Dagur - 10.03.2001, Qupperneq 10
34 -LAUGARDAGUR 10. MARS 2001
Dtotr
FRÉTTIR
Hætt við þjóðarat-
kvæði í Færeyjum
í nýrri áætlun er tek-
ið fram að Færeyingar
séu þjóð með sjálfsá-
kvörðimarrétt og að
stefnt skuli að ftill
veldi. Fullveldi er
hins vegar ekki tíma-
sett og eina ákvæðið
um þjóðaratkvæða-
greiðslu er að hún
fari fram áður en til
fullveldis komi.
Stjórnarflokkunum í Færeyjum,
Þjóðarflokki, Þjóðveldisflokki og
Sjálfstjórnarflokki tókst aðfara-
nótt föstudags að ná samkomu-
lagi um nýja fullveldisáætlun.
Hún var lögð fyrir Lögþing Fær-
evja í gær og er gert ráð fyrir að
hún verði samþykkt. Líf land-
stjórnarinnar hékk á hláþræði
eftir að Högni Hoydal lagði fram
tillögu um að efnt jtöí til kosn-
inga um sjálfstæði, þrátt fyrir að
Anfinn Kallsberg, formaður
Þjóðarflokksins, hefði lagst gegn
því. Milliiganga Helenu Dam,
formanns Sjálfstjórnarflokksins,
bjargaði málinu. I nýju áætlun-
inni er tekið fram að Færeyingar
séu þjóð með sjálfsákvörðunar-
rétt og að stefnt skuli að full-
Frá Þórshöfn í Færeyjum.
veldi. Fullveldi er hins vegar ekki
tímasett og eina ákvæðið um
þjóðaratkvæðagreiðslu er að hún
fari fram áður en til fullveldis
komi. í fyrri áætlun, sem mætt
hafði harðri andstöðu Dana, var
stefnt að fullveldi árið 2012.
Högni Hoydal hefur með þessu
látið í minni pokann fyrir Anfinn
Kallsberg, en Högni sagði fyrir
nokkru um málamiðlun að betra
væri að missa andlitið en að
missa allt sjálfstæðismálið niður.
Högni var talinn líklegastur til
að verða næsti lögmaður, hefði
stjórnin sprungið og efnt hefði
verið til kosninga.
Þingsályktunartillaga, sem
lögð var fram í gær, gerir ráð fvr-
ir að Færeyingar taki við öllum
málaflokkum á næstu árum sem
nú heyra undir Dani, og því
verði lokið í síðasta Iagi árið
2012. Þjóðkirkja og skólamál
eiga t.d. að færast yfir til Færey-
inga 1. janúar 2002, dómstólar í
ársbyrjun 2004 og gjaldeyrismál
í ársbyrjun 2008.
Landsstjórn Færeyja leggur lil
að árlegur fjárstuðningur frá
Dönum, sem nemur um einum
milljarði íslenskra króna, verði
dreginn saman niður í 600 til
700 milljónir króna á fyrri hluta
næsta árs en síðan verði samið
við Dani um að hann verði
óbreyttur næstu 3 til 4 ár þar á
eftir. Stefnt er að því að stofna
sjóð til að mæta sveiflum í efna-
hagslífinu og í hann renni fram-
lag Dana og tekjur af olíu-
vinnslu, verði þær einhverjar.
Aætlun um þjóðaratkvæði hefur
ekki verið sleginn út af borðinu,
en dagsetning hennar hefur ekki
verið ákveðin. Það ræðst af
framkvæmd sjálfstæðisáætlunar-
innar. Ljóst er þó að hætt hefur
verið við þjóðaratkvæðagreiðslu í
Færeyjum 26. maí nk. Danir
stóðu eindregið gegn því. — Gt;
ÞJÓÐMÁL
„Flóamaraii leggié
INDRIÐI
AÐALSTEINSSON
BÓNDI SKJALDFÖNN V/DJÚP
SKRIFAR
Varaformannskosningin í Fram-
sóknarflokknum hefur verið
mjög til umræðu hér í blaðinu
undanfarið. Mér datt því í hug
að raða í tímaröð fáeinum vísum
sem oröið hafa til vegna stjórn-
málaferils og verka eins fram-
bjóðandans. Sá er Guðní Agústs-
son.
Hann barðist vasklega á Suð-
urlandi í síðustu kosningum,
líkti sjálfum sér við Gunnar á
Hlíðarenda, jók fylgi framsóknar
og fékk landbúnaðarráðherrastól
að launum.
Arnesingar hafa lengi þjáðst af
minnimáttarkennd gagnvart
Rangæingum sem hafa fóstrað
Njálssyni, Kára Sólmundarson,
Gunnar á Hlíðarenda og Þórð í
Skógum.
Ámesinga eylzst nú kraftur.
Afarmennis þur er von.
Góður virðist genginn aftur
Gunnar nokkur Húmundsson.
En vandamálin hrönnuðust
upp, svo sem Aðalsteinn L.
Valdimarsson á Strandseljum
greinir frá.
I kjördæmi Guðnci kveisnrnar
gunga dfullu
með kamfílóbakter og
salomonelladrullu.
Svo mannskæð og geðfeld er
ráðherrans st órbýlastej'na
sem starir t blindni á
h agkvær nni fyrirframgefna.
Svo fór Guðni til Austurlanda
og komst nauðuglega lífs af.
Gestgjafans lögum skal lúta
og leysa viðkvæma hnúta
en mérfellur ei við
þann þjóðlega sið
að kyssa kínverska strúta.
Og nú fór fyrir alvöru að gefa á
bátinn. Þórólfur á Ferjubakka
gerði það ekki nógu gott með ís-
lenskum kúm og heimtaði
norskar af Guðna sem greip til
þjóðlegs úrræðis.
Undir feldi linnulaust
lá í mánuð glaður.
Ur því myrkri aftur braust
orðinn kolruglaður.
Raunar kom síðar fram að
mánuðirnir voru sautján undir
feldinum, að viðstöddu tjöl-
menni, en þar sem því verr gef-
ast heimskra manna ráð er þeir
koma fleiri saman var ekki von á
góðu.
Það er grátinn í breiðum
byggðum
brestur í ráðherra dyggðum
sem margkyssti jú
íslenska kií
en sveik hana siðun í
tryggðum.
Síðan urðu kúabændur að
skera landbúnaðarráðherra nið-
ur úr snörunni. Þjóðlendumálið
hefur vakið mikinn úlfaþyt í
sveitum og Guðni fengið sinn
skammt af skömmunum.
Eru á róli ræningjar.
Ríkisstjórn á ferð er þar.
Guðni, Dóri, Davíð, Geir,
drjúgum lendum safna þeir.
Það er í takt við annað í þessu
máli að þeir kumpánar fara rang-
sælis um landið og eru þegar í
kröfugerðinni komnir niður á
fjörur Skaftfellinga. Má því
vænta þegar hringferðinni lýkur
að Grímsey, Drangey, Æðey og
Flatey verði komnar undir ri'ldð.
Framsókn bráðvantar varafor-
mann í stað þcss sem mislánað-
ist, Finns hins frækna.
Við ýmstt var lmnn upp á kant
álvers haldinn þanka,
en nýtur stn með nagblýant
nú t SeðlabanJm.
Guðni skellti sér í varafor-
mannsslaginn og þarf þar á öllu
sfnu að halda og geröi á dögun-
um hosur sínar grænar fyrir
Strandamönnum mcð því að
vekja athygli á staðsetningu
ákveðins líffæris.
Guðni einstætt afrek vann.
Osköp varð égfeginn,
því sjaldgæft er að hitta hann
með hjartað vinstra megin.
Foringjadýrkun er áberandi
hjá varaforman nsefninu.
Fylgispekt við foringjann
er færust leið i tafli slyngu
þó almælt sé að helst vill hann
að Halldór fari i úreldingu.
Þar sem vænta má að varafor-
maður verði formaður með tíð
og tíma hlýtur hjarta lands-
byggðarfólks - þrátt fyrir allt, að
slá með Guðna.
Ykkur þess ég bændur bið.
Brýni í sveitum alla.
Flóamanni leggið lið.
Látið hann ekki falla.