Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Page 19

Dagur - Tíminn Akureyri - 11.01.1997, Page 19
|Dagur-‘33tmtmt Laugardagur 11. janúar 1996 - 31 Umsjónarmaður Magnús Geir Guðmundsson Aðeins af uppgjöri í lok nýliðins árs og nú í upphafi þess nýja hafa hin ýmsu popprit verið að kryfja gamla árið og birta niðurstöður sínar um hvað þeim líkaði best. Bresk popp- og rokkrit eru ansi dugleg í þessum efnum og eyða heilu og hálfu tölublöðunum undir slíka umfjöllun/uppgjör. Eins og gengur eru sjónarmiðin misjöfn hvað varðar það sem upp úr stóð á árinu 1996, enda misjafnar áhersl- ur eftir blöðum, en í þeim stærstu og víðlesnustu virðist þó viðhorfið gagnvart bestu plötum ársins vera nokkuð líkt. Allavega gildir það sérstaklega um þær plötur sem eru á eða við toppinn. Þrjú af þessum mest áberandi tímaritum, eru mán- aðarritið Vox og vikuritin Melody Maker og Kerrang. Það síðast- nefnda hefur lengst af skorið sig nokkuð frá hinum tveimur og íleiri slíkum, sérhæft sig að mestu í rokki og þá langmest í þungarokki, en hefur í seinni tíð nálgast þau með breyttum tíma og áherslum, þó enn sé munurinn merkjanlegur. Eru þessi þrjú blöð nær sammála um bestu plötuna í ár, þ.e. að hana eigi Manic Street Preachers með Ev- erything Must Go. Er hún á toppn- um hjá bæði Vox og Melody Maker (og reyndar víðar líka) og lendir í öðru sæti hjá Kerrang. Þar er það aðeins hin afbragðsgóða popprokk- plata Screaming Trees (sem nú virðist vera södd lífdaga, jafnvel hætt) Dust, sem þykir vera betri. Er það orðinn kapítuli út af fyrir sig hversu vel Manic Street Preachers hefur gengið og þá sérstaklega nú tvö síðustu árin, eða frá því að sag- an virtist vera öll hjá sveitinni þeg- ar annar gítarleikari hennar, Rich- ey James Edwards, hvarf sporlaust frá hóteli í London. Hefur upp frá því allt gengið upp hjá sveitinni. Ekki aðeins er Everything Must Go að hljóta þessa viðurkenningu frá gagnrýnendum nú, heldur seldist hún mjög vel í samræmi við góða gagnrýni og var ein af þeim best seldu í sumar í Bretlandi. Aðrir listamenn, sem áttu plötur hjá fleiri en einu þessara blaða á lista og hjá fleirum, eru svo t.d. Tricky, Suede, Skunk Anansie o.fl. Manic Street Preachers hátt skrifaðir sem aldrei fyrr eftir árið 1996. Gylfasönavar Blur byrja nýtt ár af krafti með útgáfu á nýju lagi. Blur á fulla ferð - og Bofcnleðja hitar upp s slandsvinirnir í bresku stór- hljómsveitinni Blur, Damon Albarn og félagar, ætla að taka daginn snemma, ef svo má segja og ætla sér greinilega að byrja hið nýja ár, 1997, með miklum látum. Ný smáskífa, Beatlebum, kemur nefnilega út nú eftir röska viku, þann 20 og er hún forsmekkur af því sem koma skal í næsta mánuði. Þar er að sjálfsögðu átt við nýju stóru plötuna, sem eins og allir aðdáendur hljómsveitarinnar hér á landi vita, var að hluta tekin upp hér á landi síðasta sumar, en svo að öðrum huta í London. Um er að ræða 14 laga plötu, sem að líkindum mun eftir því sem best fæst vitað ein- faldelga nefnast eftir hljóm- sveitinni sjálfri, eða þá eftir smáskífulaginu, Beatlebum. Á geislaútgáfunni af smáskífunni verður eitthvert viðbótargóð- gæti í kaupbæti, auk þess sem fyrir þá sem engan eiga ennþá geislaspilarann (þeir eru ennþá mjög margir í hinu fátæka Bret- landi) verður um 7 tommu vín- ilútgáfu að ræða, í rauðum lit, sem safnarar ýmsir kunna einnig að girnast. Og sam- kvæmt fréttum sem bárust fyrr í vikunni, um líkt leyti og þessi orð voru rituð, mun Blur halda í tónleikaferð um Bretland ásamt engri annarri en hinni ís- lensku Botnleðju. Þeir piltar þrír hituðu einmitt m.a. upp fyrir Blur á tónleikunum hér heima í haust og hafa greini- lega fallið Damon og félögum vel í geð. Þarf vart að fara mörgum orðum um hversu mikil upphefð þetta er fyrir Botnleðju, en hana eiga þeir hins vegar svo sannarlega skil- ið, sem ein allra framsæknasta sveit landsins. Gylfa Ægisson tónlistar- myndlistar, sjó- og síðast en ekki síst skotkeppnismann frá Siglufirði, (ekki frá Vestmanna- eyjum eins og svo margir halda, þó Gylfi hafi reyndar lengi dval- ist þar og samið mörg af sínum Gylfi Ægisson sendi frá sér ágætt safn laga sinna fyrir jólin. þekktari lögum í tengslum við eyjarnar) þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni, sem á annað borð er eitthvað kominn til vits og ára. Gylfi, sem varð fimmtugur seinni part nýliðins árs, er án efa með þekktari tón- listarmönnum þjóðarinnar og tvímælalaust einn af fremstu og afkastamestu tónsmiðum henn- ar á poppsviðinu. Sá maður er varla til sem ekki þekkir lög á borð við Minning um mann, Stolt siglir fleyið mitt, íslensku sjómenn, Ég er bátsmanns- glanni, Rauðhetta (úr sam- nefndu söngævintýri, sem varð geysivinsælt og skartaði m.a. Hemma Gunn. og Páli Óskari Hjálmtýssyni barnungum), Hinsta bæn blökkukonunnar, Þjóðhátíðarlagi Vestmanneyja 1974 o.s.frv., o.s.frv, að ógleymdu í sól og sumaryl auð- vitað, sem líklega verður að teljast allra þekktasta og vin- sælasta lag Gylfa í flutningi Hljómsveitar Ingimars Eydal og Bjarka Tryggva. Það Iag er ein- faldlega orðið sígilt og að margra mati eitt besta og fal- legasta dægurlag íslandssög- unnar. Skömmu fyrir jólin kom út safnplata með flestum þess- arra laga Gylfa, sem upptalin voru hér að framan og kallast hún, 20 bestu köstin. Þar er auðvitað skírskotað til sjó- mannsferilsins, en hann hefur án efa verið hvað ríkastur í lífi Gylfa og sjómannastéttin ætíð verið honum hugstæð. Söng- rödd Gylfa hefur aldrei verið talin sú besta sem heyrst hefur, en samt eins og hjá mörgum túlkaranum, staðið fyrir sínu. Það gerir hún líka enn og er platan ágæt söguleg heimild um Gylfa og hans mörgu söngva. • Það er ekki svo ýkja langt síðan að harmónikan var að- alhljóðfærið og í mörgum til- fellum það eina, í skemmt- ana- og dansleikjahaldi ís- lensku þjóðarinnar. Á seinni árum hefur hún nokkuð farið halloka fyrir kröfum um meiri tilburði við skemmtanahaldið, meiri íburð og hávaða o.s.frv., en er samt enn vel fyrir hendi og á sér að því er virðist töluvert stóran og dyggan fylgjendahóp. Plötur með „nikkutónlist“ koma líka alltaf annars slagið út og svo var nú fyrir nýliðin jól, er a.m.k. tvær slíkar litu dagsins ljós. • Karl Jónatansson hef- ur um ártuga skeið verið einn af kunnari nikku- spilurum landsins. Fyrir íjór- um árum gaf hann út ásamt hljómsveitinni Neistum snælduna Neistafiug og hefur hún verið uppseld um langa hríð. Vegna Qölda áskorana var snældan endurútgefin nú fyrir jólin í geislaplötuformi, þar sem Karl og Neistarnir, Ingi Karlsson trommari, Ed- win Caaber gítarleikari og Pétur Urbancic kontrabassa- leikari, fara á kostum í gömlu dönsunum og sí- gildri sveiflu. • Gömlu dansarnir og sérdansarnir hka, er nafnið á plötu sem Garð- ar Olgeirsson sendi frá sér fyrir jólin. Þar er að finna heil 19 lög með jafnmörgum danstilbrigð- um, þannig að um sann- kallaðan kjörgrip er að ræða fyrir aðdáendur gömlu dansanna og ann- arra sem hallast að nik- kunni. Karl Jónatansson og Neistar með Neistaflug að nýju.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.