Dagur - 02.03.2001, Qupperneq 5
FÖSTUDAGVR 2. MARS 2001 - S
FRÉTTIR
Byggðastefna nkis-
stjomar gagnrýnd
Kristirw H. Gunnarsson stjórnarformaður Byggðastofnunar: „Vel hefur tek-
ist með þá byggðastefnu að efia höfuðborgarsvæðið."
Aðgerðir stjómvalda í
byggðamálum likt við
vanbúið slökkviliö sem
kemur of seint á vett-
vang og keiiiur stuud-
iLin alls ekki. Byggða-
málaráðherra ekki með
í ráðum um lokun póst-
húsa í Skagafirði.
Stefna ríkisstjórnarinnar eða
stefnuleysi í byggðamálum var
harðlega gagnrýnd í utandag-
skrárumræðu á þinginu í gær, sem
Jón Bjarnason, vinstri grænum,
var upphafsmaður að og laut að
stöðu almenningsþjónustu á
landsbyggðinni. Tilefni umræð-
unnar voru ekki síst áform Islands-
pósts um lokun tveggja pósthúsa í
Skagafirði.
Jón sagði að greiður aðgangur
fólks að þjónustu væri forsenda
byggðar á landsbyggðinni. Sagði
hann miklar áhyggjur ríkjandi yfir
samdrætti í almenningsþjónustu
bæði opinberri og einkaaðila á
landsbyggðinni. Hann benti á að
hundruð manna í Skagafirði hefðu
mótmælt lokun pósthúsanna, en
þau mótmæli hefðu ekki ratað inn
á stjórnarfund hjá íslandspósti.
Jón spurði Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra, sem fer með
byggðamál, hvort upplýsingar
hefðu verið dregnar saman um
fækkun starfa á Iandsbyggðinni,
sem hún kvað nei við, og hvort Is-
landspóstur hcfði kynnt ráðherra
áform sín um lokun pósthúsa, sem
hún kvað einnig nei við.
„Aðför að byggðum landsins“
Valgerður sagði hins vegar að lok-
un pósthúsanna hefði verið rædd
innan ríkisstjórnarinnar og áhyggj-
ur komið þar fram. Hún hefði átt
óformlegar viðræður við ráðamenn
Islandspósts. Jón spurði hvort við
endurskoðun hyggðaáætlana yrði
gerð úttekt á almenningsþjónust-
unni. Sagði ráðherra hugmyndina
um slíka vinnu áhugaverða. Þá
spurði Jón hvort ráðherra teldi
koma til greina að setja viðmið um
lágmarksgæði almenningsþjón-
ustu og aðgang að henni og sagði
ráðherra að gera yrði greinarmun
milli opinberrar þjónustu og þjón-
ustu einkaaðila. Sagði hún að skil-
greining varðandi opinbera þjón-
ustu komi til greina.
Fleiri þingmenn tóku til máls og
kváðu sumir sterkt að orði. Gísli S.
Einarsson, Samfylkingunni, sagði
yfirstandandi þjónustuskerðingar
byggðahamlandi og kallaði það
eyðibyggðastefnu að færa störf til
höfuðborgarsvæðisins. Guðjón A.
Kristjánsson, Frjálsþnda flokkn-
um, sagði stefnu stjórnvalda aðför
að byggðum landsins.
Seinfara vanbúið slökkvilið
Samgönguráðherra sté í pontu og
sagði lokun pósthúsanna í Skaga-
firði lið í áætlun um að bæta þjón-
ustuna. Fullyrti hann að stjórnar-
andstaðan væri að reyna að gera
aðgerðir stjórnvalda tortryggilegar.
Kristján L. Möller, Samfylking-
unni, sagði stjórnvöld vera eins og
vanbúið slökkvilið, sem kemur allt
of seint á vettvang og mætir stund-
um alls ekki.
Einna mestu athyglina vöktu
þau ummæli Kristins H. Gunnars-
sonar, Framsóknarflokki, að öílug
byggðastefna hefði verið rekin
undanfarin ár, sem fælust í þeim
mjög svo sértæku aðgerðum, „að
byggja upp öflugt höfuðborgar-
svæði". í þeim efnum hefði vel tek-
ist til!
Ormarr Örlygsson.
Ormarrí
sldnnin
Ormarr Örlvgsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri
Skinnaiðnaðar hf. og mun hann
hefja störf hjá félaginu um miðj-
an mars nk. Ormarr hefur und-
anfarin tvö og hálft ár starfað í
Sviss við þróun viðskiptasam-
banda hjá svissneska efnavöru-
fyrirtækinu TFL, sem sérhæfir
sig í framleiðslu efna fyrir leður-
iðnaðinn. Áður en hann fluttist
til Sviss gegndi hann starfi for-
stöðumanns rannsóknastofu
Skinnaiðnaðar hf. um 10 ára
skeið. Ormarr tekur við starfi
framkvæmdastjóra af Bjarna
Jónassyni, sem hefur veitt ETÍr-
tækinu forstöðu frá stofnun þess
árið 1993 en sagði upp störfum
fvrr í þessum mánuði. Ormarr er
38 ára að aldri, efnafræðingur að
mennt. Hann er kvæntur Val-
gerði Vilhelmsdóttur og eiga þau
4 börn. — BÞ
Sólveig föst í
neti skrautsins?
Samhljóða ályktun lög-
reglwnaima í Reykja-
vík gegn orðum dóms-
málaráherra.
Þrælslund yfírmanna
orsök misræmis í upp-
lýsingum?
Landssamband lögreglumanna
lýsir undrun á að dómsmálaráð-
herra skuli ekki hafa réttar upplýs-
ingar um fjárhagsstöðu lögregl-
unnar í Beykjavík. I gær var sam-
þykkt ályktun þar sem einörðum
stuðningi var lýst við orð formanns
Landssambands lögreglumanna
um yfirvinnubann en dómsmála-
ráðherra hefur sagt að ekkert yfir-
vinnubann hafi verið fyrirskipað.
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, telur óyggjandi
að rannsókn fíkniefnamála hafi
goldið fyrir fjársvelti og niðurskurð
á yfirvinnu í á sérstöku tímabili í
f\Tra. Lögreglustjóri og yfirmaður
fíkniefnadeildarinnar hafa ásarnt
dómsmálaráðherra neitað því að
yfirvánnubann hafi verið sett á í
fyrra og segjast þeir harma um-
ræðu um þessi mál á opinberum
vettvangi. Lúðvík hefur skýringu á
misræmi undir- og yfirmanna lög-
reglunnar. „Það virðist hlutverk
þessara yfirmanna að standa að
baki ráðherranum," segir Lúðvík
og á þar við Sólveigu Pétursdóttur
dómsmálaráðherra.
Stjórn Landssambands lögreglu-
manna varði hluta gærdagsins
niðri í Karphúsi og hafa sumir talið
Lúðvik Bergvinsson: Undarleg við-
brögð dómsmálaráðherra litast af
fyrirheitum og skrautsýningum
sem hún gat ekki staðið við.
að engin tilviljun sé að naumar
Qárveitingar séu umræðuefni á Al-
þingi á sama tíma og kjarabarátta
lögreglumanna er í algleymi. Lúð-
vik segir hins vegar óvarlegt að
setja nokkurt samasemmerki
þarna á milli. I því vísar hann m.a.
til þess að umræða um þetta sé
ekki ný af nálinni. „Þetta hefur
ekkert með kjaramál að gera. Ég
held að svoleiðis tal sé einhvers
konar viðbótamiksemdarfærsla til
að fela kjarna málsins," segir Lúð-
vík.
Þingmaðurinn hefur upplýsing-
ar um að á tilteknu tímabili hafi yf-
irvinnustundir alls ekki verið
vegna rannsóknavinnu heldur hafi
gæsla vegna heimsóknar utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna vegið þyn-
gst auk fleiri atriða. Hann er sam-
mála lögreglumönnum um að Sól-
veig hegði sér með undarlegum
hætti.
Sólveig Pétursdóttir:
Lögreglumenn lýsa furðu
á að hún virðist enn ekki
hafa réttar upplýsingar.
ÓskUjanlegt
„Það þarf algjörlega að draga niður
starfsemi þessara deilda til að Iáta
enda ná saman og af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum leggst ráð-
herra í þessa undarlegu vörn. Ég
bendi á það að fyrsta árið í emb-
ætti dómsmálaráðherra voru
blaðamannafundir og skrautsýn-
ingar á nokkurra vikna fresti, þar
sem kynnt var átak í hinu og
þessu. Reynslan hefur svo kennt
okkur að lítið hefur orðið um efnd-
ir. Þetta er mín skýring á þessu
undarlega hátterni ráðherrans.
Það hafi verið lofað of miklu, en
svo kom á daginn að menn gátu
ekki staðið við yfirlýsingar.“
- Ertu viss um ad rannsóknir liafi
goldiðjyrir fjársvehi?
,Af þeim tölum sem ég hef kom-
ist yfir, sýnist mér óyggjandi að á
þessu tímabil sem bannað var að
vinna yfirvinnu, hafi rannsóknir
mála goldið fyrir það, já.“ — BÞ
Rafmagn lækkar í Hafnarfirði
Frá og með 1. mars lækkar orkuverð heimilistaxta Rafveitu Hafnarfjarð-
ar úr 6,23 krónum fyrir kílówattstund niður í 5,60 kr, eða um 10%. Taxti
fyrir stærri notendur (afltaxti), miðað við orkunotkun 400.000 kwh/ári og
afltopp 100 kw lækkar einnig um 10%. Verðlækkunin er möguleg vegna
fyrirhugaðs samruna Rafveitu Hafnarfjarðar og Hitaveitu Suðurnesja og
tekur gildi frá og með 1. mars. Gert er ráð fyrir að gjaldskrár RH og HS
verði að fullu samræmdar á haustmánuðum. Þá má reikna með enn frek-
ari lækkun taxta á þjónustusvæði Rafveitu Hafnarljarðar, sem nær yfir
Hafnarljörð, Bessastaðahrepp og hluta Garðabæjar (vestan Hrauns-
holtslækjar).
Iðnskólinn í Reykjavík fær veglega gjöf
Saridur ímúr
hf. í samvinnu
\ið m-tec ghm
í Þýskalandi,
Múrarameist-
arafélag
Reykjavíkur og
Múrarafélag
Reykjavíkur
gáfu á dögun-
um Iðnskólan-
um í Reykjavík
vegalega gjöf.
Um er að ræða
múrsprautu af
gerðinni
DUO-MIX
2000 ásamt___________________________________________
öllum auka-
búnaði að verðmæti um 1.000.000 króna. Þessi höfðinglega gjöf mun
efla og styrkja kennslu í múrsmíði við Iðnskólann í Reykjavík og geta
nemendur nú tileinkað sér nýjustu tækni við múrverk. í múrsmíði eru nú
10 nemendur og hefur aðsókn farið vaxandi.
Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Steinar Karlsson for-
maður Múrarafélags Reykjavíkur, Friðrik Andrésson for-
maður Múrarameistarafélags Reykjavíkur, Snæbjörn
Snæbjörnsson kennari í múrsmíði, Baldur Gislason skóla-
meistari og Guðmundur Ingi Karlsson framkvæmdastjóri
Sands ímúrs.
FuUyrðing Búnaðarbaukans rétt
I fjölmiolarýni í blaðinu í fyrradag um fréttatilkvnningu frá Búnaðar-
bankanum var sú fullyrðing bankans að Ijármálaeftirlitið hafi gert at-
hugasemdir við fréttir Bylgjunnar í mars 1999 af umræddu máli dregin í
efa. Við nánari skoðun hefur komið í ljós að umrædd fullyrðing Búnað-
arbankans er rétt. Beðist er velvirðingar á þessari missögn.