Dagur - 01.02.2001, Page 14

Dagur - 01.02.2001, Page 14
14- FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 „ Sumt eru dæmigerð keppnislög“ / Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks fyrir nokkum árum. Ari Jónsson og Helga Möller syngja sigurlag keppninnar, sem þá var eftir Geirmund Valtýsson. Dægurlagakeppni Kvenfé- lags Sauðárkróks. Keppnin í vor, skilafresturlaga til 9. febrúar. Áhugi meðal laga- smiða, að takaþátt í sífellt glæsilegri keppni. „Við viljum gjarnan að lögin sem send verða í keppnina í ár verði ekki færri en í fyrra, en þá bárustu okkur alls 66 lög,“ segir Þóra Pórhallsdóttir, framkvæmda- stjóri Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks 2001, en undirbúningur hennar er nú haflnn. Pegar hefur verið auglýst eftir lögum í keppnina en henni mun Ijúka með úrslitakvöldi í Sæluviku Skagflrðinga föstudaginn 4. maí í vor. Skilafrestur til 9. febrúar Dægurlagakeppnin á Sauðárkróki hefur löngum verið vinsæl meðal laga- og textahöfunda landsins, sem öllum er heimil þátttaka. Pó eru aðeins tekin í keppnina lög sem ekki hafa verið flutt opinberlega né gefin út áður. Verkin skulu vera á kasettum eða diskum og textar á íslensku. Pátttakendur skila verkum sínum inn undir dulnefni ásamt þátttökugjaldi, 1000 krónur á lag. Rétt nafn og heimilisfang skal fylgja með í vel merktu og lokuðu umslagi í pósthólf númer 93 á Króknum. Síðasti skilafrest- ur til að koma frá sér lögum er 9. febrú- ar. Úrslitakvöldið verður svo, sem áður segir, þann 4. maí og mun þá sérskipuð dómnefnd þetta kvöldið ásamt áheyr- endum velja sigurlagið. „Lagahöfundar sýna keppninni mik- inn áhuga og hafa talsvert verið að hafa hér samband við okkur síðustu daga,“ segir Póra Þórhallsdóttir og bætir við að dægurlagasamkeppnin sem nú hefur verið haldin samfleytt frá árinu 1994 hafi ætíð notið mikils velvilja fyrirtækja í Skagaíirði sem styrkt haíi hana á ýmsa lund. Pá má geta þess að í fyrra útvarp- aði Ríkisútvarpið frá keppninni, en nú í byrjun vikunnar var enn óákveðið hvort svo yrði aftur nú en er þó talið frekar líklegt. Lögin sífellt að batna Eiríkur Hilmisson, tónlistarmaður á Sauðárkróki, mun á úrslitakvöldi keppn- innar stjórna hljómsveitinni sem flytur lögin - og jafnframt kemur hann í bún- ing þeim lögum sem koma óútsett í keppnina. „Mér finnst hafa verið mjög góður stígandi í þessum lögum sem ber- ast í keppnina undanfarin ár. Pau eru sí- fellt að batna. Lögin eru líka þverskurð- ur íslenskra dægurlaga, sum eru dæmi- gerð keppnislög en einnig má þarna heyra lög af öðrum toga. Ég vænti þess að keppnin í ár verði glæsileg og að vel takist til, enda höfum við á sífellt meiri reynslu að byggja til að gera hlutina vel,“ sagði Eiríkur Iiilmisson að síðustu. -SBS. Næring, hreyfing og listsköpun í leik Meiri hreyfing, listsköp- un og hollarafæði var markmiðið sem sett var í „heilsuleikskólan- um“,semárið 199 S hófgöngu sína að Skólatröð íKópavogi. Unnur Stefánsdóttir leikskóla- stjóri átti hugmyndina og nú er hún komin með 130 börn undir sinn verndarvæng. „Sjálf þekki ég gildi hreyfing- ar og hollrar fæðu í lífinu og hafði látið mig dreyma um ein- hverskonar íþróttaleikskóla en fannst svo skynsamlegra að út- víkka þá hugmynd og setja upp alhliða heilsumarkmið, segir Unnur og heldur áfram: „í sam- vinnu við kennarana sem ég fékk til starfa mörkuðum við þá stefnu að auka gleði og vellíðan barnanna, með áherslu á nær- ingu, hreyfingu og listsköpun í leik. f framhaldi af því ákváðum við að búa til heilsubók barns- ins þar sem við mældum árang- ur hvers og eins í áhersluþátt- um skólans. Nú hefur bókin verið gefin út þannig að hún er aðgengileg öðrum Ieikskóla- kennurum og hefur þegar náð nokkuná útbreiðslu," Foreldrar áhugasamir Skólatröð var fyrsti heilsuleik- skólinn og litlu síðar bættist Stubbasel við. Unnur segir hafa gengið mjög vel að fá fólk til starfa við þetta verkefni því áhugi hafi verið mikill bæði hjá kennurum og ekki síður for- eldrum. I haust tók hún við nýj- um leikskóla undir þessunx sömu formerkjum. Hann heitir Urðarhóll og þar eru 80 börn eins og ei’, en Skólatröð og Stubbasel eru deildir innan skólans þannig að samtals eru orðin 130 börn í heilsuleikskól- anum. Unnur segir skólann ein- setinn, öll börn komi að morgni en fari mismunandi snemma og fleii’i nýjungar eru í reksti’inum. „Eftir að nýja húsið kom erum við með nokkra fagstjóra, einn sem sér um hreyfinguna, annan sem sér um matarmálin og þann þriðja í listunum í stað þess að áður voru allir kennar- ar með allar greinai'. Við höfum sjálfstæðan ijárhag í þessari einingu og með því að hafa svona stóra heild þá sparast ýmislegt. Við getum fært leikefni milli húsa, við eldum matinn á einum stað og íleira er samnýtt." Biðja ekki uni sykur sjálf Aðspurð um fæðið á heilsuleik- skólanum upplýsir Unnur að áhersla sé lögð á litla fitu, syk- ur og salt. Vatn sé notað til svaladi’ykkjar og mjólk sem hluti af máltíð. í stað hefðbund- ins morgumatar hafi verið bætt inn litríkri og góðri ávaxta- og grænmetismáltíð mifli 9-10. En skyidu börnin vera sjálf hrifin af grænmeti, matarmiklum súp- um og fleiru sem boðið er upp á í heilsuleikskólanum? „Já. Það tekur stundum smá tíma, jafn- vel nokkrar vikur fyrir þau að venjast því en síðan fara þau að borða allt. Þau eru ekki að biðja um sykur í fæðunni. Gegn um heilsubókina fylgjumst við með þyngd barnanna og tökum á vandamálum hvers og eins ef þau koma upp.“ Hún segir upplýsingar skráð- ar inn í heilsubækurnar tvisvar „Það tekur stundum smá tíma, jafnvel nokkrar vikur fyrir þau að venjast fæð- inu en siðan fara þau að borða allt, “ segir Unnur, sem hér matast með börn- unum i heilsuleikskólanum Urðarhóli. mynd: pjetur á ári, í mai’s og september og í framhaldi af því séu foi’eldra- viðtöl. Bókin sé bæði stuðningur og aðhald fyrir kennara og geri foreldi’um léttara að fylgjast með þroska barnsins. Bókin fylgir barninu þannig að fari það á annan leikskóla hefur það hana með sér þangað. „Við fengum eitt barn hingað til okk- ar frá Siglufirði með svona bók sem hafði verið skráð í í tvö ár og vorum afar hamingjusamar með það.“ íþróttir og dans Unnur segir börnin fá sérstaka íþróttatíma í stórum sal og einnig nokkra danstíma á hverjum vetri sem séu mjög vinsælii’. „Með hjálp heilsubók- arinnar fylgdumst við með því að framfarirnar urðu miklar bæði í hreyfingum og félags- legri færni, bara við að fá einn íþróttatíma á viku og kennarinn sem fer með börnin í íþróttasal- inn sem er í hálfs kílómetra ijarlægð kveðst finna mun á út- haldi þeirra bai'na sem hafa verið hér í Stubbaseli í tvö ár og hinum sem komu ný í haust inn á Urðai'hól," segir hún. Hún kveðst stefna að því að þi'iggja og hálfs ái's skoðun og fimm ára skoðun barna fari fram í leikskólanum. „Þetta er liður í vei'kefni um aukna sam- vinnu heilsugæslu og heilsu- skóla og við vonurn að heilsu- gæslan tengist leikskólanum meira í framtíðinni en verið hefur," segir hún að lokum. GUN.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.