Dagur - 03.01.2001, Side 2

Dagur - 03.01.2001, Side 2
2 - FIMMTUDAGUR 3 . J A N Ú A R 2 0 0 1 /Dagur' FRÉTTIR Hugmynd Davíðs fær lítinn meðbyr Stjóraarandstadan leggst gegn hugmynd- inni að breyta lögun- uin um Hæstarétt. Sverrir Hermannsson segir að fara verði með gát þegar slík skref era tekin. Forsætisráðherra sagði eftir að ríkisstjómin tapaði málinu gegn Oryrkjabandalaginu að hann teldi nauðsynlegt að „styrkja Hæstarétt" með því að breyta lögunum um hann. Hann vill að ef mál snertir stjórnarskrá lands- ins að cinhverju leyti skulu Hæstiréttur vera fullskipaður. Aður en núverandi Iög um Hæstarétt voru sett þurftu allir dómarar réttarins að dæma í öll- um málum sem fyrir Hæstarétt komu. Þetta var svo seinvirkt að málaskráin lengdist sífellt. Þess vegna var dómurum við réttinn fjölgað og þeir gátu skipt sér og þannig aukið afköst hans. Dagur leitaði til nokkurra stjórnmála- manna og innti þá álits á hug- mynd forsætisráðherra. Drepa málinu á dreif „Eg hcf nú ekki hugleitt þetta mikið. Ég minnist þess að það var umdeilt þeg- ar síðast var verið að brey- ta lögunum um Hæsta- rétt og koma á þeim möguleika að skipta dóm- ururum til að flýta af- greiðslu mála. Ég átti þá sæti í alls- herjarnefnd Alþjngis þeg- ar þetta var. Það var ein- mitt þessi möguleiki á skiptingu dómara sem menn greindi á um þá og það kæmi mér ekki á óvart þótt menn vilji taka það atriði aftur til skoð- unar. Menn segja að það sé ekki tryggt að skoðun Hæstaréttar komi fram ef fimm manna dóm- urklofnar 3:2,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, formaður þing- flokks Framsóknarfloltksins. „Ég tel að þessi hugmynd sé sett fram nú í tilraun til að drepa máli Oryrkjabandalagsins á dreif. Stað- reyndin er sú að það hefur verið kveðinn upp dómur og hann er byggður á málaefnaleg- um grunni. Hann er ekki „slys“ eins og Davíð Odds- son hefur leyft sér að kalla dóm Hæstaréttar. Mér finnst það stórund- arlegt að setja málin fram með þeim hætti sem forsætis- ráðherra hef- ur gert. Þau eru að verða tíð „slysin" í kring- um Davíð Oddsson. Að þessu sinni felst „slysið í því að komið er í veg fyrir að brotin séu mann- réttindi á öryrkjum," segir Ög- mundur Jónasson, formaður þingflokks VG. Farið með gát „Ég hef velt því fyrir mér hvort forsætisráðherra hefði fundist ástæða til að breyta lögunum um Hæstarétt ef dómurinn um ör- yrkja hefði fallið á þann veg sem hann hefði sjálfur kosið. Það má lengi velta því fyrir sér hvort dómur verði sterkastur ef hann er 5, 7 eða 9 manna. Ég legg ekki mat á það. Mér finnst þetta vera enn eitt af’ þeim atriðum sem veikja allan málabúnað og traust á forsætisráðherra landsins," segir Rannveig Guðmundsdóttir, formaður þingflokks Samfylking- arinnar. „Nú verða inenn að fara með gát. Hér erum við að tala um einn af þremur hornsteinum þjóðfélagsins, og að hrapa að einhverju í þeim efnum kemur ekkj til nokkurra mála. Það vek- ur manni ólítinn ugg að forráða- menn skuli rjúka upp með slíkar hugmyndir af því að þeim líkar ekki niðurstaða, þeir gefa í það minnsta tilefni til þess að maður gæti haldið að þeir séu óánægðir með einhverja dómsuppkvaðn- ingu Hæstaréttar. Slíkt er með öllu ótækt að rnenn Ieggi upp með slíka málafærslu. Ég á ein- nig eftir að sjá nægar röksemdir fyrir því að ástæða sé til að brey- ta lögunum um Hæstarétt. Og á hvaða vísu spyr ég?“ sagði Sverr- ir Hermannsson, formaður Frjálslyndaflokksins. - S.DÓR Sturla Þór Friðriksson. Sturla látiim Sturla Þór Friðriksson, annar piltanna tveggja sem bjargað var lifandi úr flaki flugvélar sem fórst á Skerjafirði 7. ágúst síð- astliðinn, er Iátinn. Hann and- aðist um níuleytið að kvöldi ný- ársdags vegna innvortis áverka sem rekja má til flugslyssins. Sturla Þór var fæddur 10. maí árið 1983 og því aðeins sautján ára gamall þegar hann lést. For- eldrar hans eru Friðrik Þór Guð- mundsson, blaðamaður, og Kristín Dýrfjörð, lektor. Urskurdar- nefad Forsætisráðhcrra hefur á ný skipað úrskurðarnefnd um upp- lýsingamál til fjögurra ára frá 1. janúar sl. I nefndinni eiga sæti Eiríkur Tómasson prófessor við Háskóla Islands, sem jafnframt er formaður, Valtýr Sigurðsson héraðsdómari í Reykjavík sem er varaformaður og Elín Hirst fréttamaður. - gg Kristinn H. Gunnarsson. Rannveig Guðmundsdóttir. Ögmundur Jónasson. Sverrir Hermannsson. Unnið eins hratt og frekast er hægt Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, sagði í samtali við Dag í gær að unnið væri af eins miklum hraða og hægt er við útreikninga og annað sem til þarf svo hægt sé að framfylgja dómi Hæstaréttar varðandi bætur til öryrkja. Nefndin sem ríkisstjórnin skip- aði til að fara yfir málið og semja drög að lagafrumvarpi því sem ríkisstjórnin telur nauðsynlegt að samþykkja til að hægt sé að framfylgja dómnum, mun vera komin langleiðina með sitt starf. Ekki er búist við að það náist að kalla Alþingi saman í þessari viku en mjög fljótlega í þeirri næstu. Forustumenn öryrkja hvöttu í gær sitt fólk til þess að óska eftir óskertum bótum hjá Trygginga- stofnun nú þegar greiða á út bætur í byrjun mánaðarins. Talsvert álag varð því í þjónustu- miðstöð TR í gær þegar fjöldi fólks kom að kanna rétt sinn og mikið álag var á símkerfi stofn- unarinnar. - S.DÓR Fjöldi fólks lagði leið sína í Tryggingastofnun í gær til að kanna rétt sinn og hvort það fengi óskertar bætur. Oskar Þór hættir á Stöð 2 Óskar Þór Halldórsson frétta- maður Stöðvar 2 á Akureyri hef- ur sagt upp störfum og tók upp- sögn hans gildi nú um áramótin. Óvíst er enn hvenær Óskar lætur af störfum, en hann hefur ráðið sig til starfa hjá almannatengsla- fyrirtækinu Athygli hf. Verið er að efla starfsemi starfstöðvar fyr- irtækisins á Akureyri og rneðal annars verður tímaritið Ægir sem fyrirtækið keypti nýlega að öllu leyti unnið þar. Auk þess stendur til jafnframt að efla starfsemina nyðra á öðrum svið- um. „Mér finnst kominn tími til að snúa mér að öðru en þessu dag- lcga fréttaharki, sem ég hef verið í sfðustu fjórtán árin, það er á Tímanum Degi og nú síðast Stöð 2,“ sagði Óskar Þór, en fyrir star- fa hjá Athygli bræður hans tveir, þeir Atli Rúnar og Jóhann Ólaf- ur. Engar breytingar eru fy'rírhug- aðar á starfsemi Stöðvar 2 á Ak- urcyri þrátt fyrir þetta, að sögn Karls Garðarssonar fréttastjóra, sem sagði að fljótlega yrði nýr fréttamaður ráðinn til starfa í stað Óskars Þórs. - SRS. FH hvatt til fiskiskipakaupa Aðalfundur sjómannadeildar Verka- lýðsfélags Húsavíkur, sem haldinn var skömmu fyrir áramót, bendir á að fækktin fiskiskipa á Húsavík hafi orð- ið til þess að störfum sjómanna hafi fækkað verulega og leítt til atvinnu- leysis sjómanna á félagssvæðinu. Sjó- menn hafi í auknu mæli þurft að sækja á önnur mið eftir skipsplássum og því til staðfestingar megi benda á að sjómönnum í Verkalýðsfélagi Húsavíkur hafi fækkað um helming á síðustu árum. „Ekki þarf að fara mörgum orðum um mikilvægi þess fyrir bæjar- félag eins og Húsavfk að hafa öfluga útgerð og fiskvinnslu. Því skor- ar aðalfundur sjómannadeildar Verkalýðsfélags Húsavíkur á stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur að ráðast nú þegar f kaup á fiskiskipi sem verði upphafið að öflugri útgerð fyrirtækisins í framtíðinni. Mark- miðið hlýtur að vera að skapa atvinnu og tekjur í heimabyggð í stað þess að kvóti Húsvíkinga sé veiddur af skipum frá öðrum Iandshlut- um,“ segir m.a. í samþykktinni. Utgerðarfyrirtæki utan Húsavíkur fiska kvóta Fiskiðjusamlags Húsavíkur í dag. - gg Norðmenn hafna nýjum vatnsafls- virkjunum Tíma nýrra stórra vatnsaflvirkjana í Noregi er lokið, sagði Jens Stol- tenberg, forsætisráðherra Noregs, í áramótaávarpi sínu. Hann tilkynnti um Ieið að ríkistjórnin myndi leggja til við Stórþing- ið að gamall leyfi til stórrar virkjunar í norðurhluta landsins, \ið Bjöllaaga, Melfjord og Beiarn, yrði afturkallað - en norska landsvirkj- unin hefur unnið af fullum krafti að undirbúningi virkjunarfram- kvæmdanna þrátt fyrir hávær mótmæli umhverfisverndarsinna. „Ég veit að þessi ákvörðun mun vekja deilur. F.n kostirnir við þessa virkj- un eru ekki nógu miklir til að þeir réltlæti óaflurkallanlegar breyting- ar á umhverfinu," sagði Stoltenberg. Viðbrögð talsmanna annarra stjórnmálaflokka við þessari ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar eru yfírleitt jákvæð að siign norskra fjöi- miðla og Ijóst að lillagan verður samþykkt í norska þinginu.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.