Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Blaðsíða 9
jOagur-®ínúrat Þriðjudagur 21. janúar 1997 - 9 PJÓÐMÁL Groska er hugsjónabandalag 1 Róbert Marshall í ^ rœða á stofnfundi * dag kveðjum við fortíðina. Við höfum sagt að tími um- ræðu sé liðinn og að tími aðgerða sé hafinn. Það þýðir að það verður ekki lengur talað um sameiningu vinstri manna án þess að orðin hafi meiningu, án þess að hugur fylgi máli. Sá mikli fjöldi sem hefur síð- ustu mánuði unnið að stofnun Grósku á sér sameiginlega hug- sjón, hugsjón sem er lífsblóm. Og þegar maður á sér lífsblóm þá byggir maður hús, sagði Bjartur í Sumarhúsum. Hér byggjum við hús og köllum það Grósku. Gróska er öllum opin en ekki án skilyrða: Við biðjum ykkur um að ganga vel um. Hér inni eru jafnaðarmenn, vinstri menn, félagshyggjufólk og eins og maðurinn sagði: AJlir jafnir. Það eru íjórir stjórnmálaflokkar á íslandi sem berjast fyrir fé- lagslegu réttlæti, við erum bak- land þeirra allra, samviska þeirra og viljum að þeir bjóði fram saman í næstu alþingis- kosningum. Það er ástæða til að árétta að ungu fólki í Framsóknar- flokknum hefur ekki verið hald- ið frá undirbúningi þessara samtaka. Það er ljóst að mikill Það eru fjórir stjórnmálaflokkar á íslandi sem berjast fyrir félagslegu réttlæti, við erum bakland þeirra allra, samviska þeirra og viljum að þeir bjóði fram saman í næstu alþingiskosningum. Qöldi fólks innan Framsóknar- flokksins hefur áhuga á þátt- töku í samstarfi á vinstri væng íslenskra stjórnmála. Það er fólk innan Framsóknarflokksins sem skilgreinir sig sem félags- hyggjufólk. Það fólk verður að gera það upp við sig hvort það ætlar að eftirláta forystu síns flokks að dæma sig tU hægri í íslenskum stjórnmálum hér eft- ir. Frá því við íögðum upp frá Bifröst hér um árið höfum við sannreynt þá staðreynd að sameiginlegt framboð jafnaðar- manna mun aldrei verða, getur aldrei orðið grautur málamiðl- ana utan um valdabandalag. Að þessu leytinu eriun við frá- brugðin Sjálfstæðisflokknum sem er höfuðandstæðingur fé- lagslegs réttlætis hér á landi. Við erum í politík af hugsjón, ekki vegna hagsmuna. Gróska er hugsjónabandalag, ekki blóðlaust hagsmunabandalag eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Það er í slíkum hugleiðingum sem sjálfið gleymist og hættir að vera til. Það eru æðri hags- munir, það eru til hugsjónir sem snerta ekki beint einstak- linginn sjálfan heldur það um- hverfi sem hann býr í. Hugsjón- in um sameinaða jafnaðarmenn er ekki hugsjón í sjálfri sér heldur er hún önnur og stærri, Það er ástæða til að árétta að ungu fólki í Framsóknarflokkn- um hefur ekki verið haldið frá undirbún- ingi þessara sam- taka. Mikill fjöldi fólks innan Fram- sóknarflokksins hefur áhuga á þátt- töku í samstarfi á vinstri væng ís- lenskra stjórnmála. hún er hugsjónin um réttlátt þjóðfélag. Sameining félags- hyggjufólks er aðeins forsenda réttláts þjóðfélags. Hún er for- senda framsækni og hagsældar. Hún er forsenda þess að draumar rætist, að loftkastalar verði að húsum. í hreyfingu sem starfar í anda lýðræðis er eðlilegt að þrífist ólíkar skoðanir. Það er eðli slíkrar breiðfylkingar. Þannig mótum við stefnu, stefnu sem inniheldur mark- miðin rnn jöfnuð, kvenfrelsi og réttlæti. Þannig er það líka í þeim flokkum sem kenna sig við félagslegt réttlæti, þar þríf- ast ólík sjónarmið sem verða að sameiginlegri stefnu heildar- innar. Við verðum að endurreisa trú fólksins á að það skipti máh að taka þátt í stjórnmálum. Að fjöldinn geti haft áhrif, að al- menningur skipti máli. Að fólk- ið ráði. Það er lýðræði. Það þýð- ir að fólkið ráði, að réttlætið ráði. Og réttlæti, er hið mikla verk manna hér í heimi. Úr yfirlýsingu stofnfundar Grósku Lífið og stjórnmálin eru eitt. Því eiga stjórnmál að bera vitni háleitum hugsjónum og einlægum vilja beisluðum af skynseminni einni. Þannig hefur það ekki verið á íslandi. Trú okkar á stjórn- málin minnkar sífellt. Trú á að stjórnmálamenn og stjórnmála- flokkar séu færir um að veita verðug svör við spurningum samtímans er hverfandi. Þeir eru ekki einu sinni að spyrja réttu spurninganna! Innihaldið er horfið. Siðferðið er í kröm. Of margt hefur farið úrskeið- is í þessu landi. Staðreyndir eru að koma í ljós: Um fjársvelti menntakerfisins, um launaórétt kvenna, launamun íslendinga innanlands sein og í saman- burði við nágranna í löndunum í kring, um ríkidæmi örfárra byggt á sameign þjóðarinnar, um fátækt margra, um ofbeldi. Það er nauðsynlegt að skapa nýja pólitík. Pólitík með inni- haldi jöfnuðar, kvenfrelsis, rétt- lætis og farsældar. Pólitfk þar sem heilindi, skynsemi og ein- lægur vilji eru aðferðin. Við vilj- um kveðja flokkakerfi gærdags- ins og laða til starfa alla sem hafa hugsjónir jafnaðarstefn- unnar að lífsskoðun. Saman snúum við okkur að verkefnum sem þola enga bið. Saman setj- um við landi okkar nýja mæli- kvarða. Þess vegna stofnum við Grósku. Gróska leggur á það höfuð- áherslu að ríkissjóður er ekki einhver ópersónuleg hít sem allir mega ausa úr að vild. Stjórnmálamenn eiga að sýna ráðdeild og ábyrgð í meðferð opinbers Qár, það er frá okkur komið. Við lítum á ríkisrekstur- inn með gagnrýnum hætti og styðjum endurskoðun á honum. Það þarf að finna nýjar leiðir í ríkisrekstrinum með það fyrir augum að losa ríkið undan þeim verkefnum sem ekki þjóna grundvallarmarkmiðum um samfélag jöfnuðar og réttlætis. Við leggjum höfuðáherslu á að styrkja meginstoðir samfé- lagsins; menntakerfið og heil- brigðisþjónustuna. Tilflutningur verkefna, einka- og félagavæð- ing eru leiðir sem á að nota til þess að stýra verkefni ríkisins og fá aukið íjármagn til upp- byggingar á ýmsum sviðum vel- fer ð ar þj ónus tunn ar. Tryggja þarf að arður af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar til lands og sjávar skili sér til hennar, en ekki að- eins til fárra einstaklinga. Kvótabraskið hefur leitt til óþolandi eignatilfærslu frá okk- ur, hinum mörgu til hinna fáu. Jafnaðarmenn verða að koma sér saman um hvernig þessi eignatilfærsla verður stöðvuð. Gróska hafnar aðferð hins flata niðurskurðar sem óspart hefur verið notaður undanfarin ár. Stjórnmál snúast um val, stjórnmálamenn þurfa að hafa kjark til að velja og hafna. Flat- ur niðurskurður er merki um heigulshátt og er siðferðilega varasamur. íslenskir stjórnmálamenn hafa alltof lengi svikið há- stemmd loforð um eflingu menntakerfisins. Orð og efndir verða að fara saman. Það er kominn tími til að íjárfesta skynsamlega í mannauði. Gróska vill íjölbreytt og fram- sækið menntakerfi sem leggur jafna áherslu á iðn- og verk- nám sem og bóknám. Við uppbyggingu ferðaþjón- ustunnar má ekki ganga á landið og auðlindir þess, heldur nýta ávexti náttúrunnar og byggja upp ferðaþjónustu í öll- um landsíjórðungum sem legg- ur áherslu á óspillt land, sögu okkar og menningu. Ákvarðanir um stóriðju og aðrar stórfram- kvæmdir verður að taka með ímynd íslands sem óspillts, ómengaðs lands í huga. Vaxtar- möguleikum ferðamannageir- ans má ekki stefna í voða með vanhugsuðum framkvæmdum. Við viljum opna og fordóma- lausa umræðu um Evrópumál. í þeirri umræðu mega slagorð og kraftaverkalausnir ekki gegna lykilhlutverki. Gróska telur eðli- legt að þjóðin fái að kjósa um það í sérstakri atkvæðagreiðslu hvort ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Að sjálfsögðu yrði síðan þjóðarat- kvæðagreiðsla um inngönguna ef til þess kæmi. Atlantshafsbandalagið er stöðugt að breytast með breyttri heimsmynd. Afstaða Grósku er sömuleiðis í stöðugri endurskoðun og við félagar í Grósku erum sammála um að vera ósammála um NATÓ. Skynsamleg nýting náttúr- unnar og verndun hennar eru markmið sem verða að liggja til grundvallar í allri ákvarðana- töku í stjórnmálum á nýrri öld. Öll mál eru umhverfismál. Gæta verður þess að ákvæði stjórnarskrárinnar um trúfrelsi séu virk í reynd. í umræðunni um aðskilnað ríkis og kirkju þarf að ræða samfélagsþjón- ustu kirkjunnar, eignaskiptingu og margt fleira. Atvinnulífinu á að setja rammalöggjöf um samkeppni og eðlilega viðskiptahætti. Ein- falda banka- og sjóðakerfi ríkis- ins. Símenntun og rannsóknir eru forsendur fyrir því að at- vinnulífið sé framsækið og skapi þjóðinni arð. Virka löggjöf þarf gegn hringamyndun og fá- keppni. Öflug lýðræðisleg samtök launafólks eru nauðsynleg í sókn til jöfnuðar og mannúðar í samfélaginu. Allir íslendingar eiga rétt á skólavist, allt frá leikskóla til háskóla, til að sækja sér þekk- ingu og menntun sem hugurinn stendur til. Okkur ber skylda til að skapa æskunni friðsamt, hættulítið, vímuefnalaust um- hverfi til að alast upp í þar sem allir hafa möguleika á að þroska og nota hæfileika sína. Til að halda uppi öflugu menningarlífi þarf stuðning frá ríki og einkaaðilum við fjöl- breytta innlenda menningar- starfsemi svo sem Sinfóníu- hljómsveitina, atvinnuleikhúsin, íslensku óperuna, kvikmynda- gerð, frjálsa leikhópa, unga listamenn og margt fleira. Skattaívilnanir er ein af leiðun- um til að auka framlög til lista í landinu. ísland marki sjálfstæða stefnu í utanríkismálum, beini kröftum sínum aðallega að til- teknum sviðum eins og mann- réttindamálum og réttindum smáþjóða. Þróunaraðstoð og virðing fyrir alþjóðasáttmálum eiga að vera eitt af aðalatriðun- um í stefnu okkar í utanríkis- málum sem á ekki aðeins að byggja á meintum eiginhags- munum heldur einnig að hafa siðferðilegt innihald. Ef hófsemi og heiðarleiki, ásamt virðingu fyrir sannleika og réttlœti eru hornsteinar stjórnmálalífs verður árangur- inn gott þjóðfélag. Og góður stjórnmálamaður má aldrei gleyma því, að mikilvœgari en kerfi, mikilvœgari en stjórn- kerji, mikilvœgari en hagkerfi er maðurinn sjálfur. (Gylfi Þ. Gíslason). Stjórn Grósku.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.