Dagur - 10.02.2001, Page 1

Dagur - 10.02.2001, Page 1
Framsdknarkonur eru að safna liði Formadur Landssam- bands framsóknar- kvenna segir nauösyn- legt fyrir flokkinn að fá konu af höfuðborg- arsvæðinu sem vara- formann flokksins. Konur í Framsóknarflokknum telja mikilvægt að kona af höfuð- borgarsvæðinu verði kjörin vara- formaður Framsóknarflokksins á flokksþinginu í mars og hefur formaður Landssambands fram- sóknarkvenna, Jóhanna Engil- bertsdóttir, rætt við þær báðar, Jónínu Bjartmarz og Siv Frið- leifsdóttur um þetta mál. Hún sagði í samtali við Dag að hún hefði raunar talað við fleiri kon- ur sem kæmu til greina í þetta starf en hún teldi þær Jónínu og Sif líklegastar. Siv Friðleifsdóttir umhverfis- Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra. ráðherra hefur sagt aðspurð um hvort hún gefi kost á sér til vara- formennsku að það sé ekki tíma- hært að greina frá því hvað hún ætli að gera. Jónína Bjartmarz sagði í samtali við Dag í gær að hún væri að hugsa málið en myndi ekki taka ákvörðun allra næstu daga. Hún tók það skýrt fram að hún byði sig ekki fram Jónína Bjartmarz atþingismaður. bara sem kona heldur sem ein- staklingur í flokknum. Kona af höfuðborgarsvæðinu Jóhanna Engilbertsdóttir sagði í gær að hún teldi það skipta mjög mildu máli að öflug kona af höf- uðborgarsvæðinu yrði kjörin varaformaður flokksins. Hún sagðist telja mestar líkur á að þær Jónína og Siv, önnur hvor eða báðar gæfu kost á sér til varaformennskunnar. „Nú eru komnir fram tveir karlmenn sem gefa kost á sér, þeir Guðni Agústsson landbún- aðarráðherra og Olafur Orn Har- aldsson alþingismaður. Enda þótt þeir séu afbragðsmenn báð- ir tveir, þá tel ég sterkara fyrir flokkinn að það verði kona kjör- in varaformaður og að hún komi af höfuðborgarsvæðinu enda tel ég nauðsynlegt að efla Ilokkinn þar sem fjölmennið er,“ sagði Jó- hanna. Hún var spurð hvort menn vissu hvert hlutfall kvenna verð- ur á flokksþinginu. Hún sagðist ekki hafa þá tölu enn þá en taldi víst að konur næðu því ekki að vera helmingur þingfulltrúa. Hún benti á að það skipti ekki öllu máli því karlar geta kosið konur og konur karla þegar til þings kemur. Fólk horfi ef til vill fyrst og fremst til öflugra ein- staklinga. — S.DÓR Þjdðin velji öll Islendingar telja að það sé ekki hara mál höfuðborg- arbúa hvað verður um Reykjavíkurflugvöll. I skoðanakönnun Dags á visir.is kemur í ljós að drjúgur meiri- hluti svarenda telur að þjóðin hafi öll eitthvað um málið að segja. Þannig spurði Dagur: „Eiga allir landsmenn að fá að greiða atkvæði um Reykjavíkur- flugvöll? og svöruðu um 3.600 manns. Já sögðu 1990 en nei sögðu 1611. Þetta þýðir að 55% íslendinga vilja að landsbyggðin ráði einhverju um málið líka en 45% eru því andvíg. Nú gefst landsmönnum færi á nýrri spurningu sem er. Er lík- legt að háralitur og hæð hafi áhrif á launakjör landsmanna? Slóðin er sem fyrr: visir.is. — lil> í gær veittu stúdentar við Háskóla íslands einum kennara skólans verðlaun, svokölluð netverðlaun kennara, fyrir framúrskarandi áherslu á notkun Netsins í kennslu. Verðlaunin fékk Ágúst Kvaran prófessor en fjölmargar ábend- ingar bárust frá stúdentum um gagnlega netnotkun hans. Ágúst tekur hér við verðlaununum sem voru IBM Thinkpad fartölva. Halldór Blöndal. Sjókvíaeldi í Hrísey? Þingmaður Samfylkingarinnar, Svanfríður Jónasdóttir, segir stjórnarþingmenn á Norðurlandi eystra hafa verið lítt undirbúna á borgarafundi í Hrísey um at- vinnumál eyja- skeggja. Hall- dór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis- floldcs og forseti Alþingis, segir þetta alrangt og hann hafi t.d. átt mörg samtöl við sveitarstjór- ann og reynt að vinna að málefn- um Hríseyinga cftir bestu getu. „Það er rétt að við Iofuðum ekki Hríseyingum að færa þeim t.d. 500 tonna þorskígildiskvóta til þess að setja á fót myndarlega saltfiskverkun og taka kvótann af öðrum byggðarlögum. Byggða- kvóti til fimm ára er ekki rétt ákvörðun og við Tómas Ingi Ol- rich höfum sagt að ekki hafi ver- ið til þess ætlast að binda kvót- ann svo lengi þannig að Byggða- stofnun gæti gripið inn í ef ein- hvers staðar skapaðist ástand eins og í Hrísey nú. Ef bvggða- kvótinn á að vera varanlegur kvóti eru það gjáfir sem eru færðar ákveðnum aðilum, ein- staklingum eða héruðum, og teknar frá öðrum. Einn þing- manna sagði að Grímseyingar ættu að láta af hendi kvóta til Hríseyinga, en auðvitað gengur svoleiðis umræða ekki. Við eigum að vinna að því að skapa skilyrði fyrir heilbrigðum atvinnurekstri í Hrísey Hrísey og ég vil benda á að fiskeldi eins og Samherji hyggst koma á í Eyja- firði skapar mögideika á að vinna úr þeim afla í Hrísey, sem liggur beint við. Sumir segja reyndar að laxeldi í sjó geti verið hættulegt villta laxinum og vilja ekki taka þá áhættu. En ég spyr þá hvort ekki sé vilji til þess að halda Hrísey í byggð," segir Halldór Blöndal. — GG Svanfríður Jónasdóttir. Útlitið og áhrifm á laimin bls. 32 33 Meimingar- stefna á skjön við veruleik- ann bls. 34 Veiðiskýrslu- skilað á tölvutæku formi bls. 28

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.