Dagur - 12.12.2000, Page 19
Leitað að sorp-
stað í Eyjafirði
Bæjarstjórinn á Akur
eyri tekur jáJkvætt í
hugmyndir Skagfird-
inga um eiim sorp-
haug fyrir allt Noró-
urlaud en aðrir kostir
verða þó fyrst skoðað-
ir. Mikill kostnaður
samfara breytingum.
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
á Akureyri, segir vert að skoða þá
möguleika sem Skagfirðingar eru
að athuga, að allt sorp á Norður-
landi verði urðað á einum stað.
Kólkuós hefur verið nefndur sem
dæmi í þessum efnum en bæjar-
stjórinn á Akureyri segir að Eyfirð-
ingar muni fyrst líta sér nær og
verja góðum tíma í að rannsaka
þessi mál áður en ákvörðun verð-
ur tekin. Kostnaður við breytingar
sé gífurlegur og vond dæmi séu
um afleiðingar skyndiákvarðana í
sorpmálum þjóðarinnar.
„Eyfirðingar hafa rætt það lengi
og lagt töluverða vinnu í að finna
nýjan sorpurðunarstað sem leyst
gæti Glerárdal af hólmi. Sú leit
hefur enn engan árangur borið en
nú er verið að skoða staðhætti hér
í Eyjafirði. Héraðsnefnd Eyja-
íjarðar samþykkti í gær að leita
leiða áfram og leggja í kostnað við
mat á umhverfísáhrifum en það er
ástæða til að taka það fram að úr-
bætur í þessum málum eru mjög
kostnaðarsamar," segir Kristján
Þór.
Gagnrýnir umhverfis-
ráðuneytid
Snorri Björn Sigurðsson, bæjar-
Frá sorphaugum Akureyringa á Glerárdal, en verið er að leita að nýjum sorpurðunarstað sem leyst gæti
þennan af hólmi.
stjóri í Skagafirði, sagði í Degi í
síðustu viku að hann teldi sjálfur
sjálfsagt að ræða við Eyfirðinga
um einn sameiginlegan urðun-
arstað ef ósk bærist um það og
Kristján Þór segir rétt að halda
öllum möguleikum opnum í
þeim efnum. Bæjarstjórinn á
Akureyri ítrekar hins vegar að
menn verði að fara sér hægt.
Hann bendir á dæmi þess að
fyrirmæli ríkisvaldsins hafi
reynst sveitarfélögum dýrkeypt
og vísar þar til ákvörðunar um
sorpbrennslustöðina í Hnffsdal
á Vestfjörðum og uppbyggingu
á sorpbrennslustöðinni Funa.
Aðild umhverfisráðuneytisins
að því máli varð til þess að
sveitarfélagið lenti í klemmdri
stöðu og var ýtt út í fjárfesting-
ar án þess að tími gæfist til að
íhuga þau mál nógu gaumgæfi-
lega að mati Kristjáns Þórs.
Dalvíkingar lltt spenntir
Samkvæmt heimildum Dags er
helst litið til þriggja staða í
Eyjafirði f augnablikinu sem
hugsanlegs framtíðarsvæðis
fyrir sorpurðun. Þeir eru Hella
á Árskógssandi, Samkomugerði
1 í Eyjafjarðarsveit og Skriðu-
land í Arnarneshreppi. Sam-
komugerði og Hella eru á þessu
stigi taldir álitlegustu kostirnir
en margt er órannsakað enn.
Umhverfisnefnd Dalvíkur-
byggðar mun ræða það á næsta
fundi sínum hvort Hella sé
heppilegt svæði en samkvæmt
heimildum Dags er meirihluti
Dalvíkinga Iítt hlynntur slíkri
fyrirætlan.
BÞ
Þorsteinn Þorsteinsson,
fuglaveðurspámaður
Spá „fíúk-
mygJingi“
Þorsteinn Þorsteinsson fugla-
veðurspámaður á Akureyri spáir
því að f vikunni megi búast við
„fjúkmyglingi", „snjómaldringi"
eða „fjúkslitrum". I fuglaveður-
spánni segir að það hafi verið
fátt um fugla í bænum í „þeim
dulvarma sem verið hefur að
undanförnu og því erfiðara með
hávísindalegar spár hvað veður-
far varðar.“ Á athugunardegi,
sem var sl. laugardagur, í þeim
„armanda og flugtaskúrum sem
þá voru, sást aðeins einn hrafn,
og var hann á flugi yfir hinu
glæsta Glerártorgi. það mátti
ráða af veltiflugi hans, að fjúk-
myglingur gæti orðið innan tfð-
ar,“ eins og segir í spánni, sem
Gísli Jónsson hefur skráð. Þá
segir ennfremur: „Þá tók
seimaraftur eftir því, að æðar-
fuglar hafa heldur þokast innar í
fjörðinn, sem gæti bent til nepju
sem endaði í snjómaldringi eða
fjúkslitrum. En við skulum sjá
hvað setur." Spáin endar síðan á
þessari vísu eftir Ketil Indriða-
son á Fjalli:
Upp við skjá er ýlustrá,
úti er lágur kliður.
Stjörnur háum himni frá
horfa á oss niður.
Til gamans má geta þess að í
desember fvrir fimm árum var
tíðarfarið ekki ósvipað því sem
það er nú, lítill snjór og langvar-
andi hlýindi búin að vera. Þá
spáði fuglaspámaður umhley'p-
ingum og hlýju veðri áfram mið-
að við árstíma, hita nálægt frost-
marki og auðri jörð.
Þröfin vex fyrir aðstoð
Hjálpræðisheriim á
Aluireyri salnar fyrir
þá sem ekki ná að gera
sér dagamun um
jólin. Sá hópur fer
stækkandi þrátt fyrir
góðaærið.
í gærkvöldi hóf Hjálpræðisher-
inn á Akureyri að taka á móti um-
sóknum frá fólki sem óskar eftir
að fá peningaúthlutun úr söfnun
Hersins fyrir þessi jól. Að sögn
Erlings Níelssonar hjá Hjálpræð-
ishernum er þörfin því miður
talsverð fyrir aðstoð af þessu tagi
í bænum og hefur verið um
nokkur undanfarin ár og þrátt
fyrir góðærið segir hann að sá
hópur sem þurfi á aðstoða að
halda fari stækkandi. „Fólk leitar
þá eftir þessari aðstoð til okkar
og annarra sem eru að veita
svona hjálp. En það sem við skil-
greinum í dag sem neyð eða þörf
er vitaskuld töluvert annað en
það sem við hefðum kallað þörf
fyrir einhverjum áratugum síðan.
I dag eru kröfurnar öðruvísi en
áður og viðmiðanirnar eru aðrar.
En það er talsvert um barnafjöl-
skyldur leita til okkar og þá er
þetta gjarnan fólk sem rétt nær
endum saman og hefur ekkert af-
gangs til að gera sér dagamun
eins og maður gjarnan vill gera
um jólin,“ segir Erlingur.
Hjálpræðisherinn gengst fyrir
innsöfnun fyrir jólin til að standa
straum af þessum úthlutunum
og þarf að reiða sig á örlæti al-
mennings. Tekið verður á móti
umsóknum á hverju kvöldi fram
að jólum á milli kl 19:00 og
20:00 og að sögn Erlings má
reikna með að úthlutunin fari
fram þann 20. desember. Hann
vill þó ekkert segja til um hversu
mikið muni koma í blut hvers og
Rannveig Óskarsdóttir umsjónarmaður fatamarkaðar Hjálpræðishersins
á Hvannavöllum.
eins, slíkt muni ráðast af því
hversu mikið safnist og hversu
margir sæki og svo muni það ráð-
ast af fjölskylduaðstæðum ein-
staka umsækjanda.
1 síðustu viku gekkst Hjálpræð-
insherinn fyrir fataúthlutun á
Hvannavöllum 10, en þá gafst
fólki kostur á að velja sér föt á
fatamarkaði Hersins endur-
gjaldslaust. Erlingur segir að
nokkuð hafi verið um að fólk
nýtti sér þessa úthlutun, en þó
væri eins og fólk veigraði sér dá-
lítið við að koma á svona uppáko-
mu. Það væri að mörgu ieyti
þægilegra fyrir það að koma á
föstudögum þegar verið væri að
selja einn haldapoka af fötum á
500 krónur, sem í sjálfu sér væri
nánast gjöf, því þarna væri um að
ræða fínasta fatnað.
Tekið er á móti fatnaði hjá
Hjálpræðishernum að Hvanna-
völlum og er sérstaklega auglýst
eftir sparifatnaði nú fyrir jólin.