Dagur - 08.02.2001, Page 15

Dagur - 08.02.2001, Page 15
FIMMTVDAGUR 8. FEBRÚAR 20 0 1 - 1S (ANPlN^ ■mennincm V'aiin til verð- launa í London Finnur Bjarnason baritonsöngvari vann til verðlauna er hann var valinn af sex keppendum í söngkeppni í London. Til- nefndir til þátttöku voru einn ungur og efni- legur söngvari frá hverjum tón- listarháskóla í London, þ.e. Royal Academy, Guildhall School of Music and Drama o.fl., síðan fær Glyndebourne óperuhúsið að tilnefna einn og þeir völdu Finn, en hann söng hlutverk Don Ottavios í Don Giovanni eftir Mozart í Glyndebourne fyrir jólin í forföllum aðal- söngvarans og fékk fína dóma m.a. í the Times og í Opera magazine. Auk þess að vinna söng- keppnina var Finnur valinn efniiegasti ungi söngvarinn við Glyndebourne óperuhúsið árið 2000 og veitt sérstök verðlaun fyrir það. Hann mun syngja hlutverk Don Ottavios i' óp- eruhúsinu sumarið 2002. Frístundamálarar bjóða á sýningu í félagsheimilinu Gjábakka við Fannborg í Kópavogi hafa frí- stundamálarar af eldri kyn- slóðinni hist reglulega og nýtt sér aðstöðu sem þar býðst til að stunda áhugamál sín, að mála myndir. Þessir áhuga- sömu málarar hafa ekki setið auðum höndum við iðju sína og er afraksturinn eftir því. Þeir hafa því ákveðið að gefa einstaklingum kost á að njóta afraksturs þessara samveru- stunda og opna sýningu á verkum sínum í Gjábakka í dag kl. 16.00. Frístundamálararnir, sem eru allir eftirlaunafólk, bjóða alla velkomna að skoða sýn- inguna og þiggja kaffisopa og heimabakkelsi. Sýningin stendur til 23. febrúar og er opin frá kl. 9.00 til 17.00 alla ^ virka daga. ________________ Páskatónlist og sprenging í New York Eittfremsta tónskáld samtímans, James MacMillan, stjórnarSin- fóníuhljómsveit íslands í kvöld. Á efnisskránni eru verk eftirhann sjálfan, John Speight og Charles Ives. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinn- ar í kvöld er skoska tónskáldið James MacMillan. Hann er rúmlega fertugur og tvímælalaust meðal fremstu núlifandi tónskálda Bret- landseyja. Sinfóníuhljómsveitin hef- ur áður flutt tvö verk eftir hann, en að þessu sinni stjórnar hann sjálfur flutningi á sellókonserti sínum, en það er Englendingurinn Raphael Wallfisch sem leikur á sellóið. „Ég samdi þetta verk árið 1996,“ segir MacMillan. „Ég hef stjórnað ílutningi þess víðar, með Raphael í Ástralíu fyrir nokkrum árum og líka á Bretlandi. Þetta er eitt af þremur verkum sem mynda eina heild. Þau sækja innblástur í dagana þrjá fyrir páska. Fyrsta verkið tengist skírdegi, það heitir The World’s Ransoming og er fyrir ‘cor anglais’. Sellókonsertinn, sem verður fluttur hér, tengist föstu- deginum langa og krossfestingunni. Síðasta verkið er svo sinfóma sem heitir Vigil og er myrkt verk, fjallar um dimma nótt og síðan dögun sunnudags- ins. En þessi þrjú verk eiga tvímælalaust rætur sínar í messuformi kirkjunnar og guð- fræðilegum vangaveltum." Á tónleikunum í kvöld sætir einnig tíð- indum að þar verður frumflutt Sinfónía nr. 3 eftir John Speight. „Þetta er frábært verk og ég hef notið þess mjög að vinna með það,“ segir MacMillan. „Það er sérstaklega gaman að stjórna frumflutningi þess. Þetta er mjög spennandi og kröftugt verk.“ „Þetta verk varð til þegar ég dvaldist í Ameríku í eitt ár,“ segir John Speight. „Ég mikið loftið. Síðan smám saman vinn ég úr þessu í verkinu og það eru mik- il rólegheit í endann. Þetta er í raun og veru tveggja kafla verk, en í stað- inn fyrir að hafa kaflana skýrt að- skilda þá hef ég vafið þá saman þannig að fyrst kemur bútur úr fyrsta kafla en síðan kemur bútur úr öðrum kafla og þannig skiptist það á. Þetta er svolítið eins og í kvikmynd- um þar sem maður er allt í einu kominn aftur í tímann eða fram í tímann. Eða ef maður væri að hlusta á útvarpið og skiptir á milli rása,“segir John Speight. „Ég kalla þetta sinfóníu vegna þess að ég lít á stórt hljómsveitarverk sem er unnið úr einni hugmynd og er svolítið í þessu gamla sinfóníska formi, þar sem maður byrjar með þessa hugmynd og síðan vinnur mað- ur úr henni í ýmis konar tilbrigðum, og svo kem ég aftur að upphaflegu hugmyndinni. Sinfónía er líka svolítið eins og skáldsaga eða sjálfsævisaga jafnvel. En maður reynir að flnna að- eins öðru vísi form til þess að hafa þetta hugmyndaríkt, frekar en að halda þessu venjulega formi. Ég bara hræri þessu öllu saman.“ Nánast hættur að syngja - Þú hefur samið ansi mörg tónverk, en hófst ferilinn sem söngvari? „Já, en ég lærði upphaflega sam- hliða bæði söng og tónsmíðar. Fyrst eftir námið fór þó mikið meira fyrir söngnum, en þetta hefur þróast þannig að ég er í raun og veru hættur að syngja núna og er bara í því að semja. Fyrir utan kennsluna auðvit- að. En kannski byrja ég aftur að syngja,“ segir John Speight. Á tónleikunum verður einnig flutt verkið „Three Places in New England" eftir bandaríska tónskáldið Charles Ives. MacMillan var spurður hvort þessi þrjú verk eigi eitthvað sameiginlegt. „Því er erfitt að svara. Að sumu leyti gæti verið að mitt verk sé undir áhrifum af Ives, ég er mikill aðdáandi hans. Það gæti vottað fyrir einhverjum minningum um Ives í sumum köflunum þar sem ólíkur efniviður tekst á innbyrðis,“ segir James MacMillan. -gb Á tónleikunum veðrur m.a. frumflutt verk eftir John Speight, sem i seinni tið hefur snúið sér æ meir að tónsmíðum og iagt sönginn að mestu á hilluna - /' bili að minnsta kosti. mynd: þúk var svo heppinn að fá starfslaun lista- manna í þrjú ár 1995-98, og við kona mín, Sveinbjörg Vilhjálmdsdóttir, ákváðum að fara til Ameríku á miðárinu af þessum þremur, en þá var hún í endurmenntun.“ Byrjar með sprengmgu „Þótt ég hafi þá verið að hugsa töluvert um þetta verk í nokkur ár, þá ber það samt keim af því að það er svolítið áfall að flytja á milli landa. Þetta verk byrjar því með sprengingu, algjörum kaos í hljómsveitinni, eins og er alltaf þegar maður kemur til New York reyndar, mér finnst það alltaf vera eins konar sprenging, það víbrar svo Ungur lögmaður, Árni Páll Árna- son, lét svo ummælt í þættinum Silfri Egils á Skjá einum sl. sunnudag að í hæsta máta væri undarlegt að stjórnmálamenn og fleiri væru í þjóðfélagsumræðunni í æ ríkari mæli farnir segja ekki annað en „hunnn og ha“ við fréttamenn, en fylgdu málinu síð- an eftir með því að etja lögmönn- um sínum á foraðið. Þetta er laukrétt hjá Árna og er í þessu sambandi skemmst að minnast öryrkjamálsins svokallaða, sem þegar á það leið snérist að óveru- legu leyti um stjórnmál heldur lögfræði- legar þrætur, sem fæstir af sauðsvörtum almúganum skildu. Skal í þessu sam- bandi minnt á að fjölmiðlar eru fyrir um- ræddan almúga og eiga að túlka almenn sjónarmið, en forðast sérfræðina svo sem hægt er. Staðreyndir ekki meginmál Þótt margir haldi annað og starfi sam- kvæmt því þá snýst líf mannfólks- ins fyrst og síðast uin tilfinningar. Umræðan í öryrkjamálinu var þannig, þótt í fjarskanum mætti hins vegar gi-eina lögfræðilega sjónarrönd - sem varð hins vegar að algjöru aukaatriði. Með sama hætti hefur orðið að afgangsstærð í kúariðuumræðunni að í millj- ónasamfélagi Evrópu verða að- eins nefnd 70 tilvik um að kúariða hafl komist í fólk. Sjö á Norður- löndunum. Umræða um kúariðu, norska fósturvísa og nautalundn í Nóatúni hefur að verulegu leyti - ef ekki öllu - snúist um tilfinningar og staðreyndir skipta ekki meginmáli. Það ætti hins vegar að koma við til- finningar þjóðarinnar þegar í fjölmiðlum birtast auglýsingar um þá bláköldu stað- reynd að af völdum reykinga látist hér á landi einn á degi hverjum. 365 íslending- ar á ári. Auglýsingar þessar, sem birst hafa á síðustu vikum, hafa hins vegar vakið litla umræðu. Má ætla að þjóðin sé „Það er því morgunljóst að til að fækka slysum eða draga úr reyking- um þarf heitar tilfinningar í málið, hvernig sem þær svo skapast eða myndast. Slíkt gerist oft af litlum neista, “ segir m.a. hér í greininni. beinlínis orðin ónæm fyrir andreykingaá- róðri, sem miðar að því að stemma stigu við einhverju stærsta heilbrigðisvanda- máli þjóðarinnar. Svo virðist sem reyk- ingafólkið sé slegið fullkominni blindu yfir því hve Camel, Winston og Malboro leggja marga úr þeirra hópi í gröfina. Umferðarslys, krabbi og kransæðastíflur í útvarpsviðtali sl. þriðjudagskvöld sagði Ari Teitsson formaður Bændasamtaka Is- lands að kúariðuumræðan að undan- íornu hefði verið dæmfá og að nær væri að kröftmn yrði beint til þess að berjast gegn umferðarslysum og reykingum. Þessi ummæli voru líkt og töluð út úr mrnu hjarta, en á móti má spyrja bænda- höfðingjann úr Reykjadal hvers vegna sé það ekki gert. Vísast vegna þess þjóðin er nánast daufdumb gagnvart staðreyndum; svo sem þeim að rösklega þrjátíu manns létust af völdum slysa í umferðinni hér á landi í fyrra og krabbi og kransæðastíílur drógu hátt á ijórða hundrað útreykta ís- lendinga til dauða. Það er því morgunljóst að til að fækka slysum eða draga úr reykingum þarf heitar tilfinningar í málið, hvernig sem þær svo skapast eða myndast. Shkt gerist oft af litlum neista. sigurdur@dagur. is Þegar tilfmniQgar vantar MENNIIUGAR VAKTIN Siguröup Bogi Sævapsson skrifar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.