Dagur - 14.03.2001, Blaðsíða 15
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 - 1S
Samræmd fata-
mimer í augsýn
Sama flíkin getur audveldlega veríð númer; 88 - 38 - 40 - 44/46 - 12- 10
- C38 og M.
Evrópskir staðlasmið-
ir hafa loksins snúið
sér að gerð samræmds
staðals fyrir fatanúm-
er svo vonandi verður
auðveldara að finna
mátulegar ílíkur í
framtíðinni.
Evrópskir staðlasmiðir hafa nú
vonum seinna snúið sér að gerð
samræmds staðals fyrir fatnað,
svo að ein og sama konan slepp-
ur kannski við kaupa sér föt
númer; M - 38 - 40 - 44/46 -
C38 - 12 - 32 - 80B - eftir því
hvaða flík er um að ræða og fyr-
ir hvaða land hún er framleidd.
Islendingar hafa raunar orðið að
vera flestum betur að sér þar
sem íslenskar búðir kaupa föt frá
öllum heimshornum og í öllum
númerakerfum. Staðlakarlanir
hafa margir komið sér hjá núm-
erakraðakinu með því að láta
konur bara um fatakaupin fyrir
sig.
NúmeraJkraðaMð
Fréttabréf staðlaráðs Isiands
greinir frá því að hagsmunaaðil-
ar í fataiðnaði hafa nú vonum
seinna hafist handa við gerð
staðals innan evrópsku staðla-
samtakanna CEN, sem ætlað er
að einfalda málin. Enda ekki
vanþörf á eins og rakið er í
fréttabréfinu. Brjóstahaldarar-
eru t.d. seldir í stærðum 80B,
100C og svo framvegis, en bolir í
stærðum M, L, XXL, XXS. Og
sá/sú sem venjulega leitar að
skóm númer t.d. 39 passar í 4, 4
1/2 eða 5 í öðrum kerfum og
kannski 6 ef hann er að kaupa
inniskó.
Ertim enn að stækka
Vitnað er til Carls Berlage hjá
Fashion Management & Design
Hogeschool íAmsterdam að enn
rugli málið að ekki sé hægt að sjá
til hvaða líkamshluta stærðir á
merkimiðum fatnaðar vísa. Allt
Ieiði þetta svo til þess að fólki
reynist erfiðara að fá á sig föt
sem passa, svo oft verði ekkert af
viðskiptum. Smásalar reyni
sumir að bregðast við með kostn-
aðarsömum og óhentugum sér-
merkingum. Og um 50% af því
sem skilað er aftur í vörukaupa-
listum er fatnaður sem passar
ekki.
„Smjaðurstærðír“ til að
gleðja fitubollur
Haft er eftir Carli að sumar þjóð-
ir hafi ekki látið taka af sér mál
og mál annarra þjóða séu orðin
úrelt. „Við erum nefnilega enn
að stækka." Þýsk könnun hafi
líka sýnt að um helmingur karla
þekki ekki sín eigin mál og láti
eiginkonurnar um sín fatamál.
Enn hafi það flækt málin þegar
farið var að framleiðs svokallaðar
„smjaðurstærðir" eða „henti-
stærðir", sem sumar verslanir
geri út á til að geðjast fituhollum
sem þurfa t.d. flík nr. 50 með því
að passa í nr. 44 í „smjaður-
stærð".
Mátuleg föt í framtíðmni
Nýi staðallinn á að verða í fjór-
um hlutum og hefur fýrsti hlut-
inn raunar þegar verið auglýstur
til umsagnar undir nafninu:
prEN 1 3402 Size designation of
clothcs - Part 1. Staðlarnir eiga
að styðjast við víðtækar mæling-
ar á konum, körlum og börnum.
Stærðir eiga að vísa til ákveðinna
mála Iíkamans miðað við þann
fatnað sem um er að ræða.
Einnig á að taka tillit til mis-
munandi líkamsstærðar/vaxtar
Evrópuþjóða og t.d. vandamála á
borð við mismunandi langar
skyrtuermar. Nái nýi staðallinn
útbreiðslu eiga kaupendur að
geta treyst því að raunveruleg
mál þeirra verði að finna á
merkimiðum fatnaðar. Fataversl-
un gæti þá orðið einfaldari, ódýr-
ari og ánægjulegri. Og fötin
mátuleg. — hei
MARKVISS
AIIGLÝSINGASTOFA
blómlcg auglýsingastofa
Blaðaauglýsingar, tlmaritaauglýsingar,
einblöðungar. Gluggamerkingar, skiltamerkingar, bllamerkingar,
verslunarhönnun o.fl.
Auglýsíngastofa
Faxafen 10 • Sfmi 553 3553
Aðalfundur
Abalfundur Olíufélagsins hf. verbur haldinn
mibvikudaginn 28. mars 2001 á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38, og hefst fundurinn kl. 14.00.
Dagskrá
1. Venjuleg abalfundarstörf
skv. 12. gr. samþykkta félagsins
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar
til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
laga nr. 2/1995
3. Önnur mál, löglega upp borin
Bobib verbur upp á veitingar ab loknum fundi.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar
3 félagsins munu liggja frammi á abalskrifstofu
þess, hluthöfum til sýnis, viku fyrir abalfund.
Abgöngumibar og fundargögn verba afhent
á abalskrifstofu félagsins, Suburlandsbraut 18,
4. hæb, frá og meb 26. mars, fram ab
hádegi fundardags.
Stjórn Olíufélagsins hf.
Olíufélagið hf
WWW.8SS0.IS
k Fékkstu það sem þú greiddir fyrir?
Fjögur þgsurtö iwytemlur lungg réðgjöf og aðstoð hjá Nsytendssamtökununi á
sfðastó éri, Ekki sætta þig vtð ófullnægjamli vöm eða þjönustu. Leltaðu Mdur
ráða hjá lelðbfllninoa- og kvörtunarþjðnustunnl l slrrta 5451200008 6 www.ns.ls
Neytendasamtökin styrkjast meö hverjum nýjum félagsmanni.
Gakktu til llös viö okkur á www.ns.ls
N«EySM5N»ASAMT:04|Clit!l
slnu: 645 1200 / nfltfang- ns®t\s<ls
r