Dagur - 10.03.2001, Blaðsíða 11

Dagur - 10.03.2001, Blaðsíða 11
Ð^ur LAUGA RDAGVR 10. MAHS 2001 - 3S ERLENDAR FRETTIR tmi iwm Sharon reifar hugmyndir um hvernig hægt sé að stöðva átökin á herteknu svæðunum. Sharon sendir Arafat Mðarbréf Sharon býður til Mð- arviðræðna á meðan spenna magnast á her- teknu svæðiumm og í ísrael. Aricl Sharon, nýbakaður forsæt- isráðherra Israels sendi í gær hréf til Yassers Arafáts lcitoga Palestínumanna |>ar sem reifaðar cru hugmyndir um hvernig hægt sé að stöðva átökin og ofbeldið á herteknu svæðunum og hvernig hugsanlega mcgi tengja start- kapla á friðarviðræðurnar til að koma þeim í gang að nýju. Þetta kom fram hjá einum aðstoðar- manni Sharons í gær. Spenna magnast A sama tíma skiptust ísraelskir hermenn og palcstínskir byssu- menn ;í skotum á Ga/asvæðinu og Vesturbakkanum, cn segja má að það hali verið lýrstu alvarlegu árekstrarnir milli lylkinga eftirað Sharon tók formlega við völdum. Einnig voru öryggissveitir Gyð- inga í gær settar í viðbragðsstöðu til að verjast því sem skilgreint er sem „sjálfsmorðs sprcngjuárásir" frá Palestínumönnum cða öfga- flokka úr þeirra röðum. I gær var trúarhátíð í ísracl svokölluð „Purim" og hafa I lamas-samtök- in áður notað þá hátíð lil að gera Israelsmönnum skráveifur. Því mátti í gær sjá ísraclska hermenn standa vörð við flestar verslunar- miðstöðvar, en ótti Israelsmanna er ekki að tilefnislausu því Ham- as-samtökin hétu því að sprengja 10 sjálfsmorðssprengjur þegar Sharon væri kominn til valda. Ekki minnkaði það taugaspcnn- una að á Vesturbakkanum höfðu í gær um 10.000 Palcstínumenn safnast saman lil að mótmæla drápum ísraelsmanna á palest- ínskum borgurum og börnum, og hrópuðu „hefnd, hefnd" og hvöt- tu til þess að látið yrði verða af hótunum urn sjálfsmorðs- sprengjur. Vill hitta Arafat En þrátt fvrir þessa spennu- mögnun, fullyrða aðstoðarmenn Sharons að hinn nýi forsætisráð- herra hafi mjög mikinn áhuga á að hitta Arafat sjálfan til að ræða við hann um hvernig best sé að Ijúka þessu átakaástandi. Ilins vegar fyigir það jafnan skýrt í skilaboðum Sharons að ckki komi til greina að hefja Iriðarvið- ræður fyrr en búið cr að scmja um vopnahlé og ofbeldið og mótmælin séu hætt. I bréfi Shárons til Arafats er talað um nauðsyn þess að þeir komi upp persónulegum samskiptum til að endurnýja friðarferlið. „Eg vona að við getum fundið einhverja leið til að eiga persónuleg sam- skipti í mjög náinni framtíð til að stöðva blóðbaðshringekjuna, hatrið og ollreldið, og koma á ör- yggi og efnahagslegri samvinnu sem muni varða leiðina að sönn- um friði," segir orðrétt í bréfi Sharons. Sovétmenn voru tilbúnir í Kúbudeilunni PRINCETON, N.J.- Skjöl scm levnd var svipt af í gær og fjalla um mat hinna ýmsu deilda bandarísku Ieyniþjónustunnar á því hversu nálægt kjarnorkustríði heimurinn komst í Kúbudeilunni árið 1962 sýna að menn voru mjög ósammála um hættuna þeg- ar ákvarðanir voru teknar. Skjölin eru dagsett ári eftir að sjálf deilan náði hámarki og kem- ur þar í ljós að hluti leyniþjónustunnar taldi að Sovétmenn væru ekki með nægilegan við- búnað til þess að mæta því þegar þáverandi forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy setti hnefann í borðið og hótaði hernaðarátökum ef Sovétmenn drægju ekki hernaðarviðbún- að sinn sem fara átti í Svínaflóa á Kúbu til baka. Á þessi rök var hlustað. Nú hefur hins vegar komið í Ijós að annar hluti leyniþjón- ustunnar hafi upplýst að Sovétmenn væru tilbúnir með þennan bún- að og viðbrögð, þannig að kjarnorkustyrjöldin hefur því verið enn nær en menn ætluðu! John F. Kennedy, fyrr- um Bandaríkjaforseti. Risa-Búddar sprengdir upp KABUL - Stjórnarandstæðing- ar í Afganistan sögðu í gær að talibanastjórnin í landinu væri búin að brjóta niður risa-Búdd- halíkneskin tvö í Bamiyan hér- aði, þrátt fyrir ákall umheims- ins um að gera það ekki. Tals- maður stjórnarandstæðinga sagði að stjórnvöld hefu sprengt stytturnar niður með dýnamíti og þær væru nú al- gerlega horfnar. Mitterand segist saklaus PARIS - Jean-Christophe Mitterrand, sonur fyrrum forseta Frakklands, sagðist í gær vera saklaus af ásökunum um vopnasölu til Angóla. Mitterand yngri svaraði hvasst fyrir sig og skaut á rannsóknarnefndina sem á að vera að rannsaka spillingu í embættismanna- kerfinu þar á meðal hans mál. Hann sagði það ekki vænlegt til árangurs að málið væri rekið á þeim forsendum að hann væri sekur í þessu máli þar til hann gæli sannað með óyggjandi hætti að hann væri saklaus. Hann sagði þetta allt öfugsnúið og hálfgerðar nornaveiðar. Mitterrand. Risa-Búddharnir eru nú rústir einar. Gin- og klanfaveiM í Rwanda KIGALI, Rwanda - Ljóst er að gin- og klaufaveikin hefur nú borist til Afríkuríkisins Rwanda en þar hefur nú vcrið staðfest fyrsta tilfelli þessarar veiki frá því árið 1932. Isidore Gafarsi, sem stýrir búfjár- deild landbúnaðarráðuneytisins þar í landi telur að veikin hafi horist til landsins í síðasta ntánuði og sé nú að breiðast út um landið eins og eldur í sinu. Þessi vandi er af slíkri stærðargráðu að fimm af ell- efu héruðum landsins eru nú komin í einangrun. Fyrir vikið hefur höfuðborg landsins Kigali, verið skorin frá helsla matarbúri sínu og forða af bæði mjólkurvörum og kjöti. ■ FRÁ DEGI TIL DflGS LAUGARDAGUR 10. IVIARS 69. dagur ársins, 296 dagar eftir. Sólris kl. 8.03, sólarlag kl. 19.14. Þetta gerðist 10. mars • 1991 var Davíð Oddsson kosinn for- maður Sjálfstæðisflokksins. • 1985 lést Konstantin U. Tsjernenko, 73 ára gamall, eftir að hala gegnt leiðtoga- embætti Sovétríkjanna f aðéins 13 mán- uði. • 1969 játaði James Earl Ray að hafa myrt Martin Luther King, en tók játninguna síðar til baka og hélt fram sakleysi sínu til dauðadags. • 1967 brunnu til grunna þrjú timburhús á horni Lækjargötu og Vonarstrætis, auk þess sem miklar skemmdir urðu á luisi lðnaðarbankans. • 1944 var Ilnglélagið Loftleiðir hl. stofn- að. • 1880 kom I Ijálpræðisherinn til Banda- ríkjanna frá Englandi. • 1876 sagði Alexander Graham Bell: „Mr. Watson, komdu hingað. Ég þarfn- ast þín," en þetta voru fyrstu orðin sem mælt voru í talsíma, scm Bell var þá ný- búinn að finna upp. Vefföng dagsins Upplýsingar um tövluvírusa frá veiruspek- ingi einum miklum, og hvenær þessar veirur eru veirur og hvenær ekki, er að finna á wwvv.vmyths.com/ Okeypis forrit af ýmsu tagi má einnig finna víða ;í Internetinu, t.d. eru nokkur nytsamleg á vvw w.analogx.com og ógrynn- in öll af forritum er að finna www.winfiles.com Vísa dagsins Svei þeim Trölla- svarta dal, sól þar aldrei skíni bjarta, ástarkisa cin þar stal ólyrirsynju mínu hjarta. Bólu-Hjálmar Þau fæddust 10. mars • 1967 Sharon Stone, banda- rísk leikkona. • 1947 Rúnar Gunnarsson tónlistarmaður. • 1940 Chuck Norris, banda- rískur hasarleik- ari. • 1928 James Earl Ray, mað- urinn sem var sakfelldur fyrir morðið á Martin Luther Ixing. • 1903 Bi.x Beiderbecke, bandarískur d j a s s t ó n 1 i s t a r m a ð u r. • 1892 Arthur Flonegger, franskt tón- skáld. • 1845 Alexander III. Rússakcisari, scm ríkti frá 1881 til 1894. • 1772 Friedrich von Schlegel, þýskur rithöfundur. Þeir sem skilja ekkert annað en það sem hægt er að útskýra, þeir skilja mjög lítið. Marie von Ebner-Eschenbach (1830-1916) Heilabrot Sumt geri ég hart, en sumt mjúkt; marga geri ég fátæka, en fleiri ríka; ef ég er of nærri, þá eyði ég öllu, en allt deyr ef það missir mín. Siðasta gáta: Eftirfarandi nöfnum er raðað eftir einföldu kerfi: Guðtnundur, Rósa, Andrés, Sigurlaug, Gunnar, Ragna, Albert. Hvert þessara þriggja nafna gæti komið næst: Torfi, Sigríður, Andrésina? Lausn: Torfi, vegna þess að Albert endar á 'T'. Reglan cr sú að síðasti stafurinn í hver- ju nafni er fvrsti slafurinn í næsta nafni í röðinni. Sharon Stone.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.