Dagur - 14.03.2001, Blaðsíða 8
8- MIÐVIKUDAGU R 14. MARS 2001
SMÁTl OG STÓRT — w Sigurjónsson johannes@simnet.is
Davíð Oddson.
,Aragrúi hríð-
skotabyssukappa
sem böðlast á tor-
færutækjum um
allt, særa og
drepa miklu
meira en þeir ná
og sem hvergi
kemur fram á
skýrslum eru að
verða með ljótari
blettum á þessu
þjóðfélagi, svo
ekki sé minnst á
landspjöll þeirra
og blýmengun.“
- Indriði Aðal-
steinsson á Skjald-
fönn í grein um
rjúpur í Morgun-
blaðinu.
Standing, not singing in the rain
Forætisráðherra fór mikinn í ræðustól á Alþingi þar sem hann var væntan-
lega að bregðast við orðum Jóhönnu Sigurðardóttur um bankamál og út-
lán. Davíð fór að rifja það upp þegar hann þurfti sjálfur á sínum tíma að
redda bankaláni til húsbyggingar og vildi greinilega ekki upplifa slíkt aft-
ur. „Maður þurfti að standa í rigningu, standa í rigningu, standa í rigningu
í biðröð með öðrum til að fá lán. Og þegar inn í bankann kom voru þar
kannski 20 manns og maður þurfti frá að hverfa og koma aftur og standa
í rigningunni í biðröðinni," sagði Davíð efnislega.
Og hefur auðvitað verið ömurlegt að standa svona uppstyttulaust í rign-
ingunni, (og það með öðrum!) dag eftir dag og kannski ár eftir ár. Þessi yf-
irlýsing Davíðs staðfestir auðvitað endanlega það sem Iandsbyggðarmenn
hafa Iöngum haldið fram, sem sé að það sé alltaf rigning í Reykjavík. Og
auðvitað geta ekki allir verið sólarmegin í lífinu og böggull fylgir skamm-
rifi í borginni.
Davíð hefði líka kannski átt að fylgja fordæmi Gene Kelly og dansa og
syngja í rigningunni á sínum tíma ( t.d. lagið Bárujárnshús við Bergþóru-
götuna) í stað þess að standa úrillur í biðröðinni, enda hefur hann greini-
lega aldrei beðið þess bætur.
Eftirmiimilegt fífl aö suirnan
Sigfús Jónsson, ráðgjafi hjá Nýsi og fyrrverandi bæj-
arstjóri á Akureyri og langhlaupari með meiru, var á
fundi á Húsavík á dögunum og flutti erindi um sam-
einingu sveitarfélaga, en Sigfús hefur um árabil
komið að þeim málum með ýmsum hætti og er
manna fróðastur þar um. Hann sagðist hafa verið í
nefnd um sameiningarmál árið 1991 og þá farið víða
og haldið kynningarfundi og ekki alltaf verið vinsæll
fyrir vikið. „Maður þurfti að keyra mjög hratt í gegn-
um sum byggðarlög og beygja sig í sætinu eftir suma
fundina," sagði hann.
Hann kvaðst m.a. hafa mætt mikilli andstöðu á
fundi á Jökuldal og sérstaklega hefði einn ágætur bóndi þar látið í sér
heyra. Það hefði því verið mjög eftirminnilegt, þegar Morgunblaðið talaði
við íjölda manns um áramót og spurði hvað hefði nú verið eftirminnileg-
ast á árinu, og þessu tiltekni bóndi úr Jökuldal svaraði: „Það var þegar
fíflið að sunnan kom til að tala um sameiningarmál!"
Siafús Jónsson.
■ fINO OG FRÆGA FOLKIfl
CUnt Eastwood með
„Mystic River“
Gamla kempan Clint Eastwood,
sem lék aðalhlutverkið, fram-
leiddi og leikstýrði myndinni
„Space Cowboys" á síðasta ári
er nú á Ieiðinni fram á sjónar-
sviðið aftur og að þessu sinní til
að færa kvikmyndaáhugamönn-
um bíómynd byggða á mestsölu-
bókinni „Mystic River“.
Kvikmyndafyrirtæki
Eastwoods, Malpaso Prods. hef-
ur tekið höndum saman með
Warner Bros kvikmyndafyrir-
tækinu um að fá heimild til að
Eastwood i síðustu mynd sinni „Space Cowboys".
LCdölWUUU Cl Cr\r\l d/ L/dA/ uuiuiui uy uyyyoi
framleiða og leikstýra nýrri mynd sem byggð er á
sögunni „ “Mystic River".
kvikmynda þessa sögu Dennis Lehane. Hug-
myndin cr að Eastwodd muni framleiða
myndina og leikstýra henni og fréttir herma
að hann sé þessa dagana í því að ráða sér
handritshöfund til að aðlaga söguna hvíta
tjaldinu. „Mistic River" er sálfræðitryllir um
þrjá æskuvini og sambandið milli þeirra sem
endar á mjög tragískan hátt og svo endur-
fundi þeirra 25 árum síðar þegar þeir tengj-
ast allir morðrannsókn.
ÍÞRÓTTIR
T>^tr
Ný golfkort GSÍ
Golfsamband Islands og Europay á Islandi hafa gert með sér sam-
starfssamning til þriggja ára um að Europay gerist einn af aðalsam-
starfsaðilum GSI og taki þannig þátt í að efla goliíþróttina hér á
landi. Viðamesti þáttur samningsins er útgáfa nýs golfkorts sem veit-
ir handhöfum þess ýmis fríðindi, eins og til dæmis 20% afslátt af vall-
argjöldum allra goliÁ'alla aðilarfélaga GSl, samkvæmt ákvörðun síð-
asta Golfþings.
Aður hafði Golfsamhand Islands staðið að útgáfu greiðslukorts á
grundvelli félagaskrár, en samkvæmt úrskurði Persónuverndar var
það óheimilt og þess vegna voru kortin innkölluð. Við útfærslu á nýju
golfkorti verður þess vandlega gætt að fylgja ákvæðum laga um per-
sónuvernd og má í því sambandi nefna að lýlgt er sömu aðferðafræði
og Europay í Svíþjóð og sænska golfsambandið hafa fylgt undanfar-
in þrjú ár.
Að sögn Edwins Rögnvaldssonar, fræðslufulltrúa GSÍ, er það
markmið Golfsambandsins með golfkortinu, að auka þjónustu við
kylfinga og sérstaklega þá sem eru félagar í aðiklarklúbbum sam-
bandsins. „Til að nálgast það markmið hefur verið leitað til öllugra
samstarfsaðila og væntir Golfsambandiö mikils af samstarfinu við
Europay á Islandi í framtíðinni. Til að lylgja ákvæðum laga munum
við gefa út ný félagsskírteini til allra þeirra 8500 kylfinga sem eru fé-
lagsbundnir innan aðildarklúbba sambandsins og er stefnt að því að
senda þau út fyrir lok apríl. A félagaskírteininu, sem hefur innbyggða
segulrönd, kemur fram nafn og golfklúbbur viðkomandi kylfings og
mun skírteinið veita kylfingum aðgang að golfkerfi sambandsins á
Internetinu. Með tilkomu segulrandarinnar gefur skírteinið ýmsa
möguleika og gæti til dæmis nýst þeim golfklúbbunum sem komið
hafa sér upp aðgangsstýringarkerfi eða aðrar rafrænar tækninýjung-
ar sem skilgreinda má nánar eftir þörfum hvers klúbbs.Europay kem-
ur síðan að þessu með því að bjóða þeim kylfingum sem þess óska að
breyta sínu skírteini í Eurocard/Mastercard greiðslukort og öðlast
þeir þar með ýmis fríðindi, eins og til dæmis alslátt af vallargjöldum.
Hægt verður að velja á milli tveggja gerða slíkra korta, almenns golf’-
korts og gullgolfkorts," sagði Edwin.
Skíðamót með siuidívafi á Dalvik
Skíðafélag Dalvíkur boðar um næstu helgi til árlegs skíðamóts með
sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var
einn af stofnendum félagsins. Mótið, sem nú er haldið í sjötta skip-
ti, fer fram á laugárdag og sunnudag og er ætlað börnum á aldrinum
II og 12 ára, alls staðar að af Iandinu. Keppnin er að hluta til með
óhefðbundnu sniði, þar sem keppt verður í stórsvigi, 50 metra
bringusundi og svigi. Dalvíkingar vona að sem flestir sjái sér fært að
mæta og eyði skemmtilegri helgi á Dalvík, en fyrri mót hafa vakið
mikla hrifningu þeirra fjölmörgu sem tekið hafa þátt í þeim.
Vegleg verðíaun verða veitt fyrir hverja grein í hvorum aldursflokki
og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, stórsvig/sund. Mótsgjald
verður krónur 1500 á keppanda og þurfa þátttökutilkynningar að
berast fyrir fimmtudaginn 15. mars, eða í síöasta lagi í dag. Frekari
upplýsingar gefur Jóhann Bjarnason f síma 466-1478 eða í GSM:
866- 3467. Upplýsingar um gistingu eru gefnar í síma 466-1010.
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 17. mars:
Kl. 10: 00 Start - stórsvig
Kl. 13: 00 Start - sund í Sundlaug Dalvíkur (farastjórahóf að lokinni
keppni)
Sunnudagur 18. mars:Kl. 10: 00 Start - svig (Verðlaunaafhending
og mótsslit að Iokinni keppni.)
Skíðagönguátak SKÍ komið af stað
Útbreiðsluátak Skíðasambands Islands, í skíðagöngu er loksins kom-
ið af stað. Þorsteinn Hymer hefur verið ráðinn starfsmaður átaksins
og er hann nú staddur á Akureyri þar sem hann mun dvelja næstu
daga. I dag og á morgun, 14. og 15. mars, mun Akureyrarbær bjóða
upp á kennslu í Hlíðarfjalli frá klukkan 19:00 til 22:00 og á laugar-
dag, 17. mars, veröur kennt á Olafsfirði á íþróttavcllinum, þar sem
kennsla hefst klukkan I 3.30. A sunnudag, 18. mars, er ferðínni heit-
iö til Mývatns þar sem kennsla hefst ldukkan 13:00.
Nánari dagskrá átaksins verður að finna á síðu 369 í textavarpi og
á heimasíðu SKI.
Átta milijóniun úthlutað til sérsambanda
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur samþykkt tillögu Aírckssviðs ISI um út-
hlutun á 8 milljóna króna framlagi Alþingis til eflingar afreksstarfs sér-
sambanda. Alls 20 sérsambönd af 23 sendu inn umsóknir vegna ráðn-
ingar Iandsliðsþjálfara og vegna Iandsliðsverkefna ogvar úthlutun styrk-
ja ákveðin sem hér segir:
Badmintonsambandið kr. 400.000, Blaksambandið kr. 400.000,
Borðtennissambandið kr. 250.000, Dansíþróttasambandið kr. 250.000,
Fimleikasambandið kr. 400.000, Frjálsíþróttasambandið kr. 600.000,
Golfsambandið kr. 500.000, Handknattleikssambandið kr. 600.000,
íþróttasamband fatlaðra kr. 250.000, Júdósambandið kr. 400.000,
Keilusambandið kr. 250.000, Knattspymusambandið kr. 600.000,
Körfuknattleikssambandið kr. 600.000, Landssamband hestamannafé-
laga kr. 400.000, Siglingasambandið kr. 250.000, Skautasambandið kr.
350.000, Skíðasambandið l<r. 350.000, Skotíþróttasambandið kr.
400.000, Sundsambandið 500.000 og Tennissambandið kr. 250.000.
Styrkirnir til sérsambanda eru skilyrtir með þeim hætti að viðkom-
andi sérsámband verður að leggja til verkefnanna sömu fjárhæð og
styikurinn hljóðar upp á.