Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 21

Dagur - 12.12.2000, Blaðsíða 21
ÞRIÐJVD AGV R 12. DESEMBER 2 00 0 - 21 Akureyri-Norðurland ....... —— Loksins vaim KA framlengiiigu Atli Hilmarsson, þjálfari KA, segir að enginn glans hafi verið yfir varnar- leiknum en sóknarleikurinn hafi gengið mjög vel. Nýtt undirbúnings- tímabil í janúar vegna heimsmeist- arakeppninnar. Skipta þarf nm gír og fara í leikþjálfun og þrekþjálfun. Ein- hverjir æfingaleikir í janiíar Leikur KA gegn Vestmannaey- ingum fór í framlengingu, sá þriðji í vetur hjá KA. Tveir fyrri leikirnir sem fóru í framleng- ingu töpuðust, en nú vann KA framlenginguna örugglega. Staðan í hálfleik var jöfn, 1 5- 15, og 28-28 eftir venjulegan leiktíma. KA var yfir er mfnúta var eftir eftir að IBV hafði leitt allan seinni hálfleik en IBV jafnaði og KA var með boltann síðustu 30 sekúndurnar, en tókst ekki að tryggja sér sigur. KA liðið lék hins vegar fram- lenginguna af miklu Öryggi og þá datt markvarslan einnig í gang, en hún hafði nánast ekki verið nein frani að því. Lokatöl- ur urðu 36-32 fyrir 1V\ og er lið- ið nú í 5. sæti með 14 stig, jafn- mörg og Afturelding, en lakari markamun. Bestu menn KA voru línumaðurinn Andreas Stelmokas sem skoraði 10 mörk og Guðjón Valur Sigurðsson með 9 mörk, þar af 6 úr vítum. Atli Hilmarsson, þjálfari KA, segir að enginn glans hafi verið yfir varnarleiknum en sóknar- leikurinn hafi gengið mjög vel. I stöðunni 6-2 hafi liðið slakað alveg ótrúlega á og fékk á sig 5 mörk í röð sem hafi verið mjög slæmt því það hefði verið hægt að gera út um leikinn í þeirri stöðu með því að halda áfram á sömu braut. „Kannski það hafi verið eitt- hvað vanmat í þeirri stöðu vegna þess hversu vel byrjaði, en fyrir Ieikinn var ekkert van- mat í gangi. Þeir höfðu tapað síðustu fimrn leikjum og við vissurn því að þeir yrðu erfiðir og gæfust aldrei upp. Eg er mjög ánægður að vinna loks leik sem fer í framlengingu, en deildin er mjög jöfn svo ég er feginn öllum stigum. Við eigum Ieik gegn HK á laugardaginn í Kópavogi en síðan er hlé í deild- inni til 4. febrúar vegna heims- meistarakeppninnar í Frakk- landi en þá fáum við Blikana í heimsókn. Það kernur því inn nýtt undir- búningstímabil í mótið, við þurfum að skipta urn gír og fara í leikþjálfun og þrekþjálfun. Við vcrðum að.fá einhverja æfinga- leiki í janúar, það er lykilatriði að fá einhver lið hingað til að spila. Við erum með Iandsliðs- menn í burtu. Guðjón Valur er í landsliðshópnum sem fer til Frakklands og svo fer Andreas til Litháen en þeir eru að leika í undankeppni Evrópukeppninn- ar á sama tíma og heimsmeist- arakeppnin fer fram. Jónatan Magnússon er í 21 árs liðinu og þrír í 18 ára liðinu svo það verða margir í burtu á þessum tíma. En það þýðir ekkert að slá slöku við þvf við verðum að vera tilbúnir í febrúarbvrjun," sagði Atli Hilmarsson. GG Sigur bjarnarhúnanna ungu var mjög sannfærandi Bjömiim vann SA öragglega Björninn vann SA 13-7 í síð- asta leiknum á íslandsmótinu í ísknattleik fvrir áramót. Sigur bjarnarhúnanna ungu var mjög sannfærandi, þeir léku mjög vel en varnarleikur SA var ein- nig út og suður og götóttari en hengilrifið troll. Mörk SA gerðu þeir Rúnar Rúnarsson 2/1, Clark McCormick 2/0, Sveinn Björnsson 1/1, Stefán Hrafns- son 1/1, Guðni Helgason 1/0 og Leifur Finney 0/1. Hjá Birn- inum skoruðu þeir Jónas Breki Magnússon 3/4, Sigurður Ein- ar Sveinbjarnarson 3/2, Ágúst Torfason 3/0, Sergei Zak 2/9, Glenn Hammer 1/2 og Brynjar Þórðarson 1/0. Leikmenn Bjarnarins fengu brottvísanir í 20 mínútur og eina útilokun en leikmenn SA 25 mínútur og eina útilokun. Björninn er efst- ur í úrslitakeppninni, SA í 2. sæti, SR í 3. sæti og Gull- drengirnir í 4. sæti. GG Ásdls færði KA/Þór sigur Lið KA/Þórs í úrvalsdeild kven- na í handknattleik vann örugg- an sigur á ÍR fyrir sunnan um helgina. Staðan í hálfleik var 1 1-5 fyrir KA/Þór og þann mun skóp Asdís Sigurðardóttir öðr- um fremur en hún var mjög grimm í sóknarleiknum og skor- aði 7 af ellefu mörkum liðsins. 1 seinni hálfleik var hún tekin úr umferð og skoraði þá eklci mark. En þessi forysta dugði liðinu og sætur sigur í höfn, 18-1 3. En það má ekki gleyma varn- arleik KA/Þórs liðsins sem var nú annar og betri en í mörgum leikjum liðsins þar á undan. Liðið fékk nú eldd á sig nema 1 3 mörk í leik en eftir 9 urnferð- ir er liðið með 4 stig og með Val og ÍR neðan við sig á stigatöfl- unni. Markatalan er 170-211, þ.e. liðið hefur fengið á sig 23 mörk að meðaltali í leikjunum 9, en fyrir leikinn við IR var meðaltalið 25 mörk. Aðrir markaskorarar hjá KA/Þór voru Eyrún Gígja Káradóttir með 5 mörk, Ása Marta Gunnarsdóttir 2, Martha Hermannsdóttir 2, og Inga Dís Sigurðardóttir 2. Sigurbjörg Hjartardóttir varði 10 skot í leiknum. Heiða Guð- mpndsdóttir var markahæst ÍR- inga með 8 mörk. GG Norðfírðingar griniinir Kvennalið KA virtist aldrei trúa því að þær gætu unnið sterkt lið Þróttar. KA lék tvo leiki við Þrótt Neskaupstað um helgina í 1. deild- inni, bæði í kvenna- og karlaflokki, og tapaði öllnm fjórum leikjunum. Á laugardag töpuðu stelpurnar 0-3 og fóru hrinurnar 9-25, 13- 25 og 25-29. Kvennalið KA virt- ist aldrei trúa því að þær gætu unnið sterkt lið Þróttar enda við ramman reip að draga þar sem Þróttarar hafa ekki enn tapað hr- inu í vetur. Það var aðeins í síð- ustu hrinu leiksins að KA stúlkur stóðu aðeins í Þrótti. Eftir þenn- an leik var erfitt að fmynda sér að nokkurt Iið gæti staðið í Norðfirðingunum í vetur. Á sunnudag léku liðin aftur og enn vann Þróttur 0-3. Hrinurnar fóru 10-25, 15-25 og 13-25, eða með öðrum orðum, öruggur sigur Þrótt- ara. Karlalið KA tapaði einnig sínum leik á Iaugardag 0-3. Hrinurnar fóru 24-26, 16-25 og 18-25. Shailen Ramdoo, þjálfari og leikmaður KA, tók út leikbann í leiknum og bar leikur KA manna þess greini- leg merki. Allt sjálfstraust vantaði í leik Iiðsins og ekki bætti úr skák þegar Magnús Stefáns- son einn af fastamönnum liðsins þurfti að fara af leikvelli í annar- ri hrinu leiksins. Móttaka KA liðsins var slæm og Iiðið vantaði áræðni og einbeitingu. Ungt lið Þróttar Neskaupstaðar stóð sig ágætlega og bætti þremur mikil- vægum stigum í sarpinn. Á sunnudag stóð liö KA meira í Þrótturum og unnu tvær hrinur en leikurinn fór 2-3. Þróttarar unnu fyrstu hrinuna 24-26, KA vann þá næstu 25-16, síðan vann Þróttur þá næstu 16-25, KA jafnaði leikinn með því á vinna fjórðu hrinuna 25-22 en úrslitahrinuna unnu Þróttarar 11-15. Með smá- heppni gátu KA-menn inn- byrt sigur en Þróttarar sýndu mikinn karakter og fóru með sigur. Hörkubarátta var í öll- um hrinum og átti Shailen Ramdoo, þjálfari KA stórleik í liði I<A, en á móti kom að Magnús Stefánsson lék ekki með vegna meiðsla. GG Þórsarar fara áfram Úrvalsdeildarlið Þórs vann nauman sigur á 1. deildarliði Stjörnunnar, 90-82, í bikar- keppninni í körluknattleik og það var ekki fyrr en undir lokin að Þórsarar hrístu Stjörnumenn af sér og skoruðu síðustu 6 stig leiksins án þess að Stjörnumenn næðu að svara fyrir sig. Clifton Bush var sem stundum áður bestur Þórsara, gerði 23 stig og hélt Þórsliðinu gangandi. Her- mann Hermannsson gerði 19 stig en Óðinn Ásgeirsson, sem hefur átt mjög góða leiki í allt haust var eitthvað miður sín, en skoraði þó 9 stig. Fyrrum landsliðsmaður, Jón Kr. Gíslason, er þjálfari Stjörn- unnar og leikur einnig með þeim. Hann er að gera þar góða hluti og kemur þeim vafalaust up]i í úrvalsdeildina í vetur. Stólarnir tapa Tindastóll, sem er í 2. sæti úr- valsdeildarinnar, varð hins veg- ar að sætta sig við ósigur í afar hörðum leik gegn Hamars- mönnum í Hveragerði, 78-81, og eru þar með úr leik í bikar- keppninni í ár. Hamarsmenn voru yfir eftir fyrstu tvo leik- hlutana, 43-40 en Tindastóll kornst svo yfir 68-59 eftir þriðja leikhluta, en tókst ekki að fylgja því eftir. Að venju var Shawn Myers stigahæstur með 25 stig og hann á nú varla dapran leik með liðinu. Svanur Birgisson skoraði 13 stig en stigahæstur hjá Hamri var Chris Dade með 32 stig og Pétur Ingvarsson með 22 stig, en hann var bestur heimamanna og það sker sem leikur Tindastóls braut á þegar mest á reyndi eftir þriðja leik- hluta. Dregið verður í næstu umferð í bikarkeppninni í Heklusporti í vikunni. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.