Dagur - 02.03.2001, Síða 20

Dagur - 02.03.2001, Síða 20
20- FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 .D^ur Börn sem fá ekki að vera börn Sýningin íslenskt lambakjöt eftir Helenu Stefánsdóttur verður opn- uð laugardaginn 3. mars, kl. 21.00 í húsnæði Undralands á horni Þórsgötu og Baldursgötu. Sýningin er tileinkuð börnum, sérstak- lega þeim sem fá ekki að vera börn. Bömum sem eru ein heima, börnum sem þurfa að gæta yngri systkina sinna, börnum sem beitt eru óréttlæti eða ofbeldi, stríðshrjáðum börnum, börnum sem fengin eru vopn í hendur, börnum sem hafa áhyggjur, börn- um sem eru hrædd. Helena lauk BA prófi í frönsku og heimspeki og hefur einnig hlotið menntun í leiklist, leikstjórn og leikmyndagerð. Hún hefur sett upp og skipulagt sýningar og ýmsa viðburði hér heima og erlend- is. Sýningin í Undralandi stendur til 17. mars og verður opin dag- lega frá kl. 21:00 fram eftir nóttu. Brúðuleikur um Loðinbarða Sögusvuntan frumsýnir nýjan brúðuleik eftir Hallveigu Thor- lacius á afmæli Gerðubergs, sunnudaginn 4. mars, bæði kl. 14.00 og 15.00. Sýningin heitir Loðinbarði og er eldgömul íslensk þjóðsaga um tröllkarlinn Loðinbarða og samskipti hans við systurnar góðkunnu Ásu, Signýju og Helgu. Til dæmis komumst við að því hvernig Helga komst úr öskustónni! Hallveig Thorlacius hefur klætt þessa þjóðsögu í nýjan bún- ing sem öli börn á aldrinum 4-104 ættu að hafa gaman af. Leik- stjórn og leikmynd er í höndum ann- arrar þekktrar brúðuleikkonu, Helgu Arnalds en Sigurður Kaiser sér um lýsinguna. Aðgangur er al- gjörlega ókeypis og öllum heimill og barnvænar veitingar verða í kaffihúsinu. Frönsk rómantík í Hafnarborg Síðrómantísk tónlist frá Frakk- landi mun hljóma á tónleikum Tríós Reykjavíkur sem verða í Hafnarborg sunnudaginn 4. mars og hefjast klukkan 20.00. Þetta eru þriðju tónleikarnir í tónleikaröð tríósins og Hafnar- borgar, menningar og listastofn- unar Hafnarfjarðar. Þar verður flutt: sónata fyrir fiðlu og píanó eftir César Franck, tríó fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Ernest Chausson og einnig verður flutt hið sívinsæla smáverk, Médita- tion úr óperunni Thais eftir Massenet sem er fyrir fiðlu og píanó. Meðlimir Tríós Reykjavíkur eru Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari og Peter Máté píanóleikari.Síðustu tónleikar raðarinnar verða svo þann 1. apríl, en ekki þann 8. eins og áður var auglýst. Þá verða eingöngu flutt verk eftir L.van Beethoven. Áskriftarkort gilda á tónleikana en einnig verða seldir miðar við innganginn. ÞAÐ ER KOMIN HELGI Hvað ætlarþúað gera? Brynhildur Þórarinsdóttir. Góður matur, viuir og vín „Ef opnað verður í Bláfjöllum um helgina ætla ég endilega að bregða mér á skfði. Það lítill snjór hefur verið í fjiillunum í vetur að ekkert hefur verið opnað - og svo mikið hefur verið að gera hjá mér sjálfri í vinnu að ég hef ekki gefið mér tfma til þess að fara út til Italíu í skíðaferð eins og ég hef oft gert,“ segir Brynhildur Þórar- insdóttir, nýbakaður ritstjóri Tímarits Máls og menningar. „Annars verður þetta róleg helgi hjá mér, það væri kannski sniðugt að bregða sér í leikhús og sjá eitthvert þeirra góðu verka sem þar er verið að sýna um þessar mundir. En hvernig er annars betra að slappa af um helgi en með góðum vinum, að borða góðan mat og drekka gott rauðvín með. Hugmyndin er góð.“ Guðrún Agnarsdóttir. Safnað gegn krabbameini „Eg verð önnum kafin ásamt samstarfsfólki mínu hjá Krabbameinsfélaginu og mörgum öðrum sem leggja landssöfnun félagsins lið,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Islands. Aðalsöfnunin verð- ur á Iaugardag og þá heimsækja Lions- og Kiwanisfélagar landsmenn ásamt ýmsum fleiri. Enn vantar þó sjálfboðaliða sem væru til í að fá sér hressandi göngu fyrir gott málefni og von- andibjóða þeir liðveislu sína. Um kvöldið verð- ur veglegur þáttur í Sjónvarpinu. Við finnum nú þegar góðan byr í þessu átaki og erum bjart- sýn en markmið þess er m.a. að koma upp end- urhæfingu fyrir krabbameinssjúklinga.“ Nægur er snjóriim „Þetta er skemmtanahelgi hjá mér,“ segir Bragi Elefsen deildarstjóri hjá Pennanum-Bókval á Akureyri. „Fer á föstudagskvöldið upp í Hlíðar- fjall til að fylgjast með skíðabrettamóti sem þar er haldið, en Penninn og Nokia styrkja mótið með því að gefa farsíma í verðlaun. Þetta kvöld er ég einnig boðinn í afmæli, ég ætla að sjá til hvort ég kemst. A laugardag ætla þarf ég að vinna eitthvað þar sem ég er að fara suður strax eftir helgina og þarf að ljúka ýmsum verkefnum áður. Um kvöldið er stefnan sett á árshátíð Há- skólans á Akureyri sem haldin er f Iþróttahöll- inni - og á eftir verður efalítið farið á Kaffi Ak- ureyri sem núna er tvímælalaust heitasti stað- urinn í bænum. “ ■ HVAD ER Á SEYDI? HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TÓNLIST Föstudagsbræðingur A Föstudagsbræðingi á Geysi Kakóbar í Hinu Húsinu í kvöld koma að þessu sinni fram hijómsveitirnar: Sofandi, Rými og Náttfari sem ætla að leika framsækið og furðulegt rokk. Sofandi ætlar að kynna efni af nýútkominni breiðskífu sinni Anguma, sem verður til sölu á staðnum. Það ættu allir að vakna við undirleik Sofandi. Tónleik- arnir byrja upp úr kl: 20.00. Aðgangur auðvitað ókeypis, ekkert rugl og allir 16 ára og eldri velkomnir. SÝNINGAR Sýningalok í Hafnarborg Sýning á málverkum Sveins Björnsson- ar, Krísmiki] nm iuiir í aðalsal Hafn- arborgar lýkur mánudaginn 5. mars. „Krísuvíkin mín“ heitir sýningin og er fyrsta yfirlitssýning sem haldin er í samvinnu Hafnarborgar og Sveins- safns. Með henni er rifjuð upp saga þessa einstæða listamanns sem ávallt fór sínar eigin leiðir en miðlaði jafn- framt af hæversku reynslu sinni til allra sem sáu verk hans eða höfðu af honum kynni. Hafnarborg er opinn frá kl. 11 - 17 alla daga nema þriðju- daga. Sýning Rutar Rebekku stendur til 26. febrúar. Hvíti Bim Rússneska verðlaunakvikmvndin Hvíti Bim Eyrnablakkur (Béli Bim Tsjornoga Úkha) verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Myndin var gerð í Moskvu á árinu 1977 og byggð á sögu eftir rithöfundinn G. Trojepolskí um hundinn Hvíta Bim Eymablakk, sam- band hans og tryggð við eiganda og margvíslegar raunir rakkans. Leikstjóri myndarinnar Stanislav Rostotskí, var einn fremsti kvikmyndagerðarmaður Rússa á 6.-8. áratugnum. Myndin um Bim er sýnd með enskum skýringum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. OG SVO HITT... Hana-nú Kópavogi Farið rerður í heimsókn í Listasafn Einars Jónssonar og Listasafn Islands í Hafnarhúsinu sunnudaginn 4. mars. Rúta fer frá Gullsmára kl. 14.00 en Gjábakkíi kl. 14.1 5. Kaffi og með því í Hafnarhúsinu fyrir þá sem vilja. Rúta/leiðsögn/aðgangseyrir: 900,- kr. en 500.- kr. fyrir hörn yngri en 12 ára. Allir velkomnir og takið með ykkur gesti. Aríðandi er að skrá sig í síma 554-3400 (Gjábakki) 564-5260 (Gull- smári) sem fyrst. Kynningarnámskeið um störf Amnesty International Laugardaginn 3. mars verður haldið kynningarnámskeið um starfsemi Am- nesty International. Námskeiðið hefst kl. 14.00 í Hinu Húsinu við Aðalstræti (Gamla Geysishúsið). A námskeiðinu r erður fjallað um sögu og uppbyggingu samtakanna, starfssvið og starfsleiðir, fjáröflun og annað sem viðkemur mannréttindastarfi Amnesty Interna- tional. Allir sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemi Amnesty International eru velkomnir. Aðgangur ókev'pis. Staða barnsins í kristinni trú A fræðslumorgnum í Hallgrímskirkju verða næstu sunnudaga lluttir fyrir- lestrar um börn og uppeldi frá ýmsum sjónarhornum. Næstkomandi sunnu- dag, á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar 4. mars kl. 10:00, mun séra Sigurður Pálsson flytja erindi sem hann nefnir Staða barnsins í kristinni trú. Rætt verður hvort Jesús Kristur hafi birt ein- hver ný viðhorf til barna miðað við eig- in samtíð og hvort börn hafi einhverja sérstöðu í kristinni kirkju og ef svo er í hveiju sú sérstaða er fólgin. Að fyrir- lestrinum loknum verður tækifæri til að bera fram fyrirspurnir og umræðu- efni. Málþing um arfleifð Vilhjálms Stefánssonar Málþing verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, Tryggva- götu 17, þriðjudaginn 6. mars, kl. 16:00 - 19:00 á vegum Stofnunar Vil- hjálms Stefánssonar í tilefni af opnun farandsýningarinnar Heimsskautslönd- in unaðslegu: Arfleifð Vilhjálms Stef- ánssonar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, 10. mars til 4. júní 2001. Pabbi, mamma, börn og bók Arleg ráðstefna um barna og unglinga- bókmenntir verður haldin í Menning- armiðstöðinni Gerðubergi 3. mars kl. 11.00. Ráðstefnur þessar eru orðnar fastur viðburður á vormánuðum í Gerðubergi. Aðsókn hefur aukist ár frá ári enda athyglisverð þemu og spenn- andi fyrirlesarar hverju sinni. I ár verð- ur litið yfir farinn veg, staðan í dag skoðuð og skyggnst inn í framtíðina í heimi barnabókmenntanna. Dagskrá: Dagnv Kristjánsdóttir bókmenntafræð- ingur: IIALTU KJAF IT, HLVDDU OG VERTU GÓÐUR. Sjón rithöfundur: MEÐ MANNASKÍT Á TÁNUM. Val- gerður Benediktsdóttir bókmennta- fræðingur: ÚLFURINN í SKÓGIN- UM. Vangaveltur um framtíð íslenskra barnabóka. Ráðstefnustjóri er Þorvald- ur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur. Aðgangur er ókey|)is og öllum heimill. LANPIÐ TÓNLIST Orgeltónleikar í Akureyrarkirkju Hádegistónleikar verða í Akureyrar- kirkju laugardaginn 3. mars kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson leikur á org- el kirkjunnar. Aðgangur ókeypis. Súpa í Safnaðarheimili eftir tónleika. SÝNINGAR Minjasafnið á Akureyri Sunnudaginn 4. mars kl. 14.30 verður bók Sigurðar Samúelssonar „Sjúkdóm- ar og dánarmein íslenskra fornmanna" til sérstakrar umfjöllunar á Minjasafn- inu á Akureyri. Þá mun Brynjólfur Ingvarsson geðlæknir blaða í bókinni, ræða nokkra þætti hennar eða lesa valda kafla. Tilefnið er að fyrir mánuði var sett upp í safninu sýning sem sækir efni sitt í umræddra bók Sigurðar Samúelssonar og stendur hún fram í lok maí. Þar eru tuttugu veggspjöld með myndum og textum um sjúkdóma fornmanna og þær lækningaaðferðir sem beitt var, fjallað um hveijir stund- uðu þessar lækningar og um átrúnað af ýmsu tagi sem tengdist þeim. Einnig eru á sýningunni gömul lækn- ingaáhöld í eigu safna í Eyjafirði og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Aðrar sýningar eru Eyjafjörður frá önd- verðu, Akureyri - bærinn við Pollinn og Snerting - sýning á ljósmyndum Guð- rúnar Funck-Rasmussen. A sunnudag verður safnið opið frá kl. 14 - 16. Það verður kaffi á könnunni og leikföng fyrir yngsta fólkið í barnahorni. Bófaleikur á Broadway í Frey- vangsleikhúsi Bófaleikur á Broadway, en það er hið íslenska heiti á verki Woody Allens Bullets Over Broadway, er viðamikið og fjörugt verk, kryddað ótrúlegum uppákomum, dramatík og kímni, dansi og tónlist. Leikendur eru vel á annan tug og spanna aldursbilið 17-65 ára. Leikstjóri er Hákon Jens Waage. Sýn- ingar verða í kvöld og annað kvöld og hefjast kl. 20.30. Skilaboðaskjóðan á Egilsstöðum Laugardaginn 3. mars mun Leikfélag Fljótsdalshéraðs og Leikfélag Mennta- skólans á Egilsstöðum frumsýna leik- ritið Skilaboðaskjóðuna í Ieikstjórn Sjafnar Evertsdóttur í Valaskjálf á Eg- ilsstöðum. Tónlistarstjóri verksins er Keit Reed. Sýningin er litrík og

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.