Dagur - 01.12.2000, Blaðsíða 2
2 - LAU GA RDAGUR 1 . DESEMBEK 2 000
. FRÉTTIR
Flutningur hættulegra efna um HvaHjarðargöng varharðlega gagnrýnd á þingi í
gær.
Dómsmálaráðherra
boðar endurskoðiin á
reglugerðum um
landflutninga á
hættulegum efnum.
Guðjón Guðmundsson
segir ástandið í Hval-
fjarðargöngunum
óþolandi
Flutningar á hættulegum efnum
eftir Reykjanesbrautinni og í
gegnum Hvalfjarðargöngin
komu til umræðu í fyrirspurnar-
tíma á Alþingi í gær. Sigríður Jó-
hannesdóttir spurði dómsmála-
ráðherra hvort og þá hvenær hún
hygðist setja strangari reglur um
þessa flutninga en nú gilda.
Sigríður benti á að allt flug-
vélaþensín og olíur væru flutt
með bifreiðum eftir Reykjanes-
brautinni, sem engan veginn
anni þeirri umferð sem þar fer
um. Allt flugvélabensín, sem ut-
anlandsflugið noti er flutt eftir
Reykjanesbrautinni. Engar regl-
ur gildi um þessa flutninga til
dæmis að þeir skuli fara fram að
næturlagi.
Þá benti hún á að nú bærust
fréttir af hræðilegu slysi í jarð-
göngum í Austurríki. Þess vegna
sagðist hún spyrja hvort andvara-
leysi Islendinga í þessum efnum
sé forsvaranlegt. Hún sagðist
vilja sjá reglur um hvaða efni
mætti flytja um jarðgöng, eins og
Hvalfjarðargöngin og á hvaða
tímum sólarhringsins.
Reglur í endurskoðiui
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sagði að settar hefðu
verið tvær reglugerðir sem varða
flutning á hættulegum farmi á
vegum. Frá árinu 1998 er til
reglugerð um flutning á hættu-
legum farmi og hins vegar reglu-
gerð um starfsþjálfun stjórnenda
ökutækja sem flytja þessi cfni.
Hún sagði reglurnar í samræmi
við það sem tíðkaðist í nágranna-
löndum okkar. Samt væri hafin
endurskoðun á þeim reglum sem
í gildi eru hér á landi um flutn-
ing hættulegra efna.
Guðjón Guðmundsson hefur
lengi gagnrýnt þær reglur sem
gilda um flutninga á hættulegum
efnum um Hvalfjarðargöngin.
Hann sagði að enda þótt bannað
væri að flytja þessi efni um göng-
in frá klukkan 10:00 á föstudags-
morgni til miönættis á sunnu-
degi væri það alls ekki nóg.
Hann sagði það fráleitt að
leyfa þessa ílutninga þegar mikil
umferð er um Hvalfjarðargöngin
á virkum dögum. Það séu flutt
180 tonn af gasi þarna um á ári
og þeir flutningar fari fram á
morgnana þegar mjög mikil um-
ferð er um göngin. Guðjón hefur
flutt þingsályktunartillögu um
þetta mál sem er nú til meðferð-
ar í samgöngunefnd og sagðist
hann vonast til að hún fengi
hraða og góða meðferð hjá
nefndinni. - S.DÓR
Úr vinnslusal Norðurmjólkur á
Akureyri.
Norð-
urinj ólk
Nýtt lyrirtæki, Norðurmjólk hf.
varð til í gær með samruna
nokkurra félaga. Eins og fram
hefur komið hefur á undanförn-
um mánuðum verið unnið að
stofnun sameiginlegs félags
KEA og mjólkurframleiðenda
sem annast mun mjólkurvinnslu
á Húsavík og Akureyri.
I gær var undirrituð samruna-
áætlun sem felur í sér samruna
MSKEA ehf., MSKÞ ehf. og
Grana ehf. en Granir er hlutafé-
lag í eigu Auðhumlu sem er
samvinnufélag í eigu mjólkur-
framleiðenda í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum. Hluthafar í
Norðurmjólk verða tveir, það er
Kaupfélag Eyfirðinga og Auð-
humla, og munu mjólkurfram-
leiðendur geta eignast allt að
34% í hinu nýja félagi.
Stjórn Norðurmjólkur skipa
þeir Eiríkur S. Jóhannsson, Er-
lingur Teitsson, Haukur Hall-
dórsson, Stefán Magnússon og
Tryggvi Þór Haraldsson. - BÞ
Khunbulla blásin af
Ekkert verður af stofnun nýs
skemmtistaðar við Gránufélags-
götu á Akureyri. Vilji hafði verið
fyrir hendi til að stofna nektar-
dansstað en skipulagsyfirvöld
lögðust gegn þeim áformum, að
sinni a.m.k., enda er svona starf-
semi ekki talin hæfa umhverfinu.
Vilborg Gunnarsdóttir, for-
maður skipulagsnefndar Akur-
eyrarbæjar, segir að aldrei hafi
fylgt nánari útslitun á fyrirhug-
aðri starfsemi skemmtistaðarins,
þannig að hún geti ekki svarað
því hvort bærinn hafi verið að
blása af enn eina „klámbúlluna'*
eða ekki. „Við erum hins vegar að
vinna að aðalskipulagsbreyting-
um og það er verið að skoða
hvort blönduð starfsemi geti átt
rétt á sér í þessu hverfi. Megin-
rökin gegn þessari framkvæmd
eru að þetta er iðnaðarsvæði en
hins vegar er ekki bara iðnaður á
þessu svæði og við munum skoða
þessi mál í áframhaldinu. Það er
heilmikið mál að breyta aðal-
skipulagi, það kostar mikla pen-
inga og tekur Iangan tíma. Við
erum núna að safna upp fjölda
mála um allan bæ til að fara með
í þessar breytingar."
Meirihluti bæjarbúa er gegn
nektardansstöðum á Akureyri
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem Akureyrarbær lét Gallup
vinna fyrir sig. Vilborg segir að
niðurstaðan komi ekki á óvart og
ckki heldur að Akurcyringar kjósi
hömlur á opnunartíma veitinga-
húsa. Bærinn hafi enda leitað
viðbragða víða áður en ákveðið
var að endurskoða frjálsan opn-
unartíma. - BÞ
Skuldir fmmifaldast
Hreinar skuldir bæjarsjóðs
Garðabæjar á hvern íhúa hafa
fimmfaldast á einum áratug, eða
frá árinu 1990. I upphafi áratug-
arins námu skuldírnar 21 þúsund
króna á hvern íbúa en voru komn-
ar í 105 þúsund um síðustu ára-
mót.
Einar Sveinbjörnsson bæjar-
fulltrúi í minnihluta bæjarstjórn-
ar segir að hækkun útsvarsins
samkvæmt Ijárhagsáætlun næsta
árs sé afleiðing af skuldasöfnun-
inni, eða úr 11,24% í 12,46%. Þá
hefur hallinn á rekstri bæjarsjóðs
á þessum áratug verið að jafnaði
um 7,1% af tekjum.
Fjárhagsáætlun Garðarbæjar
2001 var samþykkt fyrirskömmu.
Þrátt fyrir þessa hækkun útsvars-
ins verður það með því lægsta í
landinu þar sem flest sveitarfélög
hækka útsvar sitt í 12,70%. Þessa
útsvarshækkun ætlar bæjarstjórn
Garðabæjar að nota til greiða nið-
ur skuldir og til uppbyggingar
skólamannvirkja. Heildarskuldir
bæjarsjóðs nema um 2 milljörð-
um króna. Aætlað er að tekjur
bæjarsjóðs verði um 1,8 milljarð-
ar króna á næsta ári og þar rúmur
1,5 milljarður af útsvarinu, eða
88,1% af sameiginlegum tekjum.
í fjárhagsáætluninni er gert ráð
fyrir að rekstrarafgangur nemi
um 516,5 miUjónum króna, eða
28,7% af tekjum. Það hlutfall
mun ekki liafa verið hærra síðan
1991. Sem fyrr er mestum út-
gjöldum varið til fræðslumála,
eða 42% af rekstrartekjum. Um
17,4% af gjöldunum fara til fé-
lagsþjónustunnar og 8,5% til
æskulýðs- og íþróttamála. Helstu
framkvæmdirnar verða í tengslum
við uppbyggingu nýs íbúðahverfis
í Hraunsholti vestra, nýs leik-
skóla, undirbúning við nýtt
íþróttamannavirki í Hofstaðamýri
og byggingu 10-12 leiguíbúða fyr-
ir námsmenn. - GRH
Afturkallar tryggingaleyfi
Fjármálaeftirlitið hefur afturkallað heimild Lloyd's vátryggjandans,
samstarfsaðila Félags íslenskra bifreiðaeigenda um svonefnda FIB-
tryggingu, til þess að hafa með höndum Iögboðnar ökutækjatrygg-
ingar hér á landi. Að gefnu tilefni vill stjórn Alþjóðlegra hifreiðatrygg-
inga á íslandi sf. (ABÍ), sem ber m.a. ábyrgð á tjönum sem valdið er
af óvátry'ggðum ökutækjum, árétta: „Afturköllun Fjármálaeftirlitsins
á heimildinni miðast við 24. nóvember s.l. Af hálfu aðstandenda FÍB-
tryggingar hefur þó til þessa ekki orðið vart nokkurra opinberra leið-
beininga eða skýringa um stöðu bifreiðaeigenda, sem hafa vátryggt
hjá þessum vátryggjanda. - BÞ
Mistök í upplýsingagjöf
„Okkur þykir leitt að starfsfólk han fengið
rangar upplýsingar. Hið rétta er að verkalýðs-
fargjöldin eru í gildi til 10. dcsember nk. Við
erum núna búin að tryggja að allir hafi réttar
upplýsingar um þetta. Astæðan fyrir þessu
virðist mistök í upplýsingastreymi innan fyrir-
tækisins,“ segir Jón Karl Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags íslands.
Eins og fram kom í Degi í gær stóð a.m.k.
hluti sölumanna Flugfélags Islands í þeirri trú
að þegar væri búið að afnema öll verkalýðsfargjöld en þau standa sem
fyrr segir til 10. desember nk. Skorið verður úr því innan tíðar hvort
verkalýðsfargjaldasamningar verði framlengdir. - bþ
Stöpull Wegeners
endurgeröur
Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri
Garðabæjar afhjúpaði í gær steinstöpul á
Arnarnesi sem þýski vísindamaðurinn Al-
fred Wegener reisti árið 1930 og hefur nú
verið endurgerður. Wegener reisti stöpul-
inn á Arnarnesi ásamt fleiri stöplum með
það fyrir augum að sanna landrekskenn-
inguna sem hann setti fram á árunum
1908-1912.