Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Blaðsíða 6
6 - Þriðjudagur 21. janúar 1997
^Dagur-®mmm
Gróska
Sögulegur loftkastali
Frá fjölmennum fundi í Háskólabíói um helgina. Á innfelldu myndinni má m.a. sjá formann Stúdentaráðs, Vilhjálm K. Vilhjálmsson og dætur Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta íslands.
BValgerður
Jóhannsdóttir
eir sem mættu á stofnfund
Grósku um helgina virðast
ílestir sammála um að
þar sé kominn vísir að stórum
jafnaðarmannaflokki. Aðrir
sem einnig vilja kenna sig við
jafnaðarmennsku og félags-
hyggju, efast hins vegar mjög.
Það mættu á sjötta hundrað
manns í Loftkastalann í gamla
Héðinshúsinu í Reykjavík um
helgina og tóku þátt í stofnun
nýrra stjórnmálasamtaka.
Gróska - samtök jafnaðar-
manna og félagshyggjufólks var
formlega stofnuð með lófa-
klappi, samþykkt stefnuyílrlýs-
ing, lög og kosin 11 manna
stjórn.
Stofnfélagar í Grósku eru
tæp 3 þúsund. Ungliðahreyfing-
ar Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks eiga formlega aðild að
samtökunum, en auk þess
standa að þeim einstaklingar úr
Kvennalista og Pjóðvaka og
fleiri, þ.á.m. margir sem
starfað hafa með Röskvu í stúd-
entapólitíkinni og sennilega
dregur nafn nýju samtakanna
dám af því. Stefnuyfiriýsing
Grósku er birt á bls. 9, en Dag-
ur-Tíminn ræddi einnig við
marga sem voru á fundinum og
einnig nokkra sem ekki voru
þar.
Vel heppnað
„Vel heppnaður fundur, húsfyll-
ir. Það var það sem við stefnd-
um að og stemmningin var líka
í réttum anda,“ sagði Þóra Arn-
órsdóttir, sem vann að undir-
búningi Grósku og var kjörin í
stjórn hennar á laugardaginn.
„Þetta var ákveðinn prófsteinn.
Ef við hefðum floppað á stofn-
fundi hefði verið erfitt að
standa upp, en þetta hvetur
okkur enn meira.“
„Það er ekki hægt annað en
vera ánægður með þennan
fund,“ sagði Róbert Marshall,
formaður alþýðubandalagsfé-
lagsins Verðandi og einn forvíg-
ismanna Grósku. „Stórkostleg
mæting og mjög gott hljóð í
fólki.“ Hann er sannfærðari en
nokkru sinni áður, að draumur-
inn um stóran sameinaðan
jafnaðarmannaflokk verði að
veruleika. „Mér varð það eigin-
lega ljóst á fundinum á Bifröst
þegar við byrjuðum á þessu og
sagði þá að ég hefði aldrei verið
bjartsýnni á að þetta væri hægt.
Nú er ég að gæla við hvort ég
eigi að þora að segja að ég sé
nokkurn veginn viss um að við
munum bjóða fram saman í
næstu kosningum."
Ung og ánægð
„Ég kom bara af forvitni, til að
sjá hvort ekki væri eitthvað
rænulegt að gerast á vinstri
væng stjórnmálanna," sagði
Sigríður Kristinsdóttir við Dag-
Tímann og bætti við að sér litist
mjög vel á Grósku og hefði trú á
að hún væri vísir að öðru og
meira. „Mér finnst þetta hafa
alla burði til þess. Það er mikill
og góður jarðvegur og mér sýn-
ist á fólkinu sem er hér að það
sé úr öllum geirum."
Dalla Ólafsdóttir hefur verið
áhugasöm um samfylkingu fé-
lagshyggjufólks í landinu og var
mjög ánægð með fundinn.
„Þetta var skemmtilegt og það
var baráttuandi í fólki og
greinilega mikill kraftur."
„Ég hef alltaf verið fylgjandi
því að jafnaðarmenn samein-
ist,“ sagði Ingvar Sverrisson.
„Ég hef starfað með Reykja-
víkurlistanum lengi og er mikill
áhugamaður um bætt þjóðfélag
og held að það gerist í gegnum
stóran og sterkan jafnaðar-
mannaflokk. Og þessi fundur er
það stórt skref, að það er ekk-
ert sem getur stöðvað þetta
héðan af.“
Friðrik Gunnar Bergsen virt-
ist á sama máli. „Ég kom til að
vera vitni að sögunni og til að
taka þátt í þessari gerjun. Ég
væri ekki hér, ef ég hefði ekki
trú á að stór jafnaðarmanna-
flokkur verði að veruleika.“
í sögubækur
Flestir sem sóttu fundinn á
laugardaginn voru innan við
þrítugt, en þó nokkrir heldur
lífsreyndari. Þar á meðal Helgi
Pétursson, tónlistarmaður og
fyrrverandi Framsóknarmaður.
Hann segist lengi hafa fylgst
með umræðunni um samein-
ingu félagshyggjufólks og „Nú
loksins sé ég á blaði áhersluat-
riði, sem ég held að mikill Qöldi
fólks geti orðið sammála um.
Það var akkúrat eitthvað svona
sem ég vildi sjá..“
Páll Halldórsson, fyrrverandi
formaður BHMR, sagðist lengi
hafa reynt að vinna að sam-
einingu jafnaðarmanna og þvi
talið bæði rétt og skylt að mæta
á Grósku fundinn og hann sá
ekki eftir því. „Mætingin er góð.
Fólk er að taka í burtu klisjur
fortíðarinnar og horfir fram á
veginn og full ástæða til að ætla
að þetta gangi vel.“
„Ég kom af því ég trúi á fé-
lagshyggju og hugsjónir henn-
ar,“ sagði Sigmar Hróbjartsson,
sem er að verða áttræður en
ekki of gamall til að berjast fyr-
ir hugsjónum sínum og trúir því
að ungmennunum takist ætlun-
arverk sitt. Það gerir einnig
Kristín Á Ólafsdóttir, stjórnar-
formaður Sjúkrahúss Reykja-
víkur. „Framtíðin er hér og ég
únynda mér að þessi dagur
verði í sögubókunum á næstu
öld, sem dagurinn þegar lögð
voru drög að nýjum flokki jafn-
aðarmanna og félagshyggju-
fólks.“
Fiktað við Framsókn
Valdimar Leó Friðriksson er ný-
byrjaður að flkta við að starfa
með Framsóknarflokknum, eins
og hann orðaði það sjálfur, en
ákvað að kíkja á stofnfundinn.
„Ég er mikið félagsmálafrík og
fylgist vel með öllu svona og
kom til að sjá hvort þetta höfð-
aði til mín eða ekki, en þetta er
of vinstri sinnað fyrir mig,“ seg-
ir Valdimar sem tók þá ákvörð-
un á fundinum að halda áfram
„fikti" sínu við Framsókn-
arflokkinn. Hann er engu að
síður sannfærður um að Gróska
eigi framtíðina fyrir sér. „Já ég
er alveg sannfærður um það.
Þetta verður stór og sterkur
flokkur. Það er spurning hvað
þessir gömlu gera. Hvort Sig-
hvatur og þeir leyfa þessu ekki
að þróast. Ég held að þeir gætu
þess vegna orðið jafnstórir
Framsóknarflokknum í næstu
kosningum.“
>>Ég er sjálfstæðismaður og
er hér svona til að kynna mér
hvað er að gerast í herbúðum
óvinarins;" sagði spaugarinn
Jón Gnarr, sem var kynnir á
stofnfundinum ásamt Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur leikkonu. „Ég
sagði þegar ég var beðin um að
kynna hér að ég væri farin að
narta í bláa fánann. En ég
fagna því samt að það sé verið
að stofna hér mótherja hægri
flokksins. Það er í raun bara
eitt afl í gangi og þarf sterkari
hóp á móti þeim, sem sér um
öllu góðu málin.“
Æðibunugangur
og dónskapur
Fundurinn í Loftkastalanum
var ekki sá fyrsti sem haldinn
hefur verið til að sameina jafn-
aðarmenn. Fundargestir virtust
samt flestir sannfærðir um að
Gróska eigi eftir að verða ann-
að og meira en loftkastalar
ungs fólks. í flokkum „full-
orðna“ fólksins, eru hins vegar
ekki allir jafn hrifnir, þótt for-
menn A-flokkanna hafi báðir
lýst yfir stuðningi við Grósku.
Tveir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins, Iljörleifur Guttormsson
og Ögmundur Jónasson, neit-
uðu að skrifa undir stuðningsyf-
irlýsingu, sem birtist fyrir fund-
inn og innan Kvennalista eru
mjög skiptar skoðanir. „Það er
gott að fólk reyni að vinna sam-
an að góðum málefnum, en tak-
markið má aldrei verða það eitt
að ná völdum og smíða stofnan-
ir utan um eigin völd. Því miður
hefur mér fundist þessi samein-
ingarumræða einkennast alitof
mikið af því. Það er innihaldið,
sem skiptir máli og þar til búið
er að sannfæra mig um að ég
eigi hugmyndalega samleið
með þessu, þá stend ég til hlið-
ar,“ segir Ögmundur.
„Það eru mjög skiptar skoð-
anir innan Kvennalistans um
þetta samstarf og framhaldið,"
segir Kristín Ástgeirsdóttir,
þingkona. Hún er ósátt við
framkomu Gróskumanna og
yfirlýsingar t.d. um stjórnmála-
menn og flokka og telur þær
hafa einkennst af dónaskap.
Hún er heldur ekki mjög hrifin
af stefnuyfirlýsingu Grósku.
„Mér finnst þetta ákaflega hefð-
bundið og sé fáar nýjar hug-
myndir. Þetta fólk er að saka
stjórnmálamenn um að spyrja
ekki einu sinni réttu spurning-
anna, en ég fæ ekki séð að þau
séu að því. Þetta er allt saman
mjög gamalkunnugt. Þau segja
líka að tími umræðna sé liðinn
og tími aðgerða runninn upp,
en mér vitanlega er umræðan
ekki einu sinni hafin. Mér fínnst
þetta einkennast af svolitlum
æðibunugangi."