Dagur - 03.01.2001, Qupperneq 17
MIDVIKUDAGV R 3. JANÚAR 2 00 1 - 17
n
'íisýir.
ERLENDARFRETTIR
Mótmæli við Sellafieldstöðina.
uin framtíð
S ellíifi elds t ö ð varmn ar frestað
Áu kjamorkustöðva
veröur ekki hægt aö
standa við að minnka
kolsýringsmengim, en
urgangurinn hleðst
upp og veldur vaxandi
áhyggjum
Ágreiningur innan bresku ríkis-
stjórnarinnar um hvort plutoni-
um úr kjarnorkuverum á að
(lokkast sem hættulegt efni eða
birgðir til áframhaldandi fram-
leiðslu kjarnorku eða hættulegur
úrgangur veldur því að ákvarð-
anatöku er frestað aftur og aftur
um hvað gera á við efnið. Ráð-
gjafar Tony Blairs forsætisráð-
herra benda á að málið sé eld-
fimt og geti auðveldlega kostað
mikinn fjölda atkvæða og því sé
ráðlegast að taka engar ákvarð-
anir um hvað gera eigi fyrr en
eftir næstu þingkosningar.
Umhverfisráðherrann Mich-
ael Meacher hefur ítrekað gert
tilraunir til að mótuð verði
ákveðin stefna í málinu því að
það sé ekkert annað cn óábyrgur
undansláttur að draga það á
langinn, eins og gert hefur verið.
En síðustu tillögum hans í mál-
inu hefur verið hafnað sam-
kvæmt fyrirmælum frá forsætis-
ráðherra.
lðnaðar- og verslunarráðu-
Umhverfissinnar og ríkisstjórnir
vara við áframhaldandi rekstri
Sellafieldversins.
neytið vinnur að því að einka-
væða kjarnorkuverin og er reikn-
að með að smíðuð verði ný kyn-
slóð aflstöðva í stað þeirra gömlu
sem farnar eru að ganga úr sér
og úrgangurinn úr þeim safnast
upp. En hvað gera á við allan úr-
ganginn er sífellt ágreiningsefni
sem taka verður ákvörðun um.
Ljóst þykir að án kjarnorku-
vera er ekki hægt að standa við
að draga úr losun efna út í and-
rúmsloftið sem auka gróður-
húsaáhrifin. Bretar eru eins og
aðrar þjóðir í miklum vandræð-
um með hvernig á að koma í veg
fyrir umhverfismengun án þess
að draga úr orkuframleiðslu.
Ekki iná dragast nema í nokkur
ár að taka afdrifaríkar ákvarðan-
ir unt hvaða leið í orkumálum á
að fara.
Stjórn Verkamannaflokksins
erfði vandamálið um hvað gera á
við kjarnorkuúrganginn úr orku-
verunum frá íhaldsstjórninni.
Rétt fyrir kosningarnar 1997
ákvað þáverandi umhverfisráð-
herra að ekkert yrði úr ráðagerð-
um um að stækka Sellafieldstöð-
ina og grafa hana að miklu leyti
í jörð niður.
Lengi hefur dregist að taka
endanlega ákvörðun um hvað
gera á við 50 ára uppsöfnun
kjarnorkuúrgangs sem geymdur
er í steinsteyptum gröfum. Ekki
er einu sinni hægt að ákvarða
hvort plutonium er dýrmætt hrá-
efni eða stórhættulegur úrgang-
ur. Til eru áætlanir um að stæk-
ka Sellafieldverið og bæta við
tveim kjarnaofnum og nota þar
sem eídsneyti 120 tonn af
plutonium sem salnast hefur
upp. En umhverfissinnar mót-
mæla þcim ráðagerðum harðlega
og ríkisstjórnir nálægra landa
vara Breta sterklega við að stof-
na lífríkinu í þá hættu sem skap-
ast getur af stækkun Sellafield-
versins.
En ljóst er að atómstöðin f
Sellafield á sér takmarkaða
framtíð, enda er komið í ljós að
hún er ekki eins örugg og stjórn-
endur hennar létu í veðri vaka og
ekki er lengur talað um að einka-
væða stöðina, enda mun fáa fýsa
að kaupa hana og reka eins og
málum er nú háttað.
HEIMURINN
Skip sigla beint miUi Kína og
XIAMEN - Fyrstu skipin frá Taiwan f meira -
en 50 ár lögðist með löglgum ætti að bryg-
gju í Kína nú í ársbyrjun. Bátarnir komu að
bryggju í Fujianhéraði sem er í suðaustur
Kína. Hér er um að ræða tvo farþegabáta
sem komu beint frá borgunum Quemoy og
Matsu í Taiwan og eru ferðir þeirra taldar
marka merkileg tímamót í samskiptum
þessara ríkja, og sýna mikla stefnubreytingu
hjá stjórnvöldum í Beijing hvað varðar versl-
un og ferðir á rnilli þessara gömlu fjand-
manna - Kína og Taiwan. Ferðir þessara
skipa marka upphaf sjótengingar milli ríkj
Taiwan
Fyrsta löglega koma
skips frá Taiwan til Kína í
meira en 50 ár.
anna þar sem sundið er styst á milli eyjarinnar og meginlandsins og
er vonast til að með þessari tengingu muni draga verulega úr spenn-
unni sem ríkt hefur milli stjórnvalda í ríkjunum.
Tilbúnir í stríð
JERUSALEM - Ehud Barak forsætisráðherra ísraels
sagðist f gær hafa fyrirskipað yfirmönnum í hernum -
strax og uppreisn Palestínumanna hófst fyrir þrcmur
mánuðum - að vera við því búnir að til þess gæti kom-
ið að úr þessu yrði fullgilt staðbundið stríð. Barak var
þarna að bregðast við fregnum sem spurst höfðu út
að hann hafi á nýársdag kallað saman herráðið og
sagt því að undirbúa herinn undir fullgilt svæðis-
bundið strfð. „Eg fyrirskipaði herráðinu fyrir þremur
mánuðum að undirbúa sig undir það að hugsanlega
Ehud Barak.
gæti ástandið versnað svo mikið að það snerist uppí fullgilt stríð á
svæðinu. Það er þó ekki þar með sagt að við séum að gera okkur von-
ir um að það verði og við viljum ekki að það verði. Við munum meira
að segja gera hvað við getum til að koma í veg fyrir að það gerist.
Hins vegar verðum við að búa okkur undir að það geti gerst og slíkt
stríð verðum við að vinna,“ sagði Barak. Hann sagði áhyggjurnar
stafa af ofbeldinu sem gosið hafi upp meðal Palestínumanna, og að
þeir einir væru ábyrgir (yrir því hvernig komið væri.
Harinleikiir á skemmtistaö
VOLENDAM, Hollandi - Nú er (jóst að 13 ára gömul stúlka hefur
látist af völdum sára sem hún fékk í bruna á skemmtistað á nýársnótt
á dansleik á hollensku kaffihúsi í hafnarbænum Voledam. Skemmti-
staðurinn var á þriðju hæð í hefðbundnu hollensku timburhúsi. Yfir
180 manns voru á skemmtistaðnum þegar eldurinn kom upp en talið
er að allir neyðarútgangar á skemmtistaðnum hafi verið Iæstír. Ótt-
ast var f gær að tala Iátinna ætti enn eftir að hækka því rnargir hinna
slösuðu eru í mikilli lífshættu. Stúlkan sem lést nú síðast var sú
yngsta í hópi hinna níu látnu sem flest voru rétt undir eða um tví-
tugt, þar af eru sjö piltar og tvær stúlkur.
Segja Breta ekki standa sig
LONDON - Irski lýðveldísherinn sakar bresk stjórnvöld í nýársyfir-
lýsingu sinni um að standa ekki í stykkinu við að Ieysa Iykilvandamál
varðandi ástandið á Norður-Irlandi og framgang friðarferlisins þar.
Hins vegar sagði ÍRA að samtökin væru enn ákveðin í að ganga í að
leysa vandamálin með afvopnun skæruliðasveita, svo framarlega sem
Bretar sýndu að þeir ætluðu líka að gera eitthvað í sínum málum.
Það sem einkum veldur IILA áhvggjum er að ekkert verði af endur-
hótum í lögreglunni, en kaþólikkar segja Iögregiuna á N-írlandi veru-
lega fjandsamlega sér. Á móti segja Bretar og sambandssinnar að af-
vopnun IRA standi frekari framgangi friðarferlisins fyrir þrifum.
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR
3. dagur ársins. 362 dagar eftir.
Sólris kl. 11:17, sólarlag kl. 15:47.
Þau fæddust 3. janúar
• 1892 Tolkien, J.R.R. - breski skáld-
sagnahöfundurinn
• 1898 Pálmi Hannesson, rektor
• 1911 Einar Arnalds, hæstaréttardómari.
• 1923, Jaroslav Hasek, tékkneski rithöf-
undurinn
• 1926 George Martin, upptökustjórn-
andi hjá Bítlunum með meiru
• 1945, Stephen Stills, tónlistarmaður
1949 Kristín Á. Olafsdóttir, kennari og
fv. borgarfulltr.
• 1956, Mel Gibson, kvikmyndaleikari
Þetta gerðist 3. jauúar
• 1 597. Heklugos hófst. Lengi voru uppi
rnargir eldar samtímis. Drunur heyrðust
í sveitum norðan fjalla í tólf dægur.
• 1967 Jack Ruby næturklúbbseigandi
dó á spítala að því er sagt var af eðlileg-
um ástæðum. Ruby var maðurinn sem
ruddist inn á lögreglustöð þann 24 nóv-
ember, tveimur dögum eftir morðið á
John F. Kennedy, og skaut til bana Lee
Harvey Oswald, manninn sem tekinn
hafði verið fastur fyrir morðið á Kenn-
edy.
• 1990. íslandsbanki hf. hóf starfsemi.
Bankinn varð til með sameiningu Út-
vegsbankans, Verslunarbankans, Iðnað-
arbankans og Alþýðubankans.
Afmælisbam dagsins
Skáldið og fyrrverandi ritstjóri Morgun-
blaðsins, Matthías Johannessen, er af-
mælisbarn dagsins. Hann er fæddur í
Reykjavík á þessum degi 1930. Það var
1951 sem hóf Matthías störf á Morgun-
blaðinu og starfaði þar allt fram til sl.
áramóta, þar af sem ritstjóri frá 1959.
Matthías er tvímælalaust einn af áhrifa-
mestu fjölmiðlamönnum íslendinga á
öldinni, auk þess sem hann hefur verið
afkastamikill sem rithöfundur og Ijóð-
skáld.
Vísa dagsins
Þola urðum skin og skúr,
skihiingsþurrð og trega.
Þó hefitr snurðum okkar itr,
undist furðanlega.
(Guðrún Arnadóttir, frá Oddsstöðum í
Lundareykjadal, til manns síns.)
HeHabrot
Hvað er svo verðmætt að jafnvel ríkustu
menn í heiminum fá ekki keypt það og
samt leyfum við okkur að fara illa með það
dags daglega?
Svar við síðustu heilabrotum:
Skugginn
Vefur dagsins
Þjóðhagsstofnun er með vefsetur, þar sem
finna má mikið magn upplýsinga um hel-
stu stærðir á hinum ýmsu sviðum þjóðar-
búskapsins. Þær eru auðtitað síbreytileg-
ar, eins og efnahagsumhverfið sjálft, eu
slóðin að þessu vefsetri er www.ths.is