Dagur - 02.03.2001, Síða 17

Dagur - 02.03.2001, Síða 17
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 - 17 Thypir JJML Þettaer auðvitað bilun! „Efég er í frii einn dag þá h't ég út eins og sauður, stend einhvers staðar á horni og lít ikring um mig eftir einhverju að gera," segir atorkukonan Halla Vilhjálmsdóttir. mynd: hari Halla Vilhjálmsdóttirhefur sungið og leikið opinberlega frá unga aldri. Nú æfirhún aðalhlutverkið íKabaretthjá Kvennó og sló ígegn í sjón- varpinu nýlega erhúnflutti lag úrþeim söngleik í þættin- um Gettu betur. Halla er 19 ára og er á síðasta ári í Kvennaskólanum. Reyndar hoppaði hún þar yfir einn bekk. Tók fyrsta árið og fór svo beint yfir á þriðja árið. Fyrsta spurn- ing verður því: Hvernig fórstu að þessu? „Ég veit það ekki. Maður hugsar alltaf: Nú ætla ég að einbeita mér að náminu. Svo gerir maður það en áður en við er iitið er maður farinn að einbeita sér að tvennu og svo þrennu. Ég er alltaf með fullbókaðan dag. Er nefnilega vinnualki eins og faðir minn, sem er Vil- hjálmur Guðjónsson tónlistarmaður. Hann viðurkennir það bara ekki, sá er munurinn! Hann er mjög agaður og er mér mikil fyrirmynd en hann vinnur fram á nætur. „Þetta er bara bransinn," segir hann. Móðir mín, Louisa Einars- dóttir er líka mjög góð kona, ég tel mig heppna með fjölskyldu.“ Að sækja inn í leiklist í London - Pú varst úti í löndum þegar ég œtlaði að ná í þigfyrst. Hvað ertu að bralla? „Ég er búin að fara tvisvar til London í þessum mánuði. Er að sækja þar um leiklistarskóla. Það er erfitt prógram og stíft. En ef maður á skilið að komast inn þá kemst maður. Ég fer ai'tur út í apríl og enn aftur í maí. Ég er komin í lokaprufu í einum skóla og þá eru líkurnar einn á móti tíu á að vel gangi. Þetta er skólinn sem Jeremy Irons og Daniel Day-Lewis voru í. Það er dálítið fyndið. Maður verður svo lítill á svona stöðum." - Hvaða listir þarftu að leika í svona inntökuprófum. Geturðu notað lagið sem þú söngst fyrir okkur í Gettu bet- ur? „Já, ég gerði það. Svo er ákveðinn grunnur sem er alltaf settur fyrir. Það er eitt eintal úr Shakespeare verki og annað nútímaverk. Svo er spuni og hreylingar sem maður þarf að sýna.“ - Ert þú ekki með þetta allt á tœru? „Það er örugglega helmingur þeirra sem eru að sækja um með þetta allt á tæru. Þetta er svipað hér á landi. Ég er líka búin að sækja um í leiklistarskól- anum hér og fer í prufur í mars.“ - Pú ert sem sagt ákveðin í að verða leikkona? „Já, og söngkona. Ég er að taka 5. stigið í Söngskólanum í vor og þegar ég er að sækja um í leiklistinni finn ég hvað ég er heppin að hafa lært eitthvað í söng.“ - Ertu ekkert að ætla þér um of. Að taka stúdentspróf stigspróf og inntöku- próf í leiklistarskóla bœði hér og í London, allt sama vorið og syngja auk þess aðalhlutverk í stórum söngleik? „Jú, þetta er auðvitað bilun. Ég ætti eiginlega ekki að vera lifandi ef maður spáir í það. En þetta er svo gaman. Ég bóka mig alltaf of mikið. Ef ég er í fríi einn dag þá lít ég út eins og sauður, stend einhvers staðar á horni og lít í kring um mig eftir einhverju að gera.“ - Hvað varstu gömul þegar þú byrjað- ir að koma fram opinberlega? „Sjö ára. Ég byrjaði að syngja í sjón- varpsauglýsingum, var auglýsinga-ofvirk um tíma. Ég er mjólkurdropinn Dreitill meðal annars. Svo fékk ég mína fyrstu leikreynslu átta ára. Þá lók ég strák í Medeu, grískum harmleik, í lðnó.“ - Ilafði það ekki áhrif á þig að vera í svo dramatískri sýningu? „Jú, en ég hafði bara svo mikinn áhuga á því sem var að gerast. Ég var ekki með eina einustu setningu í sýning- unni en ég kunni allt leikritið utan að. Þetta var geysiskemmtilegur tími.“ - Ekkert erfitt að vakna í skólann eftir sýningar? „Nei, ég hef alltaf haft gaman af skól- anum líka. Þegar ég hugsa til baka þá hef ég aldrei verið í einhverju einu. Eftir Medeu rúllaði þetta áfram og eitt verk- efnið tók við af öðru, útvarpsleikrit, meiri auglýsingar og geisladiskar. Söng sóló inn á geisladisk í fyrsta sinn 11 ára gömul. Svo lék ég í Bugsy Malone, söng þar titillagið og ég söng lag Sverris Stormskers í Söngvakeppni sjónvarpsins í fyrra. Einnig hef ég unnið við kynning- ar og fyrirsætustörf. Ég er athyglissjúk! - Varstu ekki líka að leika í kvik- mynd? „Jú, ég lék aðalhlutverkið í myndinni Gemsar eftir snillinginn Mikael Torfason sem samdi bæði handrit og leikstýrði. Hún kemur víst ekki út fyrr en næsta haust. Ég á el'tir að syngja eitt lag í þeirri mynd.“ Alltaf í einhverju sprikli - Ertu ekki orðin múruð? Búin að vera í vinnufrá sjö ára aldri? „Nei, það er líka allt svo lengi að skila sér. Þegar mann vantar pening þá gerir maður eitthvað og fær svo ekki borgað fyrr en næst þegar mann vantar pening! Ég er með gulan miða í dag- bókinni minni þar sem stendur: ógreidd laun og svo kemur listi. Ég þurfti samt aldrei að fá vikulega vasapeninga hjá foreldrum mínum. Ég gat keypt mér trambolín, á alltof mikið af fötum og auk þess bfi þannig að ég hef haft nóg en ég er ekki rík. Alltaf fæ ég kredit- kortareikninginn minn, ég hef ekki sloppið við það!“ - Svo hefurðu líka verið í dansi, er það ekki? „Jú, ég var alltaf x einhverju sprikli, ballett í sjö ár, djassballett í þrjú ár og fimleikum í tvö og til að sameina áhugamál og starf fór ég að kenna þolfimi í Woi'ld Class. Þetta er mjög skemmtilegt og allir þurfa jú að hreyfa sig. Séi'staklega svona ofvirkir einstak- lingar eins og ég.“ - Pað er gott fyrir leikara að vera liðuga. Verða þeir ekki að geta allt? „Jú, ég væri nokkuð góð í sii'kus, hugsa ég. Ég get til dæmis setið á hausnum á mér. Þannig hef ég alltaf verið. Mamma segir líka stundum í gríni að hún viti ekki með hvaða leik- húsfífli hún hafi átt mig! Þetta er bara djók. Þau pabbi eru búin að vera ham- ingjusamlega gift í 25 ár.“ - Áttu einhver systkini? „Við erum þrjú. Ég er í miðjunni og ætti því að hafa fengið minnsta athygli en sú varð ekki raunin. Eldri bróðir minn, Hrólfur er 22 ára í dag. Hann er alger andstæða mín, rólegur og hefur marga eiginleika sem ég vildi hafa.“ - Hvernig er svo yngsta barnið? „Hann Villi litli? Ilann er 11 ára og er þriðja afbrigðið. Allt öðruvísi en við bin en okkur semur öllum vel. Svo er einn enn sem ég ætti að telja upp. Það er hundurinn minn, hann Pjakkur. Ef þú tækir vír, tjargaðir hann og veltir honum upp úr hárum þá værir þú kom- in með hundinn minn! Hann er rosa- lega sætur og svo er hann líka með ein- hvei'ja sirkushæfileika. Getur dansað á afturfótunum.“ Sorglegt en einlægt - Segðu mér aðeins frá Kabarett. „Já, ég hlakka mjög mikið til að leika í því. Þetta er hlutverkið sem hún Lisa Minelli gerði eftirminnilegt. Svolítið sorglegt en einlægt. Það er hæfileikaríkt fólk sem stendur að sýningunni og mað- ur er alltaf að reka upp stór augu yfir því sem það er að gera. Leikstjórinn okkar er Charlotte Böving. Hún er ströng og það er það sem við þurfum. Við erum líka með góðan tónlistar- stjóra sem heitir Hjörleifur Jónsson og og við erum með alvörubúningahönnuð og leikmyndateiknara. Svo klár stelpa úr skólanum sem sér um dansana. Hún heitir Sigyn og við erum með kvenna- hljómsveit eins og vera ber í Kabarett. Svo verð ég að nefna tvö nöfn enn, Bi'yndísi og Rut. Rut er búin að vera potturinn og pannan í öllu heila klabb- inu. Hún er batteríið. Þær eru líka mjög traustar vinkonui'. Ég vildi sko ekki vera vinkona mín því það krefst mikillar þolinmæði.“ - Ég verða að spyrja um strákamálin! „Já, var það ekki! Ég skal segja þér að ég á yndislegan kærasta. Við erum búin að vera saman í eitt og hálft ár. Hann er tónlistarmaður - alveg eins og pabbi. Spilar á gítar - alveg eins og pabbi! Er í hljómsveitinni Jagúar og heitir Börkur Ilrafn Birgisson. Hann er maður sem hægt er að læra mikið af. Börkur Hrafn er ástríðugítarleikari sem er að reyna að lifa á listinni. Það er vissulega erfitt, sama í hvaða grein lista maður er.“ - Heldurðu að hann fylgi þér til Eng- lands ef þú lendir þangað í skóla? „Nei. Þeir Jagúarmenn eru að stefna á Noi’ðurlöndin. Þetta er samheldin og fiott sveit sem á eftir að ná langt. Ég er heitasti aðdáandinn! En ég held hann endi nú í London - það er að segja ef ég fer þangað." gun.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.