Dagur - 12.12.2000, Síða 11
I’RIDJVDA G UR 12. DESEMBER 2 000 - 11
TQpur
ERLENDAR FRÉTTIR
Htnir stóru fá
stöðvunarvald
Smærri ríki í Evrópu-
sambandinu telja sig
hafa horið skarðan
hlut frá horði á leið-
togafundinum í Nice.
Þýskaland, Bretland, Frakkland
og Italía geta gegnið sigri hrós-
andi frá leiðtogafundi Evrópu-
sambandsins í Nice um helgina
því þar tókst þeim að margra
mati endanlega að innsigla yfir-
ráð sín í sambandinu. A fundin-
um var verið að stokka upp vægi
einstakra þjóða í sambandinu,
auka vægi meirihlutaákvarðana
og síðast en ekki síst að draga úr
vægi neitunarvalds og ákveða við
hvaða mörk eða atkvæðamagn
ætti að miða til að unnt væri að
stöðva framgang mála í ráð-
herraráðinu. Þetta er Iiður í und-
irbúningi fyrir frekari stækkun
sambandsins. Niðurstaðan varð
sú að í uppstokkuninni bafa
þessi fjögur stórveldi tryggt sér
nægjanlega stóran hluta af þeim
atkvæðum sem ráða málum Evr-
ópusambandsins, þannig að ef
þau standa saman geta smærri
ríkin ekki undir neinum lcring-
umstæðum staðið gegn ákvörð-
unum þeirra.
Fjögur ríki ná að stöðva
Það sem ntenn voru að deila um
eru vægi atkvæða aðildarþjóð-
anna í ráðherraráðinu efir
stækkun, eða samtals 339 at-
kvæði. Niðurstaðan var sú að
stöðvunarvald verður \að 91 at-
kvæði eða sem nemur urn 61%
af fólksfjölda innan Evrópusam-
bandsins. Þar af fengu ofan-
greind fjögur ríki 30 atkvæði
hvert, og er hlutur Þýskalands
þar augljóslega minnstur því
fólksfjöldinn í Þýskalandi cr um
20 núlljónum meiri en í Bret-
landi, Frakklandi eða Italíu.
Spánn kemur næstur inn með
28 atkvæða vægi og Pólland sem
verður fyrsta kommúnistaríkið
til að ganga inn mun fá það
sama. Raunar höfðu Frakkar
gert kröfu um að vægi Póllands
yrði enn minna, en fengu því
ekki framgengt.
Minnihluti atkvæða
Engu að síður er Ijóst að með
því að hafa einungis að baki sér
minnihluta atkvæða, eða 91 at-
kvæði, sem gætu þá verið þrjú af
stórveldunum að viðbættu ein-
hverju litlu ríki, þá er hægt að
stöðva öll mál í ráðherraráðinu.
Franski utanríkisráðherra stað-
festi einmitt í gær að með
bandalagi fjögurra þjóða væri
hægt að stöðva allar ákvarðanir,
en hann hætti því við að slíkt
væri farsælt fyrir bandalagið.
Svipaður tónn var hjá breskum
embættismanni úr samningavið-
ræðunum sem sagði nauðsvnlegt
að hafa þetta svona til að tryggja
það að þrjú stærstu ríkin í sam-
bandinu lentu ekki í því að verða
undir í einhverri tiltekinni kosn-
ingu.
Óánægja hiima smærri
Smærri ríkin hins vegar, undir
forustu Portúgala hafa viljað
hafa neitunarvaldsþröskuldinn
nokkur hærri, t.d. við 104 at-
kvæði þannig að þau hefði meiri
möguleika á að hafa áhrif á
ákvarðanatökuna og að nauðsyn-
legt yrði fyrir stóru ríkin að hafa
samráð við þau til að tryggja
meirihluta.
Og gagnrýnin hefur ekki látið
á sér standa, því háværar raddir
hafa verið uppi um að með þess-
ari niðurstöðu sé einungis verið
að try'ggja völd og áhrif hinna
stóru og styrkja en draga að
sama skapi úr samvinnuferlinu
og nauðsyninni á samráði og
eðlilegu samrunaferli.
Rannsóknamefnd fyrir botni
Miðjarðarhafs
JERUSALEM - Sérstök rannsóknarnefnd und-
ir forsæti Bandaríkjamanna byrjaði í gær að
rannsaka uppreisnina sem geisað befur á her-
teknu svæðunum í Palestínu síðustu 10 vikurn-
ar. Nefndin átti viðræður við bæði ísraelska og
palestínska leiðtoga, en mikið óvissuástand í
ísraelskum stjórnmálum var þó talið hafa yfir-
skyggt allar þær viðræður. I rannsóknarnefnd-
inni eiga sæti fimm manns og er öldungardeild-
arþingmaðurinn Géorge Mitchell í forsvari.
Ræddi nefndin bæði við Ehud Barak og Yasser
Arafat.
Clinton sáttasemjari á
N írlandi?
DUBLIN - Clinton Bandraíkjaforseti er tilbúinn
til að íhuga það að taka að sér sáttasemjarahlut-
verk í deilum á Norður-Irlandi þegar kjörtímabili
hans lýkur í Bandaríkjunum í lok næsta mánað-
ar. Þetta kom fram hjá talsmanni l lvíta hússins
í gær. Norður-Irland hefur verið mjög mikilvæg-
ur hluti í utanríkismálastefnu Clintons í átta ár
og þessar yfirlýsingar koma fram rétt áður en
Clnton fer í sína þriðju og síðustu opinberu
heimsókn til Norður-írlands sem forseti Banda-
ríkjanna.
Jólum ekki frestað í Bethlehem
BETHLEHEM, Vesturbakkanum - Borgarstjórinn í Bethlehem skor-
aði á kristna menn í gær að halda heilög jól í borginni, enda væri
þetta borgin þar sem frelsarinn er sagður hafa fæðst, þrátt fyrir að
uppreisn væri þar í gangi og ofbeldisverk væru nánast daglegt brauð
og hefði hrætt llesta ferðamenn á brautu. „Við skorum á pílagríma að
koma hingað um jólin og láta allar sögusagnir um að hér hafi menn
ákveðið að fresta jólahaldi sem vind um eyru þjóta," sagði Hanna
Nasser borgarstjóri í viðtali. I Bethlehem hafa hótel og gististaðir ver-
ið tómir að undanförnu vegna uppreisnarinnar á hernumdu svæðun-
um en hún hefur staðið í á 11. viku og um 300 manns hafa Iátið Iíf-
ið.
Kosningar í Hæstarétti
WASHINGTON - Lög-
fræðingar George W. Bush
og Als Gore fluttu í gær mál
umbjóðenda sinna fyrir
Hæstarétti í einhverjum
mesta lögfræðislag sem átt
hefur sér stað í Bandaríkj-
unum, en niðurstaða réttar-
ins gæti ákveðið hver verð-
ur næsti forseti Bandaríkj-
anna. I gær fóru fram eins
og hálfs ldukkustundar yfir-
heyrslur og málflutningur
lögmannanna um það hvort forsetaefnanna muni hljóta kjörmennina
25 í Flórída.
Al Gore og George Bush.
Bill Clinton.
■ FRÁ DEGI T
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER
337. dagur ársins, 29 dagar eftir.
Sólris kl. 11.11, sólarlag kl. 15.32.
Þaufæddust 11. desem-
her
•1711 Skúli Magnússon landfógeti.
•1821 Gustave Flaubert, franskur rithöf-
undur.
• 1863 Edvard Munch, norskur listmálari.
• 1884 Örn Arnarson skáld.
• 1915 Frank Sinatra, sá hinn eini.
• 1929 John Osborne, breskt leikskáld.
• 1938 Connie Francis, bandarfsk dægur-
lagasöngkona.
• 1940 Dionne Warw iek, bandarísk dægur-
lagasöngkona.
• 1954 Guðrún S. Gísladóttir leikkona.
IL DAGS
Þettagerðist 11. desem-
her
• 1870 sór maður að nafni Joseph Heyne
Raynie embættiseið sem fulltrúadeildar-
þingmaður í Bandaríkjunum, sem er ckki
frásagnarvert fyrir annað en hörundslit
mannsins, sem var dökkur, en áður hafði
ekki maður með dökkan húðlit sest á þing
í Bandaríkjunum.
• 1901 var í fyrsta sinn sent símskcyti milli
Evrópu og Bandaríkjanna, og var þar
ítalskur eðlisfræðingur að verki.
• 1904 voru í fvrsta sinn kveikt rafljós á Is-
landi.
• 1913 fannst málverkið Mona Lisa eftir Le-
onardo da Vinci á hótelherbergi á Italíu,
tveimur vikum eftir að |m' var stolið af
Louvre safninu í París.
• 1987 var Hótel ísland tekið í notkun.
Stekkjarstaur
Stekkjarstaur er jólasveinn dagsins.
Hann kom til byggða í nótt fvrstur
bræðranna þrettán, sem áður hrelldu
og skclfdu en koma nú lil að gleðja
börnin og létta landsmönnum lífið rétt
í þann mund sem neysluæði þeirra
nær árlegu hámarki.
Hið sanna, góða og fagra finnur
veginn.
Matthías Jochumsson
Heilahrot
Til er óbrigöul og einföld aðferð við að
segja „spaks manns spjarir" ón þess að
saman komi á manni varir. Hver er hún?
Lausn á síðustu gátu: Leyndarmál.
Vefur dagsins
Mikinn fróðleik um göðsögur frá ýmsum
löndunt er að finna á alfræðibókarfonr i
bjá ww'w.pantbeon.org/mylhica
Vísa dagsins
Laust óg bergið berum lmúa.
Bergið laukst í hálfa gált.
Sá ég Ijóðagullið góða
glitra í skuggans myrku nált.
Örn Arnarson (Magnús Stefánsson)