Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 9
I’RIÐJUDAGU R 12. DESEMBER 2000 - 9 ÍÞRÓTTIR Hiörtur Már vanu giul á NM unglinga Ægir-ingurínn efni/egi, Hjörtur Már Reynisson, vann til þriggja verðlauna á NM unglinga I Noregi. Fem verðlaun urðu uppskera okkar fólks á Norðurlandamóti ung- linga í sundi sem uin helgiua fór fram í Fredrikstad í Noregi. Ægir-inguriim Hjörtur Már Reynisson vann til þriggja verðlauna, þar af eitt gull og Njarð- víkingurinn, Jón Odd- ur Sigurðsson, vann ein silfurverðlaun. 1 Ijörtur Már Reynisson úr Ægi, gerði það heldur betur gott á Norðurlandameistaramóti ung- linga í sundi um helgina, þegar hann vann til gullverðlauna í 100 m flugsundi á öðrum keppnisdegi mótsins. Áður hafði hann unnið silfur í 200 m flugsundi á fyrsta degi mótsins, þar sem hann bætti eigið piltameti um 91/100 úr sekúndu og náði þar með lág- markinu inn á Evrópumeistara- mót unglinga sem fram fer næsta sumar. Hjörtur bætti svo við sín- um þriðju verðlaunum á mótinu á sunnudaginn, þegar hann vann til silfurverðlauna í 50 m IIug- sundi á tímanum 25,71 sek., sem er nýtt íslenskt piltamet. Þar með hafði Hjörtur unnið til verðlauna í öllum flugsundsgreinum móts- ins, en hann keppti einnig í 400 m skriðsundi, þar sem hann varð í sjöunda sætinu á 4:10,10 mín. 1 gullsundinu háði Hjörtur Már harða keppni við Danann Fredrik Seistrup og kom aðeins 2/100 úr sekúndu á undan hon- um í mark á tímanum 57,09 sek., en besti tími Hjartar í greininni er 56.13 sek. í 200 m flugsund- inu synti Hjörtur á 2:07,01 mín., en sigurvegarinn, Daninn Anders Frahm, hafði nokkra yfirburði og synti á 2:05.67 mín. I 50 m flugsundinu kom Hjörtur Már 13/100 úr sekúndu í mark á eftir sigurvegarnum, Kristian Outinen frá Danmörku. Jón Oddui vann silfur Fjórðu verðlaun íslensku kepp- endanna á mótinu. vann Njarð- víkingurinn Jón Oddur Sigurðs- son, þegar hann synti 50 m bringusund pilta á 30,17 sek., sem er hans hesti tími og dugði honum til silfurverðlauna. Var hann aðeins 4/100 úr sek. á eftir sigurvegaranum Erik Dorch frá Svíþjóð. Jón Oddur varð í 9. sæti í 50 m skriðsundi á 24.99 sek., í 5. sæti í 200 m bringusundi á 2:24,20 mín. og í 4. sæti í 100 m bringusundi á 1:05,84 mín. Allt eru þetta persónuleg met hjá þessum unga og efnilega sund- manni. Anja Rfkey Jakobsdóttir, SH, setti tvö persónuleg met á mót- inu, þegar hún náði 5. sætinu í 50 m baksundi á 31,26 sek. og 6. sætinu í 100 m skriðsundi á 1:01:16 mín. Hún var síðan ná- lægt sínu besta í 100 m bak- sundi, þar sem hún náði 5. sæt- inu á 1:07,80 mín. og í 200 m baksundi, þar sem hún lenti í 8. sætinu á 2:31,20 mín. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Ægi, náði 4. sæti í 200 m flug- sundi á 2:29,54 mín., sem er að- eins 4/100 úr sek. frá hennar besta. Hún lenti í 8. sætinu í 50 m bringusundi á 35,50 sek., 5. sætinu í 200 m skriðsundi á 2:11,95 mín. og einnig 5. sætinu í 100 m bringusundi á 1:16,09 mín. Þau Gunnar Steinþórsson, Ægi og Berglind Osk Bárðardótt- ir, SH, náðu sér ekki á strik á mótinu, en Gunnar lenti í 6. sæti í 100 m skriðsundi á 54,25 sek., scm er tæplega sekúndu frá hans besta, 1 1. sæti í 50 m skriðsundi á 25,22 sek, 7. sæti í 100 m flug- sundi á 1:01,00 og 8. sæti í 200 m fjórsundi á 2:17,17 mín. Berglind Ósk náði best 5. sæt- inu í 200 m bringusundi, þegar hún synti á 2:41,51 mín. og varð síðan í 7. sætinu í 100 m bringusndi á 1:16,82 mín. og 1 1. sætinu í 200 m skriðsundi á 2:1 5,66 mín. Haukar með tíu mörk í pokahominu Flaukar unnu tíu marka sigur, 34-24, á norska liðinu Sandefjord, þegar liðin mættust í fyrri leik sínum í íjórðu umferð EHF-bikarsins í handbolta, en leikurinn fór fram á sunnudaginn í íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum. Góð byrjun Haukanna, sem skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins, virtist slá norska liðið al- gjörlega út af laginu og náðu þeir aldrei að veita Haukunum þá mótsspyrnu sem flestir áttu von á. Haukarnir spiluðu mjög öfluga vörn í upphafi leiks og fyrir aftan hana stóð Bjarni Frostason, markvörður í miklu stuðu, en hann varði alls 19 skot í leiknum, þar af 15 í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 14-8 og eftir að hafa gert fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik var mest allt lof’t úr norsku víkingunum og aðeins spurning hve sigurinn vrði stór. Auk Bjarna í markinu áttu þeir Halldór Ingólfsson og Einar Örn Jónsson, stjörnu- leik hjá Haukum og einnig stóðu þcir Shamkuts og Þonarður Tjörvi vel fyrir sínu. Annars var allt Haukaliðið vel með á nótunum og von- andi að tíu mörk í pokahorninu dugi til að tryggja þátttöku í fimmtu umferðinni. Halldór lngólfsson var markahæstur Haukanna með tíu mörk, þar af fimm úr vítum. Einar Örn var næst markahæstur með átta mörk og voru þau flest skoruö í seinni hálfleiknum, en þá fór hornamaðurinn knái á kostum. Línumaðurinn Shamkuts skoraði fimm mörk og Þorvaröur Tjön'i fjögur, en aðrir minna. Zidane knattspymumaður ársins Frakkinn, Zinedine Zidane, var í gærkvöldi kjörinn knattspyrnumaður ársins 2000 á hátíðarsamkomu FIFA, sem fram fór í Róm á Italíu. AUs 1 50 landsliðsþjálfarar tóku þátt í kosningu og hlaut Zidane alls 370 at- kvæði, Portúgalinn Figo 329 og Brasilíumaðurinn Rivaldi 263 at- kvæði. Alls 59 þjálfarar völdu Zidane í fl'rsta sætið og var Atli Eðvalds- son ekki þar á meðal, en hann mun hafa gefið Figo sitt atkvæði, sett Rivaldo í annað sætið og Zidane í það þriðja. Zidane hlaut titilinn ein- nig árið 1998, eftir að hafa orðið heimsmeistari með Frökkum, en Rivaldo hlaut hann á síðasta ári. Topp tíu í kjörinu: Zinedine Zidane 370 David Beckham 41 Luis Figo 329 Thierry Henry 35 Rivaldo 263 Alessandro Nesta 23 Gabriel Batistuta 57 Patrick Kluivert 22 Andrei Shevchenko 48 Francesco Totti 14 Pele og Maradona Á hátíðarsamkomu knattspvrnumenn aldarinnar FIFA var einnig tilkvnnt um útnefningu á besta knattspyrnumanni aldarinnar og hlutu Brasilíumaðurinn Pele og Argentínumaðurinn Diego Maradona báðir þann titil. Erfitt reyndist að gera upp á milli kappanna, en Pele var kjörinn bestur af FIFA-for- ystunni og lesendum „FIFA Magazine, á meðan Diego Armando Mara- dona hlaut yfirburðakosningu á vefsíðu FIFA. 1 þeim hluta kosninganna, sem Pele sigraði í, hlaut hann yfirburða kosningu eða alls 72,75%, en Alfredo Di Stefano lenti í öðru sætinu með 9,75%, næstur á undan Maradona sem hlaut 6%. I vefsíðukosningunni fékk Maradona hins vegar 53,6% atkvæða, Pele sem varð f öðru sætinu 18,53% og Eusebio þriðji með 6,21%. Eiður Smári skoraði tveimu gegn Derby Eiður Smári Guðjohnsen, fram- herji Chelsea, skoraði tvennu og átti þátt í tveimur öðrum mörk- um þegar lið hans vann 4-1 sigur á Derby í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Eiður Smári stimplaði sig þar með heldur betur inn hjá liðinu, eftir að hafa nýlega látið í það skína við Claudio Ranieri, knatt- spyrnustjóra félagsins, að hann væri allt annað en tilbúinn til að verma varamannabekk Lundúna- liðsins. Hvort það var fjarv'era Jimmy Floyd Hasselbainks vegna leikbanns, sem tryggði Eið Smára sæti í Iiðinu skal ósagt lát- ið, en víst að erfitt verður fyrir Ranieri að ganga framhjá kapp- anum eftir slíka framistöðu. Mikið markaregn einkenndi leiki ensku úrvalsdeildarinnar um helgina og voru skoruð alls 33 mörk, þar af fimm mörk eða fleiri í fimm þeirra. Þar á meðal var leikur meistara Manchester United gegn Charlton, sem end- aði með 3-3 jafntefli eftir að United hafði náð 3-1 forystu og haldið henni þar til um ellefu mínútur voru til leiksloka. Leik- menn Charlton eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og það sönnuðu þeir á lokakaflan- um, þegar leikmenn United féllu í þá gryfju að draga sig allt of aft- arlega á völlinn. Fimm fasta- menn vantaði í lið United, þá Fabien Barthez, Dvvight Yorke, Teddy Sheringham, Paul Scholes og Dennis lrvvin. Parlour með þreiuiu 5-0, stórsigur Arsenal á Newcastle þar sem Ray Parlour skoraði þrennu, gefur liðinu aukna von um að geta haldið í við United í kapphlaupinu um meistaratitilinn, en sex stig skilja nú liðin að í toppsætum deildar- innar. United er með 40 stig í toppsætinu, en Arsenal 34 í öðru sætinum, fjórum stigum meira en Hermann Hreiðarsson og fé- lagar í Ipsvvich, sem um helgina unnu 0-1 útisigur á Liverpool. Það er sjötti útisigur liðsins í níu útileikjum á tímabilinu, sem verður að teljast framúrskarandi árangur hjá nýliöunum, sem urðu fyrstir til að sigra Liverpool á heimavelli í vetur. Leice'ster, lið Arnars Gunn- laugssonar, sem fyrir umferðina var í þriðja sæti deildarinnar, tap- aði 1 -0 gegn Coventry og téll við það niður í fjórða sæflð, með sín 29 stig, eða jafnmörg og Sunder- land sem vann 1-0 heimasigur á Middlesbrough í fyrsta leik Boro eftir að Terry Venables kom lið- inu til hjálpar. Leikmenn Manchester Citv voru heldur betur í stuði þegar þeir tóku á móti Everton á Maine Road og unnu þar 5-0 sigur, eftir sex tapleiki í deildinni í röð. Enn einn markaleikurinn var á heimavelli nýliða Bradford, þar sem Ledley King skoraði fv'rsta mark leiksins strax eftir 10 sek- úndna leik og mun það vera met í ensku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli eftir að Tottenham hafði haldið 3-2 for- ystu þar til á síðustu mínútunni, þegar Italanum Benito Carbone tókst að jafna fyrir Bradford. Urslit annarra lcikja urðu þau að Southampton vann 1-0 sigur á Leeds, þar sem James Beattie skoraði Dýrlingana, hans sjötta mark í síðustu sex leikjum og West Ham og Aston Villa gerðu 1-1 jafntefli

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.