Dagur - 12.12.2000, Síða 1
Reykjanebrautina á
annatíma. Þrýst á tvö-
földun Reykjanes-
brautar. „Sofandi64
stjómmálamenn verði
„strikaðir út“.
Hópur fólks kom saman við
Grindavíkurveg í gær og lokaði
allri umferð um Reykjanesbraut
með því að leggja bifreiðum á ak-
veginn í rúmar þrjár klukku-
stundir. Upplausnarástand skap-
aðist þegar hundruð bíla komust
hvorki lönd né strönd. Lögreglan
í Keflavík var lokuð af þegar hún
kom á staðinn og varð fjöldi fólks
fyrir miklum óþægindum.
Guðni Sigurðsson, varðstjóri
hjá lögreglunni í Keflavík, sagði
að aðgerðirnar þefðu valdið usla
og skapað óþægindi. Nokkur
harka var í aðgerðunum og sagði
varðstjórinn að lögreglumenn
hefðu vísvitandi verið lokaðir
inni þegar þeir komu á staðinn.
„Við vitum ekki enn hverjir
standa að þessu en við erum að
reyna að koma sjúkrabíl í gegn
með fótbrotna konu sem var ekið
á hérna í Keflavík,“ sagði Guðni
á fimmta tímanum í gær þegar
lömun umferðarinnar hafði var-
að í eina og hálfa klukkstund.
Hann sagði að mótmælin hefðu
ekki verið tilkynnt fyrirfram til
neinna opinberra aðila. Sjúkra-
bílnum var skömmu síðar hleypt
í gegn.
Margir þeirra sem voru á leið í flug urðu frá að hverfa og gáfust upp á biðinni vegna mótmælanna.
Töf á flugi
Flug frá Keflavík tafðist vegna
aðgerðanna og gripu Flugleiðir
til þess ráðs að fljúga með áhafn-
ir til Keflavíkur. Ollu aðgerðirn-
ar talsvert miklum pirringi hjá
þeim sem voru að reyna að kom-
ast í flug en Iengsta töfin á flugi
var um 40 mínútur.
Þjóðbraut dauðans lokað
Aðstandendur mótmælanna
vildu ekki tjá sig um hverjir væru
upphafsmenn en sögðu að „Þjóð-
braut dauðans væri lokað tíma-
bundið'1. Þeir vilja að Reykjanes-
braut verði tvöfölduð strax og
Iýsti einn þeirra hulduhernum
sem „höfuðlausum en öflugum".
Menn væru tilbúnir að koma aft-
ur jafnvel í dag ef þörf krefur, eða
þar til stjórnmálamenn aðhefð-
ust eitthvað. „Stjórnmálamenn
sem vakna ekki núna þurfa ekki
að hafa miklar áhyggjur af fram-
tíð sinni sem stjórnmálamenn,
því þeir verða einfaldlega strikað-
ir út,“ sagði annar mótmælandi
sem var á staðnum þegar Dagur
ræddi við þá í gær.
Lá við slagsmálum
Mönnum bar saman um að legið
hefði við slagsmálum hjá sumum
sem voru að missa af flugi í gær
en flestir hefðu haldið stillingu.
Meðfram eyjunni við gatnamótin
höfðu mótmælendur kveikt á
kertum til minningar um þá sem
látist hafa á Reykjanesbraut und-
anfarin ár.
SMS skilaboð með farsímum
voru notuð í að stefna mönnum
saman og sagði einn talsmanna
mótmælendanna: „Við munum
áfram vinna þverpólitískt og mun
ekki verða spurt hverjir eru upp-
hafsmenn, eða hvaðan SMS
skeytin koma upprunalega." BÞ/gj
Sjd einnig viðtöl við þingmenn
ú bls. 4
Neyðarástand á
Reykj anesbraut
Upplausnarástand
þegar hópur fólks lok-
aði allri umferð um
Tjón á annan inilljarð
Byrjað var í gær að kanna orsakir
þess að eldur kviknaði í Isfélagi
Vestmannaeyja sl. laugardags-
kvöld en þá um morguninn lauk
sökkvistarfi eftir 33 tíma törn.
Þótt rafmagn kunni að vera þar
einhver orsakavaldur er ekkert
útilokað í þeim efnum m.a.
fkveikja.
Sérfræðingar frá Brunamála-
stofnun og Tryggingamiðstöðinni
könnuðu vegsummerki á bruna-
stað í gær auk rannsóknarlög-
reglumanna. Talið er að tjónið
geti numið hátt á annan milljarð
króna en engin slys urðu á fólki.
Þetta er einn mesti eldsvoði árs-
ins til þessa og er mikið áfall fyr-
ir atvínnulífið og afkomu fjölda
manns í Eyjum. Hins vegar var
Isfélagið vel tryggt hjá Trygginga-
miðstöðinni. Á sameiginlegum
fundi forráðamanna ísfélagsins
með starfsfólki í gær kom fram
að margir munu fá vinnu við
hreinsun og þrif auk þess sem
stefnt sé að því að byggja fyrir-
tækið upp á ný svo það geti að
minnsta kosti tekið þátt f næstu
loðnuvertíð.
Sja ítarlega umjjöllun á blað-
st'ðum 12 og 13
mmm
mmmm
■■■■■■
Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs
Búnaðarbanka er ómyrkur I máli.
Ekki mmið
af einhverj-
um eimim
„Ég ætla ekki að fara að túlka
neitt orð viðskiptaráðherra eða
það sem hún hefur látið frá sér
fara. Það er ekki mitt hlutverk,"
segir Pálmi Jónsson formaður
bankaráðs Búnaðarbankans, en
kastast hefur í kekki milli Val-
gerðar Sverrisdóttur og banka-
ráðsins vegar afskipta ráðherra
af sameiningarferlinu.
„Hér í Búnaðarbankanum
hefur verið unnið á fullu alla
helgina og raunar alla daga að
undirbúningi og samræmingu á
einstökum þáttum mála. Stund-
um í ágætu samstarfi við starfs-
menn Landsbanka Islands.
Þessi mál verða aldrei unnin af
einhverjum einum manni, held-
ur eru kvaddir til sérfræðingar
eftir eðli máls hverju sinni og
málin unnin sem best má verða
af þeim. Hér í Búnaðarbankan-
um er faglega unnið, ekki síst af
bankastjórum bankans en ein-
nig af öðrum starfsmönnum
bankans," sagði Pámi Jónsson
bankaráðsformaður í samtali við
Dag í gær.
Sjá blaðsíðu 5
m I-
12 til jóli dagar a
*Frá árinu 1996
hefur Packard Bell
verið mest selda
heimilistölvan í Evrópu.
BRÆÐURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
i