Dagur


Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 4

Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 4
4 - M IDVl KIJI) AG U R 3. J A N tí A R 200 1 FRÉTTIR Haþrýstingur á með- göngu styttir ævina Háþrýsti sj ukd ómur á meðgöngutíma eykur lýkur á kransæðasjúk- dómum og háþrýstingi sömu kvenna síðar á ævinni og styttir ævilíkur þeirra um 5-7 ár. Dánartíðni af völdum hjarta- og æða- sjúkdóma fyrir 65 ára aldur reyndist 50% hærri hjá konum sem greindust með háþrýstisjúkdóm á meðgöngutíma heldur en viðmiðunarhópi kvenna sem ekki höfðu háþrýsting, samkvæmt nýj- um rannsóknum á vegum læknadeild- ar Háskóla Islands. Ævilíkur þeirra k\ænna sem fengu háþrýsting á með- göngu reyndust að meðaltali 5-7 árum stvttri en hinna. 1 Ijósi þessara niður- staðna segja læknarnir mikilvægt að konur sem veikjast af háum blóðþrýst- ingi á meðgöngu fái viðeigandi ráðgjöf og eftirlit til að minnka líkur á veikind- um síðar á ævinni. Riím 4% með háþrýsting á meðgöngu Tilgáta um tengsl milli háþrýstisjúk- dóms í meðgöngu og hjarta- og æða- sjúkdóma síðar á ævinni var sett fram og prófuð og síðan staðfest í rannsókn sem Gerður A. Arnadóttir ásamt Reyni Tómasi Geirssyni, Lilju S. Jónsdóttur og Reyni Arngrímssyni læknum á Kvennadeild Landsspítalans, Hjarta- vernd og í erfðalæknisfræði við HI, hafa gert og ætla að greina frá á tíundu ráðstefnunni um rannsóknir lækna- deildar HI í byrjun nýs árs, en ágrip er i fylgiriti Læknablaðsins (40/2000). Rannsóknin náði til þeirra 7.450 kvenna sem ólu börn á Landsspítalan- um á árunum 1931 til 1947. Af þeim reyndust 325 (um 4,4%) hafa háþrýstisjúkdóm á meðgöngu (bþ> 140/90); eftir 20. viku með- göngu). ÖIl tilfellin voru flokkuð eftir alvarleika, þ.e. hvort eingöngu var um háþrýsting að ræða eða að honum fylgdi prótín í þvagi (meðgöngueitrun) Dánartiðni af völdum hjarta- og æðasjúkdóma fyrir 65 ára aldur reyndist 50% hærri hjá konum sem greindust með háþrýstisjúkdóm á meðgöngutíma heldur en viðmiðun- arhópi kvenna. eða fæðingarkrampi. Til samanburðar var valinn hópur um 630 jafngamalla kvenna, senr fæddu næst á undan eða eftir hinum, höfðu engan áðurnefndra kvilla og áttu jafnmörg börn. 40% á llfi Aðeins 40% þeirra kvenna sem fengu háþrýsing á meðgöngu voru á lífi þegar rannsóknin var gerð en 48% kvenna í viðmiðunarhópnum. Dánarorsakir mátti rekja til kransæðasjúkdóms í tæpum helmingi tilfella í háþrýsti- hópnum en aðeins í rúmlega fjórðungi tilfella í viðmiðunarhópnum. Dánar- tíðni vegna heilaæðasjúkdóms var 16% í háþrýstihópnum en 12% í hin- um. I fyrrnefnda hópnum höfðu 40% greinst með háþrýsting síðar á ævinni en aðeins 9% í viðmiðunarhópnum. Og heildardánartíðni fyrir 65 ára aldur var 50% hærri hjá konunum sem fengu háþrýsting á meðgöngu en í viðmiðun- arhópnum, sem fyrr segir. Þegar skoð- að var það hlutfall hópanna sem feng- ið hafði krabbamein kom enginn mark- tækur munur í Ijós milli þeirra. — HEI dÐaftpir „ Allt er þegar þrennt er, “ sagði gainalreyndur pott- verji mæöulega og fullvrli að „þrenna" ríkissjón- varpsins hefði aldrei verið slappari en einmitt núna - og átti þá við ávarp Davrðs Oddssonar á gamlársdag, áramótaskaupið og nýársá- varp forseta íslands. Þessi þrenna var að sjálfsögðu helsta umræðuefnið í pott- inuin í gærmorgun og reyndust margir sammála um að það hafi vantað allt púður í ávörp og gamanefni sjónvarpsins - for- sætisráðherra við sama heygarðshomið og venjulega, hvergi minnst á öiyrkja hjá forsetan- um og skaupið gegnsýrt af mimiimáttakennd sjónvarpsmaima gagnvart Skjá einuin... Davíð Oddsson. ... og talandi um skaupið og Skjá einn. Margir sem horfðu á skaupið skildu livorki upp né nið- ur í því að hverju var verið að gera grín, enda aldrei séð þá dagskrárliði þrióju sjónvarpsstöðv- arinnar sem þar vora til umfjöllunar. Eimi pott- veiji sem er iðinn við skjáinn hélt því liins vegar fram að skopstælingar skaupsins á þáttum nýju stöðvarhmar liefur verið miklu ófyndnari en sjálfarfyrirmyndimar... í pottinum þykir það til marks um liversu diplómatísk orðunefnd er að um áramótin fengu bæði Júhus Hafstein og EII- ert B. Scram fálkaorðu. Þessir tveir menn elduðu sem kuiuiugt er grátt silfur þegar Elert var forseti ÍSÍ en Júlíus forseti Ólympíu- nefndar. Ellert hefur nú tekið báða titlana eftir að þeir voru sameinaðir, en orðunefnd vill greinilega ekki skilja Júhus útundan og heiðrar hann. Að vísu er sagt að það sé fyrir kristniliátíð, en í pottinum telja menn sig vita að störf lians fyrir Ólympíunefniiia liafi verið komin á fálka- orðutímal... FRÉTTAVIÐTALIÐ Ingvar Sverrísson formaður Bláfjallanefndar í 8 ára stefnumótun Blá- fjallanefndar er m.a. lagttil aðsveitarfélögin 13 á svæðinu leggi fram 100-600 milljónir til uppbyggingar ogfram- kvæmda á skíðasvæðunum í Bláfjöllum, Skálafelli og Henglinum. Opnað í Bláfjölhun í dag - Er nýjunga að vænta? „Ástæða þessarar stefnumörkunar var sú að mönnum þótti lítil uppbygging hafa átt sér stað sl. 20 ár og aðsóknin hefur því miður dalað og því tímabært að setja nýjan kraft í þessa starf- semi. Við í Bláfjallanefnd skiluðum svo nýlega af okkur stefnumótunarskýrslu til næstu 8 ára, þar sem tekið er á öllum þeim þáttum sem snúa að þessu svæði. Markmið okkar er að fá þau 13 sveitarfélög sem standa að Bláfjalla- nefnd til að leggja fram 400-600 milljónir í uppbyggingu og nýungar á svæðunum í þessi átta ár. Einnig viljum við að Ieita leiða til að fá atvinnulífið sem frekari samstarfsaðila. Og í þriðja lagi stefnum við að aukinni tekjuöflun með því að fá fleira fólk á svæðin - en þar er veðrið okkar erfiðasti keppinautur." - Hvenær hefjist þið lianda? „Við byrjuðum að vinna eftir skýrslunni strax í haust með breytingum á rekstrarfyrirkomu- lagi. Nefndin hefur þegar skipað sér rekstrar- stjórn, sem hefur ráðið sér framkvæmdastjóra fyrir skíðasvæðin, Loga Sigurfinnsson, til þess að fylgja eftir þessari stefnumótun okkar, varð- andi ýmsa þætti í uppbyggingu, þjónustu og fleira í þeim dúr.“ - Hvaða hreytinga er að vænta t' vetur? „Við ætlum okkur að bæta jyjónustuna mjög verulega, sérstaklega við fjölskyklufólk og |)á einkum í Bláfjöllum og Skálafelli. Við ætlum að koma upp svokölluðum „barnagörðum", Jiannig að foreldrarnir geti nýtt daginn betur í skíðalyftunum. Við ætlum að bæta merkingar og aðra þjónustu við gönguskíðafólk og búa til nýjar leiðir. Við ætlum okkur efla verulega |)jónustuna við brettafólkið, sem er mjög vax- andi hópur. Núna erum við ganga frá samning- um um kaup á tæki til að búa til svokallaða „brettagarða" fyrir brettaáhugafólk, sem margt hefur gaman af að takast á við erfiðar þrautir. Við stefnum líka að því að breyta Bláfjallaskál- anum í vetur.“ - Eitthvað hostar þetta væntanlega? „Sveitarfélögin hafa samþykkt 120 milljónir í rekstur og framkvæmdir í vetur, í stað 70 rnillj- óna undanfarna vetur. Þannig að við sjáum fram á bjartari tfð, og viljum sanna okkur strax í vetur." - Ogfrekari framtíðarplön? „Við leggjum m.a. til að þetta verði gert að heilsárs útivistarsvæðum og þau verði þannig betur nýtt en veríð hefur. T.d. í tengslum við gönguleiðir, sérstaldega í Bláfjöllum og Hengli, og að skálarnir verði jafnvel opnir um helgar. Jafnframt viljum við reyna að auka þarna gróð- ur - höfum reyndar rætt við samtökin um „Gróður í landnámi Ingólfs" - til að gera svæð- in meira aðlaðandi yfir sumartímann, auk Jtess sem snjór tollir betur á grónu landi." - Er snjóleysi ekki eitt helsta vaitdatnálið? „I fyrra var vandamálið ekki snjóleysi heldur hvað veðrið var alltaf vont. Það viðraði illa. Það koma því miður alltaf vetur sem lítið er hægt að hafa opið vegna veðurs. Góðir vetur eru þó fleiri en hinir og þess vegna teljum við okkur geta náð meiri árangri og fjölgað aftur fólki á svæðunum. Við opnum væntanlega í Bláfjöll- um fyrir skíðaæfingar á morgun (í dag). Og í Henglinum höfum við verið að búa til snjó og sprauta þar í barnabrekkurnar hjá Víkingsskál- anum þar sem líka er verið að opna fyrir æfing- ar.“ - Er ekki dýrt að húa iil snjó? „Jú, það getur verið það ef leiða þarf vatn á svæðið, því það þarf ótrúlega mikið magn af vatni til að geta gert þetta. Við höfum verið með græjurnar að láni, en Iítið notað þær því miður.“ - HEI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.