Dagur - 24.02.2001, Page 11
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2001 - 35
D^mt.
ERLENDAR FRÉTTIR
Powell til ísraels
UtanríMsráðherra
Bandaríkjaima heim-
sækir ísraelsmenn og
Palestínumenn um
helgina.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er væntanlegur
til Israels í dag og ísraelski her-
inn notaði tækifærið til þess að
þjarma svolítið betur að Palest-
ínumönnum.
Israelski herinn herti vega-
tálmanir sem skipta Ga/.asvæð-
inu í tvennt. ísraelskir skriðdrek-
ar skutu auk þess á tvær bæki-
stöðvar palestínsku lögreglunnar
í gær, og var það svar við árásum
Palestínumanna á tvær land-
nemabyggðir Gyðinga. Einn
Palestínumaður lét lífið og ann-
ar særðist lífshættulega.
Powell ætlar sér tvo daga til
þess að ferðast um lsrael og
sjálfstjórnarsvæði Palestínu-
manna, en þetta er fyrsta heim-
sókn hans til þessa heimshluta í
embætti utanríkisráðherra. Á
sunnudaginn hittir hann bæði
Ariel Sharon, nýkjörinn forsæt-
isráðherra Israels, ogYasserAra-
fat, leiðtoga Palestínumanna.
Sharon segist vonast til þess
að tengsl ísraels og Bandaríkj-
anna verði að einhverju leyti
skilgreind upp á nýtt í viðræðum
þeirra Powells, og vonast Sharon
til þess að minni áhersla verði
lögð á friðarviðræður við Palest-
ínumenn en verið hefur. Hann
segir friðarviðræðurnar vissulega
vera mikilvægar, en önnur sam-
skipti Israels og Bandaríkjanna
hafi beðið skaða af því að áhersl-
an á þær hafi verið of mikil.
Powell ætlar hins vegar að
krefjast þess að ísraelsmenn
dragi úr þeirri einangrun sem
þeir hafa lagt á Palestínumenn
og sjái til þess að ekki verði al-
gert efnahagshrun á sjálfstjórn-
arsvæðum Palestínumanna af
þeim sökum. Engu að síður virð-
ist sem Bandaríkjamenn ætli að
draga að einhverju leyti úr hlut-
verki si'nu sem milliliður í friðar-
ferlinu og leggja í staðinn áher-
slu á að það séu ísraelsmenn og
Palestínumenn sem þurfi að
finna sjálfir lausnir á eigin
vanda.
Palestínumenn fóru í gær í
mótmælagöngu gegn Bandaríkj-
unum og brenndu bæði ísraelska
og bandaríska fánann ásamt
pappalíkönum af flugskeytum
með myndum af Powell, George
Bush Bandaríkjaforseta og Ehud
Barak, fyrrverandi forsætisráð-
herra-ísraels.
Fatah, hreyfing Arafats, dreifði
í gær blöðum þar sem Palestínu-
menn voru hvattir til þess að
skjóta ekki á ísraelskar land-
nemabyggðir né herbækistöðvar
frá íbúðasvæðum Palestínu-
manna, enda megi þá búast við
að lsraelsmenn endurgjaldi það
með skothríð.
Meira en 400 manns hafa lát-
ið lífið í átökum ísraelsmanna og
Palestínumanna frá þ\'i í sept-
ember, þar af meirihlutinn
Palestínumenn og á annan tug
eru ísraelskir Arabar.
HEIMURINN
Rándýrar eldflaug-
ar hittu ekki
WASHINGTON - Bandarískar
flugvélar hafa gert loftárásir á loft-
varnarstöðvar í norðurhluta íraks.
Þetta er f annað sinn á nokkrum
dögum sem slíkar árásir eru gerðar.
Þótt George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, segði á blaða-
mannafundi að árásirnar hefðu
tekist vel, hafa hernaðaryfirvöld
játað að fjöldi eldflauga hafi misst
af skotmörkum sínum í árásunum
sem gerðar voru fyrir rúmri viku
síðan. Sumar þeirra lentu hátt í
hundrað kílómetrum frá þeim stað
sem þær áttu að hitta. Flaugar
þessar eru rándýrar - kosta um 300
þúsund Bandaríkjadali stykkiö.
Blair viU ræða Stjömustríðsáætliuiina
WASHINGTON - Tonv Blair, forsætisráðherra Bretlands, er kominn
i' opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og mun eiga fundi með Geor-
ge W. Bush forseta. Hann sagði á blaðamannafundi í gær að það
væri „rétt og skynsamlegt" að ræða áætlanir bandarfskra stjórnvalda
um varnarkerfi gegn eldflaugaárásum, en þær hugmyndir hafa mætt
mikilli andstöðu leiðtoga Rússa, Kínverja og fleiri þjóða. Ef þessum
hugmyndum verður hrundið í framkvæmd þarf að endurnýja ratstjár-
kerfi í Bretlandi. Margir óttast að uppsetning kerfisins kunni að leiða
til nýs vígbúnaðarkapphlaups.
Öryggisheltið gaf sig
ROCKINGHAM - Rannsókn hefurleitt í Ijós að kappaksturskappinn
Dale Earnhardt lét lífið vegna þess að öryggisbeltið slitnaði. Hann
lenti f árekstri í Daytona 500 kappakstrinum síðastliðinn sunnudag
og lést af höfuðáverkum sem hann fékk þegar beltið slitnaði.
Á aiuiað hundrað bílar í árekstri
WASHINGTON. - Að minnsta kosti 120 bílar lentu í árekstri á þjóð-
vegi 95 í norðurhluta Virginíuríkis þegar hríðarbylur skall á. Einn lét
Iífið en á annað hundrað slösuðust, þar af nokkrir alvarlega. Fyrst
rákust tvö ökutæki saman þegar ökumenn þeirra sáu ekki út úr aug-
um, en síðan hver bíllinn af öðrum. Þrátt fvrir mjög slæmt skyggni
voru margir bílanna á allt að níutfu kílómetra hraða. Blindbylurinn
hefur geisað á stóru svæði á austurströnd Bandaríkjanna og kostað
að minnsta kosti 11 manns lffið að sögn yfirvalda.
Margir falla á Bomeo
SAMPIT, INDÓNESÍU. - Þúsundir manna flýja nú harkaleg átök á
eyjunni Borneo. Átökin eru á milli ólíkra þjóðflokka og hafa þegar
kostað að minnsta kosti 165 mannslíf. Her lndónesíu hefur sent
flutningaskip til átakasvæðisins til þess að flytja flóttafólkið til hafn-
árborgarinnar Surabaya á eyjunni Jövu. Átökin eru á milli innfæddra
af Dayak-ættum og innílytjenda frá eyjunni Madura. Borgin Sampit
er í urn 480 rnílna fjarlægð frá höfuðborg Indónesíu, Jakarta.
■ FRÁ DEGI
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR
55. dagur ársins, 310 dagar eftir.
Sólris kl. 8.52, sólarlag kl. 18.31.
Þau fæddust 24. febrúar
• 1786 Wilhelm Grimm, annar þýsku
Grimmsbræðranna sem söfnuðu þjóð-
sögum og ævintýrum.
• 1791 Sveinbjörn Egilsson skáld og
rektor.
• 1871 Sigríður Tómasdóttir í Brattholti.
• 1924 Guðrún Á. Símonar óperusöng-
kona.
• 1932 John Vernon, bandarískur leikari.
• 1941 Engilbert Jensen trommuleikari
og söngvari.
Þetta gerðist 24. fehrúar
• 1868 samþykkti fulltrúadcild Banda-
rtkjaþings að kæra Andrew Johnson
forseta til embættismissis, og var það í
fyrsta sinn í sögunni sem það gerðist.
TIL DAGS
• 1946 var Juan Domingo Peron kosinn
forseti Argentínu.
• 1991 hófst innrás landhers Bandaríkj-
anna og bandamanna þeirra í Kúveit og
írak eftir sex vikna loftárásir.
• 1992 fórst á Halamiðum skuttogarinn
Krossnes frá Grundarfirði.
Vísa dagsins
Þó að formi björgin brotni,
bili himinn og þorni upp mar,
allar sortni sólimar,
aldrei deyr, þótt allt um þrotni,
endurminningin þess, sem var.
Grínnir Thomsen
Þegar ríkisstjórn nær árangri, þá er um
einræði að ræða.
Harry S Truman
Afmælisham dagsins
Gunnar Eyjólfsson leileari er 75 ára í dag
og heldur upp á daginn með því að fara
með valda kafla úr Pétri Gaut í Þjóðleik-
húsinu. Gunnar sté lýrst á sviö hjá Leik-
félagi Reykjavíkur árið 1945, en réðst til
Þjóðleikhússins árið 1961. Hann hefur
leikið Ijölmörg af stærstu hlutverkum
leikbókmenntanna, meðal annars
Hamlet Danaprins, Odipus konung,
Faust og fyrir aldarfjórðungi fór hann
með hlutverk Péturs Gauts sem hefur
verið honum hugleikið undanfarið.
Heilahrot
Sex nemendur v'oru að taka próf í tslands-
sögu með þremur spurningum og voru svör
þeirra sem hér segir:
Árni svaraði: 1) Jón Sigurðsson, 2) Jón Sig-
urðsson, 3) Jónas Hallgrímsson.
Bjarni svaraði: 1) Jónas Hallgrímsson,
2) Jónas Hallgrímsson, 3) Jón Sigurðsson.
Davíð svaraði: 1) Hannes Hafstein,
2) Hannes Hafstein, 3) Jón Sigurðsson.
Einar svaraði: 1) Jónas Hallgrímsson,
2) Jón Sigurðsson, 3) Hannes Hafstein.
Finnur svaraði: 1) Hannes Hafstein,
2) Jónas Hallgrfmsson, 3) Jónas Hallgríms-
son.
Gunnar svaraði: 1) Jónas Hallgrímsson,
2) Hannes Hafstein, 3) Hannes Hafstein.
Allir svöruðu þeir a.m.k. einni spurningu
rétt. Hver eru þá réttu svörin?
Sfðasta gáta endurbirt: Eftirfarandi
hókstafir eiga allir eitt einkenni sameigin-
legt: S, H, O, N, I, X. Auk þessara stafa er
einn bókstafur í viðbót sem hefur þetta
sama einkenni. Hvaða stafur er það?
Lausn: Það er bókstafurinn Z. Þessir
stafir eiga það sameiginlegt að þeir líta eins
út ef þeim er snúið á hvolf.