Dagur - 08.02.2001, Side 11

Dagur - 08.02.2001, Side 11
10- FIMMTUDAGVR 8. FEBRÚAR 2001 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 - 11 SAMANTEKT Fimmti hver deyr vegna reykiiiga BJORN ÞORLAKS- SON SKRIFAR Nýtt tobaksvaraar fnunvarp liggur fyrir Alþiiigi sem gerir landsmönnum erfiö- ara fyrir aö stunda þennan löst. Á hinn bóginn telja sumir aö of langt sé gengið en allir eru sammála um skaösemi reykinga. Ný lög um tóbaksvarnir sem heil- brigðisráðherra hefur lagt fram á AlJjingi hafa vakið mismunandi viðbrögð í samfélaginu. Margir fagna þvf að harðar skuli tekið á tóbaksvörnum en aðrir hafa gagnrýnt frumvarpið fyrir að það gangi of langt. Þar á meðal er hluti þingmanna sem telur vafasöm atriði koma fram sem kunni að skerða einstaklings- frelsi. Markmið laganna er að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks með því að minn- ka tóbaksncvslu og vernda fólk fyrir áhrifum tóbaksreyks. Það bakland skuli virt að einstakling- arnir þurfi ekki að anda að sér lofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra. Umdeilt á veitingahúsum Nokkur umræða hefur farið fram um reykingar á skemmtistöðum en í nýja frumvarpinu segir að leyfa megi reykingar á veitinga- og skemmtistöðum á afmörkuð- um svæðum, en tryggja skuli þó fullnægjandi loftræstingu. Það sem boðar helstu breytinguna er að samkvæmt nýja frumvarpinu á meirihluti veitingarýmis ávallt að vera reyklaus og hoðar það hylt- ingu frá núverandi ástandi. I lög- unum segir jafnframt að stjórn- endur veitingastaða skuli affrem- sta megni leitast við að vernda starfsfólk gegn tóbaksreyk. Harðari afstaða I athugasemdum við lagafrum- varpið segir að í Ijósi reynslunnar af síðustu breytingum á lögun- um, aukinnar þekkingar á skað- semi reykinga og „harðari afstöðu almennings til þessa vágests, bæði hér á landi og í alþjóðasam- félaginu, er tímabært að leita frekari leiða til að draga úr reyk- ingum. Islendingar hafa verið í fararbroddi í tóbaksvörnum með- al þjóða heims og er það ætlun ráðherra og tóbaksvarnarnefndar að svo verði áfram". Allmiklar breytingar voru gerð- ar á lögum um tóbaksvarnir árið 1996 en í athugasemdunum seg- ir að í ljós hafi komið að enn þurfi að bæta þessa löggjöf með nýjum og fý'llri ákvæðum, einkum varð- andi markaðssctningu og sölu tó- baks og vernd gegn tóbaksmeng- un andrúmslofts. Frumvarpið byggir á tillögum nefndarinnar og er unnið í samráði við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. I nefndinni eiga sæti læknarnir Þorsteinn Njálsson, sem er for- maður hennar, Holgi Guðbergs- son og Sveinn Magnússon. Einn deyr á dag „Alkunna er að tóbaksneysla veldur miklum og margvíslegum heilsuspjöllum. Okkur er því skvlt að gera ráðstafanir til að hefta út- breiðslu þessa vágests í nútíma- samfélagi og berum ábyrgð á því gagnvart komandi kynslóðum. Hafa ber í huga að þeir sem deyja í dag af völd um reykinga eru reykingamenn gærdagsins. Þeir sem deyja á morgun eru þeir sem reykja og byrja að reykja í dag," segir í athugasemdum frumvarps- ins. Samkvæmt upplýsingum frá Hjartavernd deyja um 370 rnanns á ári á Islandi af völdum reykinga eða einn Islendingur á dag, alla daga ársins. Fimmta hvert dauðsfall á íslandi er af völdum reykinga. Þriðja hvert dauðsfall hjá fólki í blóma lífsins á Islandi, 35-69 ára, má rekja til reykinga. Unglingar helsti áhættuhópurinn Heilbrigðisáætlun til ársins 2010 hefur sett það meginmarkmið að ná hlutfalli daglegra reykinga meðal fullorðinna niður fyrir 20%. „Til að ná þessu markmiði verður að taka til hendinni. Ná þarf til unglinga sem eru helsti áhætluhópurinn, fá þá sem reyk- ja til að draga úr reykingum og hætta helst þeim Iífshættulega ávana. Arangur fólks, sem reynir að hætta að reykja, er ekki ávallt góður og margir þurfa aðstoð og hvatningu. F;ekka þarf svæðum þar sem reykingar eru leyfðar því að rannsóknir sýna að með því að banna og takmarka reykingar sem víðast dregur úr reykingum og reykingamönnum veitist auðveld- ara að hætta,“ segir í athuga- semdunum. Böm eiga rétt „Skaðsemi reykinga er óumdeil- anleg og hið sama á við óheinar reykingar. Sé það val reykinga- manns að reykja cr það aö sama skapi réttur þess sem ekki reykir að þurfa ekki að anda að sér tó- baksreyk reykingamanns. Börn eiga skilyrðislausan rétt á reyk- lausu umhverfi, bæði á heimilum sínum og annars staðar. Aliir eru sammála um að vernda eigi börn fyrir tóbaksreyk og grípa verður til úrræða sem nauðsynleg eru í því skyni, segir ennfremur. Eftir að Bandaríkjamenn fóru að sækja skaðabótamál á hendur tóbaksfyrirtækjum hefur tekist að fá upplýsingar um aðferðir við framleiðslu tóbaks. Þær Iiggja (ýr- ir hjá tóbaksvarnarnefnd og eru fróðleg lesning. Vitað er að í tó- baki og tóbaksreyk er mikill IJöIdi al eitruðum, hættulegum og krabbameinsvaldandi efnum sem nú væru ekki Ieyfð í nokkurri annarri vöru sem ætluð væri til innöndunar eða inntöku. Siðlausir hættir Tóbaksiðnaðurinn hefur sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem framleiðendurnir hafa sjálfir þurl’t að afhenda dómstólum í Bandaríkjunum, reynst vera þró- aður efnaiðnaður. Efnum er bætt í tóbakið og önnur efni tekin út til að ná fram „réttum" áhrifum. Við framleiðsluna er hætt í tóbak- ið aukaelnum sem draga úr ert- ingu í öndunarvegum, minnka ertingu af óbeinum reykingum, Samkvæmt nýja frumvarp/nu á meirihluti veitingarýmis ávallt að vera reyklaus og boðar það byltingu frá núverandi ástandi. víkka út öndunarvegi, bæta bragð og tryggja fullkomið frásog á nikótíni út í blóð rás og inn í heila (yfir heilablóðþröskuld). Síðast en ekki síst er bætt í tóbakið efn- um sem er sérstaklega ætlað að festa nýja og unga reykingamenn betur og fyrr við ávanann. Ammóníak er ,“bætiefni“ í tóbaki, þ.m.t. íslenska neftóbakinu, en er þess utan aðeins Ieyft sem hreinsiefni. Aðstandendur frumvarpsins eru sammála um að þeirrar lil- hneigingar hafi gætt að taka varn- ir gegn ólöglegum fíkniefnum fram yfir tóhaksforvarnir. Vissu- lega eru vandamál af völdum þeirrá efna stóralvarleg en á hitt her að líta að útbreiðsla tóbaks er margfalt meiri og tóbaksvanda- málið því síst veigaminna. Auk þess sýna rannsóknir að reyking- ar eru undanfari fíkniefnaneyslu og oft áfengisneyslu líka. Það heyrir raunar til algjörra undan- tekninga að þeir sem leita sér að- stoðar vegna áfengis- eða vímu- efnaneyslu séu ekki reykinga- menn. Með því að taka á tóbaks- draugnum strax f skólum er hægt að draga úr Iíkum á öðrum vanda- málum sem iðulega koma í kjölfar tóbaksreykinga. Reykingamenn benda hins vegar á að tóbak sé löglegt á Islandi og það sé sjálft ríkið sem greæði stór- fé á sölu þess. Tvöfeldnin sé nokk- uð í þessum efnum. A sana tíma og menn geti keypt tóbak hvar sem er, sé nú ríkið að boða að nánast hvergi sé hægt að neyta þess. Rétt er að taka fram að skiptar skoðan- ir cru um ávinning rílds af sölu tó- baks. Peningar streyma í kassann en spurning er hvort kostnaður samfélagsins vegna heilsuleysis reykingamanna sé ekki jafnvel meiri. I frumvarpinu er lagt til að meira fé verði lagt til forvarna. Tó- baksvarnarnefnd hefur þegar varið tugum milljóna króna í Iræðslu- efni handa skólum en lelur að gera verði betur til að vernda kyn- slóðir framtíðarinnar. Hingað til hefur ekki verið hægt að tryggja að öll grunn skólabörn fái tóbaks- varnarfræðslu þótt lög geri ráð lýr- ir að svo sé. Með auknu frantlagi til forvarna og frekari samvinnu við sveitarstjórnir er unnt að leysa þann vanda. Um 80% vilja hætta Rannsóknir staðfesta að það er fjárhagslega mjög hagkvæmt að fjárfesta í tóbaksvörnum, koma í veg lýrir að menn byrji að reykja, lá menn til að draga úr reykingum og sannfæra þá um að þeim beri að hætta að reykja. „Algjört for- gangsverkefni er að koma f veg fyr- ir að börn og unglingar l’ari að reykja því að rannsóknir sýna að átta af hverjum tíu reykingamönn- um byrjuðu að reykja fý'rir 18 ára aldur. Það er einnig afar mikilvægt að geta veitt reykingamönn um stuðning við að hætta að reykja. Um 80% þeirra vilja hætta en mörgum reynist það erfitt. Nokkrar staðre}’ndir: • Helmings líkur eru á því að 35 ára karl sem hefur reykt í a.m.k. tíu ár látist á aldrinum 40-69 ára af völdum reykinga. • Konur sem reykja eins og karl- ar deyja úr hjartaáföllum eins og karlar. • Það eru 70-80% Iíkur á því að einstaklingur sem fær hjartaá- fall á aldrinum 30-39 ára sé reykingamaður. • Helmingur þeirra sem deyja á miðjum aldri deyr af völdum tóbaks og glatar að jafnaði 20 árum ævinnar. • Reykingamaður á aldrinum 30-39 ára er með 6,3-faldar líkur á hjartaáfalli, 40-49 ára með 4,9-faldar líkur og 50-59 ára með 3,1-faIdar líkur. Ef lögin verða samþykkt - sem nánast má gera ráð fý'rir þótt ein- hverjar breytingar kunni að verða - öðlast þau gildi 1. júní nk. Helstu nýmælin • Réttur fólks til reyklauss andrúmslofts er við- urkenndur og sérstaklega kveðið á um rétt barna. • Oheimilt er að setja hér á markað tóhak und- ir vörumerkjum annarrar vöru eða þjónustu. • Bönnuð er „kostun" viðburða eða starfsemi í því skyni eða með þeim áhrifum að kynna tó- bak. • Uppstilling á tóbaki á sölustöðum er bönnuð. • Yngri en 18 ára mega ekki selja tóbak. • Akveðið skal hámark skaðlegra efna í tóbaki og tóbaksreyk. • Sérstakt leyfi þarf til að selja tóbak í smásölu. • Sveitarfélögum er heimilt að innheimta gjald vegna Ieyfisveitinga og eftirlits. • Heimildir til að leyfa reykingar á veitingastöð- um eru þrengdar. • Hótel og aðrir gististaðir skulu vera með reyk- laus gistiherbergi. • Skýrt er kveðið á um hann við reykingum f öll- um húsakynnum sem almenningur hefur að- gang að vegna þátttöku í menningar- og fé- lagsstarfsemi. • Reykingar eru bannaðar í sameignarhúsrými í fjölbýlishúsum. • Setja skal reglur um takmarkanir á reykingum utan húss á íþróttasvæðum. • Til viðbótar algeru reykingabanni er öll önnur tóbaksneysla bönnuð í grunnskólum, leikskól- um og í húsakynnum og á samkomum sem einkum eru fý'rir ungmenni. • Staðfest er skylda vinnuveitenda til að sjá til þess að starfsfólk njóti réttar til að vinna í reyklausu umhverfi. • Fjárveitingar til tóbaksvarna eru auknar. • Heimilt er að svipta leyfishafa leyfi gerist hann brotlegur. • Refsiviðurlög við brotum á ákvæðum laganna eru samræmd og viðurlög þyngd. 8,5 km lðng hol- ræsi boðin út Á fundi borgarráðs í vikunni var samþykkt að taka tilboði Istaks hf. í lagningu aðalútræsis frá hreinsi- og dælustöð fyrir skólp, sem nú er í byggingu við Kletta- garða, og Sundaræsi, sem flytja mun frárennsli frá nýbygginga- hverfum f austurhluta borgar- innar að hreinsistöðinni. Fjögur fyrirtæki sendu inn tilboð og var boð Istaks hf. lægst þeirra sem buðu samkvæmt útboðsgögnum og nam það kr. 953.723.704 sem er 5,4% yfir kostnaðaráætl- un verkkaupa. Gert er ráð fyrir að undirbún- ingur framkvæmda við útræsið hefjist nú þegar og að lagningu þess verði lokið nú í haust. Um er að ræða um 5,5 km langa 1400 mm víða plastpípu sem fergð verður með steinsökkum, fleytt út og sökkt þannig að hún hvílir á hafsbotni. Framkvæmd- um við dælu- og hreinsistöðina við Klettagarða miðar vel og samkvæmt áætlun er að því stefnt að hún ásamt útræsinu verði tekin í notkun á fyrri hluta næsta árs. Samhliða er unnið að hönnun dælustöðvar fýrir skólp í Gufu- nesi og gert ráð fýrir að fvrsta út- boð vegna byggingar hennar verði í lok þessa mánaðar en stöðin verði tilbúin lil notkunar á fyrri hluta árs 2003. Hlutverk dælustöðvarinnar er að flytja frá- rennsli frá austuslu hverfiim borgarinnar að hreinsistöðinni og er lögnin frá stöðinni, Sundaræsi, hluti þess tilboðs, sem borgarráð nú hefur sam- þykkt. Sundaræsi er um 3,0 km á lengd og er heildarlengd ræsa, sem leggja skal samkvæmt út- boðinu því um 8,5 km. 1 ársbvrjun 2003 þegar dælu- stöðin í Gutunesi hefur dælingu verður í öllum meginatriðum lokið þeirri uppbyggingu á aðal- holræsakerfi borgarinnar, sem kennd hefur verið við hreinsun strandlengjunnar en alls mun þessi uppbvgging kosta um 7,5 - 8,0 milljarða króna frá því hún hófst, þar af er tæpur helmingur, í lokaáfanganum 2000 til 2003. hmanlandsflug- ið til Keflavíkur Kristján Pálsson al- þingismaður segir að utanbæjarmenn staddir í Kringlunni séu 15 minútum leng- ur að aka til Keflavík- ur en flugvallarins í Vatnsmýrinni. Suðurnesjamenn hafa lengi haldið því fram að ef innan- landsflugvöllurinn í Reykjavík verður Iagður niður eigi að flvtja innanlandsflugið til Keflavíkur. Suðurnesjamenn halda þessu mjög á lofti núna og þá ekki síst þingmaður þeirra Kristján Páls- son í öllum þeim deilum sem standa á milli samgönguráð- herra, l)orgar\firvalda og áhuga- mannahópa með og á mi)ti flug- velli í Vatnsmýrinni. Hann sagði í samtali við Dag að allar tímalengdir sem ntenn hefðu verið með uppi á borðinu þegar borið er saman innan- landsflug til Reykjavíkur eða Keflavíkur væru rangar. Kristján Pálsson. „Miðpunktur utanbæjar- manna í Reykjavík er ekki lcngur Laugavegur eða Austurstræti, miðpunkturinn er Kringlan. Menn eru 30 mínútur til Kefla- víkur úr Kringlunni en um 15 mínútur út á Reykjavíkurflug- völl. Munurinn er bara um 15 mínútur," segir Kristján Pálsson. EkM fyrir venjulegt fólk Hann bendir líka á að verð á inn- anlandsflugi sé orðið svo hátt'að það sé ekki lengur fyrir venjulegt fólk að nota það. Hann bendir á í' því sambandi að það kosti 60 þúsund krónur fyrir fjölskyldu af Austurlandi að fljúga frarn og til baka frá Egilsstöðum til Reykja- víkur. Hann segir að það sé helst fólk á vegum einhverra fý’rir- tækja, sem greiða fargjaldið, aðr- ir noti ekki orðið innanlands- flugið nema þá í nevðartilvikum. „Þess vegna á að leggja áherslu á að hæta samgöngur á landi. Það er bæði hægt að stvtta vega- lengdir og auðvelda umferðina með betri vegum og tvöföldum brúa. Það er til að mynda auð- veldlega hægt að stytta leiðina frá ísafirði til Reykjavíkur um 70 til 80 km. með hættri vegagerð," segir Kristján Pálsson. Hann bendir á að auðvitað verði þetta ekki gert á fáeinum árum frekar heldur en ef bvggja á nýjan innanlandsflugvöll elleg- ar að breyta flugvellinum í Vatnsmýrinni með því að leggja braulir á uppfyllingar út í sjó. Allt tald þetta mörg ár og að hans dómi þurfi þetta mál allt mun betri og faglegri skoðun en veriö hefur til þessa. — S.DÓR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.