Dagur - 08.02.2001, Blaðsíða 5

Dagur - 08.02.2001, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAK 2001 - S Dxgur. Alitamál um val- kosti íkosningu Ræðst í borgarráði í næstu víku. Atkvæða- greiðsla um flugvöll- inii. Samstarf við Gaflup. Orðalag og framsetuiug. I vinnu við undirbúning at- kvæðagreiðslunnar um framtíð Reykjavíkurflugvallar hefur kom- ið frani það álitamál hvort það eigi að spjTja um undirkosti til viðbótar við það hvort flugvöllur- inn eigi að vera áfram á núver- andi stað eða ekki. I>að er m.a. vegna þess að það sé ekki borgar- innar að ákveða um staðsetningu vallarins á öðrum stað ef meiri- hlutinn vill að völlurinn fari og jafnvel einnig í breyttri mynd í Vatnsmýrinni. Það sé í verka- hring samgönguyfirvalda. í betnni í næstu viku Búist er við að tillögur um val- kosti vegna atkvæðagreiðslunnar um framtíðarnýtingu Vatnsmýr- innar og staðsetningu miðstöðv- ar innanlandsflugs verði tilbúnar fyrir fund borgarráös í næstu viku eða jafnvel fyrr. Það er held- ur ekki seinna vænna því eftir rúma viku er ætl- unin að halda op- inn borgarfund um flugvallar- málið í Ráðhús- inu sem sjón- varpað verður um land allt, eða 18. febrúar n.k. Samstarf við Gallup Stefán Olafsson prófessor sem sit- ur í undirbún- ingshóp sem hef- ur það verkefni að gera tiilögur um valkostina segir að verið sé að skoða og undirbúa vandlega þær spurn- ingar sem væntanlega verða á at- kvæðaseðlinum. Hvað sem því líður sé Ijóst að í atkvæðagreiðsl- unni mundu kjósendur velja á milli þeirra tveggja höfuðspurn- inga hvort völlurinn verði áfram í Vatnsmýrinni eða fari. I þessari vinnu hefur undir- búningshópurinn m.a. haft sam- Stefán Ólafsson prófessor: verið að skoða og undirbúa vandiega þær spurningar sem væntan/ega verða á atkvæðaseðiinum starf við Gallup við útfærslu á væntanlegum spurningum. Hins vegar sé ekki búið að ákveða hvort ráðist verður í gerð skoðana- könnunar með- al annarra landsmanna um flugvöllinn né heldur hvernig það verður fram- kvæmt. Upp- haflega var tal- að um síma- könnun meðal 5-10 þúsund manns á landsvísu. Orðalag og framsetnmg Stefán Hermannsson borgar- verkfræðingur sem komið hefur að þessari vinnu segir að í þess- um efnum sé þetta öðrum þræði spurning um orðalag og fram- setningu. Enda séu margir á því að spurningarnar á atkvæðaseðl- inum eigi að vera sem einfaldast- ar. l lins vegar getur sú stað kom- ið upp að með því að einfalda þær mjög gæti skapast óvissa um merkingu þeirra. Sem dæmi nefnir hann að ef menn kjósa að flugvöllurinn fari þýði það þá að hann fari á Löngusker eða til Keflavíkur eða eitthvað annað. Hið sama getur verið uppá ten- ingnum ef menn kjósa að hafa völlinn áfram í Vatnsmýrinni en vilja hafa hann þar í breyttri mynd. 30 kjördeíldir A fundi borgarráðs í fyrradag var ákveðið að hafa kjörstað á jarð- hæð Kringlunnar með sex kjör- deildum. Áður hafði verið ákveð- ið að hafa kjörstaði í Ráðhúsinu, Laugarnesskóla, Engjaskóla og Seljaskóla í kosningnum 17. mars n.k. Með kjördeildum í Kringlunni verða alls 30 kjör- deildir í borginni. Viðbótarkostn- aður vegna Kringlunnar er áætl- aður um 940 þúsund krónur. Það er m.a. vegna uppsetningar og frágangs kjörklefa, ljósleiðara- lögn, hverfiskjörstjórn og auka- vörslu og fleira. Heildarkostnað- ur vegna kosninganna er áætlað- ur 1 5 - 20 milljónir króna. - GRH Landsvirkjun gefur stórafiátt Afsláttur af iimframafli Þar sem nægt afl er fyrir hendi í kerfi Landsvirkjunar, vcgna góðs vatnsbúskapar í vetur, hefur Landsvirkjun ákveðið að veita verðafslátt á umframafli til þeir- ra rafveitna sem eru í beinum viðskiptum við fyrirtækið. „Verð- ið er lækkað úr 36 kr/kWh niður í 10 kr/kWh frá 1. febrúar til aprílloka 2001, þó skemur til Orkuveitu Reykjavíkur vegna sérstaks samnings milli hennar og Landsvirkjunar sem tekur gildi 1. mars nk.“ segir í tilkynn- ingu frá Landsvirkjun. Tilgang umframaflsgjalds á rafmagn seg- ir hún þann að hvetja rafveitur til að framleiða rafmagn með ol- íuaflstöðvum á háálagstímum, sem oft séu mjög stuttir. Því ella þyrfti auknar fjárfestingar í raf- orkukerfinu til að anna álagstoppunum. En . þegar vel árar í vatnsbúskap eins og nú og nýjar virkjanir eru ekki full- nýttar, lækkar Landsvirkjun þetta umframaflgjald". - HEi Félagsformi Orkubús Vestfjaröa breytt Hlutafélagaformid gefur vestfirskum sveitarfélögum svig- rúm til þess að selja hlut siun í Orkubúi Vestfjarða, æski þau þess. Á fundi eigenda Orkubús Vest- fjarða í gær var undirrituð viljayf- irlýsing allra eigenda fyrirtækis- ins um að breyta félagsforminu úr sameignarfélagi í hlutafélag. Við breytinguna verður þess gætt að fastráðnir starfsmenn hjá Orkubúi Vestfjarða haldi öllum réttindum sínum og þeim verður öllum boðin sambærileg störf hjá hinu nýja félagi. Orkubú Vestfjarða starfar sam- kvæmt Iögum nr. 66/1976 og þar er m.a. kveðið á um að fyrirtæk- ið skuli rekið sem sameignarfé- lag. 1 framhaldi af fý'rrgreindu samkomulagi verður frumvarp til nýrra laga um Orkubú Vestfjarða hf. lagt fram á Alþingi. Þegar Al- þingi hefur samþykkt frumvarpið og það er orðið að lögum munu eigendur koma saman á ný og taka formlega ákvörðun um að slíta sameignarfélaginu, stofna Orkubú Vestfjarða hf. og ákveða hvenær hið nýja hlutafélag tekur til starfa. Kristján Haraldsson, orkubús- stjóri, segir að þetta skref sé for- senda þess að vestfirsk sveitarfé- lög geti selt hlut sinn í Orkubú- inu, æski þau þess, en ríkissjóður hefur m.a. gert tilboð þar að lút- andi. „Þetta eykur einnig frelsi félagsins til athafna en starfsem- in hefur verið bundin við orku- iðnaðinn. Ef þetta gengur eftir megum við eiga hlut í öðrum fé- lögum og stunda annan atvinnu- rekstur og taka þar með þátt í at- vinnulífinu af fullum krafti," seg- ir Kristján Haraldsson. - GG Loðnuveiði á Látragrunni Mikil loðnuveiði hefur verið vestur á Látragrunni en loðnan er á göngu suður með Vestfjörð- um. Líklegt er að hún fari inn á Faxaflóa og hiy'gni þar, en það er þó ekki öruggt fremur en annað sem henni viðkemur. Bræla var á svæðinu í fyrrinótt en veður lag- aðist þegar morgnaði. Þar er all- ur flotinn, um 30 skip, en um þriðjungur er ýmist á landleið eða á leið á miðin. Nýtt skip bættist í loðnuflotann í gær- morgun, Ingunn AK-150, seni kom til Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Skipið var 23 daga á leiðinni frá Chile þar sem það var smíðað. Það fer á loönuveið- ar eftir 3 til 4 daga. Loðnuaflinn á vetrarvertíð er orðinn um 1 52 þúsund tonn en að meðtalinni veiði á sumar- og haustvertíð er aflinn um 278 þúsund tonn. Bráðabirgðakvót- inn er 418 þúsund tonn svo enn eru óveidd um 140 þúsund tonn. Það tekst vonandi fyrir 1 5. mars, ef til sjómannaverkfalls kemur. Mestu magni hefur verið land- að hjá Síldarvinnslunni í Nes- kaupstað, eða 26 þúsund tonn- um og nágrannarnir hjá Hrað- frystihúsi Eskifjarðar hafa tekið á móti 22 þúsund tonnum. Fimm verksmiðjur SR-mjöls á Siglu- firði, Raufarhöfn, Seyðisfirði, Reyðarfirði og Helguvík í Reykja- nesbæ hafa alls tekið á móti 25 þúsund tonnum. - GG Nýtt fræðsluefni um forvamir Bryndís Kristjánsdóttir, varaformaður SAMFOK, Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri Sigurveig H. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkur- deildar Rauða kross íslands, Guðbrandur Guðmundsson, formaður For- eldrafélags Engjaskóla Hildur Hafstað, skólastjóri Engjaskóla, Finnbogi Al- bertsson, fomaður Foreldrafélags Breiðholtsskóla, Ragnar Þorsteinsson, skólastjóri Breiðholtsskóla Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands og SAMFOK hafa gefið út kynningarefni fvrir foreldra grunnskólabarna í Reykjavík og er það fyrsta efnið sem notað verður í verkefninu Forvarnaly'kill sem SAM- FOK er að hleypa af stokkunum. Um er að ræða þrjá bældinga sem fjalla um aga og þátt hans í góðu uppeldi, tónlist og tónlistarmynd- bönd sem áhrifavald í lífi barna og unglinga og sjónvarp og áhrif þess á börn og unglinga. lngibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhenti fulltrúum foreldrafélaga Breiðholtsskóla og-Engjaskóla bæklingana í gær. Bimaðarbaukinu kærir áfram Kærunefnd við Fjármálaeftirlitið hefur vísað frá kæru Búnaðarbank- ans vegna rannsóknar eftirlitsins á viðskiptum bankans með bréf í Pharmaco. Bankinn hefur kvartað yfir því að andmælaréttur hefði verið brotinn á sér og segist ekki hafa fengið aögang að gögnum málsins. Því hafi stjórnsýslulög verið brotin. Þetta kom fram í frétt- um Útvarpsins í gær. Kærunefndin rökstyður frávísun sína méðal annars með því að ákvæði opinberra laga gildi um rannsókn af þessu tagi, hún sé ígildi lögreglurannsóknar. Búnaðarbankinn hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna þessa máls og kveðst munu vísa úr- skurði kærunefndar til umboðsmanns Alþingis.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.