannsins á horninu muni koma aftur. SQFFIA GISLA DOTTIR SKRIFAR Eg var ekki há f loftinu þegar far- ið var að senda mig f Búrfell eft- ir lítilræði. Þá réðu þar ríkjum OIi og Inga. Það var notalegt að koma til þeirra og þessi notaleg- heit héldust í búðinni þó skipt væri um eigendur. Fréttin í síðustu viku um lok- un Búrfells var sorgleg og ég velti því hreinlega fyrir mér hvort það væri mér að kenna? Eflaust hafa margir Húsvíkingar hugsað

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.