Dagur - 14.03.2001, Blaðsíða 21
T>^«r
MIÐVIKVDAGVR 14. MARS 2001 - 21
Ný sveitar-
félðg 1 mótun
Aðeins um 30 manns mættu á op-
inn fund um sameiningarmál
sveitarfélga í Þingeyjarsýslu, sem
haldinn var í Safnahúsinu á Húsa-
vík sl. laugardag, þannig að áhugi
Þingeyinga á málinu virðist ekki
vera verulegur, a.m.k. enn sem
komið er.
Sigfús Jónsson, ráðgjafi hjá
Nýsi, sem víða hefur veitt sveitar-
félögunum ráðgjöf í sameiningar-
málum, talaði á fundinum al-
mennt um sameiningarmál, en
einnig fluttu framsöguerindi
Helga Erlingsdóttir, oddviti Ljósa-
vatnshrepps, sem á í viðræðum Hð
þrjá aðra hreppa um sameiningu í
svokölluðu Suðvesturbandalagi og
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á
Húsavík sem stýrir sameiningar-
viðræðum sjö sveitarfélaga, Sjö-
veldabandalaginu svokallaða.
Helga Erlingsdóttir og Reinhard Reynisson.
Suðvesturbandalagið
Sigfús Jónsson fór almennt yfir
sameiningarmálin og dró fram
kosti og galla. Hann sagði m.a. að
reynslan af samrekstri og sameig-
inlegum fjárfestingum ríkis og
sveitarfélaga væri ekki góð og því
nauðsyn á skýrari verkaskiptingu.
Það markmið næðist ekki nema
sveitarfélögin væru það stór að þau
gætu tekist á við sem flest verk-
efni, þó auðvitað yrði ríkið að
koma að stærstu verkefnum svo
sem rekstri heilsugæslu, fram-
haldsskóla og uppbyggingu hafna.
..Það er mikilvægt að stvrkja lands-
byggðina með því að efla stað-
bundið vald og auka forræði sveit-
arstjórnarmanna yfir fjármagni og
í málaflokkum", sagði Siglús.
Helga Erlingsdóttir sagði að t\r-
irhugað nýtt sveitarfélag Ljósa-
va t n s h repps, B árð dæl a h repp s,
Reykdælahrepps og Hálshrepps
tekli um 750 íbúa. Viðræður hefðu
staðið yfir í um 2 ár, en sveitar-
stjórn Ljósavatnshrepps hefði gert
ráð fyrir skemmri tíma og að kosið
yrði um málið sl. haust. Allir sveit-
arstjórnarmenn á svæðinu hefðu
komið að málinu og starfáð í
nefndum sem skilað hefðu af sér
niðurstöðu. Þannig að nú þyrfti að
koma sameiginlegu áliti á blað
þannig að hægt yrði að dreifa upp-
lýsingabæklingi til íbúanna. Helga
taldi að þegar væri ljóst að samein-
ing yrði fjárhagslega jákvæð fyrir
hið nýja sveitarfélag, inn kæmi
aukið rekstrarfé og hægt að hag-
ræða á ýmsum sviðum. Hún taldi
fyrirhugað sveitarfélag vel í sveit
sett. Fosshóll, sem er nánast í
miðju þess, er t.d. jafnlangt frá
Húsavík ogAkureyri og því mitt á
milli tveggja iiflugra þjónustu-
kjarna.
„Eins og staðan er í dag, þá
vantar ckki nema herslumuninn
til þess að hægt sé að kjósa um
þessa sameiningu," sagði Helga,
en lagði raunar áherslu á að hún
talaði þarna í eigin nafni en ekki
fyrir hönd Suðvesturbandalagsins.
Sj öveldasameining
Reinhard Reynisson gerði grein
f\TÍr stöðunni í samciningarmálum
sveitarfclaganna sjö. Hann sagði
að það væri nauðsynlegt að móta
nýtt sveitarfélag áður en viðkom-
andi svæði væru komin í þá stöðu
að sameining yrði hrein og ldár
varnar- og neyðaraðgerð. „Mark-
miðið með þessari sameiningu er
að sækja fram, ekki til þess að verj-
ast frekari áföllum," sagði Rein-
hard.
Hann minnti á að oft væri það
ekki það sem gerðist innan hvers
sveitarfélags út af fyrir sig, sem
hefði mest áhrif á þróun innan
þcss, heldur miklu fremur það sem
gerðist á svæðinu í heild. Að
óbreyttu væri umboð hinna ýmsu
sveitarstjórna hins vegar mjög
þröngt og staðbundið og þær
hefðu takmarkaða möguleika á að
hafa áhrif á það sem gerðist á
svæðinu í heild, sem þó hefði oft
úrslitaáhrif á ganga mála í þeirra
sveitarfélagi.
. Að framsöguerindum loknum
voru málin rædd og lögðu ýmsir
orð í belg. - js
Sigfús Jónsson.
1/erslunin Tákn á Húsavik hefur opnað á ný eftir gagngerar endurbætur eftir brunann i desember. Vel hefur
tekist til og eigandinn Ingibjörg Jónsdóttir er ánægð að vera kominn aftur á sinn stað með Tákn.
Tákn opnar á ný
Burt meö lífæð-
ina!
Höfuðborgin blómstar, enda
margar stoðið undir henni.
Má ncfna þing og stjórn,
skóla og samgöngumann-
virki. Nú vilja einhverjir
Reykvíkingar losna við einn
þennan máttarstólpa, flug-
völlinn. Ætli höfnin þurfi að
víkja næst??? Verði þeim að
góðu, segir hk. og kveður:
Ruglustampar stíga ú svið,
stíft um málið þinga.
Langar mest að losna við
lífæð Reykvtkinga.
Bland í tann-
læknapoka
Ungum Húsvíkingi sem er
við nám í Reykjavík, hrá
heldur í brún á dögununi
þegar hann brá sér inní sjop-
pu við Freyjugötuna og hitti
þar Ivrir við afgreiðslustörf
engan annan en Sigurjón
Bencdiktsson, tannlækni og
bæjarfulltrúa á Húsavík og
sá raunar ekki betur en að
kona hans, Snædís Gunn-
laugsdóttir lögfræðingur,
væri eitthvað að bauka baka-
til í sjoppunni.
Að sögn þessa ágæta
kúnna var Sigurjón lipur við
afgreiðslustörfin og var eins
og hann hefði aldrei gert
annað en að selja bland í
poka og leigja út vídeóspólur.
En um leið vaknaði sú
spurning hvort ástandið á
Húsavík væri orðið svo
slæmt að jafnvel tannlæknar
og lögfræðingar þaðan þyrftu
að drýgja tekjurnar með
aukavinnu við afgreiðslu-
störf f sjoppum í Reykjavík
suður.
Hið rétta í málinu mun
hins vegar vera það að Sigur-
jón og Snædís voru þarna í
alleysingum fy'rir dóttur sína
sem starfrækir þennan sölu-
turn, sem mun vera í eigu
tjölskyldunnar.
Vinstra og
græna fólkið
Steingrímur J. Sigfússon var
veislustjóri á sjávarréttar-
kvöldi að Stóru-Tjörnum um
helgina. Þar var mikið spilað
og sungið og m.a. spilaði
eistneski snillingurinn Jan
Alavere lag á pínaó, sem
hann sagði að fjallaði „að
hluta til um mat og að hluta
til um vinstra og græna fólk-
ið."
Steingrímur hlustaði með
athygli á tónsmíðina og eftir
flutning lýsti hann því yfir að
hann hefði ekki alveg áttað
sig á hvaða hluti verksins
hefði tjallað um mat, en
hann hefði strax numið kafl-
ann sem helgaður var vinstra
og græna fólkinu.