Dagur - 08.02.2001, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGVR 8. FEBRÚAR 2001 - 9
ÍÞRÓTTIR
Tekst Þórsunim að stöðva
sigurgöngu Njarðvflduga?
Sextánda innferð Ep-
sondeildar karla í
körfuknattleik verður
leikin í kvöld og tekur
topplið Njarðvíkinga,
sem iiimið hefur sex
leiki í deildinni í röð,
þá á móti Þórsurum
sem eru í þriðja neðsta
sæti deildarinnar.
Heil umferð, sú sextánda, fer fram
í Epsondeild karla í körfuknattleik
í kvöld. Njarðvíkingar, efsta lið
deildarinnar, fær þá Þórsara í
heimsókn í Ljónagryfjuna í Njarð-
vík, þar sem Akureyrarliðið, sem
aðeins hefur unnið fimm leiki í
deildinni í vetur og er í þriðja
neðsta sætinu nreð 10 stig, mun
örugglega Ieggja sig fram um að
stöðva sex leikja sigurgöngu
heimamanna. Njarðvíkingar hafa
tveggja stiga forskot á Keflavík og
Tindastól á toppi deildarinnar, en
Stólarnir fá einmitt Keflvfkinga í
heimsókn á Krókinn í kvöld, þar
sem búast má við hörðum slag.
Gengi beggja liða hefur verið mis-
jafnt eftir áramótin og hafa bæði
tapað tveimur leikjum af íjórum,
Tindastóll gegn Njarðvík og Val og
Keflavík gegn KR og Njarðvík.
Skallamir hafa tiiinið
íinim í röð
KR-ingar, sem nú eru í ljórða sæti
deildarinnar með 18 stig, Ijórum
stigum minna en Keflavík og
Tindastóll, fá Skallana frá Borgar-
nesi í heimsókn í kvöld. Bæði liðin
hafa verið á mikilli siglingu að
undanförnu og þá sérstaklega
Skallarnir, sem hafa unnið sex af
síðustu sjö leikjum sínum í deild-
inni, þar af síðustu fimm í röð og
eru nú komnir í sjöunda sætið
með 16 stig. KR-ingar, sem byij-
uðu leiktíðina með því að tapa
fyrstu fjórum deildarleikjunum,
hafa aftur á móti unnið þijá leiki
af fjórum eftir áramótin og alls
unnið átta af tíu leikjum eftir að
þeir komust á beinu brautina eftir
hrakfarirnar í byrjun. Enda hefur
liðið klifrað hratt upp stigatöfluna
og sækir nú fast að toppliðunum.
I Hafnarfirði fer fram leikur
Hauka og KFI, en báðum liðunum
hefur gengið afleitlega að undan-
förnu. Haukarnir hafa aðeins unn-
ið einn leik af ljórum eftir áramót-
in og rejmdar ekki nema sex af síð-
ustu níu deildarleikjum. Þeirþurfa
því virkilega á sigri að halda til að
ná aftur upp dampi eftir annars
ágæta byijun í upphafi tímabilsins.
Arangur Isfirðinga eftir áramótin
er svipaður, en þeir hafa aðeins
unnið einn Ieik af síðustu ljórum
og þar af tapað síðustu þremur.
Einu sigrar liðsins í deildinni í vet-
ur eru gegn Keflavík og Hamri, sitt
hvorum megin við áramótin og því
Ijóst að liðið verður mcð falldraug-
inn ógurlega í eftirdragi í þeim sjö
umferðum sem eftir eru í deild-
inni.
ÍR-ingar hafa tapað fínun í röð
1 íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi
taka Valsarar sem eru í næst neðs-
ta sæti deildarinnar með 6 stig á
móti ÍR-ingum, en ÍR-ingar, sem
hafa tapað fimm síðustu leikum
sínum í deildinni, eru nú í fjórða
neðsta sætinu með 10 stig. Valsar-
ar hafa aftur á móti verið að sækja
í sig veðrið að undanförnu og hafa
unnið tvo síðustu leiki, gegn
Tindastóli og KFÍ, eftir að hafa þar
á undan tapað níu leikjum í röð.
Staða liðssins er því slæm og sigur
gegn ÍR-ingum mjög mikilvægur
til að brúa fjögurra stiga hilið í
næstu lið, sem eru Þór og IR.
Sömu sögu er að segja um ÍR-inga,
þeim veitir heldur ckki af stigun-
um, bæði til að forðast falldraug-
innn og eins til að missa ekki af
lestinni í slagnum um sæti í úr-
slitakeppninni, sem þó er aðeins
draumsýn, því sex stig skilja á milli
í næstu lið sem eru í 5. - 8. sæti.
I Grindavík fer fram leikur
Grindvíkinga gegn Hömrunum frá
Hveragerði, en bæði liðin eru á grá
svæði deildarinnar með 16 stig og
svipaðan árangur á nýju öldinni,
með tvo tapaða leiki af ljórum.
Þegar liðin mættust í fyrri umferð-
inni unnu Hamrarnir nauman
Ijögurra stiga sigur, 86-82 og því
stefnir í spennandi viðureign lið-
anna í kvöld, sem bæði leggja
áherslu á að tryggja stöðu sína
meðal efstu átta.
Þegar sömu lið mættust í fyrri
umferðinni urðu úrslit eftirfar-
andi:
Þór Ak. - Njarðvík 90-: 104
ÍR : Valur 74- 70
KFÍ - Haukar 82- 88
Skallagrímur - KR 74- 75
Hamar - Grindavfk 86- 82
Keflavík - Tindastóll 81- 78
Árangur liðannfrá
1. til 15. umferðar:
(U: unninn leikur)
(T: tapaður leikur)
Njarðvík TUTUUUUUTUUUUUU
Keflavík UUUUUTUUUUTUTTU
Tindastóll UTUUTUUUUUUTUTU
KR TTTTUUUUUUTUUTU
Haukar UTUUUUTTUTUTTUT
Hamar UTUTUTUTUUTTUUT
Grindavík UUUTTUUUTTTUTUT
ÍR UTTTU UTUTUTTTTT
ÞórAk. UUTUTTTTTTUTTUT
Valur TTTUTTTTTTTTTUU
KFÍ TTTTTTTTTTU UTTT
Staðan:
Njarðvfk 15 12 3 1350:1186 24
Keflavík 15 11 4 1367:1244 22
Tindastóll 15 11 4 1317:1253 22
KR 15 9 6 1331:1279 18
Haukar 15 8 7 1247:1178 16
Hamar 15 8 7 1229:1275 16
Skallagr. 15 8 7 1230:1325 16
Gritidavík 15 8 7 1311:1279 16
ÍR 15 5 10 1214:1305 10
Þór Ak. 15 5 10 1293:1346 10
Valur 15 3 12 1 166:1252 6
KFÍ 15 2 13 1261:1394 4
Stigahæstir:
Dvvayne Fontana, KFI 437
Chris Dade, Hamri 392
Calvin Davis, Keflavík 372
Shawn Myers, Tindastóli 366
Warren Peebles, Skallagr. 364
Brenton Birmingham, Njarðv. 337
Logi Gunnarsson, Njarðvík 314
Páll A. Vilbergsson, Grindav. 298
Cedrick Holmes, ÍR 295
Óðinn Ásgeirsson, Þór Ak. 283
Eiríkur Önundarson, ÍR 271
Ólafur Jón Ormsson, KR 264
Sveinn Blöndal, KFÍ 252
Clifton Bush, Þór Ak. 240
Herbert Arnarson, Val 228
Bragi Magnússon Haukum 220
Mike Bargen, Haukum 215
Pétur Ingvarsson, Hamri 201
Skarphéðinn Ingason, Hamri 190
Kristinn Friðriksson, Tindast. 188
Haukar og ÍBV í bikarúrslit kveirna
Topplið Hauka í Nissandeild
kvenna og núverandi íslands-
meistarar IBV tryggðu sér í
fyrrkvöld réttinn til að leika til úr-
slita um SS-bikar kvenna í hand-
knattleik. Haukar sigruðu erkifj-
endurna úr FH með tveggja marka
mun, 25-23, í framlengdum und-
anúrslitaleik, sem fram fór á
heimavelli Hauka að Asvöllum og
IBV vann eins rnarks sigur á
Stjörnunni, 24-23, í hörkuspenn-
andi leik sem fram fór í Eyjum.
Flestir áttu von á léttum heima-
sigri Hauka gegn nágrönnum sín-
um úr FH, en það fór á annan veg,
því FH-stelpurnar sem ekki hafa
náð sér á strik í vetur, komu veru-
lega á óvart og tókst lengst af að
halda sér inni í leiknum. Hauk-
arnir höfðu þó forystuna Iengst af
og höfðu náð þriggja marka for-
skoti í hálfleik, 13-8, sem þær
juku í Ijögur mörk með fyrsta
marldnu í seinni hálfleik. Það leit
því út fyrir stórsigur Hauka, en
með mikilli baráttu og stórgóðri
markvörslu Kristínar Guðjóns-
dóttur tókst FH-liðinu að snúa
dæminu \ið í stöðunni 16-14, en
þá skoruðu þær þrjú mörk í röð og
náðu eins marks forskoti, 16-17.
En Haukastelpurnar létu ekki slá
sig út af laginu og náðu aftur
tveggja marka forystu, 20-18, sem
FH tókst aftur að jafna í 20-20,
þegar um það bil tvær mínútur
voru til leiksloka. Spennan var þvf
í hámarki og tókst liðunum ekki
að hæta við fleiri mörkum í mikl-
um darraðardansi síðustu mínút-
una.
Því var gripið til framlengingar
og þá sönnuðu Haukastelpurnar
yfirburði sína og skoruðu tvö
fyrstu mörkin, sem dugði þeim til
að halda öruggri forystu fram á
síðustu mínútu, en þegar rúm
hálfl mínúta var til leiksloka tókst
Hafdísi Hinriksdóttur að minnka
muninn í eitt mark, 24-23. Hauk-
arnir fengu svo hálfa mínútu til að
auk forskotið í tvö mörk, þegar
dæmt var vftakast á síðustu sek-
úndunum og fannst mörgum sem
Haukarnir fengju að hanga þar
allt of lengi á boltanum í vand-
ræðalegri lokasókn.
Hjá Haukum átti Jenný As-
mundsdóttir markvörður langbest-
an leik, en hún varði alls 21 skot
og átti stóran þátt í sigrinum.
Einng áttu þær Harpa Melsted og
Auður Hermannsdóttir góðan leik
og Thelma Arnadóttir kom upp á
réttum tíma skoraði tvö mikilvæg
mörk í framlengingunni. Br\nja
Steinsen var markahæst hjá
Haukum með 7/5 mörk og Harpa
Melsted næst með 6 úr 13 tilraun-
um.
Hjá FH átti Kristín markvörður
bestan leik og varði hún alls 15
skot. Einnig voru þær Björk Ægis-
dóttir og Dröfn Sæmundsdóttir
sterkar, en hefðu mátt nýta færin
sín bctur. Þær voru markahæstar
FH-inga með 5 mörk hvor og
Harpa Vífilsdóttir næst með 4
mörk. Það var auðséð á Iiði FH að
það er í mikilli framför eftir að
hafa misst fjóra lykilleikmenn frá
því í fyrra og ungu stelpurnar eru
að styrkjast nteð hverjum Ieiknum.
Kafiaskipt og spennandi
í Eyjum
Leikur IBV og Stjörnunnar í E\j-
um var mjög kaflaskiptur, en ekki
síður spennandi. Gestirnir höfðu
forystuna inest allan l'yrri hálfleik-
inn og höfðu þá mest náð þriggja
marka forystu, sem Eyjastelpun-
um tókst að minnka í eitt mark
fyrir leikhlé, 10-11. Eyjastelpurn-
ar mættu síðan ákveðnar til leiks í
seinni hálfleik og snérist dæmið
þá við, því þær náðu forystunnu
strax á fyrstu mínútunum, sem
þær héldu allan hálfleikinn og
höfðu mest náð fjögura marka for-
skoti. En Stjörnunar gáfust þó
ekki upp og tókst í tvígang á
lokamínútunum að minnka mun-
inn í eitt mark, síðast rétt áður en
flautað var til leiksloka og var
lokastaðan eins og áður sagði, 24-
23.
Tamara Mandzic átti bestan leik
hjá IBV, bæði í vörn og sókn og var
hún markahæst með 10/3 mörk.
Hjá Stjörnunni átti Halla María
iangbestan leik og var hún marka-
hæst með 10/1 mörk. Annars var
þetta leikur varnanna, en hæði lið
spiluðu Iengst af mjög sterka vörn
án þess að markvarslan væri neitt
sérstök. Vigdís markvörður IBV
tók þó til sinna ráða í seinni hálf-
Icik og átti þá stórgóðan leik.