Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Page 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Page 12
24 - Laugardagur 11. janúar 1997 jOctgur-ÍEmúmT ^Dagur-'QItmhm 'IVlatarkrókur Guðjón Sigmundsson, betur þekktur sem Gaui litli, leggur til uppskriftir í Matarkrók í dag og að sjálfsögðu eru það hollir og góðir grœnmetisréttir sem hann býður lesendum upp á. „Þessar uppskriftir eru frá Sólveigu Eiríksdóttir í Grœnum kosti, “ segir hann, en má segja má, að Sólveig sé matmóðir hans þennan veturinn. Guðjón hefur því ekki búið þessa rétti til sjálfur en hefur hins vegar borðað þá og gefur þeim bestu meðmæli. „Á þessu nœrist ég og þrífst þessa dagana og grennist í leiðinni. “ Guðjón skorar á Össur Skarphéðinsson, þingmann, í matarkrók að viku liðinni. „Hann er líka í megr- un og skoraði á mig í Dagsljóssþœtti að við kæmum út að trimma saman. Nú skora ég á móti á hann að koma með einhverja góða uppskrift fyrir mig. “ Tofu og Wok grœnmeti Sósa: 300 ml grœnmetiskraftur 2 msk. tamari fsojasósa) 1 msk. ristuð sesameolía 1 rif hvítlaukur (pressaður) 2 cm engiferrót (rifin) 300 g tofu í lxl cm bitum grœnmeti: olía til steikingar 1 rif hvítlaukur (pressaður) 1 fennikelhnýði (í bitum) 1 rauð paprika (í strimlum) 3 gulrœtur (í löngum striml um) 225 g spergilkál 150 g baby maís (má sleppa) Sósan: Öllu blandað saman og hellt yfir tofuið. Látið standa í'A - 1 klukkustund. Grænmeti: Olían hituð á wokpönnu og hvítlaukurinn mýktur þar í ca. 5 sek. Græn- metinu bætt útá einni tegund í einu í sömu röð og gefið er upp í uppskriftinni. Tofuið og sósan sett útá og allt látið malla í ca. 5 mínútur, eða þar til sósan er farin að þykkna og grænmetið að mýkjast. Guðjón Sigmundsson, Gaui litli, býður upp á holla og góða grænmetisrétti. AB sósa með hvítlauk ’A l AB mjólk 3 hvítlauksrif (pressuð) smá sjávarsalt cayenne pipar (á hnífsoddi) Allt sett í matvinnsluvél hrært saman í skál. Agúrkusalat 4 bollar agúrka (í sneiðum) 3 bollar tómatar (í bátum) eða Mynd: S % bolli rauðlaukur (í sneiðum) 1 bolli sellerístönglar (í bitum) ’/ b steinselja (söxuð) Grænmetinu blandað saman í skál. Reyndar er varla á það bœtandi að koma með fleiri salat uppskriftir. En það er nú einu sinni janúar, mánuð- ur aðlögunar eftir desemberátið. Sœlkerar, ykkar tími mun koma aftur - bara ekki alveg strax! litla-kaffistofan Heimilismatur í hádeginu Fiskmáltíð m/súpu frá kr. 490,- Kjötmáltíð m/súpu frá kr. 590,- Afgreitt úr hitaborði í sal og til að taka út. Velkomin til okkar. Starfstúlkur og kokkurinn. Ilrísgrj ónasalöt Grœnmeti og hrísgrjón 200 g hrísgrjón 150 g grœnar baunir (frosnar) 2 litlar paprikur (1 grœn og 1 rauð) 3 tómatar 2 litlir laukar 1 lítið epli 125 g maísbaunir (niðursoðnar) 1 búnt graslaukur 150 g hrein jógurt 50 g majones sítrónusafi salt pipar örlítill sykur 4 harðsoðin egg 2 sneiðar skinka 2 sneiðar Gouda ostur Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbein- ingum. Setjið frosnar baunir í pott og þíðið yfir mjög lágum hita án þess að setja vatn út á. Hreinsið paprikurnar, takið kjarnann úr og skerið í litla bita. Þvoið tómatana og sneiðið í báta. Saxið laukinn og eplið, hreinsið graslaukinn og saxið smátt. Hellið vatninu af maísbaunun- um. Búið til sósu úr jóg- úrtinni og majonesinu. Kryddið með sítrónusafa, salti, pipar og sykri. Blandið hrísgrjónun- um og græn- metinu saman og setjið sós- una yfir. Takið skurnina af eggjunum og skerið í báta. Setjið saman eina sneið af skinku og eina af osti, rúllið upp og skerið hvora rúllu í fjóra bita. Skreytið salatið með eggj- unum og skinkurúllunum. Grískt hrísgrjónasalat 250 g hrísgrjón 1 stór laukur 1 lítil agúrka 2 tómatar 1 paprika 200 g grískur fetaostur 20 svartar ólífur salatblöð (til skrauts) Sósa: 2-3 hvítlauksrif 6 tsk. olífuolía 4-5 tsk. sítrónusafi salt pipar sykur á hnífoddi '/ tsk. oregano Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbein- ingum, sigtið vatnið frá og geymið í skál. Skerið laukinn x þunnar sneiðar. Þvoið, þurrkið og saxið agúrkuna (með hýði). Skerið tómata í báta. Takið kjarnann úr paprikunni og skerið í strimla. Þurrkið fetaostinn og skerið í teninga. Blandið ostinum og ólífunum saman við grænmetið og hrísgrjónin. Sósan: Merjið hvítlauksrifin. Hrærið saman olífuolíu, sítrónusafa, oregano, salti, pip- ar, sykri og hvítlauk. Hellið yfir salatið og látið bíða í a.m.k. hálftíma áður en borið er fram. Hreinsið salatblöðin og notið til að skreyta salatið. NJÓTIÐ VEL!

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.