Dagur - 27.01.2001, Síða 11
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 - 35
ERLENDAR FRÉTTIR
F ólksfækkim
ógnar Rússlandi
Eftir fall Sovétríkj-
aiina hefur Rússum
fækkað uin 3,3 millj-
ónir, bamsfæðingum
fækkar og meðalaldur
lækkar.
Þjóðfernissinninn Zirinovsky bar
upp tillögu í rússncska þinginu
um hvernig fjölga mætti þjóð-
inni á ný, en fólksfækkunin er
orðin eitt helsta vandamál
Rússa. Þingmaðurinn og flokks-
foringinn stakk upp á því að hver
karlmaður mætti eiga allt að
fimm eiginkonur og taldi líklegt
að með lagabreytingu í þessa átt
mundi Rússum fara að fjölga.
Tillagan var felld.
Fólksfækkunin er ekkert grín
og Zirinovsky var ekki að gera að
gamni sínu þegar hann stakk
upp á hvernig vænlegt væri að
gera sem flestum konum börn.
En fækkun Rússa á næsta áratug
mun valda miklum efnahagsleg-
um vandamálum og hafa vond
áhrif á efnahagsþróun og styrk
atvinnuh'fsins.
Síðan Sovétrfkin hrundu hafa
fleiri Rússar dáið árlega en síðan
í heimstyrjöldinni. Fækkunin
nemur 3.3 milljónum og er
fólksfjöldinn nú 145 milljónir
manns. Mannfjöldaspár gera ráð
fyrir að á næstu 11 árum muni
1 5 milljónir Rússa deyja umfram
þá sem fæðast. A tímabilinu gæti
þeim jafnvel fækkað um 22
milljónir. A fyrstu 10 mánuðum
síðasta árs fækkaði þjóðinni um
550,600 manns, sem lætur
nærri að vera íbúafjöldi helstu
borga í fylkjum ríkisins.
Ekki þarf að hafa miklar
áhyggjur af eftirlaunagreiðslum
þar sem flestir deyja áður en eft-
irlaunaaldri er náð. Meðalaldur
er kominn niður í 66 ár en séu
karlar eingöngu taldir ná þeir að-
eins 60 ára aldri, sem er 15
árum skemmri aldur en karlar í
Vestur-Evrópu ná.
Heilsugælsu hrakar mjög og
fyrirbyggandi aðgerðir til varnar
sjúkdómum sömuleiðis. Heil-
hrigðiskerfið er ekki í stakk búið
til að mæta nýja berklafaraldrin-
um og eyðni breiðist út.
Streita er talin vera einn höf-
uðorsakavaldur versnandi
heilsufars. Efnahagsvandi og
áhyggjur um framtíðina auka
vodkadrykkju og reykingar.
Vodka og sígarettur eru mjög
ódýr fíkniefni og auðfengin. Björ
er mun ódýrari en mjólk. Það er
ein af ástæðunum til að félítið
fólk getur legið í drykkjuskap og
reykt sig í hel fyrir lítið.
Lungnakrabhi og alkóhóleitr-
un eru að verða með algengustu
dauðaorsökum og jukust dauðs-
föll af þessum orsökum um 43%
á einu ári. Slys og ofbeldi er
þriðji mesti orsakavaldur ótíma-
bærs dauða karlmanna.
Karlar á vinnualdri eru fjórum
sinnum líldegri til að deyja en
konur á sama aldursskeiði.
Rannóknir sýna að af hverjum
100 þúsund körlum fremja 86
sjálfsmorð á ári, 44 deyja af alkó-
hóleitrun og 55 eru myrtir.
Konur eignast nú 1,17 barn að
meðaltali á móti 1,89 árið 1990.
Þungun og dauði við fæðingu er
tfu sinnum hættulegri í Rúss-
landi en í Þýskalandi. Konur
forðast barneignir af ýmsum or-
sökum og á það ekki síst sinn
þátt í hve fólksfækkun er ör.
Reiknað er með að á móti hverju
barni sem fæðist séu tvær fóst-
ureyðingar.
Rússar voru fjölmennir í
mörgum Sovétlýðveldanna. 3
milljónir þeirra hafa snúið til
móðurlandsins og 2 milljónir til
viðbótar eru væntanlegar. Þetta
vegur aðeins upp á móti fólks-
fækkuninni, en breytir ekki þró-
uninni.
Reynt er að fá fólk til að setj-
ast að í bæjum Síberíu og víðar
þar sem hægt er að virkja nátt-
úruauðlindir. En það gengur illa
í lýðveldinu. Veðurlag og ein-
angrun er ekki fýsilegur kostur
fyrir fólk sem vill ráða sér sjálft.
Atvinnuleysi og íbúðaskortur
borganna dregur ekki úr fólks-
flutningi í þær.
Ef efnahagsástand batnar ekki
og almenn velmegun er hvergi í
sjónmáli mun Rússum halda
áfram að fækka og fyrrum risa-
veldið verða hnignun að bráð,
ógn sem enginn sér hvern enda
tekur.
Risajarðskjálfti í Lndlandi
AHMEDABAD, Ind-
landi - Oflugur jarð-
skjálfti skók vestur-
hluta Indlands í gær
og skildi eftir sig
dauða og eyðilegg-
ingu. Að minnsta kosti
1.500 manns létust að
því er fram kom síð-
degis í gær og óttast
var að tala látinna ætti
eftir að hækka veru-
lega. Byggingar í borg-
inni Ahmedabad, höf-
uðborg hins rykuga
Gujarat héraðs á Ind-
landi, hrundu eins og spilaborgir, með þeim afleiðingum að fjöldi
manns lést og heilu fjölskyldurnar sem voru að fagna því að almenn-
ur frídagur var í landinu urðu undir rústunum.
Skjálftinn mældist 7,9 stig á Richterkvarða að sögn bandarísku
Jarðfræðistofnunarinnar og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Indlands var hann sá stærsti sem mælst hefur á þessu landsvæði f um
það bil hálfa öld. Skjálftinn hafði mest áhrif í Ahmcdabad og al-
mennt í Gujarat, en ábrifa hans gætti líka verulega í strandhéruðum
í kring og skjálftahrinur gerðu vart við sig um allt landið. Skjálftinn
olli líka skemmdum í Pakistan, nágrannalandi Indlands, og létust að
minnsta kosti fjórir þar af hans völdum.
Björgunarmenn að störfum í Ahmedabad eftir
skjálftann mikla.
A brattann hjá Barák
TABA, Egyptalandi - Ehud Barak, forsæt-
isráðherra Israels mátti horfast í augu við
enn eitt áfallið í baráttu sinni í forsætis-
ráðherrakosningum þegar niðurstöður úr
skoðanakönnunum hirtust í gær. Og til
að bæta gráu ofan á svart fyrir hann lýsti
Simon Peres því yfir að hann teldi sára-
litlar líkur á því að hægt væri að ná
nokkru friðarsamkomulagi við Palestínu-
menn áður en kosningarnar verða haldn-
ar þann 6. febrúar næstkomandi.
Skoðanakannanir sýna allar sem ein að
stríðshaukurinn Ariel Sharon njóti mun
meiri stuðnings en Barak. Minnsti mun-
urinn er 16% á þeim félögum og sá mesti 18%.
Ehud Barak.
Nýr forseti í Kongó
KINSHASA - Joseph Kabila var í gær
settur inn í embætti forseta í Afríkulýð-
veldinu Kongó. Þetta gerðist í stuttri at-
höfn og er Joseph þar með tekinn við af
föður sínum Laurent Kabila sem ráðinn
var af dögum af samstarfsmanni sínum á
dögunum. Hinn nýi forseti cr 31 árs gam-
all og sór hann forsetaeiðinn í þjóðarhöll-
inni í Kinshasa og lofaði að varðveita
sjálfstæði landsins og landamæri. í gær-
kvöldi ávarpaði hinn ungi forseti síðan
þjóð sína, en það var í fyrsta sinn sem
hann gerði það eftir að faðir hans dó.
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
LAUGARDAGUR 27.JANÚAR
27. dctgur úrsins, 338 dagar eftir.
Sólris kl. 10.22, sólarlag kl. 17.00.
Þau fæddust 27. jan.
• 1832 Lewis Carroll, enskur rilhöfundur,
ljósmyndari og rökfræðingur sem m.a.
skrifaði sögurnar um Lísu í Undralandi.
• 1859 Willhjálmur II. keisari Þýskalands
og konungur Prússlands frá 1888 til
loka fyrri heimsstyrjaldarinnar.
• 1885 Jerome Kern, bandarískur söng-
leikjahöfundur.
• 1892 Soong Ch’ing-iing, áhrifakona í
kínverskum stjórnmálum og eiginkona
byltingarleiðtogans Sun Yat-sen.
• 1903 John Carew Eccles, ástralskur líf-
eðlisfræðingur sem gerði tímamótarann-
sóknir á starfsemi taugafrumna.
•1918 Elmore James, bandarískur blús-
söngvari og gítarleikari.
• 1920 Sigurður Sigurðsson íþróttafrétta-
maður.
• 1968 Jón Asgeir Jóhannsson forstjóri.
Þetta gerðist 27. jan.
•1891 var Verslunarmannafélag Reykja-
víkur stofnað.
• 1907 var Kvenréttindafélag Reykjavíkur
stofnað.
• 1926 sýndi skoski uppfinningamaður-
inn John Logie Baird nýjustu uppfinn-
ingu sína, sjónvarpið.
• 1945 kom sovéski herinn frelsandi
hendi inn í útrýmingarbúðirnar í
Auschwitz.
• 1973 undirrituðu fulltrúar Bandaríkj-
anna, Norður-Víetnams, Suður-Ví-
etnams og Víetcong-skæruliðanna frið-
arsamning.
Vísa dagsins
llver vill binda huga manns,
aö hvergi megi þönkum fleýtii?
Þar sem yndi éirir hans,
ætír) mun hann þangaö leita.
Sigurður Breiðfjörð
Afmælisbam dagsins
I dag eru liðin 245 ár frá fæðingu aust-
urísks tónskálds sem hlaut nafnið Jo-
hann Chrysostom Wolfgang Amadeus
Mozart. Hann fæddist árið 1756 í Salz-
burg, en tæpum 35 árum síðar, þann 5.
desember árið 1791, lést bann í Vínar-
borg og hafði þá samið drjúgan hluta af
þeim tónverkum mannsandans senr
hvað lífseigust hafa orðið. Strax á
barnsaldri var hann farinn að sémja
tónlist og faðir hans dró hann í tón-
leikaferðir vítt og breitt um Evrópu.
Lastaðu ei laxinn sem leitar móti straumi
sterklega og stiklar fossa.
Bjarni Thorarensen
Heilabrot
Klukkan heima hjá Guðmundi slær einu
sinni klukkan eitt, tx isvar klukkan tvö, þris-
var klukkan þrjú, og svo framvegis. A hálfa
tímanum slær hún einu sinni. Dag
nokkurn kom Cuðmundur- heim til sín og
heyrði þá klukkuna slá eitt högg. Hálftíma
síðar sló hún einu sinni. Hálftíma eftir það
sló hún aftur einu sinni. Og þegar hálftími
var enn liðinn í viðbót sló hún líka einu
sinni. Nú er spurt: Flvað var klukkan þegar
Guðmundur kom heim til sín?
Lausn á síðustu gátu: Skuggi manns.
Veíur dagsins
Vantar ykkur oetri reiknivél heldur en
gamla góða Calculator sem fyjgir með
Windows? Þá má nálgast eina almennilega
ókeypis með ótal fítusum á vefsíðu dags-
instvvww. wavemotion.bizland.com/excalib-
ur.htm