Dagur - 01.02.2001, Blaðsíða 2
2 -FIMMTUDAGUR 1 . FEBRÚAR 2001
Uagmr
FRÉTTIR
Kæra skólastjórans
reyndist tilhæfulaus
Skólastjórinn sendi vidkomandi barnaverndarnefnd ítarlega kæru i 13 l/ðum er
lutu að vanrækslu foreldra barnanna og illa meðferð þeirra á þeim, en þegar
Barnaverndarnefndin rannsakaði málið kom íljós að ekkert kæruatriðanna var á
rökum reist. (Myndin er sviðsettj
Skólastjóri í A-Land-
eyjiun kærði van-
rækslu og illa með-
ferð á 3 bömum til
bamaveriídamefndar
- sem komst að því að
ekkert kæmatriðanna
ætti við rök að styðj-
ast. Foreldramir bíða
eftir skýringum.
Skólanefnd grunnskóla Austur-
Landeyja að Gunnarshólma hef-
ur nú til umfjöllunar allsérstætt
mál er varðar skólastjórann þar,
Efemíu Gísladóttur og þrjá nem-
endur, systkini frá býli í sveit-
inni, 7, 10 og 12 ára. Skólastjór-
inn sendi viðkomandi barna-
verndarnefnd ítarlega kæru í 1 3
liðum er lutu að vanrækslu for-
eldra barnanna og illa meðferð
þeirra á þeim, en þegar Barna-
verndarnefndin rannsakaði mál-
ið kom í ljós að ekkert kæruatrið-
anna var á rökum reist.
Kæruatriði Efemíu Gísladótt-
ur skólastjóra lutu að aðbúnaði,
mataræði, klæðnaði, heilsu-
gæslu og fleiru sem börnin áttu
samkvæmt kærunni að þola. I
kjölfarið fól barnaverndarnefnd-
in fulltrúa að rannsaka málið og
kom sá fulltrúi nokkrum sinnum
á heimilið og tók skýrslur af bæði
foreldrunum og börnunum. Ekk-
ert athugavert kom fram í jressari
úttekt. Ekki einasta reyndist
kæran rakalaus, heldur heimilið
talið til fyrirmyndar samkvæmt
orðum heimilisföðurins.
Engtn kvörtun - engin
skýring
„Við skiljum þetta ekki og höfum
engar skýringar fengið á kærunni.
Við höfum þó kallað eftir skýring-
um og munum gera jjað áfram,"
segir heimilisfaðirinn.
Engin afsökunarbeiðni hafði
komið frá skólastjóranum. Vegna
málsins höfðu börnin verið tekin
úr skólanum og sérkennari feng-
inn til að kenna þeim. Nú hefur
náðst samkomulag við skólanefnd
um að börnin komi aftur í skól-
ann - gegn því skilyrði að Efemía
skólastjóri komi hvergi nærri um-
sjá þeirra. Auk hennar eru í
skólanum 3 kennarar og liðlega
30 börn. Skólastjórinn hafði áður
kennt þeim, en með samkomu-
laginu var tekið fý'rir það. „Skóla-
stjórinn hafði aldrei kvartað vfir
einu eða neinu og kæran kom því
eins og þruma úr heiðskíru lofti,"
segir heimilisfaðirinn.
Vilja ekkert segja
Efemía Gísladóttir, skólastjóri,
kannaðist í samtali við Dag hvor-
ki við að hafa sent kæru, né
kannaðist hún við erindi í 13 lið-
um. „Eg vil ekki tjá mig um það
mál sem þú spyrð um,“ segir
Efemía. Guðlaug Björk Guð-
laugsdóttir, formaður skóla-
nefndar, vill heldur „ekkert um
þetta mál segja við fjölmiðla."
Heimilisfaðirinn segir að fjöl-
skyldan hafi enn ekki tekiö
ákvörðun um viðbrögð sín í
framhaldinu. „Í sjálfu sér er
jjetta ekkert annað en gróf árás á
mannorð okkar. Við köllum eftir
skýringum og sjáum svo til,“ seg-
ir heimilisfaðirinn. - I þg
Námslániit
of lág
Stúdentaráð
fagnar áliti
umboðsmanns
Alþingis þar
sem fallist var
á málflutning
Réttindaskrif-
stofu stúdenta
um að úr-
skurður mál-
skotsnefndar
LÍN um for-
sendur grunn-
framfærslunnar hafi verið ófull-
nægjandi.
„Námslánin í dag eru of Iág og
LÍN fullnægir ekki þeirri laga-
skyldu sinni að byggja upphæð
þeirra á raunverulegri fram-
færsluþörf námsmanna. Þótt
skref í rétta átt hafi verið tekið
síðastliðið vor, með nýjum fram-
færslugrunni, er ennjoá langt í
land með að námslánin dugi til
fullrar framfærslu. Senn líður
að vinnu við endurskoðun út-
hlutunarreglna LÍN og Stúd-
entaráð leggur Jjunga áherslu á
að í þeirri vinnu verði fram-
færslugrunnur LIN leiðréttur
þannig að hann endurspegli
framfærsluþörf námsmanna og
try'ggi þannig jafnrétti til náms,“
segir í ályktun Stúdentaráðs.
A fundi ráðsins voru einnig
samþykktar breytingar sem fela í
sér að opnuð var heimild fyrir tvo
kjördaga við kosningar til Stúd-
entaráðs. Megintilgangurinner
að stuðla að aukinni kjörsókn í
Stúdentaráðskosningum. - BÞ
Eiríkur Jónsson,
formaður
Stúdentaráðs.
Vonar að Válgerður
skilji núnabetur
Sýknudómur Akureyr-
arbæjar í síðara máli
Ragnhildar Vigfúsdótt-
ur sýnir að bærinn
brást rétt við kröfum,
að mati bæjarins.
Ýmsir túlkuðu hæsta-
réttardóminn ranglega
að mati bæjarstjóra.
Sýknudómur Akureyrarbæjar í
síðara máli Ragnhildar Vigfús-
dóttur, fvrrum jafnréttisfulltrúa
hjá bænum, hefur vakið athygli.
Bæjarstjórinn á Akureyri hefur
legið undirámæli frá jafnréttisyf-
irvöldum fyrir þær sakir að hafa
keyrt mál fý’rir dómstóla í stað
þess að semja. Ingibjörg Eyfells,
fyrrum deildarstjóri leikskóla-
deildar, er búin að höfða nýtt mál
á hendur bænum vegna meints
launamisréttis og einnig er talið
að eitt til tvö dómsmál til viðbót-
ar kunni að skjóta upp kollinum
í kjölfar Hæstaréttardómsins í
fyrra máli Ragnhildar sem bær-
inn tapaði.
Þegar mál Ingibjargar Eyfells
var tekið fyrir í héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir sköm-
mu fylgdist Valgerður Bjarna-
dóttir, framkvæmdastýra Jafn-
réttisstofu, með málsmeðferð-
inni. Hún bar einnig vitni og hún
hefur sjálf íhugað að höfða mál á
hendur bænum frá þeim tíma
sem hún gegndi deildarstjóra-
stöðu hjá bænum. Valgerður var
haröorð vegna viðhorfs bæjarins
í máli Ingibjargar Eyfells og sagði
eftirfarandi í Degi:
Fælmgaráhrif
„Það er með ólíkindum að Akur-
eyrarbær skuli láta svona mál
fara í hart fyrir dómstólum í stað
þess að greiða þann launamis-
mun sem konur í æðstu embætt-
isstörfum bæjarins hafa goldið
fyrir. Það er l)úið að leggja út í
mikla vinnu og kostnað með
þessu fordæmisgefandi máli
Ragnhildar og bærinn tapaði því
fyrir Hæstarétti. Eina skýringin
sem ég hef á þessum þvergirð-
ingshætti bæjarins er að hann
vilji letja konur til að fara í dóms-
mál. Það þarf þor til að höfða op-
inbert mál og standa í þeirri bar-
áttu sem lylgir málaferlum."
Sýnir að við gerðum rétt
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, sagði í samtali
við Dag í gær að sigur Akureyrar-
bæjar í síðara Ragnhildarmálinu
sýndi að það væri ekki alltaf rétt
að semja. Vegna orða Valgerðar
segir bæjarstjórinn: „Eg vona það
heitt og innilega að forstöðukona
Jafnréttisstofu skilji það betur
núna hvers vegna bæjarstjórn Ak-
ureyrar taldi sér skylt að viðhafa
þetta vinnulag sem hún ásamt
fleirum helur gagnrýnt svo harð-
lega.“
Kristján Þór segir sýknudóm-
inn í fyrradag sýna með afdráttar-
lausum hætti að rétt hafi verið að
fara með það mál fyrir dóm.
Skilningur þeirra scm gagnrýnt
hafi bæinn fyrir að reka þetta mál
fyrir dómstólum hafi einfaldlega
verið rangur á dómi Hæstaréttar.
Ekki náðist í Valgerði Bjarna-
dóttur í gær en Ragnhildur Vig-
fúsdóttir sagðisl eiga eftir að lesa
dóminn. Ragnhildur hugðist ein-
nig ráðfæra sig við lögmann sinn,
Láru V. Júlíusdóttur, áður en hún
mvndi bregðast opinberlega við
dóminum. - BÞ
Baugsskóliim formlega opnaður
Baugskólinn var
formlega opnaður
í gær í húsakynn-
um Baugs f
Skútuvogi. Það
var Jón Asgeir Jó-
hannesson sem
ávarpaði gesti og
síðan flutti Björn
Bjarnason ræðu
og opnaði skól-
ann formlega.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Baugi hefur öllug
fræðsla og þjálfun
starfsmanna verið
eitt af stefnumið-
um fyrirtækisins
allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1998. Ljóst þótti að til að stuðla að
framsæknum rekstri lýrirtækisins jryrfti félagið að byggja upp
fræðslustefnu til að tryggja hag starfsmanna og fyrirtækja Baugs hf.
Haustið 1998 var fræðslustarfi hrundið af stað og ári síðar voru lögð
drög að stofnun Baugsskóians. í kjölfarið hófst undirbúningur að
námsskrá Baugsskólans ásamt Ieit að heppilegu kennsluhúsnæði,
sem nú er lokið.
Fimmti hver med gleningsskemmd
Tannverndardagur verður á morgun, föstudaginn 2. febrúar. Þetta er
í 18. skipti sem minnt er á verndun tanna með sérstökum degi og er
þema dagsins: Glerungseyðing á yfirborði tanna. Samkvæmt nýleg-
um rannsóknum er talið að fimmti liver unglingur á Islandi sé með
glerungseyðingu á byrjunarstigi. Orsökin er m.a. talin vera óhófleg
neysla súrra ávaxta- og gosdrykkja sem sífellt er verið að súpa á yfir
daginn.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu Tannverndar-
ráðs og er slóðin www.tannlicilsa.is A síðunni er aðgengilegt
fræðsluefni um tannhcilsu og tannvernd fyrir fagfólk og almenning.
Áhersla er lögð á fræðslu fyrir afmarkaða hópa, t.d. foreldra, börn,
unglinga, aldraða og sjúka. Reynt er að sníða fræðsluefni eftir þörf-
um hvers hóps. Einnig- er á síðunni hægt að nálgast og panta
fræðsluefni sem gefið er út af Tannverndarráði. - bþ