Dagur - 17.03.2001, Síða 9

Dagur - 17.03.2001, Síða 9
32- LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 - 33 SAMANTEKT Þnima úr heiðskím lom Akveðið uppnám er víða eftir að forstjóri Flugleiða lýsti því yfir að FÍ myndi hugsan- lega leggja niður inn- anlandsflugið. Kosn- ingin í dag um Reykja- víkurflugvöll komin í nýtt samhengi? Rikis- styrkir eru notaðir í nágrannalöndunum til að þjónusta dreifðari hyggðir. Yfirlýsing Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, að taprekstur sé það mikill á innanlandsfluginu að f’élagið muni e.t.v. hætta því, hcfur varpað nýju ljósi á framtíð Reykjavíkurflugvailar og stöðu landsbyggðar gagnvart höfuð- horg. I dag munu Reykvíkingar kjósa um hvort völlurinn eigi að fara eða vera eftir árið 2015 en sumir telja sjálfgefið að völlurinn þjóni litlum tilgangi nema þá í mjög smækkaðri mynd ef þetta verður. Aðrir telja að nýir aðilar muni leysa FI af hólmi en lands- byggðarmenn eru almennt ósáttir við þessa yfirlýsingu. Eins má velta upp spurningum um hvort frjáls samkeppni í innanlands- flugi hafi orðið þjóðinni til góðs og hvort FI sé að kalla eftir ríkis- styrkjum. Einnig má benda á að stórframkvæmdir hafa staðið yfir á Reykjavíkurflugvelli sem nema milljörðum og miðuðust slíkar framkvæmdir við óbreytt hlutverk vallarins fram til ársins 2015. Flugleiðir hafa reyndar aðeins lýst því yfir að þessi kostur sé einn þeirra möguleika sem félag- ið sé að skoða. Einnig komi rekstrarbreytingar og leit að sterkum fjárfestum til greina en til að það geti orðið þarf viðsnún- ing í afkomunni. FI tapaði á fjórða hundrað milljónum í fyrra og hafa Flugleiðir alls tapað taep- um níu hundruð milljónum á FI frá því að félagið var stofnað árið 1997. Afkoma síðasta árs vekur athygli í ljósi fjölgunar farþega og einnig vegna þess að samkeppni er nú nánast úr sögunni á helstu flugleiðum. Hefði mátt koma fyrr Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, segir að þessi yfirlýsing forstjóra í-lugleiða komi dálítið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Reyndar megi segja að loftið hafi ekki beinlínis verið heiðskírt fyrir en óneitan- lega hefði yfirlýsing sem þessi þurft að koma fyrr. Borgarstjóri telur þó að útspil Flugleiða, sem rekur FI sem dótt- urfélag, setji alls ekki umræðuna og atkvæðagreiðsluna í dag um staðsetningu Reykjavíkurflugvall- ar í uppnám. „En það hefði verið gott að horfast í augu við þcnnan möguleika tjrr og þá er ég ekki bara að tala um borgaryfirvöld heldur yfir\'öld flugmála einnig," segir borgarstjóri. Spurð hvort samvinna ríkis, borgar og flugfélaga, þyrfti að vera meiri þegar horft er til skipu- lags og framtíðarmála, segist Ingibjörg Sólrún vera þeirrar skoðunar. Umræðan hafi litast um of af einhliða hagsmunum aðila. Nær væri að horfa á þessi mál í heildstæðu samhengi. Mun aldrei leggjast af Arni Johnsen, formaður sam- göngunefndar Alþingis, segist enga trú hafa á þvf að innan- landsflug leggist af en hann er einnig þeirrar skoðunar að mjög varlega eigi að fara í umræðu um ríkisstyrki í þessu samhengi. En hvaða leiðir sér Arni til að snúa við afkomu félaga í innanlands- fluginu? Flann segir að líta þurfi m.a. til flugvélakostsins og hefur það áður heyrst að nýju Fokker- arnir henti innanlandsfluginu illa. Til skammar? Arni segir að menn hafi um ára- tugaskeið verið að berjast fyrir því að ná saman endum í innan- Iandsfluginu en hann gef’ur lftið fyrir atkvæðagreiðsluna í dag um framtíð Reykjavíkurflugvallar. „Það er ótímabært rugl að vera að fjalla um Reykjavíkurf’lugvöll núna og hreinlega til skammar." Aðspurður um þá Iágmarks- þjónustu sem landsbyggðin þurfi til að geta þrifist, segir formaður samgöngunefndar að FI hafi ver- ið nokkurs konar „Stóri bróðir" hingað til en ef niðurstaðan verði sú að „Stóri bróðir“ dragi sig í hlé, hljóti aðrir flugrekendur að taka við hlutverki félagsins. „Það er engin spurning að það er grund- völlur fyrir þessum rekstri. Við erum með 460.000 farþega í inn- aniandsflugi sem væntanlega tvö- faldast á næstu tíu árum. Veltan er þvílík að menn hljóta að sjá sér hag í slíkum viðskiptum. Það á ekki að stilla neinum ríkisstyrkj- um upp fyrirfram í þessari um- ræðu en þeir hafa verið notaðir með ákveðnum hætti í t.d. sjúkra- flugsþjónustu og það er annað mál." Kennir íslandsflugi um Dagur spurði Arna hvort þróunin undanfarið hefði sýnt að það hefðu verið mistök að innleiða frjálsa samkeppni í fluginu. Hann telur svo ekki vera en kennir ákvörðunum Islandsflugs að hluta til um afleiðingar hinnar frjálsu samkeppni. „Þegar Is- landsflug snarlækkaði öil verð þá var það vitlaus verðlagning. Menn eru að súpa seyðiö af því í dag og kannski þarf einhvern tíma til að finna jafnvægi í þess- um málum aftur. Eg tel að verðin séu of há í dag vegna þess að menn séu að losa sig við uppsafn- aðan vanda. Það er öðruvísi með þetta og ríkisbankana, þar sem menn gátu hent milljörðum án nokkurrar ábyrgðar," segir Árni. Skiptir gríðarlegu máli Akureyri er langstærsti áfanga- staðurinn í innanlandsfluginu og segir Asgeir Magnússon, formað- ur bæjarráðs Akureyrar, að hann sjái það ekki fyrir sér að innan- landsflug verði lagt niður. „Ef við horfum á Akureyrar- eða Eyja- fjarðarsvæðið þá skipta þessi mál gríðarlegu máli fyrir okkur," segir Asgeir. Ásgeir leiðir F-listann á Akur- eyri, sem samanstendur af Al- þýðuflokki, Alþýðubandalagi og Kvennalista - sambærilegt R-list- anum - en hann er ósammála kol- lega sínum í höfuðborginni, Ingi- björgu Sólrúnu, um að rétt sé að Árni Johnsen: Nýir adilar geta tekið við af FÍ. ganga til kosninga í dag um fram- tíð Reykjavíkurflugvallar. Á öfugum enda „Mér finnst þessi atkvæðagreiðsla um flugvallarmálið vera mjög sér- kennileg. Menn eru í raun og vera bara að horfa á það að flug- völlurinn eigi að fara en hvert? Mér finnst miklu skynsamlegra að menn velti því fyrir sér hvers konar breytingar menn sjái fyrir sér í innanlandsfluginu. Það er byrjað á öfugum enda, að taka fyrst ákvörðum um að völlurinn eigi að fara án þess að menn viti hvert. Að horfa á þetta sem skipu- lagsmál höfuðborgarinnar, sem engum öðrum komi við, finnst mér einföldun á þessari stöðu.“ Asgeir segir að ef Reykjavíkur- flugvöllur verði á hinn bóginn lagður af og Ilugið fært til Kefla- víkur, sé hægt að velta því lyrir sér í alvöru að innanlandsflug verði úr sögunni. Slæm reynsla Reinhard Reynisson, bæjarstjóri Ásgeir Magnússon: Skilur ekki at- kvæðagreiðsluna. á Húsavík, hefur kynnst því hvern- ig er að missa flugsamgöngur. I fyrra hætti FI að fljúga milli Húsa- víkur og Reykjavíkur en ýmislegt hafði gengið á áður, s.s. tilraun Mýflugs til að halda uppi áætlun- arflugi á rnilli þessara staða. Rein- hard segir reynslu Húsvíkinga og nágranna afleita al’ því að þurfa að fara til Akureyrar í flug. Það kosti tíma og peninga og þótt ríkið greiði fyrir rútuferðir á milli nýtist það lítt þegar tímaáætlun fari úr skorðum. Þá ónýtist heilu og hálfu vinnudagarnir, enda sé rútan ekki flugrúta sem slík heldur haldi að- eins fyrirfram gefinni áætlun. A hinn bóginn segir bæjarstjór- inn á Húsavík að það komi honum ekki á óvart að Flugfélag Islands sé að gefa svona yfirlýsingar þessa dagana: „Þetta er það sem við höf- um talað um mánuðum saman. Það að hætta flugi til Húsavikur í fyrra hefur aldrei verið einangrað við Húsavfk í okkar huga heldur höfum við sagt að þetta væri hara fyrsta skrefið í þvf sem myndi ger- ast ef stjórnvöld eru ekki tilbúin til Reinhard Reynisson: Úmurlegt að missa flugið. að takast á við innanlandsflugið sem hluta af almenningssamgöng- um á landinu. Við höfum mætt því viðhorfi hjá samgönguráðuneytinu að þetta sé málefni markaðarins og ríkið hefur sagt að jrað væri ekki þeirra að bjarga okkur. 1 Ijósi þessa kemur þetta ekki á óvart," segir Reinhard og segist ekki sjá hvernig flugið eigi að vera sam- keppnishæft váð landflutningana nema í undantekningartilfellum. Flug = jámbraut Bæjarstjórinn á Húsavík bendir á að járnbrautakerfið sé víða ríkis- styrkt í Evrópu og innanlandsflug- ið sé nokkurs konar járnbrautar- kerfi Islendinga. I |}ví efni bendir hann á að járnbrautastöðvar í ná- grannalöndunum séu almennt ná- lægt miðborgunum en ekki í út- jaðri. Sama eigi að gilda um flug- v'allarmál í Reykjav'ík. Eitt hefur þó komið jákvætt út úr því að ekki er lengur flogið áætlunarflug til Húsavíkur. Hús- víkingar og nærsveitamenn ferðast hreinlega minna og þar með minnkar sá kostnaður sem annars hefur farið í v'innufundi og fleira. Reinhard segir að menn noti síma- fundi og tölvupóst í ríkari mæli en fyrr. Neyðin kenni naktri konu að spinna. „Menn reyna eiginlega allt áður en þeir leggja í jvessar ferðir. Okkur var hreinlega kippt ein- hverja áratugi aftur í tímann." Um það hvort atkvæðagreiðslan í dag sé ótímabær í Ijósi ofanrit- aðs, segist Reinhard heilt yfir ekki átta sig á þörf þess að línurnar séu lagðar um þessi mál í dag af hálfu Reykv'íkinga. Það er j>ví ljóst að at- kvæðagreiðslan í Reykjavík nýtur ekki sérstaks stuðnings hjá lands- byggðarmönnum og skiptir þá ekki máli hvar í flokki menn standa. Milljarðar hjá Norðmönniun Jón Karl Olafsson, framkvæmda- stjóri Flugélags lslands, vísar því á bug að rekstrarmistök séu orsök bágrar afkomu félagsins þótt ef- laust megi finna einhver dæmi um jrætti sem mættu betur fara. Hann telur ekki ómögulegt að reka inn- anlandsflugið án ríkisstyrkja en segir að til að halda úti jafn þéttu neti og menn hafa gert, sé ómögu- Iegt að láta inarkaðinn einn ráða. Jón Karl segir að ríkisstyrkir séu þekktir víðast hvar í nágranna- löndunum og tekur sem dæmi að Norðmenn værji milljörðum árlega til Jiess að styrkja flugsamgöngu- netið. Akure>TÍ hafi algjöra sér- stöðu í þessum efnum, en hinar leiðirnar séu erfiðar \'ið að eiga á markaðsforsendum einum. Sigur nýrra tíma Ingibjörg Sólrún borgarstjóri vill ekki spá fyrir um niðurstöðu kosn- ingannaí dag, enda bendikannan- ir til að mjótt verði á mununum. Eftir standi að ef þátttaka verði góð, sé það sigur fyrir borgarlýð- ræðið sem felist í þessari atkvæða- greiðslu með nýstárlegum hætti. Ingibjörg Sólrún segir |>að enga „stórdramatík" j>ótt niðurstaða kosninganna verði á annan veg en hún hefur sjálf talað fyrir; |>.e.a.s. ef borgarbúar kjósa að hafa völlinn áfram á sínum stað. Menn muni auðvitað setjast niður með niður- stöðuna - hver sem hún verður - og reyna að vinna að lausn sem allir geti lifað við. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ásamt leikskólabörnum að taka fyrstu skóflustunguna í gær. - mynd: ingó Stærsta íþrótta- hús landsins Viima hafin í Grafar- vogi viö langstærstu og fjölbreyttustu íþróttamiðstöð á ís- landi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ásamt leikskóla- börnum úr Grafarvogi tók í gær fyrstu skóflustunguna að stærsta íþróttahúsi sem byggt hefur verið á íslandi. Þetta er íþrótta- miðstöðin við Víkurveg í Grafar- vogi. Iþróttamiðstöðin verður byggð í tveimur áföngum: fyrri áfang- inn er yfirbvggður knattspyrnu- völlur í fullri stærð ásamt bún- ingsaðstöðu. Áætluð verklok hans er 1. mars 2002. A knatt- spyrnuvellinum verður gervigras af vandaðri gerð, sem sérstak- lega ergert fyrir knattspyrnu. I húsinu verður aðstaða fyrir 2000 áhorfendur. Gert er ráð fyrir að knattspyrnulið af öllu Reykjavík- ursvæðinu muni nýta húsið til æfinga og keppni og stefnt er að því að þetta verði aöalkeppnis- hús landsins fyrir innanhúss- knattspyrnu. Gæði grassins, áhorfendaaðstaða og 20 metra lofthæð yfir miðju vallarins upp- fyllir ströngustu kröfur sem gerðar eru til keppnishúsa fy'rir innanhússknattspyrnu. Sá hluti miðstöðvarinnar sem hýsir knattspyrnuvöllinn er um 10.800 fermetrar. Fyrirhugað er að nýta knattspyrnusalinn fý'rir fleiri íþróttir en knattspyrnu s.s. frjálsíþróttir, golf, fimleika, klif- ur, skokk og göngu. Einnig er ætlunin að í húsinu geti farið fram stórar fjöldasamkomur s.s.tónleikar og sýningar. Seinni áfangi íj>róttamiðstöðvarinnar er I 2.000 fermetra hliðarbygging á fjórum hæðum vestan við knatt- spyrnuhúsið. Aætluð verklok hliðarbygginar eru 1. mars 2003. I J>eirri byggingu er m.a, gert ráð fyrir líkamsræktarstöð af full- komnustu gerð og skautasvelli af löglegri stærð fyrir ísknattleik, listhlaup og almenning. Gert er ráð fyrir að í húsinu rúmist flest- ar gerðir íþrótta sem stundaðar eru innanhúss s.s. fimleikar, glíma, júdó, karate, kvondó, borðtennis, skotíþróttir, íþróttir fatlaðra, klifur, körfuknattleikur, blak, keila, billjard, dans, lyfting- ar og hnefaleikar ef j>eir verða leyfðir. Þá má búast við að ýmis þjón- ustufyrirtæki með íþróttatengda starfsemi verði með aðstöðu i' hliðarbyggingunni. Hugmyndir eru uppi um skrifstofur fyrir íþrótta- og/eða ungmennafélög, verslanir með sportvörur, snyrti- vörur, snyrtistofa, hársnyrtistofa, nuddstofa, sjúkraþjálfunarstofa og jafnvcl læknastofur. Aðstaða til sýningarhalds af ýmsu tagi mun verða í anddyri miðstöðvar- innar. Gert er ráð fyrir gistirými fyrir íj>róttahópa,veitingasölu í anddyri hússins og væntanlega verður matsölustaður með út- sýni yfir knattspyrnuvöllinn á annarri hæð. Níðmgur laus en borgar milljón Hæstiréttur hefur staðfest skil- orðsbindingu 12 mánaða dóms undirréttar yfir ungum manni sem var fundinn sekur um mjög alvarlegt kynferðisbrot gagnvarl stúlku, sem var 8 ára J>egar brot- in fóru fram, en ákærði 15 ára. Hluti brotanna voru talin fyrnd af undirrétti og féllst ákæruvald- ið á það við áfrýjun. Brotin áttu sér stað í hlöðu sveitaheimilis 1991-92, en brotaþolinn kærði atburöinn 1999, ekki síst í ljósi vaxandi umræðu um þessi alvarlegu af- brot og afleiðingar þeirra. Sam- kvæmt ákæru hafði ákærði mök við stúlkubarnið og fór margoft höndum urn kynfæri telpunnar, fróaði sér ( návist hennar og sýndi henni klámmyndablöð. Alvarlegar afleiðingar Aka’rði neitaði staðfastlega öliu nema því, að hafa farið höndum uni kynfæri stúlkubarnsins. Við meðferð málsins fyrir dómi var sýnd upptaka af framburði stúlkunnar í Barnahúsi og gerði enginn athugasemdir við j>að. Hæstarétti þótti ýmislegt í svörum hins ákærða gefa til kynna að hann hefði gengið lengra en hann viðurkenndi og taldi framhurð stúlkunnar trú- verðugan,. Maðurinn var sak- felldur fý'rir kynferðismökin og dæmdur til að greiða stúlkunni einnar milljón króna miskabæt- ur, en stúlkan krafðist tveggja milljóna. Hæstiréttur hækkaði miskabæturnar, sem voru 800 j>úsund í undirrétti. Elstu brotin voru sem fyrr segir talin fyrnd. Afleiðingar brota mannsins hafa verið miklar fyrir stúlkuna og hún átt við mikla sálræna og lík- amlega erfiðleika að stríða. Við dómsuppkvaðningu tók Hæsti- réttur tillit til ungs aldurs sak- borningsins, þá er hann framdi brotin. - FÞG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.