Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 4

Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 4
é - ÞRIDJUDAGVR 12. D E S E M B F. R 2 0 0 0 Dnpvr FRÉTTIR Frá mótmælaaðgerðum við Reykjanesbrautina í gær. - mynd: úfnir Framkvæmdiun hraðað við Reykjanesbrautina Hjálmar Amason: Hægt að hraða tvöföldun Reykja- nesbrautar. Kristján Páls- son: Hægt sé að ljúka verk- inu í árslok 2003. „Það cr hægt að hraða framkvæmdum við tvöföldun Reykjaneshrautar og það er verið að vinna í því máli af þing- mönnum Reykjaness," sagði Hjálmar Arnason alþingismaður í samtali við Dag í gær. Hann segir að stór áfangasigur hafi unnist síðastliðið vor þegar tvöföldun Reykjanesbrautar var komið inn á vegaáætlun. Næsti sigur segir Hjálmar að hafi verið yfirlýsing samgönguráð- herra við fyrirspurn sinni á Alþingi í vor um hvort ekki væri hægt að hraða framkvæmdunum. Þar sagðist Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vera opinn fyrir því að flýta Iramkvæmdum. Höimun og umhverfísmat „Málið er núna í eðlilegum farvegi, sem er hönnun og umhverfismat. Allt kæruferlið varðandi umhverfismat tek- ur lungann af næsta ári og því verður ekki hægt að hefja framkvæmdir á næsta ári. Sá tími verður notaður, og það er raunar hyrjað nú þegar, að ræða við ýmsa aðila hvað varðar íjármögn- unum. Menn vilja ná flýtifé inn í fram- kvæmdina og hins vegar að ræða við verktaka. Það er fullur vilji þing- mannahópsins að standa þannig að þessu," segir Hjálmar. Hann segir stefnt að því að bjóða verkið út árið 2002 og þá sé það spurn- ingin hvað hægt verður að vinna verk- ið hratt þegar framkvæmdir hefjast. Að öllum þessum þáttum er þingmanna- hópur Reyknesinga að vinna. FólM liðux ekki vel „Fólk í kjördæminu er að vonum af- skaplega slegið yfir öllum þessum hræðilegu slysum á Reykjanesbraut- inni. Ég bý í Reykjanesbæ og ek þessa braut tvisvar á dag og veit alveg hvern- ig ástandið er og ég veit líka hvernig fólkinu lfður á Reykjanesi vegna ástandsins. Því líður ekki vel," sagði Kristján Pálsson alþingismaður. Hann segir að það sé bara veriö að ræða málið um tvöföldun brautarinnar en ekki að taka neinar ákvarðanir enda sé hér ekki um áhlaupaverk að ræða. Hann bendir á að þegar sé til fjármagn til að hefja framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Þess vegna væri hægt að byrja en spurningin er hve mikið er hægt að flýta hönnun og að koma verkinu í heildarútboð og að hefjast handa. Sömulciðis að verkinu ljúki á sem allra skemmstum tíma. „Menn eru ckki sammála um hvað verkið geti tekið stuttan tíma. Ég held því fram að hægt sé að Ijúka verkinu í árslok 2003,“ segir Kristján Pálsson. - s.DÓR Skoðanakönnun fer nú fram á Bókavef Hrafns Jök- ulsson á Strik.is þar sem leitað er að vinsælasta rit- höfundi íslands. Valiö stend- ur milli 35 rithöfnnda scm fæddir eru fyrir 1965 og er hægt að kjðsa fiiinn höfuiida. Þegar þessuni und- anrásum lýkur tekur viö „Bikar- kcppni íslenskra ritliöfunda" og fer hún fram með útsláttarfyrirkomu- lagi, þannig að fyrst er „keppt“ í 16 manna úrslitmn og síöan koll af kolli uns ehni stendur uppi sem sig- urvegari. Þegar þetta er skrifaö hafa tæplega 1100 greitt atkvæöi og er óhætt að segja að speiman sé mikil. Hallgrhnur Helgason hcfur tckið forvstuna af Einari Má Guömunds- syni en Vigdís Grhnsdóttir og Guð- bergur Bergsson koina í humátt á eftir. Síðasti maður í 16 manna úr- slitin þessa stmidhia er Björn Tli. Bjönisson, cn Siguröur Pálsson, Guðmundur Andri Thorsson og Sig- fús Bjartmarsson narta í liæla hans. AthygH vekur aö gamlir og virtir höfundar á borð við Svövu Jakobs- dóttur og Tlior Vilhjálmsson eru neðarlega á blaði og sama máli gegnir um spútnikhm Ólaf Jóhann Ólafsson. Kosningabaráttan er greiniiega hörð og heyrst hefur að sumir rithöfundar séu ófeimnir aö hringja út „stuðningsmannalið" sitt og virkja þaö til að kjósa... Haiigrimur Helgason með forustu. Einar Már Guðmunds- son. Olafur Jó- hann Úlafs- son neðar- lega á blaði. Kennurum fhmst kaffi gott og kennarar eru félags- verur. Kemiarar eru vanir skipulagi og þcgar þctta þrennt kemur saman hlýtur útkoinan að verða skil- virkt kaffistarf í verkfaUi. í miðstöð framJialds skólakennara, Hamri á AkurcyTi, gctur að Uta ágæt- is minnisblað um störf sérstakrar ncfndar. Sú lieitir kaffinefnd og ber ábyrgð á því að keimarar séu ekki þurrbrjósta jTir dagtnn. Fyrsti liður minniblaðsins hefur vakiö káhhu þeirra sem eiga leið um Hamar þessa dagana. Helsta mhmisatriði kaffinefndar er nefnilega: „Hella upp á kaffi“... FRÉTTAVIÐTALIÐ Valgerikir Sverrísdóttir tönaðar- og viðskiptaráðherra Samtök íslenskra áhættu- Jjárfesta voru stofnuð ígær. Tilgangurinn ertn.a. sá að auka fagmennsku í áhættu- og nýksköpunarfjárfesting- um. Ráðherra ávarpaðiJund- inn. Þurfum sterkan fjármagnsmarkað - Er full ástæða til þess að stofna félag um áhættufjárfestingu, og hvað er áhættufiár- festing? „Áhættufjárfestar eru í flestum tilfellum þeir sem taka áhættu á frumstigi í fjárfesting- um af ýmsu tagi. Það er orðinn fullkomin ástæða til þess að stofna félag um áhættufjár- festingu eins og Eignarhaldsfélag Aljrýðu- bankans og Nýsköpunarsjóður eru að standa að en að þessu koma auk þess aörir fjárfestar og fjármagnsmarkaðurinn auk nýsköpunarað- ila sem eru að leiða sarnan sína krafta. Það sýnir að jiessum aðilum er fullkomin alvara að heiðursgestur stofnlundar samtakanna var Javier Ésharrv, framkvæmdarstjóri samtaka áhættufjárfesta í Evrópu. Tilgangurinn er ein- nig sá að mati stofnenda að efla skilning stjórnvalda, almennings og annarra á áhættu- fjárfcstingum og mikilvægi þeirra fyrir ný- sköpun í atvinnulífinu. Það er mjögjákvætt að eitt af markmiðum félagsins er að starfa með stjórnvöldum að bættu starfsumhverfi fyrir áhættufjárfestingar og nýsköpun ásamt því að vera umsagnaraðili fyrir opinbera aðila um mál sem varða áhættufjárfestingar. Aðilar að samtökunum munu verða fyrirtæki, félög og einstaklingar sem stunda áhættufjárfestingar og hafa næga fagþekkingu til að teljast áhættufjárfestar." - Nií er á brattann að sæltja í efnahagslíf- inu, a.m.k. um stundarsakir. Er þessi stofn- un tímabær f Ijósi þeirra staðreynda? „Það verður ekki horft fram bjá því að við Islendingar höfunt notið einstakrar efnahags- legrar velfcrðar allan seinni hluta áratugarins og nteð yfir 4% samfelldan árlegan hagvöxt. Ástæður þessa mikla hagvaxtar eru m.a. að finna í hinu aljijóðlega viðskiptaumhverfi og einnig breytingum sem orðið hafa á innlend- um aðstæðum. Skipulagsbreytingar fjár- magnsmarkaðarins hafa tekiö undraskamman tíma og innan við þrjú ár eru liöin síðan ríks- bönkunum Éandsbanka og Búnaðarbanka var breytt í hlutafélög. Nú er lýrirhugað að sam- eina þá. Um það er nokkuð góð samstaða þrátt fyrir nokkur mólmæli í upphafi. Augu manna hafa opnast lyrir því hversu gríðarlega mikilvægt er fyrir okkur að búa við sterkan fjármagnsmarkað og geta telJt fram eins öfl- ugum bönkum og takmarkað bolmagn okkar leyfir á hinum alþjóðlega samkeppnismark- aði.“ - Telurðu að aðgengi að áhættufiánnagni sé orðið auðveldara en það varfjrir einhverjum misserum? „Það hefur tekið miklum breytingum. Fyrir um áratug síðan voru virkir áhættufjárfestar teljandi á fingrum annarrar handar. Frumstig- um nýsköpunarinnar var ekki vel sinnt og veð í steinsteypu var í flestum tilfellum lyldlatriði. Umskipti fjármagnsmarkaðaðarins hafa ekki hvað minnst áhrif á framboð af áhættufé og viðrnið þess markaðar. Tilkoma Nýsköpunar- sjóðs í ársbyrjun 1998 hafði mikil áhrif, bæði vegna þess að þar kom fram nýtt Ijármagn og til varð vísir að samkcppni um fjárfestingar- v'erkefni. Áherslur sjóðsins bcindust í fyrstu að fjármögnun nýrra fyrirtækja og á síðari misserum eru þess allmörg dæmi að sjóðurinn veiti fyrirtækjum þróunarljármagn eða hug- myndafé í tengslum við álitlcgar viðskiptahug- myndir. Þessi þróun er ákaflega ánægjuleg og lýsir framvindu markaðarsins í hnotskurn.“ - Þii nefndir farsæla nýsköpun. Hver er hún? „Greið samskipti á milli vísindamanna, fyr- irtækja og áhættufjárfesta eru grundvallarat- riði íyTÍr farsælli nýsköpun. Vel hefur tekist til að kalla þessa aðila sarnan við upphaf stofn- unar félags áhættufjárfesta. Það lofar góðu.“ - GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.