Dagur - 17.03.2001, Side 5

Dagur - 17.03.2001, Side 5
 LAUGARDAGUR 17. MARS 2 00 1 - 29 FRÉTTIR „Háloftaútköll“ eru orðiit nokkuð algeng Lækni fúmst snautlegt að heyra ekki bofs frá Flugleiðum eftir „há- loftaútkall44 um horð yfir miðju Atlantshafi. Félagið naut aðstoðar a.m.k. 16 lækna í há- loftunum í fyrra. „Læknirinn cr ekld að sinna sjúk- lingum fyrir hönd flugfélagsins, sem tekur heldur ekki að sér milli- göngu ef læknir telur eðlilegt að sjúklingurinn greiði fyrir læknis- þjónustuna," sagði Guðjón Arn- grímsson blaðafulltrúi Flugleiða, sem segir félagið aldrei áður hafa fengið kvörtun frá lækni í þeim dúr sem fram kom í síðasta Læknablaði (3/2001). En þar lýs- ir Hrafnkell Oskarsson því hvernig hann eyddi hálfri heimferð frá Or- lando sl. haust, bograndi í flugeld- húsinu eða standandi yfir manni (Lundúnarbúa á heimleið) sem skyndilega hafði veikst yfir miðju Atlantshafí. EkM einu sinni svei þér „Einhver veltir því örugglega fýrir sér hvernig sé með umbun fyrir háloftaútkall og ef til vill einhverra klukkustunda vánnu við erfið skil- yrði,“ segir læknirinn. Þótt flug- freyjur hafi skilmerkilega tekið niður nafn hans og númer og látið að því liggja að hann yrði eflaust uppfærður á Saga class í næstu ferð, hafi ekkert slíkt gerst þau tvö skipti er hann hafi flogið síðan. „Reyndar átti ég hvorki von á flug- punktum né uppfærslu frá þessu félagi, því miður, en átti hálft í hvoru von á stöðluðu þakkarbréfi eða jólakorti, en, nei ekkert slíkt. Félagi minn á slysadeild hefur sömu reynslu af þessu félagi, há- Ioftaútkall, nafn og númer skráð vandlega en síðan ekki einu sinni, svei þér.“ Viimuregla að spyrja inn lækiii Guðjón segir svarið í sjálfu sér ein- falt. Flugfélagið geti hvorki skuld- bundið sig til þess að veita læknis- þjónustu í flugvélum sínum né gert kröfu um að læknar sem kunni að vera um borð sinni fólki sem veikist, en þegar slíkt gerist sé það vinnuregla áhafnar að spyija hvort læknir eða hjúkrunarfræð- ingur sé um borð. Abyrgð flugfé- lagsins felist í því að láta sjúkling- inn hafa forgang og félagið geri ekki kröfu um endurgreiðslu t.d. fyrir millilendingu á næsta flug- velli. „Eg held aö hvort sem maður er læknir eða ekki þá sé umbunin við svona aðstæður fyrst og fremst þakklæti þess sem maður kemur til aðstoðar og, eins og í þessu tilfelli, betri líðan hans,“ segir Guðjón. A.m.k. 16 „háloftaútköll“ í fyrra En það breyti því ekki að Flugleið- ir séu þakklátir læknum og öðrum sem bregðist við þegar á reynir. ,A síðasta ári sendum við 15 læknu m þakkarbréf fyrri bjálp þeirra um borð í vélum okkar og á þessu ári eru bréfin orðin tvö. Augljóslega hafa orðið mistök í því tilfelli sem Hrafnkell lýsir þannig að upplýs- ingar um aðstoð hans hafa ekki borist áfram innan fyrirtækisins. Mistökin ber að harma því hann á þakkir skyldar og þeim er hér með komið á framfæri," sagði Guðjón Arngrímsson. I kjölfar ferðarinnar segist Hrafnkell líka m.a. hafa farið að velta meira fyrir sér ábyrgð lækna við óvenjulegar aðstæður. „Hefði maðurinn t.d. látist af lungnaem- bólfu eftir að ég leyfði honum að halda áfram för (frá Islandi), hvers er þá ábyrgðin?“ — HEI Frá upphafi flokksþings í gær. Hér má sjá Guðna Ágústsson ræða við einn þingfulltrúann. Kjósa á suimdag Kosningar til formanns, varafor- manns og ritara Framsóknar- flokksins fer fram eftir kl. 13:45 á sunnudag, þegar flokksþings- fulltrúar hafa að mestu jafnað sig eftir kvöldverðarhófið kvöld- ið og nóttina áður. Mikil spenna rfkir um útkomu kosninganna. Enginn býður sig fram gegn Halldóri Ásgrímssyni í stöðu formanns, en yfirlýstir frambjóðendur í varaformanns- kjörinu eru Guðni Ágústsson, Jónína Bjartmarz og Olafur Orn Haraldsson og í kjöri til ritara þau Siv Friðleifsdóttir og Hjálm- ar Árnason. Á undan kosningunum verða afhent „Bjartsýnisverðlaun Framsóknarflokksins 2000“ og á eftir kosningunum verða mál þingsins afgreidd og þingi slitið. - FÞG Pirraöir hjá ríkinu Töluverdur pirriugur er meðal félagsmauua Starfsmaunafélags ríMsstofnana, SFR yfir j»ví hversu seint og illa hefur gengid við gerð nýs kjara- samnings við ríkið. I vikunni slitnaði uppúr viðræð- um við ríkið en kjarasantningur SFR rann út í lok október sl. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar né heldur hefur deilunni verið vísað til ríkissáttasemjara. Jens Andrésson. Deilt um 112 þúsund Jens Andrésson formaður SFR segir að „uppstytta" hefði komið í viðræðurnar eftir að menn höfðu áður eygt „landsýn" með þeim óformlegu tilboðum sem höfðu gengið á milli samninga- nefnda ríkisins og þeirra um hækkun lægstu launa með út- færslu vinnustaðasamninga. Þegar á reyndi hefði hins vcgar komið í ljós að ríkið hafði rýrt það sem áður hafði verið rætt um sem hugsanlegan samnings- flöt. Krafa SFR er að lægstu laun verði ekki undir 112 þús- und krónum á mánuði. Uni 3800 félagsmenn eru í SFR auk þess sem kjarasamningur þeirra tekur til um eitt þúsund starfs- manna á sjálfseignarstofnunum hjá ríkinu. — GRH INNLENT Minnihluti vill ný lög á vændið Harkalegar aðgerðir gegn vænclt virð- ast eldd eiga upp á pallborðið hjá þeim sem atkvæði greiða á Netinu. Dagur spurði á Netinu: Á að setja strangari lög um ólögmæti vændis? Atkvæði greiddu 3.220. Meirihlut- inn, eða 55%, var andvígur slíkri lagasetningu, en 45% lýstu sig fylgj- andi nýjum lögum. D amtir vísir.is Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja Dags-spurningi á Netinu, en hún hljóðar svo: Á Alþingi að banna sjómannaverkfallið með lögum? Slóðin er sem fyrr: visir.is Helbert kjaftæði! Ekki voru líkur á því síðdegis í gær að samkomulag væri í sjónmáli í sjómannadeilunni cn verkfall sjó- manna hófst skömmu fyrir mið- nætti aðfaranótt föstudags og nær það til liðlega 6.000 sjómanna víðs vegar um land. Útgerðarmenn munu hafa lagt fram tilboð til sjó- manna í deilunni, sem sjómanna- forystan var að skoða. Það fjallar m.a. um nýjar hugmyndir um verðmyndun sjávarfangs, en það hefur verið ein helsta krafa sjó- manna að allur fískur fari á mark- að eða verð hans verði mark- aðstengt. „Við erum enn í fréttabanni sem ríkissáttasemjari setti á okkur, en ég heyrði í útvarpinu að LÍÚ hefði Iagt fram tilboð af okkar hálfu sem margir í sjómannnaforstunni vildu ræða frekar. Við höldum áfram að funda og reynum að ná samning- um. Meira get ég ekki sagt,“ sagði Friðrik Árngrímsson, fram- Sævar Gunnarsson. kvæmdastjóri LÍÚ. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands var spurður að því hvort eitthvað nýtt útspil hefði komið fram frá útgerð- armönnum. „Ég þekld það ekki. Það hefur ekkert tilboð borist frá útgerðar- Friðrik Arngrímsson. mönnum, allt annað er helbert kjartæði. Staðan er nákvæmlega sú sama og hún hefur verið síð- ustu daga, þ.e. algjörlega á byrjun- arreit," sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasainbands Is- lands, síðdegis í gær í Karphúsinu. — GG Bláfugl að hefja fragtflug Fragtllugvél nýja flutningaflugfélagsins Bláfugls er væntanleg til landsins í dag, eftir viðamiklar breytingar í Bandaríkjunum úr farþegavél í fragt- vél. Ef allt gengur að óskum fer vélin, af Boeing 737-300F tegund, í sitt fyrsta fragtflug með almennan útflutning til Kölnar sunnudaginn 25. mars og með innflutning til baka. Að sögn Þórarins Kjartanssonar framkvæmdastjóra Bláfugls er flug- rekstrarleyfi frá hendi Flugmálastjórnar komið að því undanskyldu að Flugmálastjórn á eftir að gera úttekt á flugvélinni. „Samskipti fyTÍrtælds- ins við Flugmálastjórn hafa verið með ágætum". Aðspurður um hvort breytingarnar uppfylltu allar kröfur sem Flugmálastjórn miðar við sagði Þórarinn að þessar breytingar væru viðurkenndar af öllum flugmálayfir- völdum og í framkvæmd hjá tjölmörgum fíugfélögum, eins og Flugleið- um, Islandsflugi og Lufthansa. - FÞG Stjómarráðið samþykkti MikiII meirihluti félagsmanna í Félagi háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins samþykkti nýgerðan kjarasamning félagsins við ríkið. I atkvæðagreiðslu um samninginn sögðu 126 já, eða 76,4%. Aðeins 39 sögðu nei, eða 23,6% og einn seðill var ógildur. Á kjörskrá voru 290 og þátttakan var því 56,8%. - GRH Hagnaður hjá Lyfjaverslimiimi Hagnaður af rekstri Lvfjaverslunar lslands hf. nam 41,8 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári á móti 58 milljónum árið áður. Hagnaður §am- stæðunnar af reglulegri starfsemi fyrir fjármagnsliði nam 81,2 milljónum króna en nain 69,7 milljónum árið 1999. Veltufé frá rekstri nam 66 milljónum ltróna.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.