Dagur - 02.03.2001, Blaðsíða 7
X^MT'
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 - 7
ÞJÓÐMÁL
Byggðastefna og heildarhyggja
- tímahær hugvekja Ólafs Arnar
IXGVAK
GISLASON
fyrrverandi alþingis-
maður og ráðherra
Grein Olafs Arnar Haraldssonar
alþingismanns í Degi 21. febrúar
síðastliðinn er tímabær bugvekja
um nauðsyn þess að líta á landið
sem eina beild og móta byggða-
stefnu á grundvelli heildar-
hvggju, út frá þeirri sýn að allt
okkar land skuli byggt eins og
kostir þess bjóða og fullnægir
óskum og þörfum fólks um at-
vinnu og búsetu.
Olafur Orn hafnar ríkjandi
togstreituviðhorfum í byggða- og
búsetumálum, þar sem takast á
höfuðborgarsvæði og lands-
bvggðin utan þess. Olafur Orn
ber hag allrar landsbyggðar fyrir
brjósti. Hann stendur að sjálf-
sögðu föstum fótum í samtíma
sínum og tengir því úrræði í
byggðamálum við aðstæður
dagsins í dag. Hann bendir á at-
vinnumöguleika, sem áður voru
ekki í sjónmáli, síst á lands-
byggðinni utan Reykjavíkur.
Hann lýsir þeirri trú sinni að víð-
ast hvar um landið megi nýta
margs konar nútímatækni til at-
vinnusköpunar, m.a. að því er
varðar tölvur, margmiðlun og
fjarskipti. Hafi sitthvað farið úr-
skeiðis að svo komnu í því efni,
telur hann slíka reynslu engan
dauðadóm yfir tölvuvæðingu í
landshlutum fjarri höfuðborg-
inni. Landsbyggðin á að eflast að
nútímahætti en staðna ekki í for-
tíðin ni.
I grein sinni hvetur hann til
þess að framtaksmenn um allt
Iand „herji á verkefnamarkaðinn
á höfuðborgarsvæðinu og bjóði
þar þjónustu sfna“. ,,Ef nauðsyn-
legt þykir,“ segir Olafur Orn,
„þarf að opna augu stjórnenda
opinberra stofnana og einkafyrir-
tækja á höfuðborgarsvæðinu fyr-
ir því að sum störf og einstök
verkefni eru óháð landfræðilegri
staðsetningu."
Þessi hvatningarorð reykvísks
alþingismanns bera framsýni
hans vitni. Þau sýna vilja hans til
þess að stuðla að „framför
landsins alls" eins og löngum
hefur verið kjörorð Framsókn-
arflokksins. I þessum anda hafa
forustumenn Framsóknar-
flokksins í Reykjavík ætíð unn-
Ólafur Öm Haralds-
son minnir á þá stað-
reynd að hyggð og hn-
seta vítt og hreitt um
landið stendur og
feHur með því að
hlúð verði að fisk-
veiðum, fiskvinnslu
og landhúnaði.
ið. Ólafur Örn Haraldsson
þekkir þessa arfleifð og virðir
hana.
En þótt Ólafur leggi áherslu á
mikilvægi tölvutækninnar fyrir
framtíð landsbyggðar, bregst
honum ekki raunsæi í því efni.
Hvað sem Iíður atvinnumögu-
leikum á sviði nýrrar tækni, eru
gamlar undirstöður enn gild-
ustu stoðir atvinnulífsins.
Ólafur Örn segir svo:
„Fara verður í beinharðar að-
gerðir sem tryggja að fyrirtæki
hverrar byggðar búi við rekstrar-
aðstæður sem eru lý'rst og fremst
arðvænlegar og stöðugar, ekki
síst í sjávarútvegi, fiskvinnslu og
landbúnaði. Engir skammtíma-
styrkir leysa ríkið frá þessu lang-
tímaverkefni og ábyrgð. Aðgerð-
irnar geta kostað að ríkisvaldið
þurfi á einhverjum sviðum að
meta hag byggðanna umfram
hámarksarðsemi atvinnugrein-
arinnar. En ekki má gleymast sá
þjóðhagslegi vinningur sem
felst í því að nýta starlsþekk-
ingu, mannauð og fjárfestingar
á hverjum stað, og sá vinningur
fer forgörðum með fólksflótta
og hnignun bvggðarinnar."
Með ofanrituðum orðum
minnir Ólafur Örn Haraldsson
á þá staðreynd að byggð og bú-
seta vítt og breitt um landið
stendur og fellur með því að
hlúð verði að fiskveiðum, fisk-
vinnslu og Iandbúnaði. Þeirri
staðreynd fá nýir atvinnumögu-
leikar ekki breytt. Ef lands-
byggðin á að halda hlut sínum í
byggðaþróun verður að viður-
kenna forgang hennar á sviði
frumframleiöslu á landi og sjó
og úrvinnslu sjávarafla og afurða
landbúnaðar í þorpum og kaup-
túnum.
Ólafur Örn á skilið góðan
stuðning reykvískra kjósenda,
um það þarf ekki að deila. Góð
menntun hans, starfsreynsla og
hæfileikar nýtast vel í nútíma-
stjórnmálum, þar sem þörf er
fyrir tungumálakunnáttu,
skipulags- og stjórnunarhæfi-
leika, fyrirhyggju og framsýni
frekar en nokkru sinni fyrr.
Slíkir hæfileikar koma ótvírætt
að notum í Iramkvæmdastjórn
pólitískra flokka. Ólafi Erni er
því manna best treystandi til
farsælla forustustarfa í Fram-
sóknarflokknum, hvort heldur
varðar mörkun stefnu eða út-
færslu hennar með hagnýtum
úrræðum.
Krahhameinsfélagið í hálfa öld
SIGURÐUR
GUÐMUNDS-
SON
landlæknir,
skrifar vegna
landssöfnunarinnar
Krabbamein er hluti af lífi flestra
íslendinga beint eða óbeint. Um
fjórðungur okkar deyr af völdum
krabbameins, þriðja hvert okkar
fær krabbamein á lífsleiðinni og
flest verðum við aðstandendur
fólks með sjúkdóminn. Þegar
Krabbameinsfélag Islands var
stofnað í júní 1951 var krabba-
mein orð sem margir treystu sér
ekki til að taka sér í munn, um-
ræðan um sjúkdóminn var í mcin-
um. Rætt var urn krabbamein á
svipaðan hátt og við fjöllum stund-
um um sjálfsvíg eða alnæmi nú á
dögum. A þessum 50 árum hefur
mikið breyst. Þekking á tilurð og
eðli krabbameina hefur vaxið
verulega, unnt er að lækna nokkra
illkynja sjúkdóma og meðferð get-
ur haldiö mörgum þeirra í skefjum
og hafa því lífslíkur og lífsgæði
sjúklinga með krabbamein stór-
batnaö á þessum tíma. Mikil þekk-
ing hefur fengist á orsökum
krabbameina, sem lúta bæði að
erfðum og umhverfi. Vega þar or-
sakir úr umhverfinu líklega mun
þyngra.
Nýgengi krabbameina hefur
hins vegar aukist jafnt og þétt á
þessari hálfu öld og hefur aukn-
ingin orðið um 50%, álíka mikil
hjá báðum kvnjum. Þetta er þó
mjög mismunandi eftir tegundum
krabbameina. Hjá körlum hefur
nýgengi blöðruhálskrabbameins
aukist einna mest eða nær fimm-
falt. Hin mikla og stöðuga aukning
lungnakrabbameins hjá körlum
stöðvaðist hins vegar lýTÍr 20 árum
þó lungnakrabbamein sé enn
næstalgengasta krabbamein karla.
Tíðni ristilkrabbameins hefur
einnig farið vaxandi en úr maga-
krabbameini hefur verulega dregið
og er nýgengið einungis fjórðung-
ur af því sem það var fvrir tæpum
50 árum.
Enn sem fýrr ber brjóstakrabba-
mein hæst hjá konum og hcfur ný-
gengið tvöfaldast og hefur nú ein
af hverjum tíu íslenskum konum
sjúkdóminn. Lungnakrahbamein
er í öðru sæti en þar hefúr aukn-
ingin einnig stöðvast, en mun síð-
ar en hjá körlum, og má tvímæla-
laust rekja það til vaxandi revkinga
kvenna upp úr seinni heimsstyrj-
öld. Ristilkrabbameini vex einnig
fiskur um hn'gg hjá konum en hin
ánægjulega staðreynd hlasir við að
úr leghálskrabbameini hefur mjög
dregið og er enginn vafi á því að
það má fyrst og fremst þakka virkri
leit að sjúkdómnum sem farið hef-
ur fram á vegum Krabbameinsfé-
lagsins ffá 1964. Um það bil 30
þúsund konur koma í leit að þess-
„Þörf er á að efla
stuðning viö sjúMinga
með krabbamein
þauuig að þeir fái
nauðsynlega endur-
hæflngu til að geta
sem fyrst haflð eðli-
legt líf og starf að
nýju.“
um sjúkdómi árlega og áætlað hef-
ur verið að um 150 fleiri konur
hefðu dáið af völdum sjúkdómsins
ef leitarinnar hefði ekki notið við.
Krabbameinsfélagið stendur ein-
nig fýrir umfangsmikilli leit að
krabbameini í brjóstum. Hafinn er
undirbúningur að tillögum um leit
að krabbameini í ristli í Ijósi áður-
nefndrar aukningar þess sjúk-
dóms. Fleiri þætti forvarnastarfs
tengdum Krabbameinsfélaginu
má nefna, og ber þar e.t.v. hæst
rannsókn á virkni bóluefnis gegn
veiru sem veldur leghálskrabba-
meini (human papilloma virus,
HPV) sem stendur fvrir d\rum hér
á landi. Er þar farið inn á nýjar
brautir sem opnast með vaxandi
þekkingu manna á tilurð krabba-
meins en talið er lfklegt að mörg
þeirra megi rekja til utanaðkom-
andi áhrifa á borð við veirusjúk-
dóma. Krabbameinsfélagíð hefur
einnig í samvinnu við Tóbaks-
varnarnefnd staðið fýrir öflugri
fræðslu um skaðsemi tóbaks og
hefur dregið talsvert úr reykingum
Islendinga sem betur fer. Reyking-
ar og sjúkdómar þeim tengdir
verða e.t.v. einn af mestu faröldr-
um þessarar aldar í heiminum. A
vegum Rannsóknastofu Krabba-
meinsfélagsins í sameinda- og
frumulíffræði hafa ennfremur ver-
ið stundaðar þróttmiklar rann-
sóknir á erfðum krabbameins og
ber þar e.t.v. hæst uppgötvun
BRCA2 gensins seni tengist tilurð
brjóstakrabbameins, en sú vinna
var unnin í samvinnu við margar
vísindastofnanir víða um heim.
Krabhamcinsfélagið hyggst
beita sér víðar. Þörf er á að efla
stuðning við sjúklinga með
krabbamein þannig að þeir fái
nauðs\Tilega endurhæfíngu til að
geta sem fýrst hafið eðlilegt líf og
starf að nýju. Þörf er á að treysta
og efla slíka þjónustu og hefur fé-
lagið hug á að koma á laggirnar
ráðgjöf og stuðningsmiðstöð með
lækni, sálfræðingum og sjúkra-
þjálfurum sem veita viðtöl og
greiningu og vísa fólki á viðeigandi
kosti. Líkamleg einkenni ýmissa
krabbameina eru erfíð en hin sál-
rænu eru sfst léttbærari.
I tilefni af fimmtugsafmæli sínu
ætlar Krabbameinsfélagið að
gangast fyrir landssöfnun hinn 3.
mars nk. Er þetta í fjórða sinn
sem félagið gengst fvrir þjóðar-
átaki gegn krabbameini á þennan
hátt, en áður var það gert 1982,
1986 og 1990. í öll þau skipti
studdi þjóðin myndarlega við
bakið á félaginu og hvatti það
með því til góðra verka. Eg
mælist til þess að við látum okk-
ar hlut ekki eftir liggja í þetta
sinn og að sem llestir Islendingar
sjái sér fært að veita félaginu
þann stuðning sem það leitar eft-
ir. Fá félagasamtök hérlend hafa
unnið jafnrækilega til þess.