Dagur - Tíminn Akureyri - 21.01.1997, Blaðsíða 5
Jtagin'-®ínmtrt
Þriðjudagur 21. janúar 1997 - 5
IiTslíknr
fyrirbura
stóraukist
F R E T T I R
Keflavík
Keflvíkmgar byggja
42 nemaíbúðir við KÍ
Framkvæmdir hefj-
ast í febrúarbyrjun
við byggingu 42ja
námsmannaíbúða á
lóð Kennaraháskól-
ans en grenndar-
kynning stendur
fyrir dyrum.
Meira en helmingur okk-
ar nemenda er af
landsbyggðinni og gíf-
urlegt hagsmunamál fyrir þá að
geta átt aðgang að húsnæði ná-
lægt skólanum,“ sagði Pórir Ól-
afsson, rektor Kennaraháskól-
ans, spurður vegna aðildar
skólans að umsókn um leyfi til
byggingar 42ja nemendaíbúða í
3ja hæða ijölbýlishúsi á lóð
skólans, horninu gegnt ísaks-
skóla. Rektor sagði nýtt deili-
skipulag af svæðinu hafa verið
forsendu þess að skólinn sam-
þykkti að láta hluta af lóð sinni
undir nemendaíbúðir. En Bygg-
ingarfélag námsmanna stendur
alveg fyrir þessum framkvæmd-
unum og fjármögnun þeirra.
Guðmundur Ingi Jónsson hjá
Byggingarfélagi námsmanna
segir væntanlega byggingu í
grenndarkynningu hjá eigend-
um um 10 húsa við Bólstaðar-
hlíð, Úthlíð og Skaftahlíð.
Framkvæmdir heíjist svo
væntanlega í byrjun febrúar.
Hagstæðasta tilboðið af flmm
sem félagið fékk eftir alútboð
reyndist frá Húsanesi í Kefla-
vík, sem ætlar að byggja 42
íbúðir í 3ja hæða húsi, samtals
um 2.560 m2, fyrir 204 milljón-
ir, eða tæpfega 80 þús.kr. á fer-
metra. Þetta þýðir tæplega 4,9
m.kr. á meðalíbúð.
Guðmundur Ingi segir gífur-
lega eftirspurn eftir nemenda-
íbúðum. Enda sé leigumarkað-
urinn í Reykjavík mjög þröngur,
verðið hátt og leiguna óörugga.
Leiga hjá félaginu verði líklega
kringum 29.000 kr. á mán. auk
rafmagns og hita. Að frádregn-
um húsaleigubótum getur hún
farið niður undir 18 þúsund á
mánuði.
Spurður um fjármögnunina
segir Guðmundur Ingi 86,5%
koma úr Byggingasjóði verka-
manna, 3,5% frá Reykjavíkur-
borg, en 10% verður félagið að
fjármagna sjálft, og raunar
meira því margt sem kemur í
íbúðirnar er ekki lánshæft.
Fjármögnun félagsins byggist
aðallega á félagsgjöldum. Hver
nemandi í aðildarskólum þess
(9 sérskólar á höfuðborgar-
svæðinu) borgi 1.400 kr. á ári
til Byggingarfélagsins.
Lífslíkur fyrirbura innan við
1.500 gr. hafa aukist á
tveim áratugum úr 50 upp
í 80-90% að undanförnu
Af 455 börnum undir 1.500
gr. við fæðingu sem lögð voru
inn á vökudeild Barnaspítala
Hringsins síðustu tvo áratugi
(1976-95) lifðu alls 65%. Þessi
hópur var aðeins rúmlega 0,5%
allra lifandi fæddra barna á
umræddu tímabili, en eigi að
síður var hlutur hans um 25% í
burðarmálsdauða. Lífslíkur
þessara fyrirbura hafa farið
stórum vaxandi, úr um 50% í
byrjun tímabilsins upp í 80-90%
síðustu árin.
Þetta er hluti af niðurstöðum
rannsókna Hauks Bergsteins-
sonar og fleiri lækna vökudeild-
ar, sem sagt var frá á ráðstefnu
Læknadeildar Ilí fyrstu helgi
nýja ársins og einnig í fylgiriti
Læknablaðsins.
Lífslíkur þessara fyrirbura
eru mjög háðar lengd
meðgöngu og fæðingarþyngd,
sem vænta má. Lífslíkur
minnstu barnanna hafa aukist
hlutfallslega mest. Af þeim
börnum sem voru undir 1.000
gr. við fæðingu lifðu alls 33% á
tímabilinu í heild. En eftir 1990
hafði það hlutfall hækkað í
63%. Lífslíkur 1.000 til 1.500
gr. barna jukust á sama tíma úr
87 upp í 94%.
Suður-Þingeyjarsýslur:
Erlendir ferðamenn
um jól og áramót
að heyrir til tíðinda að
erlendir ferðamenn
heimsæki Þingeyjar-
sýslur um jólin og áramótin,
en það var einmitt það sem
gerðist um nýliðnar hátíðar.
Tilkoma ferðaþjónustufyr-
irtækisins Fjallasýnar ehf,
sem sérhæfir sig í vetrarferð-
um hvers konar, breytir
verulega hefðbundna sumar-
ferðamannatímanum því
ferðir Fjallsýnar miðast við
tímabilið sept. til júní ár
hvert. Það eru þeir Björn
Hólmgeirsson á Húsavík og
Rúnar Óskarsson Reykja-
hverfi, sem eiga og reka
Fjallasýn og segir Rúnar
mest vera farið í Mývatns-
sveit, Jökulsárgljúfur og
Þeistareyki og voru erlendir
ferðamenn á vegum Fjalla-
sýnar á ferðinni á Þorláks-
messu og gamlársdag við
Dettifoss og Jökulsárgljúfur
og er það örugglega eins-
dæmi í ferðaþjónustunni á
þessum árstíma. Rúnar segir
mikið farið á snjósleðum upp
á heiðarnar og dorgveiði
bæði á Langavatni og á Mý-
vatni vinsæl dægradvöl.
Áhugi virðist einnig vera fyr-
ir skipulögðum gönguferðum
og gönguferðum á skíðum.
Mjög mikið berst af fyrir-
spurnum um alls konar ferð-
ir, hópar sem hafa áhuga á
óhefðbundnum fundarhöld-
um t.d. í helli á Þeistareykj-
um eða í skálum á heiðunum
svo eitthvað sé nefnt. Hver
veit nema afmælisveislur og
árshátíðir framtíðarinnar
verði haldnar uppi á heiðum
jafnvel í helli og farið á snjó-
sleðum til herlegheitanna.
Það er alla vega öðruvísi ekki
satt? GKJ
Bæjarsjóður Ólafsfjarðar
Afborgun langtímalána
40% lægri en búist var við
Fjárhagsstaða Ólafsfjarðar-
bæjar er mjög slæm um
þessar mundir en IJálfdán
Kristjánsson, bæjarstjóri, segir
engin rök fyrir því að bæjarfé-
lagið sé að lenda í
„gjörgæslu" Fé-
lagsmálaráðuneyt-
isins. Það hafa orð-
ið örlög nokkurra
sveitarfélaga á
undanförnum ár-
um.
„Bæjarsjóður
getur ekki greitt
niður nema milli
25 og 30 milljónir
af lánum en þrátt
fyrir það eru allar líkur á að
það markmið sem sett var á
kjörtímabilinu náist. Reksturinn
kæmi betur út en gert var ráð
fyrir á sl. ári ef bæjarsjóður
hefði ekki orðið fyrir áföllum
vegna keramikverksmiðjunnar
Glits hf. og sjávarafurðaverk-
smiðjunnar Sævers hf., 25 millj-
ónir króna hjá hvoru fyrirtæki
fyrir sig. Stefnt var að því að
lækka langtímalán um 50 millj-
ónir króna á kjörtímabilinu og
því Ijóst að það næst ekki,“
sagði Hálfdán Kristjánsson.
Bæjarstjóri segir að verið sé
að skoða rekstur áhaldahúss
bæjarins en ekki séu líkur á að
rekstur þess verði lagður niður
líkt og gerðist á Dalvík og þjón-
ustan keypt af verktökum.
Starfsmenn veitnanna og
áhaldahúss eru 4 talsins og
segir bæjarsljóri vandséð
hvernig hægt sé að komast af
með færri starfsmenn auk þess
sem oft sé mikið að gera hjá
verktökum og því erfitt að fá þá
þjónustu keypta með litlum fyr-
irvara. GG
Hálfdán Kristjánsson
bæjarstjóri Ólafsfjarðar
„Líkur á að markmið í
niðurgreiðslum langtíma-
lána náist þrátt fyrir 50
milljóna króna áfall á síð-
asta ári“.
Akureyri
Veður spillti aðsókn að Vetrarsporti ’97
Véður dró úr aðsókn að
Vetrarsporti ’97 á Akur-
eyri, þar sem sýnt var
allt það nýjasta og væntanlega
Yamaha-véisleðar
hlutu viðurkenning-
ar sem verklegustu
og fallegustu sleð-
arnir á sýningunni.
besta í vélsleðum og vörum
tengdum útivist. Talið er að um
1.400 manns hafi borgað sig
inn á sýninguna, sem er svipað-
ur fjöldi og í fyrra. Aukning
vegna jeppasýningar sem nú
var í fyrsta sinni skilaði sér því
ekki, en talið er að um 200
utanbæjarmenn hafi komið á
sýninguna en reiknað var með
allt að 600 manns. Fólk sem
sést hefur ár eftir ár á þessum
sýningum, t.d. vestan frá Sauð-
árkróki og Blönduósi og austan
úr Mývatnssveit og Vopnafirði
var nú ijarri góðu gamni.
Á árshátíð LÍV á laugardags-
kvöldið voru valdir verklegasti
og fallegasti vélsleðinn og
hreppti Yamaha báðar viður-
kenningarnar. Sams konar út-
nefnding fór fram á jeppum, og
var Land-Cruiser GX valinn
verklegasti jeppinn en Sang
Yong Musso E-32 sá fallegasti.
GG