Dagur - 10.02.2001, Qupperneq 7

Dagur - 10.02.2001, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2001 - 31 Thgur. RITS TJÓRNARSPJALL „Survivor“ Þjóðfélagssáttmálaheimspeking- ar upplýsingatímabilsins böfðu hver sína mynd af mannlegu eðli og því samfélagi, sem yrði til ef líf manna stjórnaðist af óbeisluð- um bvötum þeirra og náttúru. Þetta ástand kölluðu þeir yfirleitt „ríki náttúrunnar". í slíku (ímynduðu) ástandi rar líf ein- staklingsins hvorki eftirsóknar- vert né öruggt, þannig að þjóðfé- lagssáttmáli þurfti að koma til svo lífsskilyrði vrðu bærileg og samfélagið siðað. I ríki náttúr- unnar, eins og t.d. Bretinn Thomas Hobbes sá það fyrir sér, eru menn sjálfselskir, eiginhags- munaseggir, sem reyna hvað þeir geta til að fullnægja sínum eigin þörfum og löngunum. En þessi sókn í sjálfsfullnægju er alls ekki auðveld, því mannskepnan - með öllum sínum fjölbreyttu einstak- lingum - er sköpuð svo jöfn að enginn einn getur verið viss um að hafa þann styrk til að bera að geta fullnægt þörfum sínum þeg- ar þær rekast á þarfir annarra. Þess vegna verður ástandið í ríki náttúrunnar óþolandi þegar á heildina er litið, og eitt af því sem blundar í eðlinu líka er þrá- in eftir rcglu og öryggi, sem lítið er af í þessari stöðu. Hobbes á einmitt einhverja frægustu lýs- inguna á ríki náttúrunnar þegar hann lýsir tilvcrunni þar sem snautlegri, illgjarnri, ruddalegri og stuttri. Og til að komast út úr þessari stöðu gera menn þjóðfé- lagssáttmálann. I tilfelli Hobbes framselja þeir ýmis af sínum náttúrulegu réttindum lil yfir- valds, konungs eða Leviatan eins og Hobbes nefndi hann, sem á móti þarf að tryggja þcgnunum öryggi. Lykill að samfélaginu Ríki náttúrunnar birtist auðvitað í dáb'tið öðrum myndum hjá öðr- um höfundum Upplýsingarinnar síðar, en grunnhugmyndin er alltaf sú sama: menn styðjast við ríki náttúrunnar til að finna út hvert er eðli þjóðfélagssáttmál- ans og valdsins í samfélaginu sem menn búa í á hverjun tíma. Kénningarnar gátu orðið afskap- lega flóknar og viðamiklar enda miklir andans menn á ferð, þótt Hobbes sé nú sá þeirra sem sendur hjarta þess sem þetta rit- ar alltaf næst. Kannsld starfar það dálæti af samkennd með íþróttamanninum Hobbes, sem mun hafa haft það fyrir reglu að leika garð-tennis tvisvar á ári og syngja annað slagðið skoskar smalavísur til að halda líkaman- um og lungunum í sem bestu formi! Mauneðlið En því eru hér rifjaðar upp kenn- ingar um náttúruríki, að svo virð- ist sem nútímamaðurinn sé enn á ný farinn að leita að grunnþátt- um í mannlegu eðli með því að kanna hvernig hann bregst við þegar hann er kominn í einhvers konar ríld náttúrunnar. Nú eru það að vísu ekki séntilmenn upp- lýsingatímabilins, sem hugsa þessa náttúruríkiskenningar upp, heldur er farið með hópa fólks út í óbyggðir og þeir látinir takast á ög upplifa bvernig það er að vera í samfélagi, þar sem lífið er allt í senn snautlegt, illgjarnt, rudda- lcgt og stutt. Síðan eru herleg- heitin kvikmynduð og afrakstur- inn sýndur í sjónvarpinu okkur hinum, sem ekki komust með í þessa fyrirheitnu ferð í ríki nátt- úrunnar. Og sjónvarpsþættirnir sem fengið hafa nafnið „Survi- vor“ slá í gegn vegna þess að þeir snerta með einhverjum dularfull- um hætti við frummanninum í svo mörgum. (Fyrir þá sem ekki hafa séð þessa þætti er rétt að upplýsa að þeir ganga út á að far- ið er með hóp fólks á afvikinn stað þar sem það Ieysir ýmis verkefni og greiðir síðan atkvæði um að einhver(jir) úr hópnurn verði að hverfa af vettvangi og úr leik. Sá vinnur sem síðastur stendur uppi og hreppir hann milljón dollara og sportbíl, eftir því sem ég best veit. Nema hvað að við svona aðstæður revnir á manneðlið og snilli manna í að mynda bandalög gegn þeim sig- urstranglega og svíkja síðan hina sem síst áttu von á slíku. Allt til þess að ná sínu fram.) Það er sagt mikilvægt varðandi vinsældir þessara sjónvarpsþátta, sem nú eru sýndir á Skjá Einum, að þeir scm taki þátt í þeim séu „venjulegt fólk", rétt eins og við hin sem erum að horfa á. íslenskt survlvor Nú virðumst við Islendingar vera að eignast okkar eigin „Sur\ ivor“, að fylgjst með. Varaformannskjör Framsóknarflokksins er að taka á sig þá óvanalegu mvnd, að svo virðist sem meirihluti þingflokks- ins sé kominn í framboð. Þar er að vísu hvorki f boði milljón né sportbíll, en varaformennskan ein og hefur greinilega sömu áhrif. Þegar hafa tveir lýst yfir formlegu framboði til embættis- ins, en miklu fleiri eru heitir og geia framboði undir fótinn. Auk þcirra Guðna Agústssonar og Ólafs Arnar Haraldssonar sem þegar hafa gefið út sínar yfirlýs- ingar, er Ijóst að Siv Friðleifs- dóttir blýtur að hafa hug á emb- ættinu. Hún hefur þegar boðið sig fram einu sinni, gegn þáver- andi krónprinsi flokksins, Finni Ingólfssyni og gekk ótrúlega vel, þótt ekki hefði hún sigur. Þá ber- ast fréttir af því að Hjálmar Árnason og Kristinn Fl. Gunn- arsson séu að hugsa sig um. Jón- ína Bjartmarz hefur ekki útilokað neitt, nema síður sé og enn hafa menn ekki gcfið Ingibjörgu Pálmadóttur upp á bátinn þrátt fyrir að líkur á framboði hennar hafi minnkað vegna óvænts, og vonandi tímabundins heilsu- brests. Einnig virðast menn ckki tilbúnir til að afskrifa aðra þing- menn sem nefndir hafa verið til sögunnar í umræðunni, þó þeir hafi sjálfir ekki gefið hugmynd- inni mikið undir fótinn. Þetla er fólk eins og Valgerður Sverris- dóttir og Jón Kristjánsson. Hver hugsar um sinn rass En jafnvel þótt menn einskorði sig bara við þá sem tclja verður nokkuð heita, þá cr Ijóst að í það minnsta hálfur þingflokkurinn er að íhuga varaformennsku í al- vöru. Slík íhugun svo margra manna í ekki stærri flokki þýðir aúðvitað að miklir útreikningar eru í gangi og möguleikar á bandalögum og óvæntum Ieikj- um eru kannaðir í þaula. Og þó þessi mynd sé að koma upp á yf- irboröið núna væri barnaskapur að ætla að þetta ástand hafi ekki grasserað undir yfirborðinu um talsvert skeið. 1 slfkri stöðu cru samflokksmenn ekki eingöngu samflokksmenn heldur líka hugsanlegir andstæðingar. Ríki náttúrunnar bankar upp á í þing- flokknum. I slíku ástandi er auð- vitað að mörgu að hyggja, því „hver hugsar um sinn rass“ eins og glöggur framsóknarmaður, sem fannst nóg um metnað þing- manna sinna, sagði við mig í vik- unni. Þeir sem sjá frarn á að hreppa ekki aðalvinninginn vita að hugsanlega gætu verið auka- vinningar í stöðunni, t.d. ráð- herrasæti í ríkisstjórn við næstu hrókeringar eða þá jafnvel síðar. Hér erum við að tala um ástand þar sem einstaklingsframtakið blómstrar, en varasamara gæti verið að reikna með kraftmikilli liðsheild. Kórsöngurinn líður fyr- ir einsöngvaradrauma meðlim- anna. Að losna úr náttúrurikinu Samkvæmt þjóðfélagssáttmálan- um í Framsóknarflokknum \erö- ur það þó einungis einn sem hreppir hnossið og verður vara- formaður. En rétt eins og hjá Hobhes og öðrurn þjóðfélagssátt- málaspekingum þá munu völd varaformannsins og staða, þó ráðast af því hvernig náttúrurík- isástandið í flokknum er og verð- ur. Dæmið af Ingu Jónu Þórðar- dóttur og Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík er til að mynda lýsandi fy'rir það sem gerist þegar sigur- vegarinn í Survivorleiknum þarf eftir sem áður að búa við að aðr- ir keppendur sætta sig ekki við sigur hans. I raun losnar hann ekki nema að hluta út úr hinu pólitíska náttúruríki. Enn á eftir að koma í ljós hvernig útkoman verður hjá framsókn og hvort næsti varaformaður nær að Iosna út úr ríki náttúrunnar. Hitt er þó Ijóst, að framvindan til þessa gef- ur ekki tilefni til að ætla að Sur- vivorleikur framsóknarmanna muni gefa sjónvarpsþáttunum neitt eftir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.